Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
5
Fréttir
Skúlagatan þykir betri kostur fyrír Hæstarétt
- andmæliborgarbúanáeyrumráðamanna
Líkur eru nú á að stjórnvöld hætti
við fyrirhugaða byggingu hæstarétt-
arhúss á lóðinni miIli.Landsbóka-
safnsins og Arnarhvols. Að sögn Þor-
seins Pálssonar dómsmálaráðherra
kemur hins vegar vart annað til álita
en byggja húsið í miðbænum, í nám-
unda við Stjórnarráðið og Alþingi.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
DV framkvæmdi nýverið, er mikill
meirihluti borgarbúa á móti fyrir-
hugaðri staðsetningu, eða átta af
hverjum tíu sem afstöðu tóku. í kjöl-
far skoðanakönnunarinnar lýsti
Davíð Oddsson forsætisráðherra því
yfir á Alþingi að til greina kæmi að
byggja annars staðar en á baklóð
Landsbókasafnsins. í DV í gær lét
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra síðan hafa eftir sér aðfyrirhug-
uð staðsetning væri ekki heilög í sín-
um augum.
Að sögn borgaryfirvalda er það
ekki á þeirra valdsviði að finna
hæstaréttarhúsinu nýjan stað heldur
ríkisins. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
formaður skipulagsnefndar Reykja-
víkurborgar, segist hins vegar ætíð
reiðubúinn að ræða við ríkisvaldið
um þessi mál reynist vilji fyrir því
að flnna húsinu nýjan stað.
Að mati forsætisráðherra koma
einkum tveir staðir til greina - báðir
á Skúlagötu. Hægt sé að byggja húsið
á bílastæðinu við hlið sjávarútvegs-
ráðuneytisins eða á lóðinni þar sem
rústir SS-hússins standa.
Að sögn Þorsteins Pálssonar var
það upphafieg tillaga hans að flytja
Hæstarétt í Landsbókasafnið. Það
hefði verið ódýrasti og hentugasti
kosturinn, að sínu mati. Á það hefði
ríkisstjórnin hins vegar ekki fallist.
Margir hafa bent á að á lóðinni
fyrir austan núverandi aðsetur
Hæstaréttar við Lindargötu megi
koma fyrir nýju hæstaréttarhúsi.
Upphaflega var talað um viðbygg-
ingu í því sambandi en það þótti hins
vegar ekki viðeigandi. Til að tryggja
virðingu Hæstaréttar yrði húsið að
standa sjálfstætt.
Svala Arnardóttir þula:
Ég sé ekki ástæðu til
að tala við Hraf n
„Ég sé enga ástæðu til að tala við
Hrafn Gunnlaugsson um þetta mál
því til þessa hefur dagskrárritari séð
um niðurröðun vakta,“ sagði Svala
Arnardóttir, sambýliskona Arthúrs
Björgvins Bollasonar. Eins og fram
kom í DV í gær kvaðst útvarpsstjóri,
Heimir Steinsson, hafa komist að
samkomulagi við Hrafn Gunnlaugs-
son um að Svala kæmi á fund Hrafns
til að ræða 60 prósenta vaktaskerð-
ingu sem hún varð fyrir í febrúar-
mánuði.
Svala sagðist telja að mál hennar
yrðu komin í lag á ný þegar vakta-
tafla þuia fyrir mars verður gerð.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir tók
málið upp á útvarpsráðsfundi fyrir
viku. Hún'sagði við DV í gær að hún
hefði hvatt til þess að vaktamál Svölu
yrðu lagfærð. „Ég mun taka þetta
mál aftur upp í útvarpsráði ef þetta
verður ekki komið í lag næst þegar
vaktir verða settar upp,“ sagði Ásta
Ragnheiður við DV í gær.
-Ótt
Að sögn Þorvalds S. Þorvaldssonar, sá möguleiki fyrir hendi en þó aðeins Þorsteinssonar verði látiö víkja.
forstöðumanns Borgarskipulags, er að því tilskildu að íþróttahús Jóns -kaa
Módelmyndir
Sérhæfðar Ljósmyndatökur
-Fyrirsætukeppnir
-Möppur
-Módelskrifstofur
Hár og listförðun
á staðnum
Upplýsingar og Pantanir
811001 811050
Ljósmyndarar: Kristján Maack
Sigþór H.Mark...
Förðun: Sif Guðmundssdóttir
Ragnheiður Stefánsdóttir
STUDIO
Sumarbækling
urinn‘94 er
kominn út
y
Opið verður hjá Ferðaskrifstofu
Reykjavíkur í Aðalstræti 16
sunnudagirtn 13. febrúar frá
kl 13:00- 16:00.
Verum öll í sumarskapi og losum okkur
úr viðjum vetrarins.
Margír spennandi valkostir
í ferðum og verðum.
Benidorm - Barcelona - Costa Brava - Costa Dorada - Kýpur
Grikkland - Tyrkland - Madeira - Kanaríeyjar - Tenerife
Florida - Baltimore — New Yprk - Okuleiðir um Bandaríkin
og margt, margt fleira.
Líttu við hjá okhur sunnudaginn 13. febrúar.
FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVIKUR
Aðalstræti 16 • Sími 62 14 90