Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1993
21
Bridge
íslendingar verða fjarri góðu gamni þegar keppnin um Bermudaskálina hefst á morgun.
NEC Bermudaskálin:
Heimsmeist-
arakeppnin
hefst á morgun
Næstu tvær vikumar munu
bestu bridgeþjóðir heimsins spila
um heimsmeistaratitilinn í bridge
en íslendingar verða fjarri góðu
gamni. Það er alveg með ólíkindum
að bridgeíþróttin er líklega sú eina
þar sem heimsmeistararnir öðlast
ekki sjálfkrafa rétt á því að veija
titilinn.
Sjö svæði eiga rétt á þvi að senda
sveitir til Santiago í Chile til þess
að spila um Bermudaskálina. Frá
svæði 1, Evrópu, koma Evrópu-
meistarar Pólverja, Martens og
Lesniewski höfnuðu hins vegar
þátttöku vegna ágreinings og í stað
þeirra koma Witek og Kowalczyk,
silfurlið Dana, bronshð Noregs og
Hollendingar. Frá svæði 2 koma
USA 1 (Becker, Rubin, Weichsel,
Levin, Sukonec, Eke-blad), USA 2
(Russell, Lev, Berkowitz, Cohen,
Rodwell, Bergen) og Mexíkó. Frá
svæði 3 koma gestgjafamir Chile
og Brasilía. Frá svæði 4 koma S-
Afríka og Indiand. Frá svæði 5
koma Venesúela og Guadeloupe.
Frá svæði 6 koma Kína og Indónes-
ía og frá svæði 7 Ástralía.
Það er nokkuð erfitt að spá um
úrslit en líklegt er að Pólland, önn-
ur bandaríska sveitin og Brasilía
berjist um titilinn.
S-Afríka sigraði óvænt í meist-
arakeppni Asíu- og Miðaustur-
landa meðan Indland varð að láta
sér nægja annað sætið. Zia verður
hins vegar fjarri góðu gamni í þetta
sinn því að sveit Pakistan hafnaði
í fjórða sæti.
Yngri kynslóðin hefur tögl og
hagldir í sveit S-Afríku og verður
fróðlegt að sjá hvernig henni reiðir
af í sinni fyrstu heimsmeistara-
keppni. Sleinmutæknin virðist
hins vegar vera í góðu lagi ef marka
má eftirfarandi spil frá meistara-
keppninni.
s/o
♦ AD98
* -
♦ K85
*• D109753
* 543
• D85
♦ D73
+ A642
w iUbZ
V AK10764
♦ 2
vr> o
* KG7
V G932
♦ AG10964
+ -
Sagnir gengu þannig með Cope
og Mansell frá S-Afríku í n-s :
Suður Vestur Norður Austur
ltígull 2hjörtu dobl pass
3tíglar pass 4hjörtu* pass
4spaðar pass Stíglar pass
6 tíglar pass pass pass
* Splinter
Vestur spilaði út hjartaás. Mans-
ell gerði ráð fyrir að austur ætti
aðeins þrjú hjörtu og líklega tígul-
drottningu. Hann trompaði því
þijú hjörtu í bhndum, spilaði síðan
tígulás og meiri tígli. Þar eð austur
átti ekki meira hjarta hvarf fjórða
hjartað niður í spaða eftir að suður
hafði tekið trompið af austri.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Það er erfitt fyrir vestur að finna
hið banvæna útspil sem er einspilið
í trompi. Austur má þá ekki láta
trompdrottningu né laufaás þegar
laufi er spilað úr blindum.
• •
Komdu að dansa.
.. J Danssmiðjunni
Innritun og upplýsingar
alla daga milli kl. 12.00 og 19.00
í síma 689797 og á staðnum.
• Samkvæmisdansar
• Ballroom • Latin
• Barnadansar • Gömlu dansarnir
• Byrjendur og lengra komnir
• Hóptímar • Einkatímar
• Dansæfmgar • Erlendir gestakennarar
Kynnið ykkur ýmis ~
afsláttartilboð
Suðurnesjamenn,
Danssmiðjan er líka í Keilavík
c
Opnunarhátíð
laugardaginn
4. sept.
Starfsfólk skólans.
JÓHANNÖRN
SMIÐJAN
F A N 11B
OLAFSSON
DANSKENNARI
68 97 97