Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1993, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1993
Skák
Einvígið í London:
Enn hefur Short ekki
tekist að vinna skák
Indverjinn knái Viswanathan Anand mætir atskákmeistara Reykjavíkur í
beinni útsendingu á Stöð 2 kl. á sunnudagskvöld.
Aö loknum fjórtán skákum í
heimsmeistaraeinvígi Kasparovs og
Shorts í London hefur Kasparov
hlotið 9,5 vinninga en Short 4,5 v.
Short má enn una við það aö hafa
ekki unnið skák af heimsmeistaran-
um, þótt oft hafi hann verið nálægt
því. Í síðustu skákum hefur Short
sótt án afláts en Kasparov hefur jafn-
an tekist að bægja hættu frá.
í þrettándu skákinni tókst
Kasparov loks að sjá glætu, enda er
talan þrettán happatalan hans. Sjálf-
sagt hefur hann af þeim sökum búist
við því að vinna skjótan sigur. Þegar
skákinni lauk með jafntefli brást
hann reiður við, samkvæmt frétta-
skeytum.
Víst fékk Kasparov vænlegt tafl
strax eftir byrjunarleikina en lagleg-
ur vamarleikur bjargaði Short.
Þrettánda einvígisskákin
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Nigel Short
Slavnesk vörn.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. Rf3
dxc4 5. a4 Bf5 6. e3 e6 7. Bxc4 Bb4 8.
0-0 Rbd7 9. De2 Bg6 10. e4 0-0 11. Bd3
Da5 12. e5 Rd5 13. Bxg6 fxg6! 14. Re4
c5!?
Það virðist glapræði að hleypa
riddaranum til d6.
15. Rd6 Da6 16. Dxa6 bxa6 17. Rg5!
cxd4 18. Rxe6 Hfb8 19. Hdl
Hvíta staðan lofar góðu, því að eft-
ir 19. - Rxe5 20. Hxd4 má riddarinn
á d5 sig hvergi hræra vegna 21. Rc7
og 20. - Bxd6 21. Hxd5 Hb6 22. Be3
Hc6 23. Rd4 kostar einnig lið. En
Short finnur lausn á vandanum.
19. - Rxe5 20. Hxd4 Hb6! 21. Hxd5
Hxd6! 22. Hxd6
Ekki 22. Hxe5?? Hdl og mátar!
22. - Bxd6 23. Bf4 He8 24. Rd4 Bc5 25.
Rb3 Bb4 26. Be3
Auðvitað ekki 26. Hel?? Rf3+ og
26. Hdl strandar á 26. - Rd3!
26. - Rd3 27. Hbl Hc8!
Snjöll peðsfórn. Short nær að
virkja stöðuna og halda jafnvægi.
28. Bxa7 Hc2 29. Bd4 Kf7 30. h3 Be7!
31. Hdl Rxb2 32. Ral Rxdl 33. Rxc2
Bf6 34. Bxf6
7 Og jafntefli samið.
í fjórtándu skákinni, sem tefld var
Umsjón
Jón L. Árnason
á fimmtudag, hafði Short frumkvæð-
ið en enn einu sinni koðnaði það nið-
ur í ekki neitt. Short bryddaði upp á
gömlu afbrigði, sem löngum hefur
verið talið meinlaust en tókst að
blása í það nýju lífi.
Fjórtánda skákin
Hvítt: Nigel Short
Svart: Garrí Kasparov
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4 e6 7. Bb3 Rc6 8.
Be3 Be7 9. 0-0 0-0 10. f4 Rxd4 11. Bxd4
b5 12. e5
Fischer haföi ekki trú á þessu
gamla afbrigði gegn Spasskíj í Laug-
ardalnum hér um árið. Hann lék 12.
a3 en eftir 12. - Bb7 13. Dd3 a5! náði
Spasskíj þó undirtökunum.
12. - dxe5 13. fxe5 Rd7 14. Re4 Bb7 15.
Rd6 Bxd6 16. exd6 Dg5 17. De2 e5 18.
Bc3!
Endurbót á áður tefldum skákum,
þar sem leikið var 18. Be3 Dg6. Short
hafði nú aðeins notað fimm mínútur
af umhugsunartíma sínum en eftir
næsta leik hafði Kasparov notað 40
mínútur.
18. - Dg6 19. Hadl Kh8 20. Bd5
Gerir biskupinn á b7 óskaðlegan
og ætlunin er síöan að opna línur á
drottningarvæng og nýta frelsingj-
ann á d6.
20. - Bxd5 21. Hxd5 De6 22. Hfdl Hfc8
23. Ba5 Hc6 24. b3 Hac8 25. Bc7 He8
26. c4 bxc4 27. bxc4 f5 28. h3 h6 29. Dc2
e4 30. Da4 Hc5 31. Hxc5
Ekki 31. Dxa6? Hxc7! og vinnur.
31. - Rxc5 32. Dc6 Rd7
Short kýs að hafa vaðiö fyrir neðan
sig. Ef hann seilist eftir peðinu með
33. Dxa6 gefur 33. - f4 svörtum öfluga
gagnsóknarmöguleika. Og 33. c5 e3
er heldur ekki ljóst.
33. - Dg6 34. Dd2 He5! 35. De3 De6 36.
Hcl Hc5
Hrókurinn nær að skorða c-peðið í
tæka tíð.
37. Hc2 Kg8 38. a4 Kf7 39. Df2 e3
- Og í þessari stöðu sættust kapp-
arnir á skiptan hlut. Trúlega byggj-
ast friðarsamningar á afbrigði eins
og 40. DÍ3 Re5 41. Dxe3 Hxc4 42. Hxc4
Rxc4 43. Dd3 Del+ 44. Kh2 De5+ og
þráskákar.
Anand á íslandi
Indverski skáknillingurinn Viswa-
nathan Anand, sem er næststiga-
hæstur skákmanna heims með 2725
Elo-stig, kom til landsins í gær í boði
Taflfélags Reykjavíkur. Anand mæt-
ir sigurvegaranum í VISA-mótinu -
atskákmóti Reykjavíkur - í beinni
útsendingu á Stöð 2 á sunnudags-
kvöld. Þetta er í annað sinn sem
Anand kemur hingað til lands en síð-
ast var hann gestur á heimsbikar-
móti Flugleiða fyrir tveimur árum;
skýrði skákir og tefldi fjöltefli við
unga og efnilega nemendur Skák-
skóla íslands.
Núverandi atskákmeistari Reykja-
víkur er Helgi Ólafsson sem gerði sér
lítið fyrir og vann síðan áskorandann
Jan Timman í einvígi. Helgi er einn-
ig meðal þátttakenda nú ásamt flest-
um sterkustu skákmönnum þjóðar-
innar.
í úrslitakeppninm, sem hófst sl.
fimmtudag, áttu þessir sæti: Jóhann
Hjartarson, Margeir Pétursson,
Helgi Ólafsson, Jón L. Ámason og
Hannes Hlífar Stefánsson, allir stór-
meistarar; Karl Þorsteins og Haukur
Angantýsson, alþjóðlegir meistarar;
Helgi og Andri Áss Grétarssynir,
Þröstur Árnason, Héðinn Stein-
grímsson, Davíð Ólafsson, Jón G.
Viðarsson, Ágúst S. Karlsson, Jó-
hann Örn Sigurjónsson og Arnar E.
Gunnarsson.
Úrshtaeinvígið hefst kl. 15 í dag og
verður sjónvarpað beint á Stöð 2. A
sunnudagskvöld kl. 23 teflir Anand
síðan við sigurvegarann.
Bridge
Bikarkeppni BSÍ:
Sveit Samvinnuferda-
Landsýnar sigraði
Sveit Samvinnuferða-Landsýnar
stóð uppi sem ömggur sigurvegari
þegar maraþoneinvígjum síðustu
helgar lauk.
Undanúrslitin vom spiluð á laug-
ardaginn og sveit Samvinnuferða-
Landsýnar vann sveit TVB16 með
yfirburðum, 155-28. Hinn undanúr-
slitaleikurinn var hins vegar æsi-
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
spennandi til síðasta spils en hann
stóð milli sveita Björns Theódórsson-
ar og HP-kökugerðar frá Selfossi.
Selfyssingamir unnu þijár fyrstu
lotumar og höfðu 37 impa forskot
þegar komið var að síðustu 12 spila
lotunni. Sveit Bjöms vann hana hins
vegar með 37 impa mun þannig að
leikurinn endaði 112-112. Fram-
lengja þurfti því leikinn um fjögur
spil en þau vann sveit Björns, 26-6.
Hin unga og efnilega sveit Selfyss-
inga varð því að játa sig sigraöa þrátt
fyrir ágæta spilamensku mestallan
leikinn.
Sjálfur úrslitaleikurinn var síðan
nokkuð jafn fyrstu þijár loturnar.
Samvinnuferðir-Landsýn unnu
fyrstu lotuna með 20 impa mun.
Björn svaraði með 7 impa sigri í ann-
arri lotu en þriðja lotan féll í hlut
þeirra fyrmefndu með eins impa
sigri. Staðan var því 121-107 þegar
síðasta lotan hófst. Þessi lota reynd-
ist liðsmönnum Björns ofraun og „at-
vinnumennimir" sigrnðu fyrirhafn-
arlaust með 54-1.
Sömu spil vom spiluð í báðum
undanúrshtaleikjunum og við skul-
um skoða eitt skemmtilegt spil frá
þeim viðureignum.
A/A-V
* Á74
V D102
♦ ÁKD109
+ K4
♦ 863
V K6
♦ G8752
+ Á62
* D
V Á543
♦ 63
4> D109875
í leik Samvinnuferða-Landsýnar
og TVB-16 sátu n-s Ragnar Magnús-
son og Páll Valdimarsson. Sagnir
gengu þannig:
Austur Suður Vestur Norður
pass pass 2 spaöar 2grönd
pass 31auf pass 3tíglar
pass 3grönd pass pass
dobl pass pass pass
Austur spilaði út spaða, vestur drap á
kóng, spUaði spaðagosa meðan Ragnar
m K.G10H52
V G987
♦ 4
Bikarmeistarar Bridgesambands íslands 1993, sveit Samvinnuferða-Land-
sýnar. Talið frá vinstri: Páll Valdimarsson, Aðalsteinn Jörgensen, Ragnar
Magnússon, Björn Eysteinsson, Helgi Jóhannsson og Guðmundur Sv. Her-
mannsson. Það fer vel á því að Aðalsteinn hampi bikarnum því hann hefur
verið fastur áskrifandi að honum sl. þrjú ár.
gaf tvisvar. Vestur réðst nú á hjartaiitinn
í þeirri von að ná hjartaásnum úr blind-
um áður en laufliturinn fríaðist. Hann
spUaði þjartaniu, Ragnar lét tíuna, aust-
ur kónginn en ennþá gaf Ragnar. Austur
hélt nú áfram með spaðann og Ragnar
prófaði tígulinn. Þegar legan kom í ]jós
lagði hann af staö með laufakóng sem
austur drap þegar í stað og spUaði meira
laufl. Nú reyndi á þolrifin í Ragnari en
hann ákvað að drepa á drottningu. Þar
meö var spUið unnið og 13 impar með
því á hinu borðinu voru sagnhafa mis-
lagðar hendur í úrspilinu eftir sömu vöm
og hann varð fjóra niður.
í hinum leiknum endaði undirritaður
einnig í þremur gröndum og fyrstu þrír
slagimir fóm eins. Austur spUaði hins
vegar meira hjarta í fjórða slag sem ég
drap heima á drottningu. Nú spUaði ég
laufakóng, austur lét lítið, þá kom meira
lauf, aftur lítiö frá austri, en ég var með
stöðuna á hreinu og drap á drottningu.
Unnið spU. Auðvitað hefði vestur haldið
áfram með spaðann ef hann átti laufásinn
en ef austur átti A-G-x-x, þá gat tígullinn
gefið fimm slagi. Skemmtílegt spU í sókn
og vöm.