Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Page 2
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
Fréttir_________________________________________d\
Hæstiréttur dæmir karlmann 16 mánaða fangelsi:
Afklæddi og hafði kynmök
við sofandi systur sína
- hafði fyrst kynmök við hana er hún var 6 til 7 ára
Hæstiréttur hefur dæmt karlmann
í 6 mánaða fangelsi, þar af 3 mánuði
skilorðsbundið, og til greiðslu 150
þúsund króna miskabóta.
Hæstíréttm* staðfesti meö þessu
dóm Héraðsdóms Reykjaness en
málið var höfðað með ákæru á hend-
ur manninum þar sem honum var
gefið að sök að hafa fært systur sína
úr fotunum þar sem hún var sofandi
á vinnustað hans og haft samræði
við hana.
Konan kom á vinnustað bróður
síns þreytt og vansvefta eftir eril-
saman dag. Hún hafði drukkið áfengi
lítillega með bróður sínum áöur en
hún sofnaði á vinnustað hans. Ætlaði
því dómurinn að hún hefði fallið í
djúpan svefn. Maðurinn notfærði sér
ástand konunnar, klæddi hana úr að
neðanverðu og kom fram vilja sín-
um. Konan vaknaði meðan á þessu
stóð og ýtti við manninum. Hann
hætti strax og dró sig til baka. Konan
tók þá eftir þvi að búið var að færa
hana úr fotunum fyrir neðan mitti
og varð reið og sagði jafnframt bróð-
ur sínum að hún ætlaði að kæra
þetta.
„Hafi hann þá haft á orði að hún
þyrði það ekki. Hún svaraði því til
að hún væri staðföst í því og um leið
og hún var búin að klæða sig í þá fór
hún út úr húsnæðinu og gekk á lög-
reglustöðina í Kópavogi."
Dómurinn taldi framburð konunn-
ar „stöðugan og trúverðugan" og
taldi jafnframt framburð mannsins
styðja frásögn hennar, svo langt sem
Guðfirmur Piraibogasoin, DV, Höhnavflc
Einn leikenda, Sigurður Atlason,
handleggsbrotnaði í einu áhættu-
hlutverki sýningarinnar „Einn koss
og ég segi ekki orð við Jónatan" þeg-
ar Leikfélag Hólmavíkur flutti leik-
verkið á Króksfjarðarnesi nýlega.
hann næði. Þótti ekki vafi leika á að
maðurinn hefði haft samræði við
systur sína og gerst brotlegur við
hegningarlög og væri sakhæfur.
í dóminum kemur fram að maður-
inn hafi verið elstur nokkurra systk-
ina. Einnig kemur fram að maðurinn
hafi áður haft kynmök við þessa syst-
ur sína. Fyrst hafi það gerst er hann
var um fermingaraldur, en hún var
þá 6 til 7 ára, og þrisvar sinnum „eft-
ir að hún varð fullorðin og segir hann
að þaö hafi verið með hennar vilja
Sigurður er harður af sér og áhuga-
mikttl leikari og með handlegginn í
gifsi lék hann hlutverk sitt af snilld
í Logalandi í Borgarfirði stuttu síðar.
Fyrirhugaöar eru tvær sýningar á
Hólmavík um hvítasunnuhelgina og
að öllum líkindum verður handlegg-
ur Sigurðar þá enn í gifsi.
eða eftir hennar beiðni. Því neitar
konan, segir að hann hafi misnotað
sig.“
Refsing þótti hæfilega ákveðin 6
mánaða fangelsi, þar af þrír mánuðir
skilorðsbundnir til tveggja ára. Dóm-
urinn féllst á að maðurinn skyldi
greiða systur sinni 150 þúsund krón-
ur í miskabætur en hún hafði krafist
800 þúsund króna í bætur fyrir þann
miska sem bróöir hennar hefði unnið
henni fyrr og síðar.
Stuttar fréttir
ytillþorskafli
Þorskafli í nýliðnum aprílmán-
uði var einungis 12 þúsund tonn.
Þetta er minnsti þórskafli í apríl
sem sögur fara af en á árum áður
var algengt að um 100 þúsund
tonn af þorski veíddust í mánuö-
inwn.
Hagkaup og Levi sættast
Hagkaup og Levi’s galiabuxna-
fyrirtækið hafa náð sáttum i máli
sero fyrirtækið höfðaði gegn; Hag-
kaup vegna innflutnings á galla-
buxum. Levi’s mun höfða mál
gegn Öðrum aöilum erlendis.
Vsfilfel! verðlaunað
Vífllfeli hf, framleiðandi Coca
Cola á íslandi, fékk afhent í gær
stærstu viðurkenningu sem Coca
Cola verksniiðja getur áunniö
sér. Vifilfeli var verölaunað fyrir
gott starf í gæðamálum.
Hagnaður á Þórshöf n
■ Veltá I Jraðfrystistöðvarinnar
hf. á Þórsliöfn jókst um 34% á
sfðasta ári, var rúrour 1 milljarð-
ur króna. Fyrirtækiö hagnaðist
um 19 milljónir sem aðallega má
rekja til Smuguveiðanna.
Tölvuriiðnaði
Yfirgripsmikil ráðstefna um
notkun tölva í byggingariðnaði
hefst eftir helgi að Hallveigarstíg
1 á vegum Samtaka iðnaðarins
og Byggingarþjónustunnar hi'.
Borgin veitír verðlaun
Reykjavíkurborg afhenti
tveimur fyrirtælyum viðurkenn-
ingar i gær; Hampiðjunni fyrir
þróun verkefnis á gömlum
grunni og Bilabúð Benna fyrir
athyglisverða nýsköpun í sér-
smíði jeppa.
BarraeidiHafið
Eidi á hlýsjávarflsktegundinni
barra er hafiö hjá Móka hf. á
Sauöárkróki og búist við fyrstu
slátrun eftir ár.
Lögmannavakt norður
Lögmannavakt hefst á Akur-
eyri eftir helgi. Þar geta norðan-
menn fengiö lögfræöilega ráögjöf
án endurgjalds.
Félagsmálaráðuneytið hefur
úrskurðaö aö atkvæðagreiösla
um sameiningu Heigafellssveitar
og Stykkishólms sé gild þrátt fyr-
ir að of þunnur pappír hafi veriö
notaður í atkvæðaseöla.
Kosningaskrifstofa Reykjavíkurlistans á Laugavegi:
Líf ið sem fylgir
okkur smitar
útfrásér
- segir Álfheiður Ingadóttir starfsmaður
„ Við finnum að þetta er mjög þakk-
lát starfsemi hér því aö lífið sem fylg-
ir okkur smitar út frá sér í nágrenn-
inu. Við erum í besta og fallegasta
húsnæðinu í Reykjavík og hér er
stöðugur straumur, opin kaffistofa
og hægt að fá mat í hádeginu og allt-
af ýmsir málefnahópar starfandi,"
sagði Álfheiður Ingadóttir, starfs-
maður Reykjavíkurlistans, þegar DV
leit inn í höfuðstöðvar hans í hús-
næði Alþýðubankans við Laugaveg
fyrir nokkru.
Stöðug fundahöld eru allan daginn
í kosningaskrifstofu Reykjavíkur-
hstans og mikil skipulagningarvinna
gangandi. Meðan á innhtinu stóð
sátu frambjóöendur og yfirkjörstjóm
Reykjavíkurlistans á fundum, auk
þess sem svokölluð áróðurs- og
kynningamefnd var að leggja á ráðin
á einni skrifstofunni enda talsverð
útgáfa á blöðum og bæklingum fyrir-
huguð.
„Það má segja aö hátíöahöldum
hafi ekki linnt frá því kosningaskrif-
stofan á Laugavegi var opnuð fyrir
nokkrum vikum. Reykjavíkurhstinn
hefur staðið fyrir kosningahátíð um
hverja helgi auk opnunarhátíða á
kosningaskrifstofum. Það er stöðug-
ur straumur af fólki hér,“ sagði Álf-
heiður.
Dögg sökk en
náðist aftur á f lot
Brimnes BA 800 kom til hafnar á
atreksfirði síðdegis í gær með
lögg ÍS 39 en einum skipveija af
lögg var bjargað í fyrradag þegar
áturinn var næstum sokkinn.
Brimnes kom taug um borö í
ögg og dró hana tíl hafnar. Ferðin
ekk ekki þrautalaust því fyrst í
stað gekk mjög hægt sökum veð-
urs. Þegar báöir bátamir vom fyrir
utan Patreksfj arðarhöfn sökk hins
vegar Dögg um leið og slegið var
af ferðinni. Hún náðist þó aftur á
flot og var dælt úr henni. Hún hgg-
ur nú bundin við bryggju á Pat-
reksfirði.
Sjálfstaeðismenn í Langholtshverfi, Háaleitishverfi, Smáíbúðahverfi, Bú-
staðahverfi og Fossvogshverfi eru saman með kosningaskrifstofu á Grens-
ásvegi og er aðaivinnan fólgin í skipulagningu varðandi kosningarnar.
DV-mynd ÞÖK
Kosningaskrifstofa sjálfstæðismanna við Grensásveg:
Stórir f undir og
kosningahátíðir
- sjálfboðaliðar vinna gífurlega skipulagsvinnu
Frambjóðendur og yfirkjörstjórn Reykjavíkurlistans funda stift í húsnæði
Alþýðubankans við Laugaveg þessa dagana enda að mörgu að hyggja
fyrir kosningar. DV-mynd ÞÖK
Kosningabaráttan er komin á fuha
ferð í höfuðborginni enda í mörgu
að snúast við undirbúning og skipu-
lagningu kosningabaráttunnar og
kosninganna sjálfra. Þegar DV leit
inn á kosningaskrifstofuna á Gréns-
ásvegi nýlega vom sjáhboðahðar að
undirbúa opinn fund með Árna Sig-
fússyni borgarstjóra og var það mál
manna að kosningastemningin ykist
dag frá degi og talsvert um að fólk
hti inn tíl að ræða máhn og bjóða
fram aðstóð.
„Það er ýmislegt í gangi hjá okkur.
Við vorum með mjög góða kosninga-
hátíð þegar við opnuðum og vomm
með aðra hátíð í byijun maí með
hljómsveitum og skemmtiatriðum.
Við ætlum að vera með stóra fundi
á fimmtudagskvöldum og fundi og
uppákomur fyrir ungt fólk. í hverfa-
félögunum er meira um að eldra fólk
sé starfandi og því reynum viö að
höfða líka til unga fólksins," sagði
Óskar S. Finnsson kosningastjóri.
Á kosningaskrifstofum sjálfstæðis-
manna er leikaðstaða fyrir böm og
alls staöar hægt að seljast niður og
spjalla við flokksmenn og frambjóð-
endur. Frambjóðendurnir skiptast á
að vera á kosningaskrifstofunum
þannig að borgarbúar geta htið inn
og rætt málin. Daginn sem DV leit
inn á skrifstofuna á Grensásvegi sat
Inga Jóna Þórðardóttir á spjalh en
hún og Ólafur F. Magnússon áttu þá
vikuna.
Beinbrotnaði í
áhættuhlutverki