Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1993, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1993, Blaðsíða 52
F Rt T A S K O ■ • 25 • T 1 Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast hringdu þá í sima 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 3.000 krónur. Ritstjórn - Auglýsini gar - Áskrift - Dreifiog: Síml 632700 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993. Hörkuslagsmál: Ráðist inn á lögreglustöð og fangi „frelsaður“ -táragasibeitt „Viö fengum tilkynningu um aö þrír ungir menn væru í blóðugum slagsmálum hér og berðust meö bar- eflum. Við fórum tveir í þetta og þeg- ar viö komum á staðinn var þetta að mestu afstaðið," segir Jóhann Þórar- insson, varðstjóri lögreglunnar á Raufarhöfn. Hann og félagi hans lentu í harðri rimmu við þijá menn á tvítugsaldri í bænum fyrr í vikunni. Tveir þeirra sem slógust voru bræður. „Þegar við komum á staðinn var yngri bróðirinn farinn af staðnum en hinir tveir voru nokkuð illa farn- ir. Allir voru þeir nokkuð marðir og blæddi úr þeim eftir spýtur úr göml- um vörubrettum sem þeir notuðu sem barefli. Það virðist sem bræð- urnir hafi verið að slást og „vinur“ þeirra barið á þeim til skiptis, hélt með þeim sem var sterkari í það skiptið. Þegar við ætluðum að fara að hand- taka vininn kom eldri bróðirinn hon- um til hjálpar og við þurftum að nota táragas á hann til þess að geta komið hinum inn í bíl. Þegar það var búið fórum við með hann á lögreglu- stöðina og þar var hann settur inn í klefa. Við þurftum náttúrlega að fara að huga að þessum dreng sem við höfðum notað táragasið á og á meðan kom einhver og sparkaði upp hurð- inni á lögreglustöðinni og leysti vin- inn úr haldi,“ sagði Jóhann. Jóhann segir að allar fullyrðingar um að harðræði hafi verið beitt við handtöku drengsins séu úr lausu lofti gripnar. AUar aðgerðir á vett- vangi, sem lýst sé hér að ofan, hafi veriðnauðsynlegar. -pp Soares mælir gegn hvalveiðum „Eins og þú veist, þá eru hvahr í útrýmingarhættu," sagði Soares, for- seti Portúgals, á fréttamannafundi sem haldinn var í gær, þegar hann var spurður um möguleg áhrif á við- skipti íslands og Portúgals ef íslend- ingar hæfu aftur hvalveiðar. „Eftir allt það sem sagt var á ráðstefnunni í Rio get ég ekki séð hvemig íslend- ingar geta hafið aftur hvalveiðar," sagði forsetinn. Forsetinn sagðist skilja þá afstöðu íslendinga að vilja vera utan Evrópu- bandalagsins. -bm LOKI Liggur þá ekki beint við að ríkisstjórnin geri Heiðarsnyrti að litgreiningarmeistara? ■ ■jl * M* ■ ■ w stað þungaskatts - litgreiningarmönnum ríkisins yrði falið að koma í veg fyrir skattsvik „Menn hafa verið að kvarta und- an álestri af kílómetramælum þrisvar á ári auk þess sem þessir mælar bila oft. Þá telja margir að töluvert sé um svindl í þessu. Sú leið hefur því verið rædd að lita oliuna og afnema núverandi þungaskatt af dísilbilum. Með þeim hætti væri tekið mið af raunveru- legri orkunotkun bílanna," segir Snorri Olsen, skrifstofutjóri í fjár- málaráðuneytinu. Starfshópur á vegum fjármála- ráðherra vinnur að því aö finna nýjar leiðir til aö skattleggja disil- olíu sem notuö er á bifreiðar. Skatt- lagningin á að koma í staðinn fyrir þungaskatt sem nú er innheimtur. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra tillögum sínum með haustinu. Þungaskattur af dísilbifreiðum er nú innheimtur með tvennum hætti. Eigendum bíla undir fjórum tonnum gefst kostur á að greiða ákveðið fastagjald sem í ár er áætl- að að skili rikissjóði rúmlega 500 milfjónum króna. Eigendur stærri bifreiða greiða hins vegar kíló- metragjald samkvæmt álestri af sérstökum kilómetramælum. Áætlað er að kílómetragjaldið skili ríkinu um 1,4 milljörðum í ár. Þar sem olía til húshitunar, gerðar og á vinnuvélai' ber ekki þungaskatt er nokkrum erfiðleik- um bundið að koma í veg fyrir að slík olía verði sett á bifreiðar verði skatturinn afnuminn. Sú leið er þó fær að lita þá oliu sem ekki er seld á bifreiðar. Aðspurður segir Snorri að sér- út* „Liturinn staMr litgreiningarmenn ymðu ráðnir til að hafa eftirlit með því að rétt skattlögð olía fari á tanka dísilbifreiða, verði ákveðið að fara þessa leið. situr mjög lengi í ol- iunni og fari lituð olía í eldneyúis- tankana má greina hana lengi á eftir. Það eru jafnvel til tæki sem greina litinn í útblæstrinum. Eig- endur bifreiöanna þyrftu ekki að verða neitt varir við þetta eftirlit. Það er óþarfi að truíla menn með slíku.“ -kaa Mario Soares, forseti Portúgals, kom í opinbera heimsókn hingað til lands í gær. Forsetinn hitti þá Vigdísi Finnbogadóttur að Bessastöðum, heimsótti Árnastofnun og sat kvöldverðarboð á Hótel Sögu. í dag fer Soares til Þingvalla og Vestmannaeyja en heimsókninni lýkur á sunnu- dag. Á myndinni sjást portúgölsku forsetahjónin skoða handrit á Árnastofnun undir leiðsögn Jónasar Kristjánssonar forstöðumanns. DV-mynd JAK Mótmælatívolí: íbúar óttast síbyljumúsík ogskræki „Við munum fjalla um bréf íbú- anna á hafnarstjómarfundi á mánu- dag. Það er búið að ræða staðsetn- ingu tívolís mikið og menn sáu stað fyrir það á nýja hafnarsvæöinu eða austan Faxaskála. Fyrmefndi stað- urinn þótti áhtlegri," sagði Guð- mundur Hallvarðsson, formaöur stjórnar Reykjavíkurhafnar, við DV. íbúar í nágrenni Reykjavíkurhafn- ar hafa sent hafnarstjóm bréf þar sem þeir biðja hana um að íhuga aðra staðsetningarkosti fyrir tívolí í Reykjavík en Miðbakka, til að mynda Örfirisey eða Geirsnef. Óttast þeir ónæði þar sem era bæði „síbylju- músík og skrækir" og drykkjulæti á kvöldin. „Varla em sveiflu- eða hristivélar af ómerkilegasta tagi sú ásjóna Reykjavíkur, og reyndar ís- lands alls, sem við viljum sýna er- lendum ferðamönnum á skemmti- ferðaskipum? (eða að myndefni þeirra verði ölvaðir unglingar í mið- nætursólinni)," segir í bréfi íbúanna. -hlh Veörið á suimudag ogmánudag: Víða rigning ogskúrir Á sunnudag og mánudag verð- ur suðaustan- og austanátt en lík- lega norðaustanátt á Vestfjörð- um. Sums staöar strekkingsvind- ur. Úrkomulítiö verður norðan- lands en rigning eða skúrir í öðr- um landshlutum, einkum suð- austanlands. Hiti verður 5-13 stig, hlýjast í innsveitum norðan- og vestanlands. Veðrið í dag er á bls. 61

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.