Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1992, Page 24
24
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992.
Skák
Helgi Ólafsson atskákmeistaii Reykjavíkur:
Mátaði Timman í
beinni útsendingu
Hannes Hlífar þrettándi á HM unglinga
Hollenski stórmeistarinn Jan
Timman hefur ekki sótt gull í
greipar Helga Ólafssonar er þeir
hafa mæst við skákborðið. Timman
haíði betur fyrst er þeir tefldu, á
Reykjavíkurskákmótinu 1976, en
síðan vann Helgi tvisvar í röð - á
alþjóðamóti í Lone Pine í Kaiiforn-
íu 1978 og á ólympíuskákmótinu á
Möltu 1980. Tveimur síðustu skák-
um þeirra lauk með jafntefli, á
ólympíumótinu í Þessalóniku 1984
og á IBM-mótinu í Reykjavík 1987.
Sl. sunnudag mátti Timman aftur
þola ósigur gegn Helga er þeir
tefldu atskákeinvígi í beinni út-
sendingu á Stöð 2. Timman tókst
að vinna fyrri skákina en Helgi
jafnaði og í 7 mínútna úrslitaskák
gerði Helgi sér lítið fyrir og mátaði
Timman!
Margir hafa htið á Timman sem
óopinberan heimsmeistara í atskák
eför sigurinn á Immopar-atskák-
mótinu mikla í París fyrir réttu
ári. Hvort „heimsmeistaratitillinn“
var lagður að veði í upptökusal á
sunnudag skal ósagt látið en sigur
Helga var afar sannfærandi og
raunar htih heimsmeistarabragur
á taflmennsku Timmans.
Einvígi Helga og Timmans var
sýningareinvígi í tilefhi atskák-
móts Reykjavíkur en úrshtaeinvígi
þess var sýnt í beinni útsendingu
á Stöð 2 á laugardag. Þar bar Helgi
sigurorð af Friðriki Ólafssyni eftir
spennandi skákir. Fyrri skákina
vann Helgi sannfærandi en átti tap-
að tafl í þeirri seinni þar til honum
tókst að snúa á Friðrik í tímahrak-
inu. Friörik sýndi á mótinu að
hann kann enn sitthvað fyrir sér,
þótt lítið hafi farið fyrir tafl-
mennsku hans síðustu ár. í undan-
rásum hafði Friðrik betur gegn
Margeiri Péturssyni en Helgi vann
Jóhann Hjartarson.
Taflfélag Reykjavíkur stóð fyrir
atskákmótinu, eða „Búnaðar-
bankamótinu“ eins og þaö var
nefnt, en það var jafnframt firma-
keppni. Keppendur drógu fyrirtæki
og tefldi Helgi fyrir Radíóbúðina,
Friðrik fyrir Ohs, Margeir fyrir
VISA og Jóhann fyrir Lind. Fyrir
sigurinn gegn Timman fékk Helgi
hundrað þúsund króna vöruúttekt
hjá Radíóbúðinni.
Skoðum seinni atskák Helga og
Timmans. Timman tefldi byrjun-
ina ekki sem nákvæmast og lendir
fljótt í miklum erfiðleikum.
Hvitt: Helgi Ólafsson
Svart: Jan Timman
Drottningarindversk vörn.
1. d4 Rf8 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. e3 c5
5. Bd3 cxd4 6. exd4 Bb7 7. Rc3 Be7
8. 0-0 6-0 9. Hel Rc6?
Þau mistök urðu síðasta laugardag að röng mynd birtist með skákþættinum. í stað myndar af heimsmeistar-
anum fyrrverandi, Alexander Aljekín, að tafli við finnska skákmeistarann Eero Böök, gat að Ifta nokkra kepp-
endur á móti I Helsinki um áramótin 1934-35. Hér sitja hins vegar Aljekín og Böök og er myndin tekin á
alþjóðamótinu i Margate 1938.
Skák
Jón L. Arnason
Timman freistar þess að flækja
máhn í staö þess að leika 9. - d5,
eða 9. - d6 með þokkalega traustu
tafli.
10. d5 exd5 11. cxd5 Rb4 12. Bc4 Hc8
13. Bb3 Bc5? 14. a3 Rá6 15. Bg5 h6
16. Bh4
Svörtu mennimir eru svo flarri
vígvellinum á kóngvæng að 16.
Bxh6 með hugmyndinni 16. - gxh6
17. Dd2 væri athugandi, ef svartur
ætti ekki svarið 16. - Bxf2+! 17.
Kxf2 Rg4+ og næst 18. - Rxh6.
16. - g5 17. Bg3(?)
Helgi hafnaði mannsfóminni 17.
Rxg5! hxg518. Bxg5 vegna 18. - Kg7
og ef 19. Re4 Rxe4!, eða 19. Df3
Hh8! 20. Re4 Rxe4! 21. Bxd8 Bxf2+
o.s.frv. En leikur Friðriks, 20. He4!
er erfiður viðiu-eignar. Timman
taldi fómina á g5 ekki standast en
hann er frægur fyrir að meta stöð-
ur sínar heldur hátt.
Eftir textaleikinn er svartur svo
sem ekki sloppinn úr vandanum.
17. - Rh5 18. Bc2 Rxg3 19. Dd3 f5 20.
hxg3 Df6 21. g4! Rc7 22. gxf5 Ba6 23.
Dd2 Rb5 24. Re5 Rd4 25. Rxd7 Dd6
26. Rxc5!
ekki 26. Rxf8?? Rf3+! 27. gxf3
Dg3 +
26. - bxc5
I I*
A
.é. w H!
* A A I
■
A th
Ai A A
2 &
27. He6! Rxe6 28. fxe6
Hvitur á vinningsstöðu.
28. - Hf4 29. Hel Hd4 30. De3 Df4 31.
Dxf4 gxf4 32. Ba4 Bd3 33. e7 Bg6 34.
e8=D + Bxe8 35. Bxe8 Hb8 36. He2
Og Helgi vann auðveldlega.
í úrshtaskákinni lék Timman sig
í mát í leiknum en var þá með tap-
að tafl. Eftir 29 leiki var þessi staða
á borðinu, Helgi hafði hvítt og átti
leik:
1II
£ A i£jr II A
A i« &
A ■ A <±>
& X A
2
TIL LEIGU
í AUSTURBORGINNI
Skrifstofu- og lagerrými í nýju húsi til leigu.
Stærð húsnæðisins er 334 m2, þ.e. skrifstofurými 167
m2 og lagerrými 167 m2. Góð aðkoma er að húsinu
og er það mjög vel staðsett við eina aðalumferðar-
götu borgarinnar. Næg bílastæði. Til afhendingar í
desember nk. Samkomulag um leigutíma. Aðeins
traustir aðilar koma til greina. Sanngjarnt leigugjald.
Upplýsingar veittar í síma 685000 á skrifstofutíma.
30. Hacl! Hxb2 31. Hc7 Bc4?
Hugmynd Timmans er að svara
32. Hxa7 með 32. - He8 og verja
áttundu reitaröðina. Erfitt er að
benda á haldgóða vöm fyrir svart-
an í stöðunni. Ef strax 31. - He8 er
32. Dxd5 hagstætt hvítum.
32. Dd8+ Kh7?
Engu breytir svo sem 32. - Kg7
33. Hc8 og svartur verður að gefa
drottninguna til að afstýra máti.
33. Hxf7 mát!
Heimamaður varð
heimsmeistari
Hannes Hlífar Stefánsson er ný-
kominn heim frá Buenos Aires í
Argentínu, þar sem fram fór
heimsmeistaramót unglinga 20 ára
og yngri. Hannesi gekk vel framan
af og var efstur við þriðja mann að
loknum átta umferðum. En þá fór
að halla undan fæti og að lokum
hafnaði Hannes í 13. sæti af 54
keppendum.
Heimsmeistari unglinga varð
Argentínumaöurinn Pablo
Zamicki, sem fékk 10 vinninga af
13 mögulegum. ísraelsmaðurinn
Vadim Milov varð jafn honum að
vinningum en lægri á stigum. Suð-
ur-Afrikumaðurinn George Mic-
helakis varð síðan óvænt í 3. sæti
með 9 vinninga.
Hannes hafði sex vinninga að
loknum átta umferðum en tókst
aðeins að fá hálfan annan vinning
úr flmm síðustu skákimum. Hann
veröur því að sætta sig við það að
tapa u.þ.b. tíu Elo-stigum í kapp-
hlaupinu um stórmeistaratitilinn.
Hannes þarf að ná 2500 stiga mark-
inu til að verða útnefndur stór-
meistari og eftir Argentínuferðina
hefur hann nálægt 2480 stigum.
Aldrei þessu vant sendu Rússar
ekki keppanda á mótið og vom
aðeins þrír þátttakendur frá fyrr-
verandi lýðveldum Sovétríkjanna.
Ljóst er að jámaga kommúnismans
er ekki lengur til að dreifa. Armen-
anum varð það á að mæta ekki í
mikilvæga skák í þriðju síöustu
umferð gegn Suður-Afrikumannin-
um, sem fékk því gefins vinning.
Fylgir sögunni aö þegar Armeninn
loksins kom á mótsstað hefði hon-
um fylgt íðilfogur starfsstúlka
mótsins. Hún var rekin.
Bestu skákir sínar tefldi Hannes
í fyrri hluta mótsins en undir lokin
var sem úthaldið brysti. Þetta var
langt og strangt mót og útivist
þeirra Lárusar Jóhannessonar,
sem var Hannesi til aðstoðar, fullar
þijár vikur. Hannes tapaði fjórum
skákum alls og öhum með hvítu
mönnunum! í eftirfarandi skák,
sem tefld var í þriðju umferð,
samdi honum þó ágætlega við hvítu
menn sína. Hannes fer létt með
bandaríska keppandann, Vadim
Tsemekhman, sem eins og nafnið
Helgi Ólafsson, atskákmeistari
Reykjavíkur, fór létt með Timman.
bendir til er af rússneksu bergi
brotinn.
Hvitt: Hannes Hlifar Stefánsson
Svart: Vadim Tsemekham (Banda-
rikin)
Kóngsindversk vörn.
1. c4 g6 2. Rc3 Bg7 3. d4 Rf6 4. e4
d6 5. f3 0-0 6. Be3 c6 7. Bd3 e5 8. d5
cxd5 9. cxd5 Rh5 10. Rge2 f5 11. 0-0
Rd712. exf5 gxf513. Hcl Rc514. Bbl
Hannes fylgir ekki tískunni en 14.
Bc4 var leikið í skákum Timmans
við Kasparov á Immopar-atskák-
mótinu í París í fyrra og Karpovs
við Kasparov í Reggio Emilia um
áramótin.
14. - a6
Gætir b5 reitsins en 14. - a5 til
að treysta riddarann í sessi er ann-
ar kostur.
15. Khl Kh8 16. f4! Dh4
Trúlega er 16. - De8 betra.
17. Bf2 Dg418. fxe5 Bxe519. Rd4 a5?
Betra er 19. - Hg8 og ef 20. Dxg4
feg4 21. b4 Rd7 er svartur enn með
í leiknum.
20. Rf3 Hg8 21. Hgl Bf6 22. Rb5! Re4
23. Bxe4 fxe4
I £
1
* & A A Á X
5
f\ w
2
vt^/
ABCDEFGH
24. Rxd6!
Bjargar riddaranum á f3
skemmtilega um leið og hann kipp-
ir stoðum undan stöðu svarts. Ef
nú 24. - exf3 25. RÍ7+ Kg7 26. gxf3
og þótt svartur fái hrók og tvo létta
menn fyrir drottninguna er hvíta
sóknin of sterk.
24. - Df4 25. Rf7+ Kg7 26. R3e5! e3
Ef 26. - Bxe5 27. Rxe5 Dxe5?? 28.
Bd4 og vinnur drottningmia. Eða
26. - Dxf2 27. Dxh5 með vinnings-
stöðu.
27. Bel Df5 28. Hc7! Hf8 29. Rd6+
Og svartur gafst upp.