Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1993, Page 4
Fréttir
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ.1993
Hver er orsök fylgishruns Sjálfstæðisflokksins?
Flestir nef na óvinsæla
stef nu ríkisstjórnarinnar
Hver er helsta orsök þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn kemur svona illa
út úr öllum skoðanakönnunum um
þessar mundir? DV spurði lands-
menn álits á þessu í skoðanakönnun
sinni á miðvikudags- og fimmtudags-
kvöld.
Spurt var: Hver er að þínu mati
helsta orsök þess að fylgi Sjálfstæðis-
flokksins hefur mælst minna sam-
kvæmt skoðanakönnunum að und-
anfómu en flokkurinn fékk í síðustu
kosningum?
Flestir nefndu „óvinsæla stjómar-
stefnu" sem helstu skýringuna. Fáir
minntust á Hrafnsmálið eða „nei-
kvæöa umfjöllun fjölmiðla" um
flokkinn.
DV kannaði sérstaklega hvert væri
álit þeirra sem sögðust mundu kjósa
Sjálfstæðisflokkinn. Þar sögðu flest-
ir, eða um 40 prósent, að helsta or-
sökin væri slæmar ytri aöstæður
sem ríkisstjómin ætti við að glíma.
En rétt þar á eftir kom „óvinsæl
Landspítalinn:
Um 290
bðrn fædd-
ust í maí
„Það fæddust um 290 börn i
maí, þar af nokkrir tvíburar,
þannig að þetta hefur gengið
mjög vel. Það hefur verið mikið
að gera fyrstu dagana í júni enda
fæddust um 30 böm fyrstu þrjá
daga mánaðarins. Nokkrar kon-
ur hafa þurft að bíða eftir að kom-
ast í sængurlegu því að fyrsta dag
mánaðarins voru 16 fæðingar.
Við höfum annað þessu mjög vel
það sem af er vegna þess að viö
vissum hvers var aö vænta og
gátum undirbúið okkur í sam-
ræmi við það,“ segir Guðrún B.
Sigurgeirsdóttir, yfirljósmóðir á
Rvennadeiid Landspítalans.
„Konurnar eru ofboðslega
ánægðar með að koma hingað þó
að sumar nenni ekki að láta flytja
sig frá Landspítalanum,“ segir
Elínborg Jónsdóttir, yfirijósmóð-
ir á Fæöingarheimilinu.
Ýmsar hugmyndir em uppí um
þaö hvers vegna engin fæðing-
arbomba hafi orðiö á Landspíta-
lanum í mai eins og búist var við.
Sennilegt þykir aö konur úti á
landi hafi ákveðið að fæða í
heimabyggð sinni auk þess sem
fæðingamar dreifast yfir lengri
tíma en áður var gert ráð fyrir.
-GHS
Landsbankinn:
66 uppsagnir
entíubíða
Landsbankinn sagði upp 66
starfsmönnum um síðustu mán-
aðamót en þá hafði veriö áætlað
að segja upp 75 starfsmönnum
um allt land. Tíu uppsagnir bfða
betri tima af ýmsum ástæðum.
Mikill meirihiuti þeirra sem
fengu uppsagnarbréf um mán-
aðamótin er konur eða um 85
prósent en þrír fjórðu hlutar
starfsmanna Landsbankans eru
konur.
-GHS
- samkvæmt skoðanakönnun D V
3% 2%
Neikvæð umfjöllun: 0,0%
Neikvæö umfjöllun: 0,4%
stjómarstefna" sem um 38 prósent flokksins töldu aö orsök fylgistapsins prósent nefndu svikin kosningalof-
stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks- væri forysta Davíðs Oddssonar. Um orð og 2 prósent eitthvað annað.
ins nefndu sem helstu skýringuna. 3 prósent nefndu Hrafnsmálið og um Af stuðningsmönnum annarra
Um 11 prósent stuðningsmanna 3 prósent neikvæða umfjöllun. Tvö flokka nefndu 51,5 prósent óvinsæla
Orsakir fylgishruns Sjáifstæðisfiokksins
□ Forysta Davíös 11 Óvinsæl stjórnarstefna □ Svikin kosningaioforð S Annað
□ Slæmar ytri aðstæöur ■ Hrafnsmálið H Neikvæð umfjöllun fjölmiðla
Álit stuðningsmanna Álit stuðningsmanna Álit óákveðinna
Sjálfstæðisflokksins annarra flokka
stjómarstefnu sem aðalskýringuna.
21 prósent nefndi forystu Davíðs. 11
prósent nefndu slæmar ytri aðstæð-
ur og álíka margir svikin kosninga-
loforð. 3 prósent nefndu Hrafnsmálið
og 0,4 prósent neikvæða umfjöllun.
Af þeim sem em óákveðnir í þvi
hvaða flokk þeir styðja nefndu um
43 prósent óvinsældir stjómarstefn-
unnar og um 27 prósent slæmar ytri
aðstæður. 13 prósent þessa hóps
nefndu forystu Davíðs Oddssonar
sem aðaíorsök. Öllu fleiri, rúm 12
prósent, töldu að helsta skýringin
væri svikin kosningaloforð Sjálf-
stæöisflokksins. 3 prósent þessa hóps
nefndu Hrafnsmálið og enginn nei-
kvæða umfjöliun.
Úrtakið í skoðanakönnuninni var
600 manns. Jafnt var skipt milli
kynja og jafnt milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar.
-HH
Eyjaíjörður:
Heyskapur
seinnaáferð-
inni í ár
Gyifi Kristjánsson, DV, Akuxeyri:
„Heyskapur hér í Eyjafirði
verður a.m.k. tveimur vikum
seinna á ferðinni en í fyrra,“ seg-
ir Bogi ÞórhaUsson, bóndi i Eyja-
firöi, um heyskaparhorfur. Bogi
var með þeim fyrstu sem hófu
heyskap í Eyjafirðí sl. sumar en
þaö var 7. júní.
„Þetta leit ágætlega út í byrjun
maí en síðan fengum við tvö
kuldaköst sem seinkuöu sprettu
verulega og stöðvuðu hana
reyndar alveg,“ segir Bogi. Hann
segir hins vegar aö ef hlýni veru-
lega veröi gróður fljótur aö taka
við sér og heyskapur muni þá
væntanlega hefjast fyrir næstu
mánaðamót.
Stj ómarflokkamir missa meirihlutann 1 kosningaspá DV:
Þrettán stjórnarliðar út
AUt bendir til að formenn þing-
flokka stjórnarflokkanna, Ossur
Skarphéðinsson og Geir H. Haarde,
falli af þingi ef kosið yrði núna. Þá
mundi Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra einnig missa þing-
sæti sitt. Með þeim mundu hverfa
af þingi 10 óbreyttir þingmenn
stjórnarflokkanna, 2 kratar og 8
sjálfstæðismenn. Þessar niðurstöður
má lesa úr nýrri kosningaspá DV um
fylgi stjóramálaflokka en hún byggir
á niðurstöðum skoðanakönnunar
sem blaðið birti í gær.
Þeir þingmenn sem mundu falla
af þingi ef kosið yrði í dag eru, auk
Ossurar, Geirs og Sighvats, kratamir
Gunnlaugur Stefánsson og Rannveig
Guðmundsdóttir og sjálfstæðis-
mennimir Guömundur Hallvarös-
son, Lára Margrét Ragnarsdóttir,
Guðjón Guðmundsson, Vilhjálmur
Egilsson, Tómas Ingi Olrich, Ámi
Johnsen, Sigríöur Anna Þórðardóttir
Þingmeirihlutinn horfinn
19 (+6)
Aö ofan sést hvernig hlutföll skiptust á þingi miðað við
niðurstöður skoðanakönnunar DV. Utan við skífumar sést
r—þingmannatala hvers flokks en innan sviga er
\ J®kbreytingin frá úrslitum síðustu þingkosninga.
\ / \ Litla skífan hér til vinstri sýnir aftur á móti
\ raunveruleg hlutfóll á þingi.
DV
og Ami R. Ámason. Samkvæmt
spánni þarf ekki mikið til að Eiður
Guðnason umhverfisráðherra detti
út af þingi ásamt flokksfélaga sínum,
Sigbirni Gunnarssyni og sjálfstæðis-
þingmanninum Einari K. Guðfinns-
syni.
Rétt er að taka fram að útreikning-
ar þeir sem þessar niðurstöður
byggja á taka óbeint tillit til skipting-
ar jöfnunarþingsæta milli kjördæma
og staðsetningar svokallaðs flakk-
ara. Gengið er út frá óbreyttri þing-
mannatölu í hverju kjördæmi, jöfn-
unarsæti meðtálin, og fylgi hvers
flokks endurreiknaö með tilhti til
niðurstöðu kosningaspár DV fyrir
allt landið. Þingsætum er skipt milli
flokka á gmndvelli þessa.
Úrtakið í skoðanakönnun DV var
600 manns. Jafnt var skipt á milli
kynja og eins landsbyggðar og höfuð-
borgarsvæðis.
-kaa/hlh