Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Blaðsíða 29
28
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1993
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1993
37
ff
Erflðir dagar hjá poppgoðinu Michael Jackson:
Trúi ekki þessum
//
sögum um hann
- segir Anna Mjöll Ólafsdóttir sem upplifði ævintýralega helgi ábúgarði stórstjömunnar
Anna Mjöll dreifir þessari mynd f fyrirtæki þar sem hún vill koma sér á
framfæri í Los Angeles. Myndin hrifur því Anna hefur fengið nokkur tilboð.
Anna Mjöll og leiklistarkennari hennar, leikarinn lan Ogilvy.
Sigurlaug Rósinkranz bauð önnu Mjöll i brúðkaup dóttur sinnar og þar var
þessi mynd tekin af henni og Maxwell sem er borgarstjóri í Beverly Hills.
„Eg trúi ekki orði af þessum sög-
um. Það er búið að ráðast á Michael
Jackson síðan hann var fimm ára
gamall. Fólk er alltaf að búa til ein-
hveijar sögur til að hafa af honum
fé. Ég mundi aldrei í lífinu trúa slik-
um sögum," segir Anna Mjöll Ólafs-
dóttir söngkona sem 1 sumar var svo
heppin að eyða heifii helgi á búgarði
stórstjörnunnar Michaels Jacksons.
Eflaust hefðu margar stúlkur viljað
vera í hennar sporum þá daga enda
segir Anna Mjöll að þetta hafi verið
ógleymanlegt ævintýri. Hún féllst á
að segja lesendum DV frá þessari
skemmtilegu helgi.
„Vinur minn, Eddie Barber, tók
þátt í keppni um besta tónlistar-
myndbandið á sjónvarpsstöðinni
MTV en þátttakendur áttu að gera
myndband um lagið Who Is It, eftir
Michael Jackson. Þrír aðilar komust
í úrsht og hver þeirra mátti taka með
sér einn gest heim til poppgoðsins
og eyða einni helgi hjá honum þegar
úrshtin yrðu kynnt. Þessi vinur
minn fékk ekki stundlegan frið þegar
þetta fréttist þar sem ahir sem hann
þekkir vhdu fá aö koma með honum.
Ég var líklega eina manneskjan sem
minntist ekki einu orði á þetta heim-
boð.“ Hún heldur áfram með frá-
sögnina:
„Það var svo einn daginn að Eddie
spurði mig hvort ég vhdi koma með
sér til Michaels Jacksons. Ég varð
auðvitað spennt en gerði mér samt
ekki á þeirri stundu grein fyrir hvað
þetta var gott boð. Og klukkan þrjú
á fostudegi flautaði hvít hmúsína fyr-
ir utan húsið hjá mér. Það tekur þrjá
og hálfan klukkutíma að keyra heim
til Michaels Jacksons frá heimili
mínu. Þegar við vorum búin að keyra
í eina klukkustund bilaði hmúsínan
á hraðbrautinni og var alveg stopp.
Víkingseðlið braust þá út í mér og
ég rauk út til að ýta bílnum í gang.
Karlmennirnir komu út á eftir og öh
reyndum við að ýta. Þetta var eigin-
lega svolítið fyndin byrjun á ævin-
týralegri helgi. En bhhnn fór ekki í
gang svo að panta varð aðra hmús-
ínu.
Trén eins og
úrteiknimynd
Við vorum komin heim th Mi-
chaels rétt fyrir kvöldmat. Hann var
ekki heima þegar við komum en var
væntanlegur. Ráðskonan tók á móti
okkur ásamt tveim öryggisvörðum
og einkaljósmyndara Michaels. Hún
var ofboðslega almennheg og tók á
móti okkur eins og við hefðum þekkt
hana lengi. Okkur var vísað á þrjú
gestahús sem standa rétt utan við
hús Michaels. Þar dvelur Ehsabet
Taylor þegar hún kemur í heimsókn
og helgina á undan okkur var Dudley
Moore þar.
Þetta var æðislega flott hús -
minnti svohtið á skíðaskála í Ölpun-
!um. Aht húsið var klætt dökkum
viði. Þegar ég hafði komiö farangri
mínum fyrir langaði mig aö skoða
umhverfið. Fyrir utan gestahúsin er
vatn þar sem eru bátar og hægt að
fara á sjóskíði. Trén í garðinum eru
innflutt, þau eru mjög furðuleg, eins
og khppt út úr teiknimyndum. Á
kvöldin eru þau upplýst eins og við
þekkjum á jólunum. Þegar farið er í
gegnum garðinn heyrir maður mis-
munandi tónhst, á einum staðnum
er söngleikjatónhst, á öðrum sinfó-
níur og þess háttar. Við gengum um
garðinn og fengum síðan að skoða
íbúðarhús Michaels að innan, aht
nema svefnálmuna hans, en tveir
tindátar í fullri stærð standa þar fyr-
ir framan. Ég heyrði þó að þar inni
væri svohth óreiða á hlutunum og
m.a. margir pokar, fullir af nýjum
leikfóngum, sem hann gefur vinum
sínum. Mér fannst heimihö hans
mjög hlýlegt og vinalegt. Enginn
„glamúr" eins og maður hefði getað
haldiö. Þar er mikið af dökkum viði
og mörg stór málverk af honum
skreyta veggina. Eitt þeirra vakti
sérstaka athygli mína. Það náði yfir
hehan vegg og í miðjunni var Mi-
chael að lesa úr ævintýrabók fyrir
fullt af börnum við kertaljós að
kvöldi til úti í skógi. í kring flögruðu
ljósálfar og andhtin á þeim voru and-
lit vina Michaels, s.s. Elísabetar Ta-
ylor og Brooke Shields.
í miðri stofunni er stórt líkan af
skipinu úr „Captain Eo“. Við hhðina
á því eru svo tvö borð þar sem eru
myndaalbúm með myndum úr brúð-
kaupi Ehsabetar Taylor og Larrys
Fortenskys sem haldið var í garði
Michaels. Tvö herbergi, sem ég fór
inn í, voru troðfuh af ahs kyns leik-
fóngum. Ég hélt að manni yrði fylgt
um með öryggisvörðum en þaö var
ekki.
Fjölmiðlar fá ekki slíkan aðgang.
Það sást best þegar sjónvarpsfólk
MTV kom til að veita verðlaunin á
laugardaginn. Það fékk aöeins að
koma í skemmtigarðinn hjá Michael.
Sá garður er eins og Disneyland rétt
fyrir opnun - öh tækin í gangi en
enginn í þeim.
Leikið vió apana
Á laugardaginn átti að upplýsa
hver af þessum þremur, sem til-
nefndir voru, myndi hljóta verðlaun-
in. Áður en að því kom fór ég á stjá
th að skoða mig um og mætti þá þjáíf-
ara með tvo af öpum Michaels. Ap-
arnir heita Max og Patrick Jackson.
Þeir voru báðir klæddir í smekkbux-
ur og stuttermaboh. Max vhdi óður
leika við mig en Patrick var svo mik-
ih kvennabósi að hann stakk hausn-
um undir bol hjá mér og vhdi bara
skoða barminn.
MTV-sjónvarpsfólkið beið okkar í
skemmtigarðinum því þar átti að
fara aö mynda verðlaunaafhending-
una. Enginn vissi hvort Michael
myndi sjálfur veröa viðstaddur og
menn voru því spenntir að bíða og
sjá. Allt í einu var tilkynnt að alhr
ættu að setjast upp í lest sem fór um
svæðið og koma í hádegisverö. Ég,
og Eddie, fórum hins vegar í bíósal-
inn þar sem við vissum að Michael
væri. Þegar við komum þar inn sáum
við hvar stórstjaman stóð og var að
fá sér ís úr ísvél. Við hehsuöum hon-
um á frekar formlegan hátt en hann
var mjög þæghegur í viðmóti.
í víkingaskipi með
Michael Jackson
Eftir matinn lá leiðin síöan aftur
út í skemmtigarðinn og ég sá hvar
Michael og nokkrir krakkar héldu
út í víkingaskip. Þetta voru börn
bræðra hans og starfsmanna. Mi-
chael er sérstaklega góður við börn.
Hann kahaði th mín og bauð mér að
koma með þeim í víkingaskipið sem
ég þáði auðvitað. Þegar við stigum
út úr víkingaskipinu kom ljósmynd-
ari og tók mynd af okkur saman.
Michael talaði ekki mikið við mig í
þetta skiptið enda hvarf hann strax
eftir ljósmyndatökuna.
Ég fór hins vegar að skoða dýra-
garðinn hans sem er risastór og fuh-
kominn. Þar mátti sjá gíraffa, fh,
hesta, lamadýr, kengúrur, fugla,
kanínur, slöngur, kóngulær og ljón,
svo eitthvað sé nefnt. Ég hreifst mjög
aö lamadýrinu sem heitir Jingle
Behs.
Síðan var boðið í kvöldverð og
maður vonaði náttúrlega að Michael
yrði með okkur. En hann lét ekki sjá
sig. Eftir matinn vhdu vinningshaf-
arnir fara í kvikmyndahúsið hans
og sjá Cliffhanger með Sylvester
Stahone. Ég gat ekki hugsað mér að
setjast inn í bíósal og horfa á kvik-
mynd. Ég fór því ein aö þvælast
meðan hinir fimm fóru í bíó. Það var
komið myrkur svo ég fékk mér golf-
bh og keyröi út í tívólíið. Þar voru
tveir menn aö vinna og öh tækin í
gangi. Ég fór alein í öh tækin. Starfs-
mennimir spurðu hvað ég vhdi prófa
næst og löbbuöu með mig um allt
svæðið. Það var mjög skrítið að vera
alein í tívólíi þetta kvöld. Þarna eru
t.d. hraðskreiðustu klessubílar sem
ég hef á ævinni prófað.
Hrifinn af Jólalegum
jólum
Þegar ég var búin að prófa tækin
fór ég í sphasahnn sem þarna er líka.
Þar er fuht af tölvuspilakössum og
maður ýtir bara á einn takka á
veggnum og þá kviknar á öllum sph-
unum. Þama inni voru fimm krakk-
ar og ég fór að spha með þeim; við
fórum t.d. í billjarð. Þegar ég var að
labba út heyrði ég rödd sem sagði
„Hæ“ og þegar ég sneri mér við stóð
Michael Jackson þar í svörtum föt-
um þannig að hann sást varla í
myrkrinu. Hann haföi verið að horfa
á okkur í sphasalnum í gegnum
gluggann og við vissum ekkert af
því. Hann sagði: „Takk fyrir diskinn,
hann er æðislegur, ég aetla að hlusta
á hann aftur í kvöld.“ Ég gaf honum
plötuna Jólaleg jól fyrr um daginn
og hann var búinn að hlusta á hana.
Michael var að fara upp í golfbíl
ásamt ungum bróðursyni sínum og
bauö mér að koma með þeim í öku-
ferð. Þeir óku í dýragarðinn og Mi-
chael sýndi mér slöngur og tarantúl-
ur. Hann tók eina tarantúluna upp,
risastóra og loðna kónguló, og spurði
hvort ég vhdi ekki prófa að halda á
henni. Ég hefði aldrei þorað nema
vegna þess að það var Michael Jack-
son sem bað mig. Síðan bað ég hann
að koma og skoða uppáhalds lama-
dýrið mitt og hann var aldeilis th í
það.
Vissi ekkert
um ísland
Ég hef aldrei átt neitt átrúnaðargoð
en sá listamaöur, sem ég hef metið
mest í gegnum árin, hefur verið Mi-
chael Jackson þannig að það var of-
boðslega skrítin thvhjun að ég skyldi
hitta hann þama. Við ræddum síðan
um höfnmga og ég sagði að mér
þætti þeir svo skemmtheg dýr. Þá
sagðist hann eiga von á höfrungum
bráðum og spurði hvort ég vhdi
koma og skoða þá. Maður veit því
aldrei hvernig það verður með fleiri
heimboð," segir Anna Mjöh.
- En vissi Michael eitthvað um ís-
land?
„Hann vissi ekkert um ísland og
haföi reyndar í fyrstu ekki hugmynd
um aö ég væri þaðan. Þegar viö vor-
um að keyra um svæöið reyndi ég
að segja honum aht um ísland sem
ég mundi þannig að hann veit heh-
mikið um landið núna. Ég gæti meira
að segja trúað að hann heföi fengið
áhuga á landinu. Ég sagði honum að
þetta væri sérstakt land og hér væru
t.d. margir góðir staðir th að taka upp
tónlistarmyndbönd. Ef einhver hefur
efni á að koma hingað og taka upp
myndbönd þá er þaö hann og ég er
viss um að hann hefur áhuga á því.
Hann spurði mig hvað tæki langan
tíma að fljúga hingaö og honum
fannst nafnið Iceland mjög fahegt.
Jarðbundinn
venjulegur maður
- Enhvemigkompoppgoðiðþérfyr-
ir sjónir?
„Hann er sá mest normal maður
sem ég hef kynnst. Hann er gífurlega
jarðbundinn. Og greinhega með stórt
hjarta. Það sést t.d. á því aö í bíóinu
hans eru tvö sérherbergi á bak við
bíósalinn með stórum glugga og upp-
búnum rúmum. Ég vihtist óvart
þama inn og hélt fyrst að þarna
væri einhver pervertgangur á ferð-
inni en starfsmaöur í bíóinu sagði
að herbergið væri fyrir sjúk og dauð-
vona börn sem Michael býður í heim-
sókn.“
Fyrsti Norðurlanda-
búinn hjá Jackson
Anna Mjöh veit ekki hvort hún er
fyrsti Norðurlandabúinn sem kemur
heim th Michaels Jacksons en ekki
er ólíklegt að svo sé: „Þetta var í
annað skipti sem fjölmiðlafólk kem-
ur heim th hans og fékk það þó ekki
að koma inn í húsið hans. Fyrra
skiptið var þegar sjónvarpskonan
Oprah Winfrey tók viðtal við hann.“
Myndir af Önnu Mjöh í skemmti-
garði Michaels Jacksons hafa oft
birst hjá sjónvarpsstöðinni MTV.
Eddie, vinur hennar, sem vann
reyndar keppnina, bjó th nokkurs
konar „show“ í kringum þau með því
að biðja Önnu Mjahar en Ameríkan-
ar gera næstum aht th að koma sér
á framfæri. „Á föstudagskvöldið
sagði hann mér að rétta fram hönd-
ina og loka augunum. Þar sem mikið
er af litlum froskum í garði Micha-
els, sem ég haföi verið að leika við,
hélt ég að hann ætlaði að rétta mér
einn slíkan. Ég fleygði honum því frá
mér. Þegar ég opnaði augun sá ég
hvar Eddie lá á fjórum fótum í gras-
inu, eins og hann væri að leita að
einhverju, og komst þá að því að það
haföi ekíti verið froskur, sem ég
fleygði, heldur gullhringur," segir
Anna Mjöh sem hafnaði bónorðinu.
Eddie var fljótur að koma þeim skha-
boðum á framfæri fyrir framan sjón-
varpsmyndavélarnar að stúlkan,
sem hann bauð th Michaels Jack-
sons, heföi neitað að giftast sér. Einn-
ig sagði hann frá þessu í viðtölum
við USA Today og L.A. Times. „Þetta
fannst fólki mjög spennandi. Ég
komst síðan að því að hann valdi
mig þar sem það þykir fréttnæmt að
vera meö blondínu frá íslandi sem
þar að auki hryggbrýtur mann. En
það er bara einn maður í heiminum
í dag sem ég gæti hugsað mér að gift-
ast og hann býr á íslandi. Það er
leyndarmál hver hann er en það er
ekki söguhetjan úr Landslaginu. Ég
er búin að gera lag til hans sem ég
býst við að ég sendi í Eurovision-
keppnina í vetur.“
Unnið við
sjónvarpsþátt
- En hvemig kynntist þú Eddie?
„Ég var aö syngja í klúbbi ásamt
gömlum vini mínum úr Toto. Eddie
kom og horföi á og bauð mér síðan
út kvöldið eftir. Ég þorði ekki að sam-
þykkja það enda getur maður aldrei
treyst fólki þama, sama hvernig það
htur út. Síöan kom í ljós að vinur
minn þekkti hann vel og sagði að
mér væri óhætt að fara út með hon-
um. Síðan hef ég unnið nokkuð fyrir
Eddie. Ég hef farið með honum í tök-
ur fyrir Capitol Records þar sem ver-
ið var að gera þátt um hvað gerist á
bak við myndavélamar þegar búin
em th tónlistarmyndbönd. Þá stóö
ég við kvikmyndatökuvél í fimmtán
klukkutíma.
Anna Mjöh hefur verið í tónhst-
amámi í Los Angeles síðasthðið ár.
Hún er nú að byrja í nýjum skóla,
Musicians Institute í Hohywood.
Nokkrir íslendingar hafa stundað
Anna Mjöll Ólafsdóttir vill ekki trúa neinum sögum um Michael Jackson. Hún kynntist stórstjörnunni er hún dvaldi heila helgi á búgarói hans i sumar.
„Hann er ósköp normal maður og jarðbundinn," segir hún. DV-mynd JAK
þar nám. Anna Mjöh ætlar að leggja
áherslu á hljómborðsnám. Einnig
hefur hún lært lagasmíðar og texta-
gerð. Þá hefur hún bæði tekið söng-
og leikhstartíma. Kennari hennar í
leikhst er leikarinn Ian Oghvy.
„Meðfram náminu hef ég tekiö að
mér stúdíóvinnu og hef m.a. sungið
eitt lag við kvikmynd en ekki er enn
búið að taka ákvöröun um hvort það
verður notað. Maður sem heitir
Larry Brown, og er mjög vel þekktur
lagahöfundur, bað mig að syngja lag-
ið. Hann samdi m.a. lagið Tie a
Yehow Ribbon á sínum tíma. Þá var
ég einu sinni beðin um að vera kynn-
ir á sýningu sem haldin var á The
Bonaventure Hotel, sem er í miðbæ
Los Angeles, og syngja eitt lag. Þetta
var nokkurs konar hæfileikakeppni
þar sem margir komu fram. Einnig
hef ég leikiö í sjónvarpsauglýsingu
fyrir líkamsræktartæki."
Rík og fræg
Anna Mjöh, sem er 23 ára, hefur
dvahð næstum því á hveiju sumri í
Los Angeles frá því hún var tíu ára
gömul. Faðir hennar, Ólafur Gaukur,
var þar í tónsmíðanámi að læra að
semja kvikmynda- og auglýsinga-
tónhst. „Mér líkaði ahtaf vel þama
og þess vegna ákvað ég að faraþang-
að í nám.“ Foreldrar hennar, Olafur
Gaukur og Svanhhdur Jakobsdóttir,
hafa síðan komið og dvahð hjá dótt-
urinni. Bróðir Önnu Mjallar, Andri
Gaukur, er læknir á skurðdehd
sjúkrahúss í New Hampshire í
Bandaríkjunum. Þau eru tvö systk-
inin og Aima Mjöh segir að foreldrar
hennar séu ekkert sérstaklega hrifn-
ir af að hún sé í stórborginni Los
Angeles enda er ekki hættulaust að
vera þar. Hún segist þó þekkja vel
takmörk sín og fer varlega. „Þau
standa þó með mér í öhu sem ég geri.
Ég hef reyndar lofað þeim að ef ég
verði ekki orðin rík og fræg 25 ára
komi ég heim og fari í lögfræði."
Anna Mjöh var einu ári á undan í
skóla og lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 19 ára.
Hún fór þá í frönskunám í Háskóla
íslands í einn vetur, síðan í nám th
Sorbonne í París í einn vetur og loks
í sálfræði í HÍ áður en hún ákvað aö
fara frekar tónhstarbrautina.
Sætari en á myndum
Anna Mjöh segir að ahir séu að
reyna að koma sér á framfæri í Los
Angeles og því sé þjóðfélagið þar frá-
brugðið öðrum stöðum í Bandaríkj-
unum. „Þetta er mikh gerviveröld
sem menn búa í,“ segir hún. „Það
má líka segja að aumingja Michael
Jackson sé að vissu leyti í fangelsi.
Hann verður að búa th sína eigin
veröld th að lifa í. Hann safnar að
sér góðu fólki th að hafa hjá sér í
þessum heimi. Hann er með yndisleg
hjón th að matreiða fyrir sig, þau
heita Bucky og Maggie, og yfirráðs-
konan hans heitir Gayle.“
- Eri hvað kom þér mest á óvart þeg-
ar þú hittir Michael Jackson?
„Það skrítnasta við að hitta hann var
að þaö var ekkert skrítiö. Mér fannst
ég hafa þekkt hann aht mitt líf. Ég
þekkti röddina og hvemig hann htur
út. Hann er bara ennþá sætari en á
myndum þar sem hann er ahtaf svo
mikiö málaður. Þama var hann ófarð-
aður, með tagl í hárinu og hatt á
höföi,“ segir Anna Mjöh, alsæl eftir
skemmthega upplifim á búgarði Jack-
sons í Neverlarid-dal, en stórsijaman
leysti hana út með mörgum skemmti-
legum gjöfum sem vora merktar hon-
umeðabúgarðinum. -ELA