Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1993, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1993, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1993 19 Haraldur fékk æðstu viðurkenningu sem óbreyttur borgari getur fengið hjá bandaríska hernum fyrir frábær störf. Michael D. Haskins, yfirmaður varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, veitti honum hana. Leggjum mik- ið í eldvamir - segir Haraldur Stefánsson, slökkviliðsstjóri á Keflavíkurflugvelli Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli hefur á undanfornum árum fengið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir frábæran árangur. En það er ekki bara slökkviliðið sem hefur fengið viðurkenningar heldur einnig flugþjónustudeild slökkviliðsins sem á einnig þátt í þessari velgengni. Deildin sér um að flugbrautirnar séu í lagi. Hún hefur einnig með höndum snjóruðning og hafa margir furðað sig á því hvernig tekist hefur að halda brautunum opnum aflt árið, hvernig sem veðráttan hefur verið. Þá hefur deildin umsjón með þotu- gildrum eins og eru á flugmóðurskip- unum. Fréttaritari DV náði tali af Haraldi Stefánssyni, slökkviliðsstjóra á Keflavíkurflugvelli, og spurði hann fyrst hvort ekki væri ánægjulegt að fá þann dóm frá öðrum flotastöðvum bandaríska hersins að slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli væri meðal hinna bestu í heimi. „Þegar verið er að segja að slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli sé eitt besta slökkvilið í heimi þá er erfltt að fullyrða slíkt. En við höfum lagt spilin á borðið og sagt frá því sem við erum að gera, hvernig við förum að því og hver árangurihn er. Menn hafa svo fellt þennan dóm út frá ár- angrinum. Við látum aðra dæma um það hvort við séum eitthvað betri slökkviliðsmenn en aðrir. Viö leggjum óskaplega mikið í eld- varnir, enda er sennilega ekkert slökkvihð til í heiminum sem er frægt fyrir það að vera duglegt að slökkva bál. Það er raunverulega enginn árangur. Það er jú ágætt að geta ráðið við eldinn, ef hann kemur upp, en árangurinn er bestur ef hægt er að koma í veg fyrir að kvikni í.“ Byrjaði sem sjúkrabílstjóri Haraldur byijaði sem sjúkrabíl- stjóri hjá flughernum árið 1955. Ári síðar hóf hann störf í slökkviliðinu og er búinn að starfa þar í 38 ár. „Ég sé ekki eftir þessum árum, þetta eru mjög góöir húsbændur sem ég vinn hjá og sennilega er óvíða hægt að ná betri árangri í starfi en hjá þeim.“ Slökkviliðsstjórinn heldur sér í góðu formi með því að hlaupa i hádeginu á hverjum degi. í slökkvihðinu á Keflavíkurflug- velh eru eingöngu íslenskir ríkis- borgarar, 136 fastir starfsmenn og 25 lausráðnir allt árið. í slökkviUöinu sjálfu eru 78 manns og hinir starfs- mennirnir eru í flugþjónustudeild- inni. „Það fer gott orð af slökkvihðinu og flugþjónustudeildinni út um allan heim. Mannskapurinn liefur sýnt það í verki að hann kann að gera vel og leggur sig aUan fram við það. Við höfum verið ósparir við það að kynna starfsemina út á við og að segja frá því sem við erum að gera hverju sinni. Við höfum fengið að halda fyr- irlestra í Bandaríkjunum og kynna það sem fram fer hér á Keflavíkur- flugvelli. Þeir eru farnir að taka upp okkar aðferðir, bæði við skipulag og stjórnun og hvernig við stöndum að ýmsum verkefnum." - Er það rétt sem sagt er að stöðin sé svo snyrtileg aö fólk geti beintínis speglað sig þegar inn er komiö? „Við höfum ákveðnar húsreglur sem eru byggðar þannig upp að hver maður lýtur ákveðnum sjálfsaga. Við- leggjum mjög mikið upp úr vönduð- um vinnubrögðum við allt sem gert er, hvort sem það heitir að þrífa gólf, þurrka af ofni eða leggja slöngu." Slökkvihðið er einnig þekkt fyrir að gera við bílana sína. Má nefna sem dæmi atvik sem átti sér stað þegar einn bílhnn valt. Þá voru það ein- mitt starfsmennirnir sem gerðu við hann og vakti það mikla athygli víða. „Þetta er einn af demöntunum hjá þessari stofnun, hvað mennirnir geta gert. Árið 1963 fórum við út í það að gera við hlutina sjálfir. Mennimir reyna að koma í veg fyrir bhanir áður en þær verða þannig að tækin verði aldrei lengi frá.“ Frá þessu skrifborði er slökkviliðinu á Keflavikurflugvelli stjórnað. DV-myndir Ægir Már tækniskóli Hl íslands háskóli og framhaldsskóli Höföabakka 9, 112 Reykjavík sími 91-814933 minnir á að umsóknarfrestur fyrir þá sem hyggjast hefja nám í Frumgreinadeild og Rekstrardeild í jan- úar 1994 rennur út 15. október. Rektor ÖKUSKÓLI ÍSLANDS HF. Námskeið til undirbúnings aukinna ökuréttinda (leigubifreiða, vörubifreiða, hópbifreiða) verða haldin í Reykjavík og annars staðar á landinu þar sem næg þátttaka fæst. Verð kr. 100.000 staðgr. ÖKUSKÓLI ÍSLANDS HF. Dugguvogi 2, Reykjavík sími 683841 LÆKKUN! 25% LÆKKUN Á STOFNGJALDI FYRIR BOÐTÆKI Nýttu þér kosti Boðkerfisins sem er sniðið að þörfum nútímafólks á öllum aldri. Nánari upplýsingar um þjónustuna er að finna á bls. 18 í símaskránni, í síma 997000 (grænu upplýsinganúmeri Pósts og síma) og á póst - og símstöðvum um land allt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.