Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Blaðsíða 3
3 LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1992. Góðar fréttir frá íslenskum mjólkuriðnaði: LYSTAUKANDI LÆKKUNÁ URT Með nýgerðum samningi um verkaskiptingu í framleiðslu og samstarf á sölusviði hefur náðst fram dýrmæt hagræðing í íslenskum mjólkuriðnaði. Þeim árangri verður skilað beint til neytenda nk. mánudag með lækkun á heildsöluverði jógúrtar sem ætlað er að skila almenningi að meðaltali um 5% verðlækkun í verslunum um land allt. allra næstu dögum munu neytendur víða um land jafnframt verða varir við aukið vöruval verslana í jógúrtvörum. Með hinum nýja samstarfssamningi hefur áratugagömul skipting landsins í afmörkuð sölusvæði fyrir einstök mjólkurbú verið lögð niður og landið allt gert að einu sölusvæði fyrir jógúrt og fleiri unnar mjólkurvörur. íslenskir neytendur munu því loksins sitja við sama borð þegar úrval af jógúrt er annars vegar og um leið hefur stefnan verið sett á frekari hagræðingu og þróun til bættrar þjónustu við landsmenn alla. Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi, Mjólkursamlagi Kaupfélags Þingeyinga á Húsavík, Mjólkursamlagi KEA á Akureyri og Mjólkursamsölunni í Reykjavík þykir vænt um að geta með samstarfi sínu skilað neytendum í senn bættri þjónustu, auknu vöruvali og lægra verði. Njótið vel! % i I HVlTA HÚSIÐ ! SÍA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.