Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Page 17
IiAUGARDAGUR 14. MAÍ1994
17
Sagan um hauskúpuna og beinin í Egils sögu Skallagrímssonar í nýju ljósi:
Þjáðist Egill af
aflagandi beinbólgu?
- lýsingin á hauskúpu Egils var talin sýna að sagan væri skáldskapur. Nú þykir hún treysta sannleiksgildi sögunnar
Bandarískur fræðimaður, Jesse L.
Byock, sem er sérfræðingur í ís-
lenskum fornbókmenntum við Ka-
lifomíuháskóla í Los Angeles,
heldur því fram í greininni „Haus-
kúpan og beinin í EgOs sögu“ í
nýjasta hefti tímaritsins Skímir að
læknisfræöileg þekking varpi nýju
ljósi á eina þekktustu persónu Is-
lendingasagna, Egil Skallagríms-
son, og skáldskap hans.
Jesse L. Byock segir að tilgangur
sinn með greininni sé að bæta nýrri
vídd við skilning á persónu Egils
og sögu hans. „Með samþættingu
sagnfræðilegrar, læknisfræðilegrar
og fomleifafræðilegrar greiningar
höfum við tækin til þess að skynja
að Egill er meira en þrettándu aldar
tilbúningur," skrifar hann.
Samkvæmt Egils sögu, sem rituð
var á 13. öld, er Egill Skallagríms-
son fæddur um 910 og látinn um
990. Sagan lýsir honum sem
grimmum manni, einþykkum og
ofsafengnum en einnig sem skáldi
góðu. Hann er ekki aðlaðandi í út-
liti, honum er lýst sem dökkum og
ljótum svo að mönnum stendur
stuggur af návist hans.
„Hausinnvar
allurbáróttur
sem hörpuskeþ'
Á síðustu blaðsíðum Egils sögu
er frásögn sem löngum hefur orðið
lærðum og leikum tilefni heila-
brota. Þar segir frá því að eftir að
kristni var í lög tekin á íslandi
hafi Þórdís, bróðurdóttir Egils, lát-
ið flytja jarðneskar leifar hans til
kirkju að Mosfelli. Síðar, þegar ný
kirkja var reist á staðnum, hafi
fundist mannabein undir altari
kirkjunnar og hafi menn tahð sig
vita að þar væru komin bein Egils.
Orðrétt segir síðan í sögunni:
„Þar var þá Skapti prestur Þórar-
insson, vitur maður; hann tók upp
hausinn Egils og setti á kirkjugarð-
inn; var hausinn undarlega mikill,
en hitt þó meir frá líkindum, hve
þungur var; hausinn var allur bár-
óttur utan svo sem hörpuskel. Þá
vildi Skapti forvitnast um þykkleik
haussins: tók hann þá handöxi vel
mikla og reiddi annarri hendi sem
harðast og laust hamrinum á haus-
inn og vildi brjóta en þar sem á kom
hvítnaði hann en ekki dalaði né
sprakk og má af slíku marka, að
haus sá mundi ekki auðskaddaður
fyrir höggum smámennis meðan
svörður og hold fylgdi. Bein Egils
voru lögð niður í utanverðum
kirkjugarði að Mosfelli."
Þjóðsagnakennd
lýsing
Fjölmargir fræðimenn, bæði ís-
að „í elli hans gjörðist hann þung-
fær og glapnaði honum bæði heym
og sýn.“
Sagan ekki aðeins
skáldskapur
Jesse L. Byock telur að paget-
sjúkdómur sé sennileg skýring á
andlitslýtum Egils en sagan segir
hann ljótan og reyndar yrkir hann
sjálfur um ljótleika sinn. „í hárri
elli Egils greinum við skýrast
helstu einkenni langt gengins pa-
getsjúkdóms: missi jafnvægisskyns
og heymar og það fyrirbæri sem
lýst er í A Textbook of Pathology
sem stórt höfuð sem hangir fram,“
skrifar Byock.
Niðurstaða Jesse L. Byock í
Skímisgreininni er að Egils saga
Skallagrímssonar, sem lengi hefur
verið áhtin tilbúningur, geti vel
innihaldið vemlegt magn áreiðan-
legra upplýsinga.
Bárótt eða bylgjótt mynstur á hauskúpu manns með langt genginn pagetsjúkdóm.
lenskir og erlendir, hafa fjallað um
þennan kafla Egils sögu og yfirleitt
talið hann til marks um að hér
væri skáldskapur á ferð. Jón Steff-
ensen, fyrrverandi prófessor við
Háskóla íslands, skrifaöi t.d. í bók
sinni Menning og meinsemdir:
„Þessi frásögn er um margt þjóð-
sagnakennd og ekki alls kostar
sennileg. [...]... alhr er handleik-
ið hafa hauskúpu gamalmennis
vita að hún stenst ekki högg axar-
harnars."
Dr. Bjarni Einarsson fjallaði um
efnið í ritgerð í bókinni Minjar og
menntir. Hann taldi lýsinguna á
hinum hörðu höfuðbeinum Egils
Skallagrímssonar dæmigert bók-
menntaminni. Taldi hann það
varpa sérstöku ljósi á tækni við
ritun sögunnar. Erlendir fræði-
menn hafa verið sama sinnis. Laur-
ence de Looze hélt því t.d. fram í
grein fyrir nokkrum árum að upp-
grafin hauskúpa Egils væri „íkon
skáldlegs texta".
Dæmigerð lýsing
á pagetsjúkdómi
Jesse L. Byock hafnar þessum
kenningum. Hann vekur athygh á
því hve frásögn Egils sögu um
hauskúpuna og beinin er nákvæm.
Sagan segi að hausinn hafi verið
„allur báróttur utan svo sem
hörpuskel." Byock bendir á að orð-
in „hörpuskel" og „báróttur“ séu
alls ekki algeng í fornsögunum.
Tölvuleit í textasafni íslendinga-
sagna, íslendingaþátta, Landnámu
og Sturlungu leiði í ljós aö þessi orð
komi eingöngu fyrir í þessari setn-
ingu úr Egils sögu.
Byock segir að þótt „bárótt"
beinayfirborð virðist koma norr-
ænum hetjuskap Utið við sé það
aftur á móti hluti af lýsingu
kennslubóka á svokölluðum paget-
sjúkdómi. Þessi sjúkdómur er
kenndur við breska lækninn Sir
James Paget (1814-1899). Hann lýsti
sjúkdómnum fyrstur manna þann-
ig að menn skildu að ólík einkenni
hans, sem virtust ótengd, voru ein
meinsemd.
Pagetsjúkdómur eða aflagandi
beinbólga (osteitis deformans) lýsir
sér í stuttu máli þannig að endur-
myndun beina í mannsUkamanum
fer úrskeiðis og menn afmyndast.
Lög af nýju beini verða að formi til
óskipuleg, aflöguð og mun stærri
en upprunalega beinið. Sjúkdóm-
urinn getur lagst á hvaða bein eða
beinasamband sem er en er venju-
lega takmarkaður við einn eða tvo
staöi. Algengast er að hann leggist
á lærleggi, hrygg, mjaðmagrind,
bringubein eða höfuðkúpu. í síð-
astnefnda tilvikinu gefur yfirborð
höfuðkúpunnar orðið óreglulegt og
gárótt eins og höfði Egfis er lýst í
sögunni.
Pagetsjúkdómur getur einnig
valdið bUndu á fuUorðinsárum sem
og ágengu heymar- og jafnvægis
tapi. AlUr þessir annmarkar þjáðu
Egil Skallagrímsson. Sagan segir
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða fóstrur í fullt starf á eftirtalda leikskóla:
Álftaborg v/Safamýri, s. 812488
Efrihlið v/Stigahlíð, s. 18560
Lækjarborg v/Leirulæk, s. 686351
Rauðaborg v/Viðarás, s. 672185
Nánari upplýsingargefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Leikskólastjóri
Staða leikskólastjóra við leikskólann Laufásborg við
Laufásveg er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 19. maí nk.
Fóstrumenntun áskilin.
Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson fram-
kvæmdastjóri og Margrét Vallý Jóhannsdóttir deild-
arstjóri í síma 27277.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
í tilefni af hundruðustu Raynor hurðinni uppsettri ó íslandi
bjóða Raynor og Verkver
nú 20% afslótt af öllum
bílskúrshuröum pöntuóum
fyrir 31. maí
VerSdæmi: FulningahurS 213 x 244 cm
II JL
n <éí AöLl ý>í
II 1 «
ii ' m&i
VERKVER
Síiumúla 27, 108 Reykjavik
“ZT 811544* Fax 811545
InnifaliS í verSi eru brautir og þéttilistar.