Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1992, Síða 29
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992.
41
Helgarpopp
Fyrsta plata Jet Black Joe fær göðar viðtökur:
Tókum upp í minnsta
og besta stúdíói landsins
Athygli vekur að textar við lögin"
eru aJlir á ensku. íslensku hijóm-
plötuútgáfumar hafa verið tregar til
að gefa út plötur með enskum text-
um. Til að mynda kom aldrei út plata
með Hafnarfjarðarhljómsveitinni
efnilegu E-X vegna þessa skilyrðis.
„Þeir reyndu að fá okkur til að
semja íslenska texta við lögin,“ segir
Gunnar Bjami. „Við neituðum og
höfðum okkar fram. Ég viðurkenni
vel að textarnir em misjafnir. Sumir
em ágætir og aðrir síðri. Þeir eru
dálítið sýrðir á köflum og torskildir
öðnun en okkur. En þessir textar
hæfa lögunum og aðrir ekki. Þvi
verður ekki breytt.“ - Og þar með
er það útrætt.
Hljómsveitin Jet Black Joe hefur
haft nóg að starfa í sumar og haust.
Hún lék víða um land með Sálinni
hans Jóns míns, Todmobile og
Stjóminni auk þess að koma sjálf
fram sem aðalhljómsveit. Gunnar
Bjami segir að nóg verkefni bíöi í
næstu framtíð, bæði tónleikahald,
dansleikir og annað sem fylgir út-
komu plötunnar.
„Maður sér varla fram úr þessu
öllu,“ segir hann, „en þetta er gam-
an. Svona viljum við hafa lífið."
Formlegir útgáfutónleikar vora í
Verkmenntaskólanum á Akureyri á
miðvikudaginn var. Ætlunin er aö
endurtaka þá í Tjamarbíói um næstu
mánaöamót.
Rúmlega eins árs hugsjónavinna
Gunnars Bjama Ragnarssonar og
Páls Rósinkrans Óskarssonar hefur
skilað áþreifanlegum árangri. Plata
þeirra og félaga þeirra í hljómsveit-
inni Jet Black Joe er komin út. Við-
tökur kaupenda em góðar. Platan fór
rakleiðis í fyrsta sæti vinsældalista
DV í síðustu viku.
Gunnar Bjami er ánægður með
viðtökumar og sömuleiöis plötuna.
„Ef ég ætti að gagnrýna eitthvað
er það kannski það að í tónlistinni
er enginn fastur stíll,“ segir hann.
Umsjón
Ásgeir Tómasson
- segir Gunnar Bjami Ragnarsson gítarleikari
„En fyrir bragðið er hún þá fjöl-
breyttari en ella. Útkoman er betri
en ég bjóst við fyrirfram. Við vorum
heppnir með upptökustjóra og upp-
tökumann og unnum í minnsta og
besta stúdíói í bænum. Vegna þess
hversu lítið það er gaf það okkur
svigrúm til afis konar tilraunastarf-
semi. Ég tel að platan sé fyrir bragð-
ið ferskari en ef við hefðum tekið
hana upp þar sem fullkominn tækja-
búnaður er fyrir hendi.“
Það var í október í fyrra sem Gunn-
ar Bjami og Páll snem sér alfarið
að tónlist. Síðan bættust þeir við einn
af öðrum: Starri Sigurðsson, Jón Öm
Amarson og Hrafn Thoroddsen.
Þeim var stohð úr hinum og þessum
hljómsveitum og er þeir höfðu sam-
þykkt ströng inntökuskilyrði, meðal
annars að hætta í skóla og snúa sér
alfarið að tónlist, bættust þeir í Uðs-
mannahóp hljómsveitarinnar Jet
Black Joe.
„Það er senn Uðið ár síðan það var
fullskipað í hljómsveitina,“ segir
Gunnar Bjami. „Fáir höfðu trú á
okkur til aö byija með en það breytt-
ist þegar við fengum plötusamning
hjá Steinmn. Við PalU töldum okkur
vita nákvæmlega frá byijun hvað við
ætluðum að gera. Eða öUu heldur
vissum við hvað við áttum ekki að
gera. Við höfðum báðir verið í ýms-
um bílskúrshljómsveitum og lærð-
um í þeim hvemig á ekki að standa
aö hljómsveit."
Enskirtextar
Jet Black Joe vakti fyrst athygU í
sumar þegar safnplatan Bandalög 5
kom út. Á henni vöm lögin Rain og
Big Fat Stone. Þau em jafnframt á
nýju plötunni sem kom út síðast í
október. Gunnar Bjami Ragnarsson
segir að sum lög hljómsveitarinnar
hafi orðið til þegar hiann og PáU Rós-
inkrans vora enn tveir einir að æfa
sig og leggja á ráðin um framtíðar-
hljómsveitina. Rain er til dæmis frá
þeim tíma. Gunnar Bjami segir að
nóg sé til af lögum. Aðeins brot af
þeim komst á plötuna og aðeins þau
sem allir fimm vom sammála um að
ættu að koma út.
Jet Black Joe á sviði. Hljómsveitin lék að mestu á órafmögnuð hljóðfæri til
skamms tíma en hefur nú rafvæðst.
DV-mynd RaSi
um mánaðamótin
Nýdönsk kynnir efni af nýrri plötu stnni þann þrítugasta.
Fjögurra hljómsveita
Hljómsveitimar Nýdönsk, SáUn
hans Jóns mins, Pís of keik og Plast
sika á stórtónleikum sem efht
verður til á Hótel ísland! 30. nóv*
ember. Tveir ungir menn, Harald-
ur Amórsson og Þröstur Karels-
son, standa fyrir tónleikunum.
„Okkur langaði bara aö gera eitt-
ivaö sniðugt^og þetta var ú*om-
ætiuöum við að hafa hjjómleika-
haldið minna í sniðunum en kom-
umst fljótlega að þvi að fyrst við
ætluðum að gera eitthvaö í þessa
veruna var best að hafa það al-
mennilegt. Dagurinn varð fyrir
valinu þvíaðfrierí skólum daginn
eftir, fýrsta desember. Við erum
því að vonast til að framhalds-
skólanemar, átján ára og eldri, lyfti
sér upp þennan dag, skömmu »ð
Nýdönsk og Sálin kynna báðar
efni af nýjum plötum sínum á tón-
leikunum. Písofkeikverðureinnig
meö eitthvaö nýtt 1 fórum sínum.
Piast, sem er að sögn Þrastar ung
hijómsveit og efiiiieg, hefur nýlega
gefið út myndband með laginu
Fuliorðinn. Hún hefur aö hans
sögn ýmislegt annað athyglisvert í
pokahomino.
leikana. Þeir verða seldir á Hótel
Islandi og einnig er ætlunin að
bjóða miða til sölu í nokkrum
stærstu framhaldsskólunum á höf-
uðborgarsvæöinu.
„Það er engin launung aö viö stil-
um nokkuð inn á framhaldsskóla-
nemendur," segir Þröstur Karels-
>n. „En að sjálfaögðu eru ailir
Ný vinnubrögð við
nýja plötu Sálarinnar
-hráni og rokkaðri en nokkru sinni fyrr, segir Guðmundur Jónsson
Nýja platan með Sáiinni hans Jóns
míns hijómar öðmvísi en aðrar plöt-
ur hljómsveitarinnar. Ástæðan er sú
að ailt öðmvísi var gengið til verks
en áður. Platan kom út á fimmtudag
og nú bíða sexmenningamir í Sálinni
spenntir eftir viðbrögðum hlustenda.
„Við tökum vissa áhættu með því
að koma með allt öðravísi plötu en
hingað til,“ segir Guðmundur Jóns-
son gítarleikari. „En við vorum ein-
huga um að taka öðruvísi á hlutun-
um - eyða ekki fleiri mánuðum í
hljóðveri heldur ganga markvisst til
verks og vera snöggir. Við vorum í
íjóra mánuði að ganga frá plötunni
sem kom út fyrir síðustu jól. Að
þessu sinni voram viö þrettán daga
í stúdíói. Það tók sex daga að hijóö-
rita lögin og sjö dagar fóm í hljóð-
blöndun.“
Guðmundur hefur hingað til verið
helsti lagahöfundur Sálarinnar. Að
þessu sinni em lögin samin í samein-
ingu. Hfjómsveitin byijaði að æfa og
semja í júní síðastliðnum og eftir
langar og strangar æfingar í bland
við spilamennsku á dansleikjum um
allt land lágu lögin fyrir. Þrettán
þeirra vom hljóðrituð.
„Þetta er miklu meira rokk en við
höfum verið með hingað til. Gítarar
og trommur hljóma mun sterkar en
áður og spihð er allt mjög gróft,“ seg-
ir Guðmundur. „Textamir era meira
að segja talsvert opinskárri en hing-
að til. Stefán Hilmarsson semur tæp-
an helming þeirra en ég, Friðrik
Sturluson og Birgir Bragason skipt-
um hinum með okkur. Við renndum
blint í sjóinn þegar við ákváðum að
hafa plötuna svona. Við fengum
prýðilegan upptökumann frá Los
Möguleikinn fyrlr nýjum vinnu-
brögðum var ekki fyrir hendi fyrr en
nú. DV-myndir RaSi
Angeles, Eric Zobler, til að vinna með
okkur og hann á sinn þátt í útkom-
unni. Fyrir nokkrum dögum kynnt-
um við efnið fyrir völdum hópi
manna. Viðtökumar vora svo já-
kvæðar að okkur létti verulega!"
Guðmundur Jónsson segir að
grundvöllur fyrir þessum nýju
vinnubrögðum í Sáiinni hans Jóns
míns hafi ekki verið fyrir hendi fyrr
en nú. Mannabreytingar hafa ætíð
verið talsverðar í hijómsveitinni en
nú hefur sami hópurinn spilað sam-
an í næstum tvö ár. Hann hefur sent
frá sér þrjár stórar plötur og átt lög
Stefán Hilmarsson á meirihluta text-
anna á nýju plötunni. Þeir eru opin-
skárri en nokkru sinni fyrr.
á fjölda annarra, til dæmis tveimur
kvikmyndaplötum sem komu út í
haust. Jafnframt hefur hljómsveitin
stöðugt leikið á hijómleikum og
dansleikjum.
„Nú er líka komið nóg í bih,“ segir
Guðmundur. „Við höldum áfram
sem hingað til fram í mars. Þá ætlum
við að fara í frí. Langt frí. Ég veit
ekkert hvenær við komum saman
aftur. Tveir okkar em að fara í skóla
og ýmis verkefni bíða hinna. Ég er
ekki að segja að við ætlum að hætta
en framtíöin er með öllu óijós.“