Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1993, Síða 21
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
21
Craig T. Nelson og Jiirgen Prochnow i hiutverkum sínum í Sviðinni jörð.
Sjónvarpið í kvöld:
Flótti
frá sviðmni
jorð
„Sviðin jörð“ nefnist sjónvarps-
þáttur sem sýndur verður í kvöld,
laugardagskvöld og annað kvöld.
Þetta er bandarísk spennumynd sem
nefnist á frummálinu „The Fire Next
Time“. Hún fjallar um gróðurhúsa-
áhrif á jörðinni og skelfilegar afleið-
ingar þeirra.
Myndin gerist árið 2017. Gróður-
húsaáhrif eru orðin geigvænleg á
vissum stöðum jarðar. Meðan vís-
indamenn og stjómmálamenn rífast
um hvað gera skuli til að sporna við
frekari vanda eru óbreyttir borgarar
að kafna í hita og mengun. Dauðinn
einn blasir við ef fram heldur sem
horfir.
Drew Morgan, fiskimaður frá Lou-
isiana, er ákveðinn í að fara norður
á bóginn, í kaldara loftslag. Hann
hyggst taka með sér fyrrverandi eig-
inkonu, Súsönnu, og þrjú böm.
Fyrsta verk sjómannsins er að ná í
elsta soninn, Paul, til Los Angeles.
Þar er hryllilegt umhorfs, fólk lokar
sig inni vegna ólofts og af ótta við
að fá húðkrabba. Þá gengur mikil
glæpaalda yfir borgina sem engu eir-
ir.
Meðan Drew er að sækja Paul,
kemur félagi hans í heimsókn til eig-
inkonunnar fyrrverandi. Hann hefur
selt eigur sínar fyrir nokkra og flust
norður á bóginn. Hann hvetur Sú-
sönnu mjög til þess að flytja norður,
þar sem hvirfilvindamir verði æ tíð-
ari og sterkari á svæðinu þar sem
hún býr nú, þannig að íbúamir séu
í stórkostlegri hættu. Hann segist
einnig hafa hug á að giftast henni.
Náttúruhamfarir
Nú kemur Drew einnig til að sækja
Súsönnu. í sama mund og hann kem-
ur inn í borgina, þar sem hún býr,
skellur á hverfilbylur. Hann leggur
borgina í rúst og þar með eignir
Morgan-fjölskyldunnar. Hún leggur
nú af stað til að flýja þetta land-
svæði, þar sem verður alltaf heitara
og heitara...
Fjölskyldan lendir í ótrúlegustu
hrakningum, auk þess sem ýmiss
konar tilfinningamál flækja máhn.
Þessi mynd er sýnd í tilefni af
umhverfisdegi Sameinuðu þjóðanna
sem er í dag, 5. júní. Það em engir
viðvaningar sem standa að gerð
hennar. Handritshöfundur er James
Henderson og íeikstjóm annaðist
Tom McLoughlin. Með helstu hlut-
verk fara Craig T. Nelson, Bonnie
Bedelia, Richard Farnsworth og
Jurgen Prochnow.
v\0s^X
e*r
e'
GRÍSAKÓTILETTUR
Ostakryddaðar
Marineraðar
Léttreyktar,kryddaðar
GRILLPYLSUR
Sœlkerapylsa með osti
Smelipylsa ,(Knackwurst)
HÖFN
SELFOSSI