Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
Stjómmál
Spurt í Garðabæ:
Hver verða úrslit
kosninganna?
Krístjana Geirsdóttir veitingamaður:
Það er best að hafa þetta leynilegt.
Ólafur Jóelsson nemi: Það er ekki
spuming. Sjálfstæðisflokkurinn
rúllar þessu.
Ólafur Jóhannsson nemi: Þetta er
svo mikOl sjálfstæðisbær að ég held
að Sjálfstæðisflokkurinn vinni kosn-
ingamar.
Þórunn Skaftadóttir prófarkalesari:
Ég hugsa að það verði status quo og
að Sjálfstæðisflokkurinn haldi sínu í
bæjarstjórn.
Maggý Matthíasdóttir húsmóðir: Ég
vona aö það verði breyting á stefnu
héma. Ég veðja ekki á neinn sér-
stakan en vona að annar flokkur en
Sjálfstæðisflokkurinn komist að.
Steinunn Gunnarsdóttir nemi: Ég er
svo rosalega hiutlaus í þessu þannig
að ég veit það ekki.
Garðabær:
Mikill stöðugleiki
í bæjarstjórn
MikUl stöðugleiki hefur verið í
bæjarstjórn Garðabæjar undanfarin
30 ár og mjög gott samband milh allra
bæjarfulltrúanna þó að stundum
hafi verið ágreiningur milli meiri-
hluta og minnihluta og þá einkum
um áherslur og framkvæmdahraða.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið
óslitið við völd í Garðabæ frá árinu
1966 enda er Garðabær eitt af höfuð-
vígjum flokksins. Nokkur endurnýj-
un hefur orðið í forystuUði flokksins
í bænum en Benedikt Sveinsson,
núverandi oddviti flokksins, hefur
verið í bæjarstjóm í 12 ár.
Sjálfstæðisflokkurinn vann mikinn
kosningasigur í síðustu kosningum
árið 1990 þegar hann fékk 67 prósent
Gizur Gottskálksson, A-lista:
Fleiri félagslegar íbúðir
Gizur Gottskálksson.
„Við setjum atvinnumálin í bæn-
um á oddinn. Við viljum að bærinn
beiti sér fyrir því að laða að atvinnu-
starfsemi og skipuleggia og gera iðn-
aðarsvæðið betur úr garði og það
verði hugað að möguleikum á hafn-
arsvæöinu," segir Gizur Gottskálks-
son, fyrsti maður á A-Usta.
„Ég legg tU að gerð verði athugun
á skattaundandrætti í Garðabæ í
samvinnu við skattayfirvöld. Lengi
hefur verið í bígerð að gera eitthvað
í skattaundandrættinum í landinu
en ríkið virðist ekki komast í það og
því betra að sveitarfélögin gangi til
samstarfs við ríkið. Garöabær hefur
sótt um að verða reynslusveitarfélag
og taka við fleiri verkefnum og því
verður bæjarsjóður háðari skatt-
stofnum," segir hann.
„Við vUjum leikskólarými fyrir öU
börn, samfelldan skóladag og skóla-
mötuneyti fyrir börnin. Ungt fólk
hrekst úr Garðabæ vegna þess að það
fær ekki hentugt húsnæði á viðráð-
anlegu verði. Lóðaframboð er ekki
nægilegt og verðið of hátt. Byggja
þyrfti 30-35 félagslegar íbúðir á ári
til að anna eftirspurn," segir Gizur.
Einar Sveinbjömsson, B-lista:
Draslaragangur í bænum
„Áherslan er á umhverfi og að-
stæður tU atvinnurekstrar. Bærinn
stendur Ula að atvinnurekstri, göt-
umar em ekki malbikaðar og það
er draslaragangur í bænum. Engin
stefna er í atvinnumálum og því vUj-
um við gera atvinnumálanefndina
virkari þannig aö hún hafi fleiri
verkefni á kjörtímabilinu en svo að
hún þurfi bara að halda tvo fundi
eins og á síðasta kjörtímabili," segir
Einar Sveinbjörnsson, fyrsti maður
á lista Framsóknarflokksins.
„Við vUjum að nýtt deiliskipulag
fyrir íbúðabyggð í Arnarneslandi
verði tekið til endurskoðunar þannig
að gert verði útivistarsvæði meöfram
Amameslæknum í stað íbúðabyggð-
ar. Útivistarsvæði vantar fyrir þá
sem búa í hverfunum við þetta dal-
verpi. Þegar bærinn hefur efni á að
setja 50 miUjónir í óþarfa flutning á
Félagsmálastofnun eru örugglega til
peningar í verkefni eins og þetta,“
segir hann.
„Við leggjum áherslu á að bæjar-
stjórnin taki sig saman og leysi hús-
næðisvanda skólans þannig að hann
veröi einsettur á allra næstu árum,“
segir Einar.
Einar Sveinbjörnsson.
Benedikt Sveinsson, D-lista:
Gætum hóf s í álögum
Benedikt Sveinsson.
„Helsta áherslan hefur verið sú að
gott sé að búa í Garðabæ. Við höfum
lagt áherslu á að hafa skólamálin í
fremstu röð, leikskólamál og æsku-
lýðs- og íþróttamál því að það er
mikið af ungu fólki í Garðabæ. Við
höfum reynt að styðja viö bakið á
þeim félögum sem starfa að málefn-
um unga fólksins í bænum,“ segir
Benedikt Sveinsson, efsti maður á
hsta Sjálfstæðisflokksins.
„Við höfum lagt áherslu á að gæta
hófs í álögum á bæjarbúa og halda
traustri fjárhagsstööu bæjarsjóðs.
Við emm að byggja nýjan gmnn-
skóla og höfum verið að endurbæta
skólahúsnæðiö. Við stefnum að ein-
setningu á næstu fjórum til sex áram
og erum þegar með efri bekki grunn-
skóla einsetta. Við erum búnir að
gera samning við ríkið og Bessa-
staðahrepp um byggingu nýs fjöl-
brautaskóla og veröur farið af stað
með framkvæmdir í haust,“ segir
hann.
„Við höfum haldið uppi fram-
kvæmdum í bænum og veitt öllum
unghngum sumarvinnu á vegum
bæjarins,“ segir Benedikt.
Hilmar Ingólfsson, G-lista:
Einsetning og skólaskattur
„Við leggjum mesta áherslu á að
þaö komi nýr meirihluti í Garðabæ
og teljum löngu tímabært að
Garðbæingar hætti að fylkja sér um
Sjálfstæöisflokkinn. Skuldir bæjar-
ins aukast ár frá ári og hafa tvöfald-
ast á kjörtímabilinu," segir Hilmar
Ingólfsson, efsti maður á G-hsta.
„í framkvæmdum leggjum við
mesta áherslu á að koma á einsettum
grunnskóla. Það var samþykkt ein-
róma í bæjarstjóm árið 1982 að
byggja nýjan gmnnskóla og koma
þessum málum í eðhlegt horf. Nú 14
áram síöar er verið að taka fyrsta
áfanga af Hofsstaðaskóla í notkun
sem þýðir að hér verður áfram tví-
setning. Það væri athugandi að leggja
á tímabundinn skólaskatt til að koma
þessu í horf,“ segir hann.
„Við viljum breyta áherslum við
stjóm bæjarins. Útsvarið hækkar
lögbundið um 20 prósent sem þýðir
32 þúsunda króna skattahækkun á
hverja fjögurra manna íjölskyldu.
Tekjumar aukast um 60 mihjónir
króna og það dugir ekki í þessa hít.
Þá hafa alþýðubandalagsmenn um
allt land sett atvinnumáhn á oddinn
vegna þess að án atvinnu í landinu
verður ekkert gert,“ segir Hhmar.
Hilmar Ingólfsson.
atkvæða og fimm menn af sjö í bæjar-
stjórn og hefur slíkur sigur aldrei
verið unninn í svo stóru bæjarfélagi.
Staða flokksins var hins vegar veik-
ust eftir kosningamar 1978 þegar
flokkurinn náði að halda meirihluta
með 47 prósentum atkvæða.
Eins og Garðabær ber með sér hef-
ur mest áhersla veriö lögð á lágreista
byggð í bænum með einbýhshúsum
og raðhúsum enda aðeins tvö til þijú
háhýsi í bænum. Heitasta kosninga-
máhð nú virðist einkum vera ein-
setning grunnskóla í bænum.
Úrslitin 1990
Þrír listar voru í framboði í bæjar-
stjórnarkosningunum 1990 og urðu
úrslitin þau að D-listi Sjálfstæðis-
flokks fékk 2532 atkvæði og fimm
fulltrúa í bæjarstjórn, A-listi Alþýðu-
flokks fékk 466 atkvæði og einn full-
trúa og E-hsti Alþýðubandalags,
Framsóknarflokks, Samtaka um
kvennalista og annarra fékk 765 at-
kvæði og einn fuhtrúa.
Þessir náðu kjöri í bæjarstjórn:
Helga Kristín Möher (A), Benedikt
Sveinsson (D), Laufey Jóhannsdóttir
(D), Erhng Ásgeirsson (D), Sigrún
Gísladóttir (D), Andrés B. Sigurðsson
(D), Valgerður Jónsdóttir (A).
Framboðslist-
ar i Garðabæ
A-lisli:
1. Gizur Gottskálksson
2. Ema Aradóttir
3. Hahdór S. Magnússon
4. Anna Magnea Hreinsdóttir
5. Helena Karlsdóttir
6. Bjarni Sæmundsson
7. Sjöfn Þórarinsdóttir
B-listí:
1. Einar Sveinbjömsson
2. Sigurður P. Sigmundsson
3. Inga Hrönn Hjörleifsdóttir
4. Ámi Geir Þórmarsson
5. Ólöf P. Úlfarsdóttir
6. Hihnar Bjartraarz
D-iisti:
1. Benedikt Sveinsson
2. Laufey Jóhannsdóttir
3. Erhng Ásgeirsson
4. Sigrún Gísladóttir
5. Andrés B. Sigurðsson
6. Már Másson
7. Smári Hauksson
G-iisti:
1. Hilmar Ingólfsson
2. Sigurður Björgvinsson
3. Áslaug Bjömsdóttir
4. Karen Haraldsdóttir
5. Hafsteinn Hafsteinsson
6. Áslaug Úlfsdóttir
7. Þorkeh Jóhannsson