Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
Dagur í lífi Guðjóns Amgrímssonar fjölmiðlamanns:
Með hressum fýrum
Guðjón bregður á leik með Vigni, syni sínum, og vinum hans, þeim Árna, Jóhanni Geir, Guðbrandi og Guð-
DV-mynd GVA
Fjölskyldan vaknar um hálfátta
og morgunverkin eru hefðbundin -
aiiir í fötin, allir að bursta tennur,
hvort viltu Cheerios eða komfleks,
safa eða mjólk, jógúrt eða ABT
mjólk? Hver á að lesa Moggaim
fyrst? Eldri strákurinn, Vignir,
sem er nýorðinn 12 ára, er í prófum
og við rifjum upp fyrir tónmennta-
próf að það var örugglega séra
Bjami Þorsteinsson en ekki Sig-
valdi Kaldalóns sem fæddist árið
1861. Bömin vita margt umfram
hina fullorðnu. Á leiðinni út í bíl
stika ég 30 metra fyrir Brynjar, sem
er 5 ára, og við furðum okkur enn
einu sinni á lengdinni á steypireið,
stærsta dýri í heimi sem er með
munn sem er stærri en herbergið
hans.
Um níuleytið er ég kominn í
vinnu, fæ mér fyrsta kafiibolla
dagsins og ræði málin við vinnufé-
lagana, Ómar Valdimarsson, Ólaf
Hauksson og Valþór Hlöðversson.
Við eigum flórir saman fyrirtækið
Athygh hf., sem annast almenn-
ingstengsl, ráðgjöf og fjölmiöla-
þjónustu eins og stendur á nafn-
spjöldunum okkar. Þetta er góð
vinna. Fyrirtækið átti fimm ára
afmæh á dögunum og þó það hafi
ahð allan sinn aldur á samdráttar-
tímum þá hefur það dafnað. Enda
gætrnn við hófs. Borgarpóhtíkin er
vinsælasta umræðuefnið um þess-
ar mundir - við eigum það sameig-
inlegt (með landsmönnum öhum)
að vita ávaht betur en frambjóð-
endur og erum mátulega hneyksl-
aðir á flestu sem þeir segja og gera.
Reyndar finnst mér stjórnmál bera
æ meiri keim af íþróttum - fólk
heldur með sínu hði, ekki af því
að það bjóði upp á betri leik en hin
hðin, eða önnur leikkerfi, heldur
af því bara.
mundi Davíð.
Fundur um HM'95
Klukkan tíu komu á fund þeir
Hákon Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri HM’95, og Sigurjón Friðjóns-
son markaðsstjóri sem vinna við
að undirbúa heimsmeistarakeppn-
ina í handbolta. Við í Athygli höf-
um tekið þátt í þessum undirbún-
ingi, einkum spekúlerað í því
hvemig eigi að gera keppnina
spennandi á meðal handknattleiks-
unnenda úti í heimi. Verkefni þessa
fundar var að undirbúa fréttablað
á ensku um keppnina sem á að
koma út strax að loknum drætti í
riðla þann 24. júní nk. Þetta blaö,
sem í yrði kynning á keppninni,
íslenskum handknattleik og íslandi
sjálfu yrði sent til ahra handknatt-
leikssambanda í heiminum og
hundraða fjölmiðlamanna úti í
heimi sem fjalla um handknattleik.
Þetta er skemmtilegt og að mörgu
leyti dæmigert verkefni - fyrst er
spáð og spekúlerað með viðskipta-
’/inum um markmið, svo koma
menn sér niður á ákveðna leið og
loks er að framleiða.
Erfittaðtolla inni
Eftir hádegismat, sjoppusnarl,
tekur við meira af ámóta verkefn-
um - lögð lokahönd á verkefna-
skýrslu til eins viðskiptavinar,
hringt í prentsmiðjur og farið yfir
texta með þýðanda. Vinnufélagam-
ir eru á svipuðu róh, stundum
vinnum við tveir eða fleiri saman
að verkefnunum.
Ég er kominn heim upp úr klukk-
an fimm og þar er fuht hús. Ámi,
Jóhann Geir, Guðbrandur og Guð-
mundur Davíð, vinir Vignis, eru
inni í herbergi hjá honum og það
er hlustað á 2 Unhmited. Hátt. Þetta
em hressir fýrar, gelgjan rétt aö
byrja og mikið að gera. Þeir era á
leiðinni á æfingu.
Brynjar er úti að leika. Það er
gott veður, vor í lofti, eins og aha
síðustu viku. Við Brynhildur, kon-
an mín, sem er í vaktafríi frá vinnu
sinni á Flugleiðum, tohum ekki
inni. Viö búum við Laugardalinn,
og horfúm úr eldhúsglugganum
yfir leiksvæði bamanna í hverfinu.
Matarstúss getur beðið.
Skrítin aukavinna
Fyrir hálfsjö fer ég í jakka, skyrtu
og bindi og er kominn í tæka tíð í
andhtsforðun þá sem fylgir auka-
vinnunni. Ég flyt annað slagið
fréttimar á Stöö 2. Það er skrítin
iðja. Maður sitrn- í klukkutíma í
stóm herbergi við borð með af-
skaplega viðkunnanlegt fólk sér
við hhð, enn viðkunnarlegri tækni-
menn fyrir framan sig og segir
nokkrar setningar í einu í áttina
að myndavél. í sjálfu sér létt verk.
En það fer mikil vinna margra
manna í að undirbúa hvem 19:19
þátt, áhorfendurnir em margir og
sjónvarpsstöðin byggir auglýsinga-
tekjur sínar mjög á fréttatímanum.
Það er auðvitað skýringin á því
undarlega andrúmslofti spennu
sem fylgir vinnu við sjónvarp.
Ég er búinn korter yfir átta. Við
köhum strákana inn í síðbúinn
kvöldmat um hálfníu. Mágur minn,
sem býr úti á landi en vinnur í
bænum, htur inn í kvöldkafii. Það
er spjahað, drengjunum komið í
háttinn og kíkt með öðm auganu á
sjónvarpið framundir miðnætti.
Finnur þú fimm breytingar? 257
Nafn:
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Rummikub-spil-
ið, eitt vinsælasta fjölskyldu-
spil í heimi. Það er þroskandi,
skerpir athyghsgáfu og þjálfar
hugareikning.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur. Bækumar, sem eru í
verðlaun, heita: Mömmudrengur,
Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og Ban-
væn þrá. Bækumar em gefnar út af
Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 257
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð fimmtugustu og fimmtu get-
raun reyndust vera:
1. Dagný Guðmundsdóttir,
Heiðarbrún 47,
810 Hveragerði.
2. Laufey Vilhjálmsdóttir,
Ránargötu 5,
101 Reykjavík.
Vinningamir verða sendir
heim.