Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1993, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1993
Bandaríkjamenn verða enn einu sinni að fást við sjúkan og útsmoginn fjöldamorðingja:
Haldinn áráttu til
að brenna ekkjur
- allt bendir til að sami maður hafi líf fjögurra gamalla kvenna í sama bænum á samviskunni
Springhill
Tampa
FORT
uv
Hugleysingi
í Hernandosýslu unhverfis Spring
Hill er þriöjungur íbúanna eldri en
65 ára og fjölmargir hafa atvinnu af
að þjóna gamla fólkinu. Gripi ofsa-
hræðsla um sig í sýslunni og gamla
fólkið ákveði að flytja á heimaslóðir
á ný verður atvinnulíf þar fyrir
þungum áföllum.
Ekki eru þó allir íbúar í Spring
Hill logandi hræddir. Gamlar komur
hafa undanfarna daga ijölmennt í
byssuverslanir og keypt sér vopn til
að verjast ofbeldismanninum. Lög-
reglunni líst hins vegar ekki á blik-
una ef allar gamlar konur á svæðinu
ganga með skammbyssu í beltinu.
Dorothy Curulla, áttræð kona, er
ein þeirra sem ætla að verjast. „Þetta
er hugleysingi sem ræðst á varnar-
laust fólk. Ég myndi ekki hika við
að skjóta hann,“ sagði hún við blaða-
mann sem hitti hana við að velja sér
skammbyssu. -GK
Fyrst héldu allir að Sophia Garriti,
áttræð ekkja í Spring Hill á Flórída,
heföi látist vegna bilunar í rafmagni.
Hún skaöbrenndist í rúmi sínu og
var látin þegar að var komið. Þetta
var í byrjun ágúst en nú, þegar fjórða
ekkjan er látin með sama hætti í
sama bæjarfélaginu, er mönnum
hætt að lítast á blikuna.
Löggan hikar
Lögreglustjórinn á staðnum segir
að ekki sé enn ástæða tU að hefja
skipulega leit aö sjúkum fjöldamorö-
ingja þótt nú bendi allt til að þess sé
full þörf. ' <
„Við notum hugtakið fjöldamorð-
ingi ekki enn i þessu máli en það
kann vissulega að koma að því,“ seg-
ir Frank Bierwiler lögreglustjóri.
Öðrum þykir lögreglustjórinn full-
rólegur í tíðinni. Þar á meðal er Naft-
ah BerrUl, sálfræðingur í New York
og sérfræðingur í hegðun fjölda-
moröingja. Hann segir:
„Það er fullkominn óþarfi hjá lög-
reglunni að láta þetta mál þvælast
fyrir sér. Augljóslega gengur sjúkur
fjöldamorðingi laus og hann heldur
áfram að drepa þar til hann verður
stöövaður."
Fleiri taka undir með sálfræðingn-
um og segja að lögreglan hefði átt að
sjá samhengið milli morðanna miklu
fyrr.
Ögranir
Morðinginn virðist athafna sig á
litlu svæði. Aðeins eru nokkrir kíló-
metrar mUli morðstaðanna en það
er oft háttur sjúkra moröingja að
drepa á sama staðnum aftur og aft-
ur. Þetta er rakið til þess að þeir eru
að ögra lögreglunni og sýna henni
að þeir geti framið glæpi sína alveg
við nefið á henni.
Eftirlaunaþegar í Spring Hill ætla að taka vopnaðir á nióti fjöldamorðingjanum láti hann sjá sig. Undanfarna daga
hefur sala á byssum aukist að mun. Hér er Sharon Gariepey, sjötug amma sex barna, að velja sér skammbyssu.
„Nú verður skotið til að drepa,“ sagði hún.
Verksummerkin sem morðinginn
skilur eftir sig eru órækasta vitniö
um að sami maður hafi myrt konurn-
ar fjórar. í öllum tilvikum hefur
hann nauðgað konunum, myrt þær
og síðan lagt eld að líkunum í rúmum
þeirra.
Fyrstu Ukin voru svo illa brunnin
að merki um ofbeldi sáust ekki í
fyrstu. Verk ofbeldismannsins voru
hins vegar greinileg á fjórða líkinu
sem fannst nú á dögunum.
Maðurinn virðist hafa talað sig inn
á gömlu konurnar því engin merki
um innbrot hafa fundist. Þetta þykir
benda til að hann sé venjulegur borg-
ari sem kemur vel fyrir. Það gerir
leitina að honum enn erfiðari.
Paradís
Svæðið umhverfis Spring Hill á
vesturströnd Flórída hefur um ára-
bil verið paradís gamla fólksins. Eft-
irlaunaþegar víðsvegar úr Banda-
ríkjunum hafa sest þar að og notið
elliáranna á friðsælum og rólegum
stað.
Nú eru hugmyndir manna um
paradísina á Flórída að breytast.
Undanfarna mánuöi hefur Flórída
helst verið í fréttum vegna fellibylja
og morða. Glæpirnir eru ekki lengur
einskorðaðir viö undirheimaveröld-
ina á Miami heldur verða saklausir
ferðamenn fyrir barðinu á glæpa-
lýðnum og nú síðast gamalmenni
sem ætluðu að njóta síðustu ára lífs-
ins í friði og ró.
Skiptar skoðanir um 12 ára fangelsisdóm yfir flóttakonunni Katherine Ann Power:
Fyrirgefning kom ekld til greina
„Það kom aldrei til greina að fyr-
irgefa henni. Sakaruppgjöf jafn-
gildir réttlætingu á glæp,“ sagði
Robert Banks, dómarinn sem
dæmdi Katherine Ann Power í allt
að 12 ára fangelsi fyrir aðild að
morði á lögregluþjóninum Walter
Schroeder í Boston í Bandaríkjun-
um fyrir 23 áram.
Dómurinn féll fyrr í vikunni og
þykir harður þegar haft er í huga
að Katherine Ann er nú heiðvirður
borgari sem leiddist út á glæpa-
brautina á unglingsárum. Lögmað-
ur hennar baðst vægðar á þessum
forsendum en dómarinn tók ekki
mark á orðum hans.
Hetja
Katherine Ann brást hetjulega
við dómnum og mótmælti honum
ekki. Þvert á móti sagðist hún
ánægð meö að flótta sínum undan
réttvísinni væri lokið. Katherine
Ann er líka oröið hetja í augum
margra. í fæðingarborginni Bos-
ton, þar sem dómur var kveðinn
upp, hafa menn fyllst aðdáun á
þessari konu sem alltaf slapp und-
an lögreglunni á þeim 23 árum sem
hún var eftirlýst.
Ekki eru þó allir tilbúnir að hefja
dæmdan morðingja upp til skýj-
anna. Níu böm lögregluþjónsins,
sem var myrtur, hafa lýst opin-
berri hneykslan sinni á viðbrögð-
um fólks við handtöku Katherine
Ann. Þau voru öll í réttarsalnum
þegar dómur var kveðinn upp. í
þeirra hópi kemur fyrirgefning
ekki frekar til greina en hjá dómar-
anum.
Glæpur
Lögreglumenn í Boston fjöl-
menntu og fyrir utan dómhúsið.
Þeir sýndu málinu mikinn áhuga
og vom á einu máli um að dæma
ætti Katherine Ann til þyngstu
refsingar. Hún væri sek um glæp
sem ekki fyrndist.
Enn er eftir að dæma í nokkrum
sakamálum á hendur Katherine
Ann. Það eru ákærur vegna nokk-
urra bankarána og innbrots í
vopnabúr þjóðvaröliðsins í Boston.
Búist er við að fyrir þessi afbrot fái
Katherine Ann einnig fangelsis-
dóma og sektir. Dómur verður ekki
kveðinn upp fyrr en 24. nóvember.
Þrátt fyrir þungan dóm er ekki
búist við að Katherine Ann veröi
lengi í fangelsi. Fjöldi fólks er tilbú-
inn að vitna um aö hún sé strang-
heiðarleg kona og nýtur þjóðfélags-
þegn. Ákvörðun hennar um að gefa
sig fram eftir 23 ár í felum sýni
best ábyrgðartilfmningu hennar.
Katherine Ann Power var dæmd í 12 ára fangelsi eftir að hafa verið á
flótta undan lögreglunni í 23 ár. Henni er bannað að selja útgáfu- og
kvikmyndarétt að ævisögu sinni fram til ársins 2013. Símamynd Reuter
Svo kann þvi að fara að hún verði
náðuð innan árs og fái þá að fara
heim til Oregon þar sem hún á hlut
í veitingahúsi og heldur reglulega
matreiðslunámskeið. Sjálf segist
hin dæmda vera tilbúin aö sitja
allan dóminn af sér.
Engin sjálfsævisaga
í dómnum yfir Katherine Ann er
sérstakt ákvæði sem bannar henni
að hagnast á nokkurn hátt á glæp
sínum næstu 20 árin eöa fram til
ársins 2013. Banks dómari sagðist
ekki geta hugsaö sér að dæmdur
glæpamaður auðgaðist á að úthella
blóði saklauss fólks.
Þetta þýðir að Katherine Ann
getur ekki selt ævisögu sína. Hún
má ekki selja kvikmyndaréttinn að
sogu sinni og á enga hátt reyna að
auðgast á broti sínu.
Katherine Ann er sama um þetta
ákvæði. Hún ætlaði sér aldrei að
verða rík á að fela sig fyrir lögregl-
unni í 23 ár. Kvikmyndafélögin eru
hins vegar ekki eins ánægð með
sinn hlut. Þau geta nú ekki gert
mynd eftir sögu Katherine Ann
sjálfrar þótt vart leiki vafi á að saga
hennar á eftir að birtast í ýmsum
myndumánæstuárum. -GK