Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1993, Page 52
F Rt T A S K O ■ • 25 • T 1 Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast hringdu þá í sima 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 3.000 krónur.
Ritstjórn - Auglýsini gar - Áskrift - Dreifiog: Síml 632700
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993.
Hörkuslagsmál:
Ráðist inn á
lögreglustöð
og fangi
„frelsaður“
-táragasibeitt
„Viö fengum tilkynningu um aö
þrír ungir menn væru í blóðugum
slagsmálum hér og berðust meö bar-
eflum. Við fórum tveir í þetta og þeg-
ar viö komum á staðinn var þetta að
mestu afstaðið," segir Jóhann Þórar-
insson, varðstjóri lögreglunnar á
Raufarhöfn.
Hann og félagi hans lentu í harðri
rimmu við þijá menn á tvítugsaldri
í bænum fyrr í vikunni. Tveir þeirra
sem slógust voru bræður.
„Þegar við komum á staðinn var
yngri bróðirinn farinn af staðnum
en hinir tveir voru nokkuð illa farn-
ir. Allir voru þeir nokkuð marðir og
blæddi úr þeim eftir spýtur úr göml-
um vörubrettum sem þeir notuðu
sem barefli. Það virðist sem bræð-
urnir hafi verið að slást og „vinur“
þeirra barið á þeim til skiptis, hélt
með þeim sem var sterkari í það
skiptið.
Þegar við ætluðum að fara að hand-
taka vininn kom eldri bróðirinn hon-
um til hjálpar og við þurftum að
nota táragas á hann til þess að geta
komið hinum inn í bíl. Þegar það var
búið fórum við með hann á lögreglu-
stöðina og þar var hann settur inn í
klefa. Við þurftum náttúrlega að fara
að huga að þessum dreng sem við
höfðum notað táragasið á og á meðan
kom einhver og sparkaði upp hurð-
inni á lögreglustöðinni og leysti vin-
inn úr haldi,“ sagði Jóhann.
Jóhann segir að allar fullyrðingar
um að harðræði hafi verið beitt við
handtöku drengsins séu úr lausu
lofti gripnar. AUar aðgerðir á vett-
vangi, sem lýst sé hér að ofan, hafi
veriðnauðsynlegar. -pp
Soares mælir
gegn hvalveiðum
„Eins og þú veist, þá eru hvahr í
útrýmingarhættu," sagði Soares, for-
seti Portúgals, á fréttamannafundi
sem haldinn var í gær, þegar hann
var spurður um möguleg áhrif á við-
skipti íslands og Portúgals ef íslend-
ingar hæfu aftur hvalveiðar. „Eftir
allt það sem sagt var á ráðstefnunni
í Rio get ég ekki séð hvemig íslend-
ingar geta hafið aftur hvalveiðar,"
sagði forsetinn.
Forsetinn sagðist skilja þá afstöðu
íslendinga að vilja vera utan Evrópu-
bandalagsins. -bm
LOKI
Liggur þá ekki beint við að
ríkisstjórnin geri Heiðarsnyrti
að litgreiningarmeistara?
■ ■jl * M* ■ ■ w
stað þungaskatts
- litgreiningarmönnum ríkisins yrði falið að koma í veg fyrir skattsvik
„Menn hafa verið að kvarta und-
an álestri af kílómetramælum
þrisvar á ári auk þess sem þessir
mælar bila oft. Þá telja margir að
töluvert sé um svindl í þessu. Sú
leið hefur því verið rædd að lita
oliuna og afnema núverandi
þungaskatt af dísilbilum. Með þeim
hætti væri tekið mið af raunveru-
legri orkunotkun bílanna," segir
Snorri Olsen, skrifstofutjóri í fjár-
málaráðuneytinu.
Starfshópur á vegum fjármála-
ráðherra vinnur að því aö finna
nýjar leiðir til aö skattleggja disil-
olíu sem notuö er á bifreiðar. Skatt-
lagningin á að koma í staðinn fyrir
þungaskatt sem nú er innheimtur.
Gert er ráð fyrir að starfshópurinn
skili ráðherra tillögum sínum með
haustinu.
Þungaskattur af dísilbifreiðum er
nú innheimtur með tvennum
hætti. Eigendum bíla undir fjórum
tonnum gefst kostur á að greiða
ákveðið fastagjald sem í ár er áætl-
að að skili rikissjóði rúmlega 500
milfjónum króna. Eigendur stærri
bifreiða greiða hins vegar kíló-
metragjald samkvæmt álestri af
sérstökum kilómetramælum.
Áætlað er að kílómetragjaldið skili
ríkinu um 1,4 milljörðum í ár.
Þar sem olía til húshitunar,
gerðar og á vinnuvélai' ber ekki
þungaskatt er nokkrum erfiðleik-
um bundið að koma í veg fyrir að
slík olía verði sett á bifreiðar verði
skatturinn afnuminn. Sú leið er þó
fær að lita þá oliu sem ekki er seld
á bifreiðar.
Aðspurður segir Snorri að sér-
út* „Liturinn
staMr litgreiningarmenn ymðu
ráðnir til að hafa eftirlit með því
að rétt skattlögð olía fari á tanka
dísilbifreiða, verði ákveðið að fara
þessa leið.
situr mjög lengi í ol-
iunni og fari lituð olía í eldneyúis-
tankana má greina hana lengi á
eftir. Það eru jafnvel til tæki sem
greina litinn í útblæstrinum. Eig-
endur bifreiöanna þyrftu ekki að
verða neitt varir við þetta eftirlit.
Það er óþarfi að truíla menn með
slíku.“ -kaa
Mario Soares, forseti Portúgals, kom í opinbera heimsókn hingað til lands í gær. Forsetinn
hitti þá Vigdísi Finnbogadóttur að Bessastöðum, heimsótti Árnastofnun og sat kvöldverðarboð
á Hótel Sögu. í dag fer Soares til Þingvalla og Vestmannaeyja en heimsókninni lýkur á sunnu-
dag. Á myndinni sjást portúgölsku forsetahjónin skoða handrit á Árnastofnun undir leiðsögn
Jónasar Kristjánssonar forstöðumanns. DV-mynd JAK
Mótmælatívolí:
íbúar óttast
síbyljumúsík
ogskræki
„Við munum fjalla um bréf íbú-
anna á hafnarstjómarfundi á mánu-
dag. Það er búið að ræða staðsetn-
ingu tívolís mikið og menn sáu stað
fyrir það á nýja hafnarsvæöinu eða
austan Faxaskála. Fyrmefndi stað-
urinn þótti áhtlegri," sagði Guð-
mundur Hallvarðsson, formaöur
stjórnar Reykjavíkurhafnar, við DV.
íbúar í nágrenni Reykjavíkurhafn-
ar hafa sent hafnarstjóm bréf þar
sem þeir biðja hana um að íhuga
aðra staðsetningarkosti fyrir tívolí í
Reykjavík en Miðbakka, til að mynda
Örfirisey eða Geirsnef. Óttast þeir
ónæði þar sem era bæði „síbylju-
músík og skrækir" og drykkjulæti á
kvöldin. „Varla em sveiflu- eða
hristivélar af ómerkilegasta tagi sú
ásjóna Reykjavíkur, og reyndar ís-
lands alls, sem við viljum sýna er-
lendum ferðamönnum á skemmti-
ferðaskipum? (eða að myndefni
þeirra verði ölvaðir unglingar í mið-
nætursólinni)," segir í bréfi íbúanna.
-hlh
Veörið á suimudag
ogmánudag:
Víða rigning
ogskúrir
Á sunnudag og mánudag verð-
ur suðaustan- og austanátt en lík-
lega norðaustanátt á Vestfjörð-
um. Sums staöar strekkingsvind-
ur. Úrkomulítiö verður norðan-
lands en rigning eða skúrir í öðr-
um landshlutum, einkum suð-
austanlands. Hiti verður 5-13
stig, hlýjast í innsveitum norðan-
og vestanlands.
Veðrið í dag er á bls. 61