Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1993, Síða 35
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1993
43
„Ríkisstjórnin hefur lagt fram fjárlagafrumvarp með brattari halla en nokkru sinni fyrr. Þjóðin horfir fram á
atvinnuleysi, aflabrest, átök við hvalavini og ógnvekjandi friðsamlegt ástand í alþjóðamálum."
íslensktfjöl-
s kyldudr ama
Aftur er komið haust. Ríkisstjórn-
in hefur lagt fram íjárlagafrumvarp
með brattari halla en nokkru sinni
fyrr. Þjóðin horfir fram á atvinnu-
leysi, aflabrest, átök við hvalavini
og ógnvekjandi friðsamlegt ástand í
alþjóðamálum. Dregið er úr áfengis-
meðferð en veitingamenn blása til
októberhátíðahalda. Á erfiðleika-
tímum verða pólitíkusar, fjölmiðlar,
skemmtikraftar og íþróttamenn að
leggjast á eina ár og lyfta þjóðinni
upp úr tára- og vonleysisdalnum.
Mannvininn Tjörva lækni hefur
um langt skeið langað til að leggja
sitt af mörkum svo að vetrardagskrá
fjölmiðla kætti langþreytta lund ís-
lenskrar aiþýðu. Hann ákvað því að
skrifa nokkur sjónvarpsleikrit til að
sýna á síðkvöldum í vetur. „Þjóðin
verður að komast á glugga nágrann-
ans og skynja að margir hafa það
verr en hún sjálf. Ekkert lyf er eins
kröftugt á þunglyndi eins og stig-
versnandi sjónvarpsþáttaböl.“
lstiþáttur:
(gerist í dæmigerðri íslenskri
stofu. Sófasett, hornskápur, nokkur
visin pottablóm, tómar flöskur,
mynd af ÞingvöUum á veggnum,
skál með gömlum appelsínum,
dauður köttur hggur á gólfmu.) í
slitnum hægindastól situr heimihs-
faðirinn, órakaður, klæddur i gul-
leitan hlýrabol og síðar nærbuxur.
Hann ropar, kreistir síðustu drop-
ana úr öldós, starir fram fyrir sig
og rífur sundur nokkra lottóseðla.
„Djöfullinn," segir hann, borar í
nefið og ropar aftur. „Hvern fjand
ann hef ég gert við líf mitt?“ Hann
situr lengi þögull og starir fram fyr-
ir sig. Loksins stendur hann upp og
gengur að homskápnum og dregur
fram brennivínsflösku og sýpur á.
„íslendingar þekkja aðeins einn
sannleika, og hann heitir brenni-
vín,“ segir hann með grátstafinn í
kverkunum. Dóttirin kemur inn frá
hægri. Hún er klædd í gallabuxur,
hermannaskó og röndóttan bol.
„Pabbi, ég er ólétt," segir hún. „Ekki
trufla mig meðan ég er að drekka,“
svarar hann höstuglega. „Já, en ég
er ólétt,“ segir hún aftur. „Hver er
faðirinn?" svarar hann. Hún segir
ekkert. Hann drekkur af stút og
dæsir mæðulega. „Hver á barnið?
Á læknavaktiimi
Er það mágur þinn eina ferðina
enn?“ Dóttirin tekur upp htla plast-
flösku fuha af gambra. Hún drekkur
og segir grátandi: „Gambri er eini
vinurinn sem ég á.“ „Hvern fjand-
ann hef ég gert við líf mitt?“ segir
faöirinn þreytulega og horfir annars
hugar á hræið af kettinum. Þau
drekka sitt áf hvorri flöskunni og
þegja. Spennan eykst og móðirin
kemur inn. Hún er klædd í brúna
kápu, bláa hálfsokka og slæðu. Yfir
• öxhna ber hún ljóta tösku. „Ég vh
skhja við þig,“ segir hún höstuglega
við manninn. „Þú ert aumingi." Hún
tekur ryksugu út úr veggnum og
lemur hann í höfuðið með slöng-
unni. „Égerólétt," segirdóttirin.
„Hvar eru valíum-töflumar mín-
ar?“ segir móðrin og leitar í örvingl-
an í tös’kunni sinni. „Ég verð að fá
eitt glas af vahum á dag, annars dey
ég.“ Hún sparkar í hægindastólinn
og fer út th vinstri. Faðirinn snýtir
sér í lófann, þurrkar sér í buxurnar
og kveikir sér í sígarettu. „Hún talar
ekki um annað en valíum og skiln-
að. Hvað hef ég eiginlega gert við líf
mitt?“ Inn kemur stór labrador-
hundur sem faðirinn rekur út með
thheyrandi formæhngum og bölvi.
Sonurinn birtist frá hægri. Hann er
klæddur lítilh bleikri sundskýlu,
sandölum og sundhettu. „Ég er
óléttur," segir hann og brosir
glyðrulega. Faðirinn horfir kulda-
lega á hann og segir: „Þá ert þú
ekki sonur minn lengur. Hvern
fjandann hef ég gert við lífið?“ Gam-
all frændi kemur inn um gluggann.
Hann er í svörtum leðurjakka, með
sólgleraugu og lítur flóttalega í
kringum sig. „Lögreglan er á eftir
mér,“ segir hann. „Égerkærður
fyrir fíkniefnasmygl, kynferðisaf-
brot, stöðumælasektir og gambra-
brugg.“ „Ég á gambra líf að launa,“
segir dóttirin og hlær hlyrmislega.
Þau fara út til hægri og flissa aö
tjaldabaki. Inn kemur gömul amma
og stynur mæðulega. Hún er klædd
dökkgráum peysufótum með staf í
hendinni. Skyndhega kemur hún
auga á köttinn. „Er Branda dauð?“
segir hún. „Hvað gerðist?“ „Hún
fargaði sér,“ svarar faðirinn og
horfir ofan í flöskuna. „Ég held að
hún hafi verið ólétt eftir hundinn.
Hún þoldi það ekki.“ Hann borar í
nefið með flöskustútnum og segir
snöktandi: „Hvaðhefégeiginlega
gert viö lífið mitt? Hvers á ég að
gjalda?" Amman dæsir. Kötturinn
stendur upp og fer. Tjaldið fellur.
Framhald eftir hlé
Áfram er fylgst með íjölskyldunni
í ólgusjó lífsins á fimmtudagskvöld-
um. í samanburði við næstu þætti
er fyrsti þátturinn sem gamanleik-
ur. „Svona leikþættir eru góðir fyrir
andann," segir Tjörvi læknir. „Fólk
áttar sig kannski á því hversu af-
stæð eigin eymd er í raun. Allar
sorgir heimsins verða næsta smáar
þegar horft er á íslenskt vandamála-
klám þar sem höfundur, leikarar og
leikstjóri velta sér upp úr mannlegri
smæð og lágkúru. Vonandi hefur
komandi vetrardagskrá að geyma
marga svona þætti þar sem þau sút-
ur og sorg ganga í hehagt hjónaband
og heíja hamingjusnauða sambúð."
Tjörvi leit upp úr tölvimni og hóf
síðan að skrifa næsta leikþátt um
óhamingju á íslensku sveitaheimhi
í skugga breyttrar landbúnaðar-
stefnu.
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA:
Haustlaukar - mikið úrval
GARÐSHORN 5P
v/Fossvogskirkjugarð, símar 16541 og 40500
99-6272
^3 SÍMINN E3
-talandi dæmi um þjónustu!
ki sem verða til sýnis
1. 13-16 í porti á bak
Reykjavík, og víðar.
bensín 1988
bensín 1986-89
bensrn 1986-87
bensín 1982-89
bensín 1986
bensín 1989-90
bensín 1987
bensín/dísil 1985-89
bensín/dísil 1986-87
dísil 1984
bensín 1988
dísil 1988
dísil 1985
bensín 1986
bensín 1989
bensín 1988
bensín 1980
dísil 1988
1 stk. Toyota Camry
4stk. Toyota Corolla
4stk. Toyota Tercel station 4x4
3 stk. Subaru 1800 station 4x4
1 stk. Subaru Justy 4x4
2stk. Daihatsu Feroza 4x4
1 stk. Jeep Comanche pickup 4x4
3stk. Mitsubishi Pajero4x4
3 stk. Toyota Hilux DC 4x4
1 stk. Chevrolet pickup m/húsi 4x4
1 stk. Dodge Ram pickup m/húsi 4x4
1 stk. Ford F-250 pickup m/húsi 4x4
3 stk. Nissan Patrol 4x4
1 stk. RenaultTraficsendibifreið4x4
1 stk. Ford Econolinesendibifreið
1 stk. Mazda 2000sendibifreið
1 stk. Harley Davidson lögreglubifhjól
1 stk. M. Benz303fólksflutningabif-
reið, 33 farþ.
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, brigðastöð, Grafarvogi.
1 stk. VolvoN-10vörubifreiðm/palliogkrana dísil 1977
1 stk. M. Benz914vörubifreiðán pallsmeð dísil 1986
krana
1 stk. Tengivagn til járnflutninga 1968
1 stk. Dísilrafstöð, 30 kw, í skúr á hjólum 1972
1 stk. Dísilrafstöð, 30 kw, í skúr 1979
1 stk. Snjótönn á veghefil, handskekkt
2 stk. Snjótennur á vörubíl S & Ö 3000- H án 1978-80
vökvatjakka
1 stk. Fjölplógur á vörubíl S & Ö 2700-V 1982
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi.
1 stk. Vélskólfla Broyt X2 1966
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins á Isafirði.
1 stk. Vatnstankur, 10.000 ltr„ án dælu 1980
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði.
1 stk. VeghefillChampion 740-A 6x4 1982
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri sama dag kl.
16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til
að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFI\IUI\l RÍKISINS
BORGARTUNI 7 105 REVKJAVIK