Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1992.
★★
Verdandi mafíuforingjar
MOBSTERS
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Michael Karbelnikoff.
Aðalhlutverk: Christian Slater, Patrick
Dempsey, Richard Grieco, Costas
Mandylor og Anthony Quinn.
Bandarisk, 1992 - sýningartimi 104 min.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Lucky Luciano, Meyer Lansky,
Bugsy Siegel og Frank Costello eru
kunnugleg nöfn öllum þeim sem
hafa fylgst meö skipulagðri glæpa-
starfsemi í Bandaríkjunum, en
þessir fjórir voru allir þekktir maf-
íuforingjar á fyrri hluta aldarinn-
ar. í Mobsters er fjallað um fjór-
menningana, frá unglingsárum þar
til Lucky Luciano verður ókrýndur
konungur Mafíunnar.
Eins og allt of oft hefur gerst á
undanfomum ánun í kvikmynd-
um, þar sem fjallað er um Mafíuna,
er mikill greinarmunur gerður á
góðum mafíósum og vondum mafí-
ósum. Raunveruleikinn er auðvit-
að sá að allir voru þeir og eru
jafnslæmir út frá réttarfarslegu
sjónarmiði. í Mobsters eru fjór-
menningamir „góðir“ mafíósar,
sveipaðir dýrðarljóma sem enginn
heilvita maður ætti að sætta sig við.
Sjálfsagt byijaöi þessi mafíu-
dýrkun og skipting meðhma Maf-
íunnar í „góða“ og „vonda“ með
Guðfóðurmyndum Coppola. Hægt
að fyrirgefa Coppola vegna þess
hversu myndir hans em geysivel
gerðar og mikið lagt í sköpun per-
Verðandi mafiuforingjar, talið frá vinstri: Lucky Luciano (Christian Slat-
er), Meyer Lansky (Patrick Dempsey), Frank Costello (Costas Mandyl-
or) og Bugsy Siegel (Richard Grieco).
sónanna. I Mobsters er aftur á
móti eins og í Bugsy sögð saga af
töffurum sem einnig em flottir
gæjar í stífpressuðum fotum sam-
kvæmt „nýjustu" tísku og persónu-
sköpun er í lágmarki.
Fjórmenningamir fá mismikið
pláss í myndinni. Luciano er hetjan
sem öh vandamál leysir, sá- sem
hinir þrír velja sem foringja. Er
hann sá eini fjórmenningana sem
DV-myndbandalistinn
1 (3) The Hand that Rocks the Cradle
Memories of an Invisible Man fer beint i fjórða sæti vinsældalist-
ans. Um er að raeða nokkuð sérstaka sakamálamynd. Aðalhlutverk-
ið leikur Chevy Chase sem er hér á myndinni ásamf Sam Neill.
4 (-) Memories of an I
5(5) Prince oí Tides
6(8) Knighl Moves
7(4)
8(7)
9(6) Company Business
10 {*) Blameitonl
11 (■) Medicine Man
12(9) Father of the Bride
13 > .
Pure Luck
Hook
Samsæri þagnarinnar
CONSPIRACY OF SILENCE
Útgefandl: Bergvik.
Leikstjóri: Francis Mankiewicz.
Aöalhlutverk: Michael Mahonen, Jon-
athan Potts, lan Tracey og Michelle St.
John.
Kanadisk, 1992 - Sýningartimi 192 min
(2 spólur).
Bönnuó börnum innan 16 ára.
Það er víöa sem indíánar þurfa
að sæta kynþáttafordómum eins og
Conspiracy of Silence ber vitni um,
en hér er um aö ræöa kanadíska
míniseríu sem byggð er á atburði
sem átti sér stað í Manitoba þegar
heilt bæjarfélag þagði um hroða-
legt morð sem fjórir piltar höfðu
framiö.
Sagan hefst fóstudaginn 13. nóv-
ember 1971. Fjórir ungir piltar eru
aö leita sér að tilbreytingu í
skammdeginu. Þeir hafa nóg af víni
en vantar félagsskap. Á vegi þeirra
veröur img indíánastúlka sem þeir
neyða upp í bílinn til sín. Það næsta
sem skeður er að lögreglan er köh-
uð til þegar lík af ungri indíána-
stúlku finnst og hefur henni veriö
misþyrmt á hrottalegan hátt. Bönd-
in berast fljótt að fjórmenningun-
um en ekkert er hægt að sanna
þrátt fyrir aö einn þeirra hafi játaö
fyrir atvinnurekanda sínum og
fleirum aö þeir hafi ekki ætlað aö
gera stúlkunni mein. Honum er
ráölagt aö þegja, stúlkan hafi hvort
eð er verið indíáni. Allir í bænum
vita hveijir eru moröingjamir en
enginn vitnar og máhð fehur í
gleymsku. Sextán árum síöar, þeg-
ar aörir lögreglumenn eru teknir
viö, hringir kona í lögregluna einn
góðan veðurdag og segist vita
hveijir drápu indíánastúlkuna.
Þetta verður til þess að einn lög-
reglumaöurinn fer að grafast fyrir
um máhð og verður ekki Utið hissa
þegar hann les málskjölin.
Conspiacy of Silence er vel gerö
sjónvarpsmynd og spennandi. Lop-
inn er aðeins teygður eins og við
er að búast í þetta langri mynd, en
þaö kemur htið að sök. Sú fyrirhtn-
ing á indíánum, sem kemur fram
hjá bæjarbúum, er með ólíkindum
og lýsir sér í því þegar bæjarbúar
þegja morðið í hel eingöngu vegna
þess að þaö var indíáni sem var
myrtur.
-HK
einhver vinna er lögð í og fer
Christian Slater ágætlega með
hlutverkiö. Það eru þó Anthony
Quinn og Michael Gambon sem
eiga létt með aö kveöa ungu leikar-
ana í kútinn í hlutverkum „vondu"
mafíósanna og skapa báðir eftir-
minnilegar persónur.
Á yfirborðinu er Mobster flott,
leiktjöld og annað sem viðkemur
sviösmynd fyrsta flokks, en eins
og gefur að skhja er sagan ósann-
færandi og yfirborðskennd. -HK
r*
★★
He tuined his Iwck
pn ovili/ation.
0«i> to discovct
he twvd the pey*e<
to S4ve «.
Tilbjargarsjúkum
MEDICINE MAN
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: John McTiernan.
Aðalhlutverk: Sean Connery og Loraine
Bracco.
Bandarísk, 1991 -sýningartimi 102 mín.
Leyfó öllum aldurshópum.
Helsti gcdlinn við Medicine Man
er að góð saga nær aldrei að verða
forvitnheg eða skemmtileg í kvik-
myndinni. Athyghn beinist því aö
ógnvekjandi og risastórum regn-
skógum í Suður-Ameríku og frum-
byggjunum sem þar búa og eru í
aukahlutverkum, enda eru aðal-
persónumar frekar daufar.
Medicine Man er leikstýrt af
John McTieman sem hefur vhjað
taka sér frí frá spennumyndum
(Die Hard og The Hunt for Red
October) og gera mynd alvarlegs
eðhs.
Ekki er Medicine Man slæm
kvikmynd. Sean Connery sér að
hluta til um það, en hann er reglu-
lega góður í hlutverki læknisins,
Robert Campbeh, sem hefur lokað
sig frá umheiminum og fundið upp
lyf sem læknar krabhamein. Hann
hefur beðið um aðstoð en hjóst ekki
við að það yrði kona sem þar að
auki efast um getu hans til vísinda-
starfa. Samhand þeirra er stirt í
fyrstu en þegar lyfið glatast sam-
einast þau í að búa til nýtt.
Loraine Bracco leikur aðstoðar-
manninn og er hún jafnslæm og
Connery er góður. Þar er margt
áhugavert við Medicine Man en
vegna þess hversu hæg hún er nær
áhugaverð saga aldrei almennilega
að komast til skha. -HK
★★
BRIDGET
FQNDA
T Tst
MICHAEL
0‘KEEFE
Heimkoman
★ ‘/2
Lokaverkið
Myndbönd
OUT OF THE RAIN
Útgefandi: Sam-myndbönd.
Leikstjóri: Gary Winick.
Aðalhlutverk: Bridget Fonda og Michael
O’Keefe.
Bandarisk, 1991 - sýningartimi 85 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Out of the Rain gerist 1 smábæ.
Ungur maður kemur til að vera við
jaröarfor bróður síns sem framið
hefur sjálfsmorð. Litið er á hann
sem utanbæjarmann og sér hann
fljótt að ekkert bíður hans í heima-
bænum. Þegar hann er ákveðinn í
að láta sig hverfa kemst hann
óvænt á snoðir um umfangsmikla
eiturlyfjastarfsemi sem bróðir
hans hafði tengst og fer að gruna
að sjálfsmorðið hafi verið morð.
TU sögunnar kemur ung stúlka
sem segist hafa verið kærasta bróð-
ur hans og vih hún að hann taki
hana með sér, en ungi maðurinn á
eftir að komast að því aÖ ekki er
allt sem sýnist með þessa stúlku.
í Out of the Rain er sögð áhuga-
verð saga. Áhorfandinn er hvað
eftir annað teymdur í ranga átt þar
til í lokin að hlutimir smeha sam-
an. Ofbeldi er nokkurt á kostnað
textans sem er góður.
McBAIN: THE FINAL MISSION
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: James Clickenhaus.
Aóalhlutverk: Christopher Walken, Mar-
ia Conchita Alonzo og Michael Ironside.
Bandarísk, 1992 - sýnlngartími 99 mín.
Bönnuð börnum Innan 16 ára.
Hinn ágæti leikari Christopher
Walken leikur titilhlutverkið í
McBain: The Final Mission, sem er
formúlumynd um fyrrverandi her-
menn í Vietnam sem mörgum
árum eftír lok stríðsins sameinast
í að hefna eins félagans sem bjarg-
aði lífi þeirra. Sá var myrtur af ein-
ræðisherra i Kólumbíu sem heldur
vemdarhendi yfir eiturlyfjabarón-
unum þar. McBain og félagar
ganga í Uð með uppreisnarmönn-
um í Kólumbíu og þar sem þeir
ráða yfir hátæknibúnaði er stutt í
endalokin.
Enginn sem gaman hefur af mikl-
um stríðs- og átakasenum verður
fyrir vonbrigðum en talaður texti
er ekki stórbrotínn og leikarar á
borð við Walken og Mariu Conch-
itu Alonzo, sem vön era betri hlut-
verkum, leika langt undir getu.