Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Side 8
8
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
Vísnaþáttur________
Þegar ég í
ferðir fer
Þann 8. febrúar 1993 lést Steinþór
Ásgeirsson, sem var starfsfélagi
minn 1940-46 og góðkunningi æ síð-
an. Hann varð áttræður 19. júlí 1992
og bauð mér í afmælishóf sitt. Þar
hitti ég konu hans, Þorgerði Þórar-
insdóttur, en hún lést skömmu síð-
ar. Nokkru eftir það hitti ég Stein-
þór á heimili hans, Móaflöt 21 í
Garðabæ, og átti með honum
stund. Hann var þá að fletta göml-
um bréfum, sem farið höíðu á milli
foðurbróður hans, Ásgeirs Jóns-
sonar í Gottorp, og Jóns Pétursson-
ar á Nautabúi í Skagafirði. Hann
léði mér bréfin og gaf mér leyfi til
að birta þau. Utanáskrift á bréfi
J.P. 29. júh 1931 var þessi:
Ásgeir glaður arfi Jóns
á hér blaö frá Skagfirðingi.
Gangi þaö úr greipum þjóns
Gottorp að í Húnaþingi.
Bréfið komst 1 réttar hendur - og
var á þessa leið
„Hofi 27. júlí 1941.
Góði gamli vinur!
Innhega þakka ég þér síðustu
samfundi og aht gott, að ógleymdu
bréfinu þínu í vor, sem mér þótti
mjög gaman að fá, að öðru leyti en
því, að slæmar voru fréttirnar af
hehsufari þínu. Verst ef ferðalagið
norður hefur haft slæm áhrif á þig,
sem ég get vel ímyndað mér. Þó
geta menn fengið slíkar hremming-
ar án sérstakra orsaka, þegar þeir
eru orðnir gamiir. Það er slæmt aö
þú verður að hætta búskapnum þó
fjárpestin hafi farið iha með bú-
stofn þinn, en það er eins og þú
getur um ókleift að búa eingöngu
við aðkeypt vinnuafl, og alltaf fer
það versnandi. í kaupstað getur þú
því síður unnið. Helst passaði þér
eitthvert eftirlitsstarf, en ekki er
hlaupið ofan á slíkt, þar eru ótal
fyrir einn. Þó Ingibjörg gæti inn-
unnið mikið með saumum, ef hún
hefur heilsu, þá mundi það ekki
nægja til heimhisþarfa í þeirri
dýrtíð sem nú er, og getur staðið
lengi. Að spekúlera í útgerð, t.d.
kaupa vélbát, er lukkusph og þér
ógeðfellt. Áður en fjárpestin
(garnaveikin) kom að Hólum, sem
sló óhug á fjárræktina, var mér
búið að detta í hug starf sem þú
hefðir verið fyrsti maður að takast
á hendur, það var eftirlit eða um-
sjón með fjárgeymslu, eða yfir höf-
uð fjárrækt á skólabúinu. Það er
óhæfa að þar skuh ekki vera fyrir
hendi fyrirmyndar hirðing og um-
gengni öll í besta lagi, sem phtar
gætu tekið sér th fyrirmyndar, en
eftir því sem ég hefi heyrt vantar
mikið á aö svo sé. Sama má segja
um kynblöndun og úrval. Við
þannig lagað starf vhdi ég vita þig,
en því miður er þess konar líklega
skýjaborgir, þó þörf væri á slíku,
því hvers þarfnast bændaefni
fremur að læra en þess, að fara vel
og hygghega með bústofninn, eða
veltur ekki mikiö, eða jafnvel mest,
á afuröum búsins? Og svo hefur
snyrtimennskan sinn fagra kost.
Ekki hefi ég tíma eða sál th að
fara útí eilífðarmálin í þetta sinn,
en þykir þó gaman að heyra hvað
þú gruflar út í þau, og þakka þér
vísumar sem þú kveður um vænt-
anlegt ferðalag okkar þar efra á
gömlu reiðskjótunum okkar. Þær
eru ágætar á sína vísu. Ég hefi
hingað th látið spíritisma hggja á
mhh hluta, tek ekki af neinu, en
trúi með varúð.
Heimihsfólk er flest farið útí
buskann, en ég ætla að helga þér
stund úr deginum, ef þú kynnir að
hafa gaman af þessu ómerkhega
blýantskroti og stökunum á með-
fylgjandi skekklum. Ég man ekki
vel hvað ég sendi þér af vísum, en
þessar em svo nýlegar að þú hefur
ekki heyrt þær, nema ef vera skyldi
„Milli Fehs og Hofs“. Ef þú síðar
meir hugsar þér aö kría eitthvað
útúr mér, þarf ég helst að vita hvað
þú hefur fengið af því tagi. Af því
að Gunnar ráðunautur, sem er
glaðlyndur náungi, hafði gaman af
vísu Stebba Vagnssonar tók ég mér
það leyfi aö kveða um hann í líkum
anda, nema hvað það var víðtæk-
ara. Það er eitt nýyrði í einni vís-
unni, sem ég tel hárrétt, þó ég hafi
ekki heyrt það fyrr. Það er hest-
kenningin „mélbitlingur" sam(an)-
ber bithmar og mélarnar. En í vís-
um th Óhnu er ég hreykinn af
tveimur orðum, það er, að ég vh
vera með hróðrardætrum hennar,
því nú á tímum er orðið að ver(a)
meö henni eða honum notað í stað
orðsins daður í okkar ungdæmi.
Allt er að verða svo fínt innra og
ytra, silkibuxur í stað prjónabróka
eöa vaðmáls áður fyrr. Þeir felldu
ekki sök á ungar og fagrar meyjar
fyrir klæðnaðinn þann áður, og
aht gekk sinn eðhshvatagang, ef
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
ekki var um sóðabrækur að ræða.
0 jæja, jæja! Tímarnir breytast en
ástalífið og innsta eðlið hjá körlum
og konum verður lengi hið sama,
enda þarf svo að vera ef ekki á al-
veg að hætta allri iðju og öhu við-
haldi mannkynsins.
Hjónin hér biðja innilega að
hehsa ykkur. Sólveig er noröur á
Akureyri, fór um miðjan þennan
mánuð. Verið þið hjónin svo best
kvödd með óskum ahs hins besta
af ykkar vin og velunnara.
Jón Pétursson“
Stökurnar á meðfylgjandi
skekklum:
Þegar Gunnar Bjamason hrossa-
ráðunautur hélt sýningu í Skaga-
firði voriö 1941 og ferðaðist á mót-
orhjóh kvað Stefán Vagnsson:
Tregaði ekki tölt né skeiö
og tilþrif gæðinganna.
Sinni mótormeri reið
milli sýninganna.
Þegar Jón karhnn Pétursson
heyrði stökuna kvaö hann:
Reisu háði og hendings kast
hreyflar kváðu og flautur,
hleypti í gráðið, hélt sér fast
hrossa ráðunautur.
Alltaf er stormur á mótorhjóh.
Sig ei kærði um knapa lyst
kennd sem hrærði blóðiö.
Á véla færleik ferðaðist,
fældi og ærði stóðið.
Allir störðu á undra reið,
en þó vörðust spotti,
hann með jörð, er skrykkjótt skreið
Skagaflörður glotti.
Etja léttum hófahund
héraðsréttur væri.
Víð og slétt er gróin grund
gnægð af sprettafæri.
Þótt í hringa hjóh þeir
hestaþinga miUi'
Skagfirðingar meta meir
mélbithnga snflli.
Þeir sem muna skemmtiskrár,
skrið, og funá í blakknum
hef ég grun uns blikna brár
best sér una í hnakknum.
Framhald í næsta þætti.
Torfi Jónsson
Matgæðingur vikunnar
Fiskisúpa og
snittubrauð
„Ég ætla að bjóða uppskrift að
fiskisúpu sem er mjög góð og ein-
föld þótt það sé kannski svohtið
maus að brytja niður grænmetið í
hana,“ segir Kristín Pálsdóttir,
matgæðingur vikunnar. Sigríður
Friðjónsdóttir, sem vísaði á Krist-
ínu, benti á að hún gæti komið með
eitthvað suður-amerískt þar sem
hún væri nýkomin frá Hondúras.
„Mér fannst ekki nógu sniöugt að
vera með shka rétti þar sem margt
af því hráefni sem þarf fæst ekki
hér á landi,“ segir Kristín.
Auk fiskisúpunnar býður hún
upp á snittubrauð með osti og hvít-
lauk sem hún segir að sé mjög gott
með súpunni. Kristín hefur betr-
umbætt fiskisúpuuppskriftina eftir
eigin höfðu. Þannig hljóöar upp-
skriftin:
Fiskisúpa
1 kg lax eða lúða
1 htri vatn
2 dl hvítvín (má sleppa)
4 laukar
2 fiskteningar
2 hvítlauksgeirar
4 tómatar
2 grænar paprikur
1 gulrót
1 blaðlaukur
4 stilkar sellerí
1 dl olía
saffran eða turmeric (gurkemeie)
salt og pipar
3—400 g rækjur og krækhngur
(spari)
Byijað er á að sjóða fiskinn í
Kristín Pálsdóttir, húsmóðir og
matgæðingur vikunnar.
stuttan tíma í vatninu, suðan látin
koma upp. Þá er fiskurinn tekinn
upp úr og soðið síað. Fiskurinn er
roð- og beinhreinsaöur og geymdur
meðan súpan er búin til. Aht græn-
metið er hreinsað og skorið niður,
tómatarnir flysjaðir með því að
stinga þeim í heitt vatn. Olían er
hituð í stórum potti og grænmetið
látið krauma í tíu mínútur. Þá er
soðinu ásamt fiskteningnum og
hvítvíninu bætt út í og látið malla
í aðrar tíu mínútur. í lokin er saffr-
an eða gurkemeie látið út í ásamt
rækjunum og kræklingi ef súpan á
að vera sparimatur. Skelfiskurinn
er einungis hitaður í gegn.
Osta- og
hvítlauksbrauð
50 g þurrger
3 dl vatn
1 tsk. salt
1 msk. oha
2 hvítlauksgeirar
1 dl rifinn ostur
500 g hveiti, má blanda til helminga
með hehhveiti ef vhl
Þurrefnunum blandað saman.
Vatnið er hitað upp í 37 gráður.
Osturinn er settur út í þurrefnin
en marinn hvítlaukurinn í vatnið.
Síðan er aht hnoðað vel saman og
látið lyfta sér í 2-3 tíma. Þá er deig-
ið hnoðað aftur létt, því skipt í þijú
th fjögur langbrauð sem eru látin
lyfta sér eina klukkustund í viðbót.
Þá er skorið í brauðin og þau pensi-
uð með vatni eða mjólk. Loks eru
brauðin bökuð í tuttugu mínútur
við 225 stiga hita.
Kristín segist hafa gaman af að
prófa nýja rétti og þetta brauð sé
mjög einfalt að baka fyrir þá sem
eru vanir aö baka úr geri. „Þetta
er mjög gott brauð,“ segir Kristín.
Hún ætlar að skora á Gunnvant
Ármannsson, sölumann hjá
Fransk/íslensku eldhúsi, að vera
næsti matgæðingur. „Hann er hálf-
ur Indverji og getur komið með
skemmthega og framandi rétti.“
-ELA
Hinhliðin
Ástfangin upp fyrir haus
- segir Valgerður Guðnadóttir, nemandi og söngkona
Valgerður Guðnadóttir, nemandi
í Verslunarskóla íslands, hefur
vakið mikla athygli fyrir söng sinn
í uppfærslu skólans á söngleiknum
Jesus Christ Superstar. Eitt lagið,
sem Valgerður syngur, hefur meira
að segja komist á vinsældahsta DV
og Bylgjunnar. í gærkvöldi var fyr-
irhugað að nemendur kæmu fram
á Hótel íslandi ásamt gömlum
stjörnum úr söngleiknum, þeim
Shady Owens, Pálma Gunnarssyni
og Guömundi Benediktssyni. Val-
gerður átti von á að sýnjngum á
söngleiknum yrði fjölgað vegna gíf-
urlegs áhuga. Það er þessi unga
söngstjarna sem sýnir hina hhðina
að þessu sinni:
Fullt nafn: Valgerður Guðrún
Guðnadóttir.
Fæðingardagur og ár: 13. septemb-
er 1976.
Kærasti: Þorsteinn Freyr Bender.
Börn: Engin.
Bifreið: Engin.
Starf: Nemandi og ég skúra hka af
og th.
Laun: Um tíu þúsund á mánuði.
Áhugamál: Söngur, leiklist og að
fara í leikhús. Ég hef líka áhuga á
að fara í söngskólann næsta haust
og byrja að læra söng.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur i lottóinu? Aðeins þrjár tölur.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Vera með kærastanum og
fara út og hitta vini og skemmta
mér.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að vera aðgerðalaus.
Uppáhaldsmatur: Indverskur mat-
ur finnst mér æðislegur.
Uppáhaldsdrykkur: Eg er svoldið
hrifin af hvítvíni og kampavíni.
Valgerður Guðnadóttir er nýjasta
söngstjarnan.
Hvaða iþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Ég er voða-
lega htið fyrir íþróttir en dáist mjög
af Birki Rúnari Gunnarssyni.
Uppáhaldstimarit: Ég er mjög hrif-
in af erlendum tískublöðum eins
og t.d. Vogue. Þau eru mitt líf og
yndi.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan kærastann? Enginn
sérstakur enda er ég svo ástfangin
upp fyrir haus að ég get ekki
ímyndað mér neinn fáhegri en
kærastann.
Ertu hlynnt eða andvig rikisstjórn-
inni? Ég er nokkuð hlynnt henni
en finnst þó að ýmislegt megi betur
fara.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Robert De Niro.
Uppáhaldsleikari: Það er hka Ro-
bert De Niro.
Uppáhaldsleikkona: Jodie Foster.
Uppáhaldssöngvari: Ég er ahtaf
hrifin af Bono í U2 og Janis Jophn.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ég
hef varla hugmynd um það. Ég
held að það sé enginn sérstakur en
þó finnst mér Jóhanna vera dugleg.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hómer Simpson er alltaf jafn fynd-
inn.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Evrópsk-
ar myndir þó þær séu sjaldgæfar.
Uppáhaldsmatsölustaður: Ég er
voðalega hrifin af Taj Mahal.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Frekar andvíg
því, það hefur svo htið að gera. Ég
er þvi andvíg.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Þær eru allar ágætar en þó
hlusta ég mest á Aðalstöðina, hún
er mjög góö.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Ég á eng-
an sérstakan nema ef vera skyldi
Gest Einar Jónasson þegar hann
spilar gömlu lögin.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég horfi mjög htið á
sjónvarp og vel einungis það efni
sem mér finnst áhugaverðast
hverju sinni.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ólöf
Rún Skúladóttir er alltaf mjög góð.
Uppáhaldsskemmtistaður: Hressó.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Æth ég
veröi ekki að segja KR fyrir bróður
minn.
Stefnir þú að einhverju sérstöku i
framtíðinni? Að verða söngkona og
svo auðvitað að verða hamingju-
söm kona.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu
i sumar? Ég fer th Englands 3. júní
með Langholtskómum til að syngja
og vonast til að fá vinnu þar ytra
eftir það.