Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1993, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1993, Page 26
26 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 19Í Tvær milljónir múslíma: í hvítu laki fyrir Allah íslenskar flugfreyjur ásamt pílagrímunum, sem allir eru klæddir í hvít, ósaumuð klæði. Það undirstrikar að allir eru jafnir tyrir guði. Brynhildur Ólafedóttir, DV, Saúdí-Arabíu; Á hveiju ári ferðast rúmlega tvær milljónir múslíma til Mekka í Saúdí- Arabíu í svokallaða pOagrímaferð. Flestir koma frá Miðausturlöndum, Suður-Asíu, Indónesíu og Norður- Afríku. íslendingar hafa í gegnum árin haft atvinnu af að flytja þessa pOagríma loftleiðina til og frá Saúdí- Arabíu. Bæði Flugleiðir og Amarflug hafa sent flugvélar og mannskap í pOagrímaflug og í ár starfa hátt í tvö hundmð manns viö pílagrímaflutn- inga í Jedda í Saúdí-Arabíu á vegum Atlanta flugfélagsins. Um þessar mundir er dvöl pílagrímanna í Mekka að ljúka og þeir fara að halda heim á leið eftir stærstu stund lífs síns. En hvað em þessar pílagrímaferðir og hvers vegna flykkist allur þessi ijöldi fólks tíl Mekka? Margtlíktmeð kristni og íslam Talið er að um 1/5 hluti mannkyns sé múslímar, það er íslamstrúar. ísl- am er grein af sama meiði og gyðing- dómur og kristni og margt er líkt með þessum trúarbrögðum. Guð múslíma heitir AOah og hann skap- aði himin og jörð og mennina með. Líkt og guð kristinna manna er Allah almáttugur og miskunnsamur. Heimsmynd múslíma og kristinna manna er svipuð og himnaríki og helvíti eru í báöum trúarbrögðunum. Spámenn gyðingdóms og kristni svo sem Abraham, Móses og Jesús eru einnig mikOvægir spámenn í íslam og hafa í gegnum tíðina leiðbeint mönnum um rangt og rétt. Múhameð fæddist í Mekka um 570. Þegar hann var 39 ára gamall birtist honum engill sem færði honum boð- skap AUah og er sá boðskapur uppi- staðan í Kóraninum, hinni helgu bók íslams. Múslímar trúa aö Múhameð hafi verið síðasti spámaöurinn í langri röð og að Kóraninn sé því lokaorð guðs. Múhameð var einungis dauðlegur maður, ólíkt Jesú í krist- inni trú, og bannað er að tflbiðja hann beint. Mekka var á tímum Múhameðs miðstöð verslunar og mikilvæg pOa- grímaborg en þar tObáðu menn ýmsa heOaga hluti. Ferðamannaiðnaðin- um í Mekka stóð ógn af Múhameð, sem boöaði eingyðistrú, og meðal annars af þeim sökum hrökklaðist hann frá Mekka tfl Medina árið 622. Tímatal múslíma er miðað við þann atburð og nú er árið 1414 í hinum íslamska heimi. Fimm stoðir íslams Múhameð setti fram fimm grund- vallaratriði, nokkurs konar boðorð sem kölluð hafa verið stoðir íslams. Fyrsta stoðin er trúaijátning mús- líma. Önnur stoðin er bænin, en múslímum er uppálagt aö snúa sér í átt aö Mekka fimm sinnum á dag og biðjast fyrir. Múslímar eiga einnig að borga nokkurs konar eignarskatt sem rennur tfl góðgerðarmála og fasta einn mánuð á ári, Ramadan. Fimmta stoð íslams er pílagríms- ferð tO Mekka, ef efni og aöstæður leyfa, en Múhameð fór einmitt í pOa- grímsferð til fæðingarborgar sinnar skömmu fyrir dauða sinn. Engin maður er þó minni fyrir guði þótt hann fari ekki í pOagrímsferö en launin eru víst í paradís. Flestir pílagrímamir koma með flugi tO Jedda í Saúdí-Arabíu þaðan sem þeir eru fluttir með rútum til Mekka en einungis múslímar mega fara inn í borgina. Margir pílagrímar byrja einnig eöa enda ferð sína í Medina þar sem Múhameð dó. Píla- grímaferðirnar eru afltaf farnar í sama mánuði, eftir tímatali múslíma, en þar sem ár þeirra er styttra en sólaráriö færast ferðirnar tO eftir vestrænu tímatah. Sköllóttir í hvítum lökum Ýmsar venjur hafa myndast í kringum pílagrímaferðirnar. Allir sem í þær fara þurfa tO dæmis að klæðast hvítum, ósaumuöum klæð- um og því er hefðbundinn klæðnaður pflagríma tvö hvit lök eða stór hand- klæði. Þetta er gert tO að undirstrika að allir eru jafnir fyrir guði, ríkir sem fátækir. Pílagrímarnir raka einnig hárið af höfði sér og dýrum er slátrað og kjötinu dreift meðal fátækra. Fólkið safnast saman í hoflnu Kaaba í Mekka, biður saman og gengur í kringum svartan stein sem er í miðju hofsins. Inni í hofinu er einnig upp- spretta sem tengist sögu Abrahams og fólk fyllir þar flöskur með heOögu vatni, svokölluðu Zamzam. Hátindur pílagrímaferðanna er þó rétt fyrir utan Mekka á fjallinu Arar- at. Þar flutti Múhameð sína síðustu prédikun en sagan segir að Adam og Eva hafi búið þar eftir brottrekstur- inn úr Paradís. Við sólarupprás standa aOir pOagrímarnir upp sem einn maður og biðja saman á helg- asta augnabliki lífs síns. „Þetta er andleg hreinsun og syndaaflausn fyrir guði. Þama eru alhr jafnir. Það skiptir engu hvort maöurinn er hvítur eða svartur, fá- tækur eða ríkur. Samkenndin sem menn finna og bræðralagið sem myndast er ólýsanlegt. Það jafnast ekkert á við þessa tilfmningu,“ segir Ibrahim, olíuverkamaður frá Dahar- an í Saúdí-Arabíu, vafinn í hvítt lak, á leið í sína fjórðu pOagrímsferð. Hilke Jakob, yfirflugfreyja hjá Atlanta: Þá hafði maðurinn dáið skömmu eftir flugtak Brynhildur Ólafedóttir, DV, Saúdi-Arabíu: „í einni fyrstu ferðinni minni með pOagríma var mjög lasburða, gamaO maður borinn um borð,“segir Hilke Jakob, yfirflugfreyja hjá Atlanta flugfélaginu í MosfeOsbæ. „ Hann var settur í sæti og breitt yfir hann. Ég bar til hans mat sem hann snerti aldrei og bauð honum kafli og eitthvað að drekka en mað- urinn sem sat við hliöina á honum benti mér bara í burtu. Þegar við lentum þá sátu þessi ganOi maður og maðurinn við hhðina á honum sem fastast. Ég ætlaði að aðstoða þá út en þá kom í þós aö gamO maöur- inn var dáinn og hafði sennOega dáið stuttu eftir flugtak. Maöurinn sem sat við hOöina á honum var honum aOs óskyldur en hafði tekið það á sig að hugsa um gamla manninn og beið um borö í vélinni þar tO hann var sóttur og fór með honum út. Mér varð mikið um þetta og fór tíl flugstjórans sem var frá Súdan. Hann útskýrði fyrir mér að þetta væri aflt í lagi og ég skyldi ekki hafa áhyggjur af þessu. Hugsun- arhátturinn væri annar. GamO mað- urinn hafði komist tO Mekka í sína pílagrímsferð og þaö. var allt sem hann vOdi. Hann var kominn í sælu- ríkið og eftir það gat hann dáiö ánægöur." Missti fóstur um borð Hilke er stödd í Saúdí-Arabíu en Atlanta hefur gert samning, meðal annars um pOagrímaflug, við ríkis- flugfélagið þar í landi. Hilke hefur yfirumsjón með um 140 flugOöum í Jedda í Saúdí-Arabíu, þar af tugum íslendinga. „Pílagrímar eru afskaplega elsku- legt fólk og þetta starf er mjög gef- andi. Maöur hittir fólk sem er þakk- látt fyrir aOt sem maður gerir fyrir þaö, hvem vatnsdropa sem það fær og klappar manni í bak og fyrir. Ég man eftir einni konu sem missti fóstur í flugvéOnni. Við reyndum aö gera það sem viö gátum og fengum mikið þakklæti í staðinn. Það er í raun sama hvort maöur kemur með plástur eða höfuðverkjatöflu. Þau verða svo þakklát fyrir að maður skflur að þau eiga bágt og reynir aö veita þeim einhveija aöstoð." Skrýtin tæki Hilke hefur unnið við pOagríma- flug frá 1988 og segir að þrátt fyrir að mikfll munur sé á pílagrímum eftir því hvort þeir koma frá Afríku, Asíu eða Evrópu þá hafi tfl dæmis pOagrímar frá Afríku ekki mikið breyst frá þvi hún byijaði. „Þetta fólk lifir sínu lífi og það breytist ekkert við að stíga um borð í flugvél. UndantekningarOtið er þetta í fyrsta skipti sem það kemur í flugvél og velflestir hafa aldrei séð klósett. Þeir koma inn og kíkja á kló- settin, alveg furðu lostnir og hafa ekki hugmynd um hvemig á að nota þessi skrítnu tæki. Það fer í mig ef það þarf að þrífa klósettin eftir Evr- ópubúa því þess ætti ekki að þurfa, en maður horfir öðrum augum á hlutina þegar verið er að flytja píla- gríma annars staðar frá þar sem hefðimar em aðrar. Ég verð að segja að ég er hissa á hvað íslensku flugOðarnir taka þessu öflu saman vel. Það er sama hvað gerist, þeir láta sig hafa það að þrífa upp kúk og piss eins og ekkert sé. Mér fmnst íslendingar skara fram úr í þessum efnum því það kemur þeim ekkert á óvart. Þeir ganga í verkin án þess að velta sér upp úr þeim. Ef þeir taka að sér svona verk- efni þá vinna þeir þaö möglunar- laust.“ Með eldhúsinnrétt- ingar í farteskinu Að sögn Hilke er skipulagið á píla- grímaferðunum betra núna en þegar hún var að byija í þessu starfi. Áður þurfti kannski að bíða klukkutímun- um saman eftir farþegunum á meðan verið var að smala þeim saman úr öllum áttum. Handfarangur píla- grímanna á leiðinni tfl baka hefur líka verið vandamál. Fólk kaupir ótrúlegustu hluti 01 að taka með sér heim. Sjónvarpstæki, potta og pönn- ur og jafnvel heOu eldhúsinnrétting- arnar. Þær flugvélar sem notaðar eru í pílagrímaflugið líta líka oft mjög illa út á eftir. Sætin eru skítug og ónýt, sætisvasamir hanga niður og klósettin eru að detta í sundur. Að sögn Hilke er það ein meginástæða þess aö ríkisflugfélagið í Saúdí- Arabíu notar ekki eigin flugvélar í pOagrímaflugið. Margir snúa aldrei aftur Hilke segist Ota sömu augum á pOa- grímaferðir múslíma nú og kross- ferðirnar sem kristnir menn fóru tíl Jerúsalem á miðöldum. „Mitt sjónarmið er að þetta sé svip- að. Mér finnst músOmar vera á svip- uðu stigi í sínum trúmálum og kristnir menn voru fyrir um 500 árum. POagrímarnir leggja á sig mjög erfiða ferð. Þeir þurfa oft að ganga dögum saman bara til aö koma sér á flugvölOnn. Síðan bíða þeir eft- ir aö komast um borð í véOna og eru þá orðnir svangir og þyrstir. Flug- ferðirnar til baka eru svo aOtaf erfið- ari. Þá hrynur fólk niður, það er þreytt, með einkennOegan hósta og jafnvel veikt. Margir af þessum pfla- grímum er mjög gamalt fólk sem hefur safnað aOa ævi fyrir þessari ferð og maður sér á sumum að þeir koma aldrei tO baka. En þetta er bara svona," segir HOke. I LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 39 Þuríður Siguröardóttir, söngkona og flugfreyja í Saúdí-Arabíu: Stundum í vandræðum með ofstækismennina Þuríður Sigurðardottir i fullum skrúða. Grunur leikur á að íslenskt höfuð sé undir köflótta dúknum við hliðina á henni. aö þær mega hvergi vera. Konur hérna eru til dæmis oft mjög feitar. Þaö er hreinlega vegna þess að þær hafa engin tækifæri tO að hreyfa sig og ekkert annað að gera en hittast í heimahúsum og borða.“ Fagnaðarlæti við aftökur „Hins vegar er maður mjög örugg- ur héma og ég hef aldrei fundið fyrir því að ég þyrfti að halda fastar um budduna mína enda er mjög strangt tekið á því ef fólki verður á í mess- unni. Fólk missir höndina fyrir þjófnað og fyrir tveimur vikum voru fjórir líflátnir fyrir heróínsmygl. Fólk er líflátið hér fyrir opnum tjöld- um. Þeir sem eru strangtrúaðir sækja í þessar athafnir og það bijót- ast út fagnaðarlæti við hveija af- töku,“ segir þuríður. „Ég hef mikið reynt að setja mig inn í hugarfariö hérna en oft á tíöum held ég að við lokum svohtið fyrir tengsl við fólkið. Friðrik, maðurinn minn, kom í heimsókn hingað og við fórum niður í bæ og keyptum á hann arabískan höfuðbúnað, rauðköflótt- an klút og tilheyrandi. Hann setti búnaðinn upp og við gengum af stað. Við vorum ekki alveg viss um hvern- Brynhildur Ólafedóttir, DV, Saúdí-Arabíu: „Stundum lendir maður í vand- ræðum meö ofstækismennina sem ekki vfija horfa í augun á konum og vfija ekki að konur snerti sig. Það getur verið erfitt að sinna öryggis- gæslu um borð í flugvélunum við þær aðstæöur. Þá þarf oft að beita lagni, til dæmis þegar þarf að hjálpa og kenna fólki að festa öryggisbeltin. Maður þarf sífeflt að vera vakandi og minna sjálfan sig á að maður er í landi sem setur aflt aðrar kröfur um siðgæði. Þetta er svo ofboöslega ólíkt þvi sem við eigum aö venjast. Hins vegar eru þetta oftast mjög elskulegir farþegar og maður er bú- inn að hitta mikið af góðu fólki. Ég sé til dæmis mun á ftúlorðnu fólki hér eða heima. Það er sama hvað landið heitir, maður uppsker eins og maður sáir. Þetta er fólk sem búið er að lifa sitt og maður fær mikið af hlýjum kveðjum og notalegu við- móti, klapp á öxhna og blessun í bak og fyrir. Ef Guð er AOah eöa AOah er Guð þá hlýtur maður að eiga greiöan aðgang að hinu guflna hliði,“ segir Þuríður Sigurðardóttir, flug- freyja, söngkona og dagskrárgerðar- maður meö meiru. Flugið kitlar Þuríður er þessa dagana í Jedda í Saúdí-Arabíu að vinna sem flug- freyja í pílagrímaflugi fyrir Atlanta flugíélagið í Mosfellsbæ. „Ég bytjaði að fljúga árið 1973. Þá var ég búin að syngja á veitingastöð- um í Reykjavík nánast á hveiju kvöldi í fimm ár og fannst ég þurfa að prófa eitthvað nýtt. Guðni í Sunnu var að skipuleggja sumarferðir og ætlaði aö nota spænskt leiguflugfélag til að flytja farþega frá íslandi og þá vantaði íslenskumælandi flugfreyju. Það er ekki oft sem maður kemst í þetta starf út á íslenskuna en ég fór á mitt fyrsta flugfreyjunámskeið á Spáni og var þar eitt sumar. Það æxlaðist svo þannig að ég fór að fljúga á sumrin og syngja á vetuma. Þessi vinna mín við flugfreyjustarfið jókst svo smám saman þar tO ég byrj- aði hjá Arnarflugi og árið 1981 varð þetta mitt aðalstarf. Það var mjög sárt að sjá á eftir Amarflugi. Þá lokaðist eitthvað inni 1 manni og ég hélt aö ég ætti aldrei eftir að fara út í þetta aftur. En flug- ið kitlar aOtaf. I fyrstu sótti ég um hjá Atlanta af rælni en svo var ég farin að sækja það fast. í upphafi ætlaði ég að vera í fjórar vikur í Saúdí-Arabíu en það hefur dregist því það hefur verið þörf fyrir fólk með reynslu og þekkingu á svæð- inu.“ Klöngrast upp á klósettin Þuríður hefur áður unnið við píla- grímaflug í Saúdí-Arabíu. Árið 1983 flaug hún á vegum Amarflugs með farþega frá Líbíu í Norður-Afríku til Jedda og árið 1986 var hún staðsett í Jedda. „Pílagrímaflug frá einu landi til annars er mjög óOkt. Það er gjörólíkt að fljúga með pflagríma frá Suður- Pakistan eða Casablanca í Marokkó. Þetta em svo ólíkir þjóðernishópar að það er engu saman að jafna. Að vísu em klósettin víða vandamál vegna þess aö fólkið kann ekkert að nota þau. Það sem afiir tala fyrst um þegar minnst er á pOagrímaflug eru einmitt klósettin og áður en ég flaug fyrst var búiö að hræöa okkur upp úr skónum með að þrifnaður væri af skomum skammti. Verst er þegar fólk er að klöngrast upp á klósettin tO að gera þarfir sínar. Stór stykki lenda þá ekki alltaf á sínum stað. Þaö var annars búið að vara okkur við ýmsu varðandi arabalöndin, meðal annars aö við þyrftum að hylja ökkla og olnboga. Við vorum hins vegar bara í okkar einkennisfatnaði, pOsum og stuttermablússum. Ég man eftir því þegar ég stóð í dyrun- um á flugvélinni, tilbúin í fyrsta flug- ið mitt frá Líbíu. Stór hópur af kon- um kom hlaupandi í áttina að vélinni með einkennilegum hljóðum. Ég hélt að nú væri þetta búið, að þær ætluðu í mig út af stutta pOsinu og blúss- unni. Þegar til kom vom þetta fagn- aðarlæti, nokkurs konar hátíðni- hljóð sem þær mynda með því að sveifla tungunni uppi í gómnum svo úr veröur ofsalegur hávaði. í hveiju flugtaki og lendingu mynduöu þær þetta hljóð. Ég er búin að reyna mik- ið tO að ná þessu en hef aldrei getað gert þetta eins hátt og þær. Ég varð hins vegar aldrei vör við aðkast út af búningnum," segir Þuríður. Þuríöi er ýmislegt fleira til lista lagt en að syngja, stjórna útvarpsþáttum og fræða fólk um umferðina. Hún teiknar nefnilega listavel, eins og sjá má á meðfylgjandi teikningu sem þarfnast ekki nánari útskýringa. Svartklæddar veröa þær að vera, konurnar, sem láta sjá sig úti á götu. Þessi búningur nefnist abaya. Þarna eru tvær íslenskar flugfreyjur að spóka sig í borginni. í svartri skikkju, með blæju Flugfreyjur Atlanta í Jedda klæð- ast sérstökum einkennisfatnaöi viö vinnuna: buxum, síðri mussu og slæðu sem hylur hárið. Á almanna- færi verða einnig allar konur í Saúdí-Arabíu, hvort sem þær eru músOmar eða ekki að klæöast svo- kölluðu abaya sem er síð, svört skikkja og hylja háriö með svörtu sjali. Þuríður segir ástandið í Saúdí- Arabíu hafa breyst mikið frá því hún kom þangað fyrst árið 1986. „Þá vorum við bara í pOsi og blússu í vinnunni og fórum niður í bæ í gallabuxum. Núna dytti mér ekki í hug að fara út af hótelinu öðruvísi en í abaya. Ég varð heldur aldrei vör við trúarlögregluna í þá daga. Svo virðist sem Persaflóastríðið hafi breytt hlutunum mikið og orðið tfl þess aö menn halda betur utan um trúna en áður. Það er reyndar mjög einkeniúlegt varðandi þennan klæðaburð að mað- ur er fljótur að aölagast þessu. Ég er sannfærð um að mér Oði Ola að fara niður í bæ venjulega klædd eftir að hafa komist upp á lag með að setja svarta slæðu yfir höfuöið. Það sést hins vegar strax að viö erum Evrópu- konur því við bindum slæöumar ekki eins fast og erum ekki með andOtið huOð eins og þær innfæddu. Manni finnst alveg ótrúlegt að konur skuO sætta sig við að vera svona klæddar. Þetta dregur í sig hitann og það er ekkert grín að vera með blæju fyrir andOtinu, það er ég búin að prófa. Það sést svo sem ágætiega í gegnum slæð- una en þetta er óþægOegt og það er erfitt að tala við konur svona klæddar því maður sér engin viðbrögð. Annars er misjafnt eftir arabalönd- unum hvernig konur klæða sig. Hér eru þær svartklæddar frá hvirfli til ilja en í Kúveit skreyta þær sig með hvítu eöa grænu klæði fram á ennið. í Líbíu eru konurnar klæddar hvítri skikkju og svo eru sumar hirðingja- konur frá Persaflóanum með nokk- urs konar stálgrímu fyrir andlitinu." Konurmega ekki keyra i Saúdí-Arabíu er margt ólíkt þvf sem íslendingar eiga að venjast. Áfengi er stranglega bannað af trúar- ástæðum og svínakjöt sömuleiðis. Þuríður vann hjá Umferðarráði sið- asta vetur sem dagskrárgerðarmað- ur en í Saúdí-Arabíu mega konur ekki einu súini keyra bfl. „Þaö er ýmislegt svona sem manni finnst alveg fáránlegt og mjög erfitt að sætta sig við. Ég er sannfærð um að það stendur konum fyrir þrifum ig fólk myndi taka þessu, verða móðgað eða hvað. Þetta vakti hins vegar mikla kátínu og fyrir vikið fengum við mikið af kveðjum, menn hlógu og klöppuðu honum á öxl. Ég held að ég hafi aldrei séð jafnmarga araba brosa og hafa eins gaman af einhveiju og þama. Þetta sýnir að maður veit í raun aldrei hvemig maður á að haga sér héma.“ Vatn í kristalsglösum Að sögn Þuríðar eru andstæðurnar í saúdí-arabísku þjóðfélagi einmitt mjög miklar og eftirtektarverðar. „Maöur uppOfir andstæðumar í þessu landi svo glöggt. Við fómm til dæmis út að borða á mjög góðan veit- ingastað sem sérhæfir sig í sjávar- réttum. Þetta er yndislega róman- tískur staöur meö silkidamaskdúka á borðum, kristalsglös og borðbúnað úr postuOni og silfri. Áfengi er bann- að í landinu og þjónninn kom með vatn í fínu kristalsglösin. Við höfum aldrei áður séð heflt úr vatnsflösku úr plasti með jafnmiklum elegans og þarna. Maturinn var síðan borinn fram á postulíns- og silfurfótum og þar á meöal franskar kartöflur. Svo var Libby’s tómatsósuflösku skeOt á mitt borðiö. Svona er þetta hérna. Annars vegar er gífurlegt ríkidæmi og elegans og hins vegar fátækt og Libby’s tómatsósuflaska. Sömu andstæður er að finna þegar kafað er við kóralrifin við ströndina. í þessu landi em engir Otir. Konur og karlar eru í svörtum og hvítum klæðum og svo er bara sandur og Otiaus hús. Síöan þegar maður fer að kafa þá eru þar fiskar og kóralar í öflum regnbogans Otum. Aö kafa héma er ehis og detta inn í þá 1001 nótt sem við emm öO að leita að og finna hana undir yfirborði sjávar.“ Dýrmætt tækifæri „Það er dýrmætt tækifæri aö kom- ast í svcna útgerð. Maður heimsækir ekki þennan heimshluta sem feröa- maður og hefði aldrei komist á þessa staði nema í gegnum vinnuna. Með opnum huga lærir maður margt um menn og málefni. Þrátt fyrir tungu- málaörðugleika finnur maður margt sammerkt bæði hvað varðar almennt viömót og trúarbrögðin. Það er ýmis- legt sem við þekkjum þó að útfærslan sé önnur,“ segir Þuríður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.