Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1993
3
Fréttir
Hrunadans á pitsumarkaðnum:
Dæmi um umferðar-
óhöpp og hraðakstur
hjá pitsusendlum
- lögreglan hefur vakandi auga meö þeim í starfi
„Viö vitum af tveimur arekstrum
þar sem pitsusendlar frá sama staön-
um lentu í óhöppum. Ástæðan var
vegna hraöa við afhendingu vörunn-
ar en við höfum lýst yfir áhyggjum
vegna þessa,“ sagöi Ómar Smári Ár-
mannsson aöstoöaryfirlögreglu-
þjónn aðspurður hvort hann kann-
aðist við að svokallaðir pitsusendlar
hefðu lent í umferðaróhöppum.
í kjölfar mikillar samkeppni á
pitsumarkaðnum hafa veitingastað-
ir, sem bjóða heimsendingarþjón-
ustu, auglýst ókeypis pitsu ef hún er
ekki komin í hendur neytanda hálf-
tíma eftir að hún er pöntuð. Nokkrir
aðrir veitingastaðir auglýsa stuttan
afgreiðslutíma. Ómar segir að lög-
reglan hafi þurft að hafa afskipti af
sendliun vegna hraðakstur og þeir
hafi haft vakandi auga með þessum
þætti.
„Við óttumst að það kerfi, sem virð-
ist vera sums staðar, að menn fái
borgað fyrir hverja pitsu sem þeir
keyra út, ýti undir óvarkárni," segir
Ómar og bætir við að þeir sem tekn-
ir hafi verið fyrir hraðakstur við
útakstur pitsu hafi ekki endilega
unnið á þeim stöðum þar sem fyrr-
nefndar tímatakmarkanir eru í gildi.
Nýlega varð óhapp í Bandaríkjun-
um þar sem pitsusendill varð gang-
andi vegfaranda að bana og segir
Ómar að með það í huga óttist lög-
reglan þróun mála hér, sérstaklega
með tíUiti til þess að í flestum tilfell-
um virðist um unga karlkyns öku-
menn að ræða með litla reynslu.
Lögreglan veit til þess að sum fyrir-
tæki, sem bjóða upp á heimsending-
arþjónustu á þessum markaði, leggi
ríka áherslu á það við sendla sína
að virða lög og hraðatakmarkanir en
svo virðist sem það gleymist oft þeg-
ar á hólminn er komiö.
„Við höfum ákveðið að fylgjast með
þessu núna og í þeim tilgangi höfum
við beðið menn okkar að hafa vak-
andi auga með þessu og haldi sú þró-
un áfram sem verið hefur sjáum við
okkur ekki annað fært en að kalla
forsvarsmenn þessara fyrirtækja á
okkar fund,“ segir Ómar Smári.
-PP
Herdís Einarsdóttir húsnæðisfulltrúi, Martha Ó. Jensdóttir, formaöur hús-
næðisnefndar Kópavogs, og Kristján Haraldsson, húsnæðisnefndarmaður
og eftirlitsmaður með byggingunum, á svölum eins fjölbýlishússins við
Lautasmára.
Kópavogur:
Félagslegum íbúðum
fjölgar um fjórðung
Félagslegum íbúðum fjölgar um 80
í Kópavogi á næstu vikum og eru þær
allar við Lautasmára í Kópavogsdal.
Um helgina afhenda bæjaryfirvöld
nýjum íbúum 28 íbúðir í félagslega
kerfinu og í byrjun september geta
30 fjölskyldur til viðbótar flutt inn í
nýjar íbúðir. Auk þessa verða 22
íbúðir afhentar í september. Þannig
eykst íbúðareign í félagslega kerfinu
í Kópavogi um 26 prósent í einum
áfanga eða um rúman fjórðung.
Stærð nýju íbúðanna er á bilinu 105
til 130 fermetrar að meðtalinni sam-
eign. Helmingur íbúðanna er þriggja
herbergja, 25 eru tveggja herbergja
og 15 íbúðir eru fimm herbergja. All-
ar íbúðimar verða afhentar fullfrá-
gengnar með frágenginni lóð og bíla-
stæðum.
Hafin er bygging tveggja fjölbýlis-
húsa með samtals 36 íbúðum til við-
bótar þessum 80 við Lindasmára og
Amarsmára. íbúðimar verða af-
hentar í vor. Þá hefur verið auglýst
eftir 24 íbúðum þannig að fyrirhugað
er að samtals 60 fiölskyldum til við-
bótar verði séð fyrir félagslegu hús-
næði í bænum. Þegar þessar íbúðir
verða komnar í gagnið verða um 440
félagslegar eignaríbúöir og kaup-
leiguíbúðir í Kópavogi.
A laugardaginn gefst Kópavogsbú-
um kostur á að kynna sér skipulag
nýju byggðarinnar í Kópavogsdal og
nýju íbúðirnar sem afhentar verða
næstu vikur en gert er ráð fyrir að
í framtíðiniú verði um fiögur þúsund
manna byggð í dalnum auk þjón-
ustustofnana og ýmissa fyrirtækja.
Kynningin fer fram á bílstæðunum
við Lautasmára og verða skemmtiat-
riði og veitingar á boðstólum. -GHS
og vinningarnir verða fleiri.
Heppni er ekki bara tilviljun - það er hægt að auka líkurnar á því
að detta í lukkupottinn með skipulagi.
KerfisseSlar eru kjörin leiö til að skipuleggja heppnina, tilvaiin fyrir
kunningjahópa, vinnufélaga, saumaklúbba, fjölskyldur, skipshafnir,
þingflokka, ráSherra og hvers vegna ekki ríkisstjórnir.
• Dæmi um 10 talna kerfisval
áðu þér miða á sölustað íslenskrar getspár
\ irtw \
\ |t»w
lölurnar eru valdar
úr leikröSinni á miSanum,
- þá er búiS aS velja 10 tölur.
rú staSfestir fjölda
talna meS striki í reitinn
(lOTölur U)
tmTS Kú getur skipulagt
heppnina 2, 5 eSa 10 vikur
fram í tímann
ifhentu síSan útfyllta miSann til söluaSila íslenskrar getspár.
S sjálfsögSu er einnig hægt aS biSja um kerfissjálfval.
LÍTIL SAGA ÚR KERFINU:
Það var 10 manna hópur úr Keflavík sem valdi 10 tölur á kerfisseöli í laugardagslottóinu
Þeir duttu heldur betur í lukkupottinn því (oeir fengu 5 réttar aðaltölur.
HÓPURINN VANN 1.736.424.-
1. 1 röð meS 5 réttum = 1.585.299.- 2. 25 raðir með 4 réttum = 116.425.-
3. 100 raðir með 3 réttum = 34.700,-
Þeir fengu því 151.125 krónum hærri vinning en þeir hefðu fengið
á venjulegan seðil.
Náðu þér í
upplýsingabækling
um kerfisseðla
í Lottá 5/38
og Víkingalottói
á næsta sölustað.
- gott íierfi fyrir alla
*