Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1993, Page 30
38
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1993
Supermodel of the World:
litríkt líf
fyrirsætu
- úr myndabók Bimu Willardsdóttur frá Flórída
Keppnin Supermodel of the
World, sem fram fór í Orlando
í Flórída í byrjun ágúst, þykir
hafa heppnast frábærlega í alla
staöi. íslenskifulltrúinn, Birna
Rut Willardsdóttir, var afar
ánægö meö aö hafa tekiö þátt í
keppninni þótt hún kæmist
ekki í úrsht.
Þaö var Veronica Blume, ljós-
hærð stúlka frá Spáni, sem stóö
uppi sem sigurvegari og hlaut í
verðlaun 250 þúsund dollara
samning við Ford Models skrif-
stofuna í New York. Auk þess
fékk hún skartgripi, hálsmen,
eyrnalokka og hring frá ítalska
Hér er fyrirsætumamman Eileen Ford ásamt
sigurvegara síðasta árs.
hönnuðinum Manfredi, að
verömæti 25 þúsund dollarar.
Alls tóku 38 þjóðir þátt í
keppninni Supermodel of the
World. í fyrstu fjórum sætun-
um voru stúlkur frá Spáni, Pól-
landi, Englandi og Frakklandi.
Þær eru aUar meö tryggan
samning við Ford Models eftir
keppnina.
Sigurvegarinn, Veronica
Blume, áem þegar hefur vakið
talsverða athygli sem módel, er
16 ára og kemur frá Barcelona.
Hún ákvað að taka þátt í Ford-
keppninni í sínu heimalandi
þegar hún sá grein um keppn-
Birna Willardsdóttir hafði ekki fengið neina þjálfun sem fyrirsæta er hún fór í ferðalag frá Dalvik i Svarfaðardal til
Orlando í Ffórída. Þar var hún mynduð af þekktum bandariskum tískuljósmyndurum, Christian Weber og Wes Bender.
Veronica Blume frá Spáni sigraði í keppninni Supermodel of the World
þetta árið og hefur strax vakið athygli sem fyrirsæta.
ina i tiskublaðinu Elle. Ver-
onica er fædd í Austurríki og
bjó um tíma í Ungverjalandi.
Hún hefur feröast mikið, m.a.
um Sviss, Þýskaland og
Bandaríkin. Hún er engu að
síður ánægðust með Spán sem
hún segir að sé land sem sé
fullt af lífi og lit. Veronica hef-
ur ákveönar skoðanir á lífinu
og tilverunni og hún segir að
fegurðin komi innan frá.
Langar að leika
í Flashdance
Veronica á sér uppáhalds-
leikkonu sem er Jodie Foster
og uppáhaldsleikarinn er Ja-
mes Dean. Skemmtilegustu
bíómyndir, sem hún hefur séð,
eru East of Eden, Fried Green
Tomatoes, og Dead Poets’ Soci-
ety. Ef hún ætti kost á að leika
í kvikmynd yrði bíómyndin
Flashdance fyrir vahnu. Uppá-
haldstónlistarmenn hennar
eru John Lennon og Annie
Lennox. Þegar hún er spurð
hver sé eftirlætishönnuður
hennar er hún fljót að nefna
GianniVersace.
Foreldrar Veronicu starfa
bæði aö markaðsmálum, faðir
hennar varðandi sportfatnað
en móðirin i ullarfatnaði. Þau
eru afar ánægð með að dóttir
þeirra skuli hafa áhuga á fyrir-
sætustörfum. Veronicu þykir
best að vera heima á kvöldin
en hefur auðvitað líka áhuga á
að fara út með vinkonum sín-
um. Henni finnst gaman að
fara í bíó, á ströndina og í lík-
amsrækt. Hún hefur mjög
gaman af að kynnast nýju fólki
og hlakkar til aö kynnast fólki
í tískuheiminum og ferðast
með því um heiminn.
Bima Willardsdóttir, sem
sigraði í Fordkeppninni hér
heima, kom reynslunni ríkari
heim eftir ævintýralega daga.
Hún fær nú í hendur tugi fall-
egra ljósmynda sem teknar
voru af henni í keppninni og
hún getur sett í möppu. Þessar
myndir munu hjálpa henni á
hinni erfiðu braut fyrirsætu-
starfsins í framtíðinni. Ekki er
ólíklegt að Bima fari utan
næsta sumar til starfa. Hér á
síðunni má sjá örlítiö brot
þeirra mynda sem teknar voru
af henni í keppninni Su-
permodel of the World. Strax í
janúar verður síðan tekið á
móti myndum í Fordkeppnina
1994.
-ELA