Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Page 13
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
13
i
»
Reimleikar á íslenskum heimilum:
] Mi íll jó n d rí
„di rai % ;aí Í1 tl •t £0 11"
- 6-700 slíkar beiðnir til Sálarrannsóknarfélagsins á hveiju ári
„Það eru mikil brögð að því fólk
leiti til Sálarrannsóknarfélagsins
vegna reimleika í húsum og fleiri
hiuta sem það getur ekki skýrt út
sjáift. Það berast 6-700 beiðnir árlega
annaðhvort til mín persónulega eða
félagsins um aðstoð vegna hluta af
þessu tagi. Inni í þessari tölu eru
ekki beiðnir til miðla sem eru sjáifir
með sinn lista og töluvert mun vera
leitað til,“ sagði Konráð Adolphsson,
formaður Sálarrannsóknarfélags ís-
lands, við DV.
Eins og fjallað hefur verið um í
blaðinu að undanfómu em þess
dæmi að fólk telji sig vart geta hald-
ist við í húsnæði sínu vegna óvætta
sem sæki að því.
Eftir því sem DV hefur komist
næst þarf húseigandi að greiða 2500
krónur fyrir aðstoð til að koma
óvætti eða illum anda út úr húsi sínu.
Séu þær 6-700 beiðnir þess efnis, sem
berast til Sálarrannsóknarfélagsins
á hveiju ári, aðeins hluti af heildar-
pakkamun má gera ráð fyrir að ís-
lendingar eyði árlega milljónum í
slik „draugaútköll".
En hvernig skyldu þessar beiðnir
skiptast? „Við höfum ekki flokkað
þetta nákvæmlega, en í sumum til-
vikum era truflanir af einhveiju tagi
á ferðinni," sagði Konráð. „Stundum
er verið að gera úlfalda úr mýflugu
með þvi að kalla allt reimleika. Það
má ekki kalla allt sem fólk ekki skil-
ur vofur eða drauga. En auðvitað era
sum tilvik þannig að um er að ræða
eitthvað að handan sem fólkið getur
ekki skýrt út. Því líður illa, fær
martraðir, það er vakið upp á nótt-
unni, það er kveikt á útvarpinu og
skrúfað frá krönum. Þetta eru marg-
vísleg fyrirbæri sem fólk kann ekki
skýringar á. En við vitum að það er
margt á ferðinni í kringum okkur.“
Konráð sagði að þegar beiðni um
aðstoö vegna reimleika bærist væri
hún tekin niður og komið áleiðis til
huglæknanna eða á aðrar brautir
eftir því hve alvarlegt málið væri
tahð. Tveir huglæknar væra starf-
andi hjá félaginu sem stæði auk fjöl-
margra annarra sem það gæti leitað
til.
„Þaö er sjaldnast sem við fórum í
hús,“ sagði Konráð. „Oftar er málið
afgreitt með fjarskyggni og það
heppnast í 90 prósentum tilfella."
Konráð tekur sjálfur að sér að að-
stoða fólk vegna reimleika í heim-
kynnum þess. Hann segist ekki fara
í hús heldur „gera þetta heiman frá“.
„Þegar beiðnin berst þá er maður
með staðsetninguna í huga, fólkið
sjálft og stutta lýsingu á því sem um
er að ræða. Maður getur farið með
fjarskyggni á staðinn og séð það sem
um er að ræða. Stundum sér maður
þetta mjög skýrt, stundum ekki neitt,
stundum einhveijar þústir. Svo fer
árangurinn eftir því hvort þetta er
rétti tíminn til að afgreiða máhð eða
ekki. Stundum tekst þetta í fyrsta
skipti en stundum þarf að fara aftur.
Það eru vemdarar sem vinna í gegn-
um viðkomandi og senda ljós á stað-
inn til að koma fólkinu til Ijóssins.
Ekki þýðir að reka það út og láta þar
við sitja, því þaö fera þá bara á flakk
í einhver önnur hús. Þetta getur ver-
ið einhver sem fallið hefur skyndi-
lega frá og er ósáttur við að fara eða
einhver sem stoppar af einhverjum
öðrum ástæðum og þarf á aðstoð að
halda til þess að komast áfram.“
Konráð sagði að sá sem fengist við
hla anda yrði að vera líkamlega
hress.
„Þaö þýðir ekkert ef hann er eitt-
hvað lasinn, því hann fær andstöðu.
Þetta vhl ekki fara og sækir þá á
þann sem reynir að koma því í burtu.
Viðkomandi þarf að vera í góðu lík-
amlegu ástandi og kunna th verka,
annað myndi bjóða hættunni heim.“
Konráð sagði að þegar hann hefði
verið að byija í þessu hefði hann
mætt mikihi mótspymu og þurft að
slást við þau öfl sem hann hefði ver-
ið að hreyfa við. Hann hefði smám
saman lært að fá sér rétta vemd áður
en hann byijaði.
„Það er miklu meira talað um reim-
leika í húsum nú en áður,“ sagði
Konráð en kvaðst ekki hafa tölur um
aukninguna. „Fóik er orðið næmara
og verður frekar vart við þessa hluti.
Aðalmáhð er að þekkja sjálfan sig
og vita hvenær maður er eðhlegur
og hvenær maður þarf á hjálp að
halda."
MMC Pajero, langur, árg. 1992,
ekinn 55 þús. km, 5 dyra, sjálfskiptur, tvílitur.
Verð 3.200.000 kr.
BÍLAÞING HEKLU
NOTAÐIR BÍLAR
Bílaþing Heklu • Laugavegi 174 • Sími 69 56 60 • Fax 69 56 62
I
»
Pétur Gautur Svavarsson
myndlistarmaður
Ágústa Johnson
líkamsræktarþjálfari
Við styðjum D-listann
Unnur Sigurðardóttir
bankastarfsmaður
Egill Ólafsson
leikari/tónlistarmaður
Guðný Hildur Kristinsdóttir
verslunarmaður
■ T T TimMiiiiíiiiiTíiiMiwiiiniiyr mrn iT T1T1T ^ T iTliiiÍMmiiMÍT TTT^TTTTTT'