Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Síða 19
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
19
Stöð 2 sýnir beint frá fegurðarsamkeppni Islands:
Hver þeirra
er fegurst?
Þaö veröur mikið um að vera næst-
komandi fóstudagskvöld á Hótel ís-
landi. Þá koma saman 21 fegurðar-
drottning víðs vegar af landinu til
að keppa um titilinn Fegurðardrottn-
ing Islands 1994. Keppnin verður
send beint út á Stöð 2 og hefst útsend-
ingin klukkan 22.30. Er gert ráð fyrir
að hún standi í um tvær klukku-
stundir.
Að þessu ‘sinni hafa stúlkurnar
gengið í gegnum langan og strangan
undirbúning. Þær hafa lagt stund á
líkamsrækt, þjálfun í fallegu göngu-
lagi og aðlaðandi framkomu og á
dagskránni er meira að segja ræðu-
námskeið sem hjálpar þeim til að
koma vel fyrir sig orði.
Þrátt fyrir að keppnin sjálf gangi
alltaf út á hið sama, hefur þeim sem
að henni standa, með framkvæmda-
stjórann Ester Finnbogadóttur í far-
arbroddi, tekist að brydda upp á nýj-
ungum. Keppnin í ár verður þar eng-
in undantekning. Stúlkurnar koma
fram á sundbolum og síöar um
kvöldið í glæsilegum síðkjólum. Þá
dregur dómnefndin sig í hlé til að
velja fegurstu stúlku íslands árið
1994. Raunar hafa dómnefndarmenn
fylgst með stúlkunum á æfingum
áður en til keppninnar kemur, auk
þess sem nefndin hefur tekið viðtal
viö hverja þeirra fyrir sig. Þá mun
dómnefndin einnig fyigjast með loka-
æfmgunni. Allt er þetta gert til að
valið verði auðveldara á lokakvöld-
inu.
Tilbrigði við fegurð
Það eru margir sem leggja hönd á
plóginn við undirbúning fegurðar-
samkeppninnar. Hófið hefst klukkan
19 með fordrykk og matreiðslumeist-
ari Hótel íslands mun síðan hafa veg
og vanda af krásunum á matseðli
kvöldsins, sem mjög verður vandað
til. Þá hefur skapast hefð fyrir því
að verk Gunnars Þórðarsonar, Til-
brigði viö fegurð, sé flutt í hvert
skipti sem ungfrú ísland er valin.
Þær keppa um titilinn Fegurðardrottning íslands 1994 og verður sent beint
út frá keppninni á Stöð 2. DV-mynd GVA
Danshöfundur er Helena Jónsdóttir, atriða. Kynnir kvöldsins verður Jón
sem jafnframt annast sviðsfram- Axel Ólafsson.
komu stúlknanna og útlit skemmti-
í r1 V U 1 ÍL
JU I l ■ II l \ t V s
Á fónieikum til
minningar um
sem haldnir verða á vegum
Rikisútvarpsins og Styrktar-
og menningarsjóðs Hauks
Morthens í Súlnasal Hótel
Sögu sunnudaginn 15. maí
og hefjast kl. 21.00
koma fram:
Hallbjörg Bjarnadóttir Stefán Hilmarsson
Ragnar Bjarnason Skafti Ólafsson
Hjördís Geirsdóttir Jón Kr. Ólafsson
Jóhann Helgason Páll Óskar Hjálmtýsson
Svanhildur Stefán Jónsson
Bjarni Arason Linda Walker
Jóhanna Linnet Ömar Axelsson
Garðar Guðmundsson Árni Elfar
Björn R. Einarsson Carl Möller
Kristinn Hallsson Þórír Baldursson
Megas Reynir Sigurðsson
Eyþór Þoriáksson Einar Bragi Bragason
Sveinn Eyþórsson Árni Scheving
Alda Ingibergsdóttir Guðmundur Steingrímsson
Guðní Þ. Guðmundsson Steíngrímur Guðmundsson
Björgvin Halldórsson Vernharður Linnet
Anna Mjöll Ólafur Gaukur
MIÐASALA VIÐ INNGANGINN
Reykvíkingar - nú hreinsum vi& til.
í dag er sérstakur hreinsunardagur í Reykjavík.
Hægt er að fá ruslapoka í hverfabækistöðvum
gatnamálastjóra í: :
Vesturbæ við Njarðargötu,
Austurbæ á Miklatúni,
Breiðholti við Jafnasel,
Árbæ, Selási og Grafarvogi við Stórhöfða.
Næstu tvær vikur munu starfsmenn Reykjavíkurborgar sjá um að fjarlægja
fulla poka sem settir eru út fyrir lóðarmörk. Úrgang skal aðgreina í rusl
og garöúrgang. Einnig er auðvelt að losna við úrgang í gámastöðvum Sorpu
alla daga milli kl. 12:30 og 19:30, en þær eru við:
Ánanaust móts við Mýrargötu,
Sævarhöfða norðan við Malbikunarstöð,
Gyifaflöt austan Strandvegar,
Jafnasel í Breiðholti.
Höldum borginni okkar hreinni
Borgarstjórinn í Reykjavík