Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1993
Fréttir
Sighvatur Björgvinsson viöskipta- og iðnaðarráðherra:
Uppsögn búvörusamn-
ings mikið fagnaðarefni
- segir nauðsynlegt að taka á öllu kerfinu, ekki síst milliliðunum
„Ég er hinn ánægðasti með að
Halldór Blöndal skuli vilja opna bú-
vörusamninginn. Verði samningn-
um sagt upp þarf að sjálfsögðu að
endurskoða alla þætti hans. Það hlýt-
ur allt að vera undir. Þetta er því hið
besta mál þjá landbúnaðarráð-
herra,“ segir Sighvatur Björgvinsson
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra lét þá skoðun í ljós á aðalfundi
Stéttarsambands bænda í vikunni að
forsendur búvörusamningsins væru
brostnar. Samningurinn tryggði ekki
lengur afkomuöryggi bænda. Á hinn
bóginn sagðist hann eiga erfitt um
vik varðandi breytingar á samningn-
um þar sem landbúnaðarmál væru
helsti núningsflötur stjómarsam-
starfsins.
Að sögn Sighvats hafa kratar um
tveggja ára skeið verið þeirrar skoð-
unar að endurskoöa þurfi búvöm-
samninginn. Reynslan sýni að nær
allur spamaðurinn, sem komiö hafi
fram í kjölfar samningsins, hafi kom-
ið fram í greiðslum til bænda. Milli-
liðakerfið hafi hins vegar haldið sínu
nánast að öllu leyti.
„ AUt þetta volduga kerfi, sem hefur
verið byggt upp í kringum fram-
leiðslu bænda, hefur haldið sínu. Ég
fæ ekki séö að þetta kerfi eigi neinn
frumburðarrétt. Það segir sig sjálft
að ef við förum að færast inn í aukna
samkeppni við innflutning frá út-
löndum þá verður að sjálfsögðu hka
að leysa íslenska bændur úr viðjum
óeðlilegra viðskipta- og framleiðslu-
fjötra."
Að sögn Sighvats er mjög aðkall-
andi aö taka á svokölluðu milliliða-
kerfi í landbúnaðinum. Ekki einasta
er það dýrt og óhagkvæmt heldur er
þar einnig að finna dæmi um óráðsíu
og bein svik. í því sambandi bendir
hann á að afurðastöðvar hafi stundað
það að svíkja út vaxta- og geymslu-
gjöld úr ríkissjóði vegna kjöts sem
þegar hefur verið selt og étið.
„Þessir aöilar fara ekki að reglum
og nú er þetta að koma fram. Þeir
hafa haft sitt á þuru en skattgreið-
endur hafa borið kostnaðinn."
-kaa
Stuttar fréttir
SamstarfíSmugunni
Hópur íslenskra útvegsmanna
íhugar að skipuleggja veiöar 2ja
til 3ja togara í Smugunni og hafa
með sér verkaskiptingu. RIIV
greindi frá þessu.
Marei i góðum máium
Marel hf. hefur fengiö pöntun
frá Þýskalandi á 90 skipavogum.
Þetta er stærsta pöntun til fyrir-
tækisins til þessa, sarokvæmt
frétt RÚV,
Halimskrópaði
íníundasinn
Ilalim A1 lét ekki á sér kræia í
gær í Tyrklandi með dætur sínar
og Sophiu Hansen. Þetta er í
níunda sinn sem Halim'brýtur
síðasta úrskurð dómara um um-
gengnisrétt Sophiu.
Rifist í útvarpsráði
Harðar deilur urðu á fundi út-
varpsráðs í gær milli Ástu Ragn-
heiðar Jóhannesdóttur og Hrafns
Gunnlaugssonar í tilefni greina-
skrifa Hrafns og Svavars Gests-
sonar. Hrafn sagöi að málið kæmi
Ástu ekkert við, samkvæmt frétt
Bylgjunnar.
Sjö verkefhi eru í gangi í sér-
stöku átaksverkefni nokkurra
sveitarfélaga við Eyjafjörð, sam-
; kvæmt frétt í Degi á Akureyri.
Rúmlega 4 þúsund böm munu
hefla nám f grunnskólum lands-
ins í fyrsta sinn f haust, þar af
1200 í Reykjavík, eftir því sem
fram kom á Bylgjunni.
Fyrirtækjaflutningar
Fjöldi fyrirtækja í fiskvinnslu
og öðrum greinum hafa sett sig í
samband við bæjaryfirvöid í
Keflavík til að kanna möguleika
á flutningi fyrirtækjanna þangað,
samkvæmt frétt Víkurfrétta í
Keflavík.
léttur sigur á Lettum
Ísienska unglingalandsliðiö i
körfuknattleik vann auðveldan
sigur á Lettlandi í gær, 99-07, í
undanúrslitariöli Evrópukeppn-
innar í Þýskalandi. Þetta var
fyrsti sigur liðsins í riölinum.
Skdjungur í skógrækt
Skeljungur hf. hefúr ákveðið að
styrkja skógræktarfélögin í land-
inu um 2 milljónir króna á ári.
Gunnlaugur Jósefsson hjá Fjarhönnun hf. með Newton handtölvuna í ann-
arri hendi og stílinn í hinni en þar á bæ sem víðar hugleiða menn nú notk-
unarmöguleika tölvunnar.
Heppnir ferðalangar fra Solheimum:
Ókunnugtfólk vildi
greiða reikninginn
- skrifuðum þakkarbréf í danskt blað, segir starfsmaður
„Við forum á veitingastað sem
heitir Perlan í Tívolí í Kaupmanna-
höfn og pöntuöum okkur góðan
mat. Þegar við vorum búin að
borða og kölluðum á þjónustu-
stúlkuna til að fá reikninginn kom
hún og sagði að fólk á nærliggjandi
borði hefði óskað eftir því að fá að
borga reikninginn. Við tókum boð-
inu og báöum stúlkuna að skila
kæru þakklæti til fólksins sem ekki
vildi láta nafns síns getið,“ segir
Erla Björg Rúnarsdóttir, starfs-
maður á Sólheimum.
Starfsmenn og heimilismenn á
Sólheimum í Grímsnesi urðu fyrir
þeirri skemmtilegu reynslu í vik-
unni að ókunnugt fólk bauðst til
að greiða matarreikning þeirra á
dýrum og fínum veitingastaö í
Kaupmannahöfn.
„Reikningurinn var örugglega
yfir 20 þúsund krónur. Þau vildu
ekki segja frá nafni sínu en okkur
fannst þetta svo yndislegt að við
báðum konuna á gistiheimilinu að
aðstoða okkur við að skrifa þakkar-
bréf sem átti aö birtast í dönsku
blaði,“ segir Erla Björg.
Flugleiðir hafa í sumar boðið
starfsmönnum og heimilismönn-
um á Sólheimum í stuttar ferðir til
Kaupmannahafnar. Ferðalangam-
ir hafa haft bílaleigubíla til umráða
og ekið um Kaupmannahöfn.
Ferðalangamir, sem vom svona
heppnir í Kaupmannahöfn, flugu
utan á mánudaginn var og komu á
fimmtudag en áður höfðu nokkrir
aðrir hópar verið á ferð um Kaup-
mannahöfn.
-GHS
Tölvur:
Byltingarkennd
handtölva frá Apple
Bandaríska tölvufyrirtækið Apple
hefur löngum verið brautryðjandi í
tölvuheiminum og nægir að minna á
Macintosh-tölvuna í því sambandi.
Nú hefur fyrirtækið enn á ný kvatt
sér hljóðs með handtölvunni Newton
sem vafalaust á eftir að hafa jafnvíð-
tæk áhrif á tölvunotkun og Macint-
osh-tölvan á sínum tíma ef ekki enn
meiri. Salan undanfarnar fjórar vik-
ur hefur farið fram úr öllum vonum
og anna verksmiðjur Apple ekki eft-
irspuminni sem er kannski ekki að
undra þegar haft er í huga að tölvan
er seld á jafnviröi 60-100.000 króna.
Newton er svipuð að stærð og
venjuleg pappírskilja. Tölvan þykir
falleg og stílhrein. Én þaö er þó ekki
úthtið sem mesta athygli hefur vakið
heldur innihaldið og notkunarmögu-
leikamir sem virðast nánast ótak-
markaðir.
Það fyrsta sem athygh vekur við
Newton er aö hún hefur ekkert lykla-
borð heldur beitir notandinn stíl til
þess að skrifa á skjáinn sem þekur
mestallt yfirborð hans. Með þessum
hætti stýrir notandinn allri vinnslu
en ef í harðbakkann slær getur hann
kallað fram lyklaborð á skjáinn og
slegiö inn með þeim hætti. Newton
skilur skrift notandans en þó veitir
ekki af klukkustund til þess að New-
ton „læri á“ skriftarvenjur notand-
ans og öfugt. Newton byggir á orða-
safni til þess að skiija skriftina og er
þess vegna öruggari í skilningi sín-
um á skrift en fyrri tölvur sem feng-
ist hafa við lestur á skrift.
í upphafi er gert ráð fyrir því að
Newton verði mest notaður eins og
menn hafa notað dagbókarmöppum-
ar til þessa, til aö halda utan um
nöfn, símanúmer, fundi og annað
slíkt. Þráðlaus mótöld til gagnaflutn-
inga og samskiptahugbúnaður gera
mönnum kleift að vera í sambandi
við skrifstofuna, senda tölvupóst eða
símbréf hvar í heimi sem er, óháð
rafmagnsinnstungum eða símatengj-
um. Þær geta líka skipst á gögnum
viö Macintosh-tölvur jafnt og PC-
tölvur.
Tölvusérfræðingar vestanhafs
hafa fundið ýmislegt aö þessari
fyrstu útgáfu Newton en þeir eru
jafnframt flestir sammála um að hér
sé ný tölvukynslóð fram komin, sem
muni bæta við nýrri vídd í upplýs-
ingaþjóðfélaginu.
A.M.
Viðbrögð við tillögum félagsmálaráðherra:
Húsaleigubæt-
ureruáokkar
óskalista
- segir Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ,
sagðist styðja tiilögu félagsmálaráð-
herra um húsaleigubætur því að
mikilvægt væri að hugmyndir um
húsaleigubætur næðu fram að
ganga. Hann sagðist ennfremur vita
til þess að Jóhanna hefði lagt ríka
áherslu á þær við tillögugerð um
fjárlögin.
Sagöist Benedikt þó ekki enn hafa
séð þau gögn sem félagsmálaráö-
herra lagöi fyrir ríkisstjórnina. „Ég
er þó í grundvallaratriðum fylgjandi
húsaleigubótum og á fastlega von á
að það viðhorf ríki almennt innan
verkalýðshreyfingarinnar,“ sagöi
Benedikt.
Hugmyndir um húsaleigubætur
voru uppi við gerð síöustu kjara-
samninga. Samkvæmt heimildum
DV ríkti þó ekki alger eixúng um þær
í verkalýðsforystunni. Andstaða við-
semjenda og stjómvalda segir Bene-
dikt þó að hafi gert út af viö þær
hugmyndir. „Húsaleigubætumar
hafa verið á okkar óskalistum."
„Ég styð Jóhönnu af heilum hug
og harla glaður," sagði Guðmundur
J. Guömundsson, formaður Dags-
brúnar, er DV leitaði álits hans á til-
lögum félagsmálaráðherra. „Mér
virðist leiga þó ekki hafa hækkað og
framboð á húsnæði hefur heldur
aukist. En fjölskylda, sem hefur 60
þúsund á mánuði og borgar 30 til 35
þúsund á mánuði, er alveg glötuð,
sagöiGuðmundur J.“ -DBE