Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR;28. ÁGÚST 1993
Helge Matvik og Jan Asen i tjaldi sinu á Seyðisfirði.
DV-mynd PK
13
INNANHÚSS- ^
ARKITEKTÚR
í frítíma yðar með bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti,
lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr still,
blóm, skipulagning, nýtisku eldhús, gólflagnir,, vegg-
klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi,- hús-
fignaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl.
g óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Heimilisfang .......................................
Akademisk Brevskole
Jyllandsvej 15 • Postboks 234
2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark
Hjólagarpar frá Noregi:
ísland
kom
þeim
áóvart
Pétur Knstjánsson, DV, Seyðisfirði:
Miðvikudagar á Seyðisfirði eru
öðruvisi en aðrir dagar á sumrin. Þá
færist gamalkunnugt alþjóðlegt and-
rúmsloft yfir bæinn. Leggi maður
eyrun við má heyra fólk á kvöld-
göngu við Lónið tala ýmis framandi
tungumál. Nú er það ekki lengur
norska og danska sem er allsráðandi
heldur frekar þýska, franska og
enska og ekki óalgengt að heyra ít-
ölsku, pólsku eða tékknesku. Margir
eru að koma úr ferðalögum víðs veg-
ar um landið og þónokkrir hafa kom-
ið til Seyðisfjarðar áður, þ.e.a.s. þeg-
ar þeir komu til landsins. Síðan kem-
ur fimmtudagur og Norræna færir
með sér nýja gesti og flytur þá eldri
áleiðis til síns heima.
Helge Matvik og Jan Asen frá Nor-
egi voru hér síðastliðið miðvikudags-
kvöld og ætluðu að fara með Nor-
rænu heim morguninn eftir. Strák-
amir tveir höföu ferðast hringinn á
rútum og reiðhjólum - hjóluðu um
800 km. Þeir sögðu að það sem kom
þeim mest á óvart var hversu víð-
áttumikið landið væri. Landið væri
öðruvísi en allt annað sem þeir hefðu
kynnst - hér væru eldfjöll og jöklar
nánast hhð við hlið. Það væri ólíkt
Noregi að mörgu leyti þó að Austfirð-
irnir minntu þá mjög á heimaslóðir.
Skemmtilegast fannst þeim þó
hversu vinalegir og góðir gestgjafar
íslendingar væru. M.a. brotnaði ann-
að hjóhð þeirra skammt frá Selfossi.
Bóndi einn, sem þar kom að, tók
ekki annað í mál en að láta sjóða
saman brotið og sjá um að þeir kæm-
ust á næsta áfangastað. Það sem þeir
óskuðu að breyttist til batnaðar var
að oftar væri logn og að menn keyrðu
ekki sem óðir væru á vegum úti. Að
lokum sögðust þeir örugglega koma
hingað aftur og það fyrr en seinna.
heónur
íáskrift
Fjármálaþjónusta
fyrir ungt fólk
sem vilt...
VAXTALINAN
FJÁRMÁLAÞJÓNUSTA
UNGLINGA
• vera sjálfstœtt ífjármálum
• létta sér skólastarfiö
• frœöast um fjármálaheiminn
• gera tilveruna skemmtilegri
Vaxtalínan er ætluð fólki á aldrinum
13 -18 ára. Þessi þjónusta býður upp á
veglega skóladagbók, fjármálanámskeið,
bílprófsstyrki, hraðkort, afsláttarkort,
vaxtalínuvörur og ýmislegt fleira.