Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1994, Side 17
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1994
17
Á þessu ári eru 150 ár síðan langa-
langafi minn Ólafur Jónsson og kona
hans, Oddný Ólafsdóttir, fluttu að
Sveinsstöðum í Þingi. Ölafur var
sonur Jóns Péturssonar, síðar prests
í Steinnesi, og konu hans, Elísabetar
Björnsdóttur, prests í Bólstaðarhlíð,
Jónssonar, þess sem Bólstaðarhlíð-
arætt er komin frá. Oddný, kona Ól-
afs, var dóttir Ólafs Björnssonar,
bónda á Litlu-Giljá.
Þessi 150 ár hafa afkomendur
þeirra hjóna búið á Sveinsstöðum í
beinan karllegg og er ég sá fimmti í
röðinni. Tel ég fullvíst að það séu
ekki margar jarðir hér á landi sem
undanfarin 150 ár hafa verið setnar
af sömu ætt í beinan karllegg, en
gaman væri að frétta af því. Þessu
til viðbótar má geta þess að lang-
amma mín, Þorbjörg Kristmunds-
dóttir frá Koiugili í Víðidal, kona
Jóns Ólafssonar, var af þeirri ætt
sem setið hafði á Sveinsstöðum frá
því um 1700. Get ég því sagt að for-
feður mínir hafi samfellt setið
Sveinsstaði í tæpar þijár aldir.
Niðjamót og niðjatal
Ákveðið er að minnast þessarar 150
ára búsetu með þvi að efna til niðja-
móts Ólafs og Óddnýjar og verður
það haldið 5. og 6. ágúst í sumar.
Samhhða er verið að taka saman
niðjatal þeirra hjóna. Þessi grein er
skrifuð.til þess að vekja athygli á
þessu máli og reyna að ná til þeirra
ættingja sem hugsanlega hefðu hug
á að mæta á niðjamótið og vilja láta
í té upplýsingar vegna niðjatalsins.
Dagskrá mótsins hefur ekki endan-
lega verið samin, en allar hugmyndir
eru vel þegnar.
Fjórtán börn og
fjöldi afkomenda
Oddný og Ólafur áttu 14 böm og
komust 10 þeirra upp. Þau voru
þessi: Elstur var Jón, bóndi á Sveins-
stööum, langafi minn. Meðal afkom-
enda hans má nefna Friðrik Pál
Jónsson, fréttamann á Ríkisútvarp-
inu, og Guörúnu. Halldórsdóttur,
skólastjóra Námsflokka Reykjavík-
ur. Annað barn var Ehsabet. Dóttir
hennar, Kristín, giftist Stefáni Þórð-
arsyni Guðjohnsen, kaupmanni á
Húsavík. Meðal afkomenda þeirra
eru Einar Öm Stefánsson fréttamað-
ur, Amór Guðjohnsen knattspymu-
maður og Oddur Einarsson, fyrram
prestur á Skagaströnd og forstöðu-
maður atvinnuátaks á Suðurnesjum.
Þriðja barn var Gróa Ólafsdóttir.
Sonur hennar var Jón Kristjánsson
nuddlæknir og meðal afkomenda er
Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjón-
varps. Fjórða bam var Þómnn, sem
dó í Ameríku. Líklega em engir af-
komendur hennar á lffi. Fimmta
bam var Ólafur söðlasmiður, sem
dó í Ameríku. Meðal aíkomenda
hans er Auður Júhusdóttir, kona
Friðriks Ólafssonar stórmeistara.
Sjötta barn var Oddný sem giftist
Vigfúsi Melsted Guðmundssonar,
prests á Melstað. Meðal afkomenda
þéirra er Guðmundur Garðar Art-
hursson bankastarfsmaður. Sjöunda
barn var Sigríður. Afkomendur
hennar eru í Ameríku. Áttunda barn,
sem upp komst, var Elín, sem giftist
Metúsalem Einarssyni, bónda á Bur-
stafelh í Vopnafirði. Meðal afkom-
enda þeirra em: Sigurjón Friðriks-
son, bóndi í Ytri-Hhð í Vopnafirði,
og Gestur Einar Jónasson, útvarps-
maður á Akureyri, og Aðalsteinn
Ingólfsson hstfræðingur. Níunda
barnið var Böðvar, sem fór til Amer-
íku ásamt fjölskyldu sinni. Tíunda
barniö var Björn, guhsmiður í
Reykjavík, kvæntur Sigríði Vilhelm-
ínu Jónsdóttur.
Mikill
félagsmálamaður
Ólafur Jónsson bjó á Sveinsstöðum
til dauðadags 1873. Hann var hrepp-
stjóri sveitarinnar og tók mikinn
þátt í félagsstörfum auk þess að vera
dugandi bóndi. Hann var þingmaður
Húnvetninga eitt kjörtímabil en sótt-
ist ekki eftir endurkjöri vegna
hehsubrests. Hann var sæmdur heið-
urskrossi dannebrogsmanna.
Ólafslundur
Til þess að undirstrika hve Ólafur
var mikilsmetinn frammámaður hér
um slóðir má geta þess að um 1940
þegar félagasamtök hér í sveit hófu
skógrækt og góðursettu htinn lund
var hann skírður Ólafslundur th þess
að halda nafni Ólafs Jónssonar á
Sveinsstööum á lofti. Ólafur var m.a.
einn aðalhvatamaðurinn að stofnun
Búnaðarfélags Sveinsstaðahrepps,
en hafist var handa um ræktun Ól-
afslundar í tengslum við 75 ára af-
mæh Búnaðarfélagsins. Þessi lundur
er sunnan í hól fast við Norðurlands-
veginn. Þar hefur nú verið gerður
áningarstaður sem er mjög vinsæh
af feröamönnum.
Magnús Ólafsson,
Sveinsstöðum
/ blómabúð
PU 20- ITABLÓM 50% afsláttur I GJAFAVÖRUR 20-75% afsláttur
1 ^ÖTTAHLÍFAR 20-50% afsláttur TILBOÐ í húsgagnadeild
GARÐSHORN &ð
við Fossvogskirkjugarð - sími 40500
Opið 10-19
alla daga
STÓRA BÓKAVEISLA FJÖLVA í tuUum gangi á Grensásvegi 8
Komið öll Sjölskyldan. Reynið heppnina í ævintýralega hagstæðum kaupum
Ótrúleet úrval bóka á væeu
verði um lístir, náttúruíræðí,
veraldarsögu, tónlist, byggingar-
list, heimsstyrialdarsögu, málara
líst, byggingarlíst, skáldsögur,
ljóð, þjóðlegur fróðleikur,
ævísögur og samtiðarbækur.
UNDRAHEIMUR FYRIR BÖRN.
Þau mega skoða hundruð ævin-
týrabóka, allar teiknisögumar
um Tinna, Prins Valíant, Astrtk,
Lukku-Láka og Hringadróttin.
Skemmtileg helgi ivrir bömin.
Hagstæðustu bókakaup sem hægt er að gera!!
Opið virka daga kl. 12-6, laugardaga kl. 10-5, sunnudaga kl. 1-5