Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1993
11
Um leið og við hjá Pizza Hut á Islandi fögnum 5 ára afmæli, fagnar Pizza Hut veitingahúsakeöjan
35 ára afmæli. Við erum stolt af því að tilheyra stærstu pizzukeðju í heimi með yfir 9.000 veitingastaði.
Starfsmenn bakarísins eru sextán
en synir Ruthar, dóttir og tengda-
dóttir vinna öll í fyrirtækinu. Bakaríið
sendir brauð og kökur á hótel og í
verslanir á Vestfjörðum en við-
skiptavinirnir úr sveitunum í kring
koma til að kaupa brauð og frysta.
svéikalegt að koma hingað frá Kaup-
mannahöfn og geta ekki keypt stóla
eða borð svo að við stofnuðum hús-
gagnaverslun og rákum hana í 35
ár,“ segir hún.
Stríðsárin voru erfið
Styrjaldarárin í Kaupmannahöfn
voru erfið og öryggisleysið var mik-
ið. Ruth segir að fólk hafl borið stöð-
ugan ótta í brjósti enda ýmislegt
gerst meðan Þjóðverjar voru í Dan-
mörku. „Þetta var erflður tími og við
vorum ungar stúlkur. Þjóðverjarnir
voru alls staðar og því þorðum við
ekki mikið út. Þegar ég fór með
strætó til Kaupmannahafnar á
morgnana áttu Þjóðveijarnir það til
að stöðva vagninn og spyija alla um
persónuskilríki. Þegar loftvarnirnar
fóru í gang streymdi fólk inn í búðina
og við settum hlera fyrir gluggana.
Það var lítinn mat að fá í Danmörku
á þessum tíma og talsverð fátækt en
við vorum aldrei svöng. Maður
kvartaði ekki því að lífið var bara
svona,“ segir hún.
Fjölskylda Ruthar vinnur öll við
Gamla bakaríið, synir hennar, dóttir
og tengdadóttir en alls eru sextán
starfsmenn við fyrirtækið. Gamla
bakaríið er einkafyrirtæki og Ruth
er forstjóri þess. Bakaríið bakar
brauð fyrir ísfirðinga og sveitirnar í
kring og sendir brauö og kökur til
Súðavíkur og Suðureyrar. Þá
streymir fólk úr sveitunum í kring í
Gamla bakaríið til að kaupa brauð
og frysta.
Stolt af rekstrinum
Eins og fram kom í DV í sumar er
Ruth hæsti skattgreiðandinn á Vest-
fjörðum og segist hún vera stolt af
því. Fyrirtækið gangi svona vel þegar
allir aðrir séu á hausnum. Fjölskyld-
an öll vinni mikið en nauðsynlegt sé
að vera duglegur að vinna til að vel
gangi. Gamla bakaríið sé einkafyrir-
tæki sitt og því sé hún og bakaríið
eitt frammi fyrir skattyfirvöldum.
„Við höfum mikið að gera og bök-
um úr einu tonni af hveiti á dag. Við
lifum rólegu lífi og kaupum ekki
hlutina fyrr en við höfum efni á því.
Við spekúlerum mikið í hlutunum,
kaupum stórt inn og fáum afslátt.
Fólk er voðalega ánægt með okkar
brauð og gamlir ísfirðingar, sem eru
fluttir suður, koma við í bakaríinu
til að fá sér brauð og kökur þegar
þeir eiga leið um ísafjörð," segir hún.
Lítið atvinnuleysi
Talsverður samdráttur hefur verið
í atvinnulífinu á ísafirði en Ruth seg-
ir þó að atvinnuleysi sé ekkert sem
heitið geti í bænum. Tólf til fimmtán
Bolvíkingar séu í vinnu á ísafirði auk
þess sem nokkrir útlendingar sæki
þar vinnu. Auðvitað sé samdráttur,
bakariið finni strax fyrir því þegar
lítiö sé að gera í fiskinum en hún
segist samt telja að samdrátturinn
fari ekki til verri vegar fyrr en á
næsta ári þegar togararnir fari að
sækja á önnur mið.
-GHS
Fyrir þá
sem viljj a
meira
grænmeti
Ef þú ert á grænmetislínunni höfum við
hjá Pizza Hut pizzuna fyrir þig, því
grænmetispizzan okkar er hlaðin hollu og
fersku grænmeti.
Þegar mikið af gæða sveppum blandast
hinni frægu Pizza Hut tómatblöndu, ásamt
grænni og matarmikilli papriku,
bragðmiklum tómötum og ilmandi lauk, er
útkoman frábær. Og þegar tvö lög af ekta
osti eru komin yfir er Pizza Hut
grænmetispizzan fullkomnuð.
Pizza Hut — einfaldlega meira af öUu.
PU.?a
*Hut.
Hótel Esja • 680809 • Mjódd • 682208
Frí heinisendingarþjónusta
HÁRÍSETNING
Hentar vel fyrir konur og karla, bæði við
upphaf hárþynningar og til uppfyllingar eftir
hárflutning. Eftir átta ára reynslu hefur
meðferðin hlotið viðurkenningar fjölda vis-
indastofnana.
Nánari upplýsingar gefur Unnur hjúkrunar-
fræðingur milli kl. 9 og 11 i sima 631016
og eftir kl. 19.00 i sima 611033.
MEDI-HAR
Á ÍSLANDI