Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Page 20
20
LAUGARDAGUR 14. MAÍ1994
DV
Gamanmynd
með Joe Pesci
vinsælust
Dræm aösókn var að kvik-
myndhúsum í Bandaríkjunum
um síðustu helgi, enda hálfgerð
gúrkutíð í dreifmgu á nýjum
kvikmyndum. Vinsælasta kvik-
myndin var With Honors, gaman-
mynd með Joe Pesci og nægðu
henni aðeins 3,9 milijón dollarar
tii að ná fyrsta sætinu. Í öðru
sæti var önnur gamanmynd,
Four Weddings and a Funeral,
meö Hugh Grant og Andie
MacDoweli 1 aðalhiutverkum.
Vinsælasta kvikmyndin sem
frumsýnd var um helgina var 3
Ninjas Rick back og náði hún
þriöja sætinu. í fjórða sæti var
gamanmyndin Clean Slate og í
því ilmmta sakamálamyndin No
Escape með Ray Liotta i aðalhlut-
verki.
MaxvonSydow
leikur
KnutHamsun
Hinn kunni sænski leikstjóri
Jan Troell er nú að undirbúa
kvikmynd sem byggð er á ævi
Knuts Hamsun. Handritið raun
hinn þekkti rithöfundur Per Olof
Enquist skrifa og styðst hann við
fleiri en eina bók. Akveðið er að
Max von Sydow leiki Hamsun og
Ghita Nerby leiki eiginkonu hans
Marie. Það er gömul hugmynd
Jan Troells að gera kvikmynd um
Knut Hamsun. Hefur hann af og
til síðan á áttunda áratugnum
veriö í startholunum og búinn að
fá handrítshöfunda til liðs viö sig
en peningaleysið hefur ávallt
hindrað hann þar til nú að Ðanir
hlaupa undir hagga með honum.
TheClient
kvikmynduð
The Client er þriðja skáldsagan
eftir John Grisham sem kvik-
mynduð er. Hinar tvær eru The
Firm og The Pelican Brief. Aðal-
persónan i The Client er ungur
drengur sem ræöur lögfræðing til
þess að verja sig gegn ágangi sak-
sóknara sem telur hann búa yfir
nauðsynlegri vitneskju til að
koma þekktum glæpamanni í
fangelsi. Nýliðinn Brian Renfro
leikur drenginn. Aðrir leikarar
eru Susan Sarandon og Tommy
Lee Jones. Leikstjóri er Joel
Schumacher.
Schwarzeneggar
leitaránáðir
James Cameron
Last Actíon Hero mistókst al-
gjörlega og verður minnst sem
einhverra mestu afglapa kvik-
myndasögunnar. Arnold
Schwarzenegger er því í þeirri
aðstöðu að næsta kvikmynd hans
verður að ná vinsældum annars
er hann búinn aö vera, alla vega
i eínhvem tíma. Hann rær því á
örugg mið með því að endumýja
kynnin við Jaraes Cameron sem
leikstýrði Schwarzenegger i
Terminator myndunutn tveimur.
Heitir mynd þeirra félaga True
Lies og er talað um að kostnaður
við hana sé 120 milljónir dollara.
Þriðja myndin
umnjósnarann
JackRyan
Á lokastigi er Clear and Present
Danger, þriðja rnyndin sem gerð
er eftir skáidsögum Tom Clancy
um njósnarann Jack Ryan. Alec
Baldwin lék hann í The Hunt for
Red October. Harrison Ford
leysti hann af í Patrioí Games og
endurtekur hlutverkið i Clear
and Present Danger. Leikstjóri
er Philip Noyce sem einnig ieik-
stýröi l’atriot Games.
Kvikmyndir
Guarding Tess:
Forseta-
frainog
lífvörður
hennar
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Gamanmyndin Guarding Tess
verður síðar í þessum mánuði tekin
til sýningar í Stjömubíói. Hefur
mynd þessi fengið lofsamlegar mót-
tökur og sérstaklega hefur Shirley
MacLaine í hlutverki Tess fengið lof
fyrir túlkun sína á viljasterki og
ótuktarlegri fyrrum forstetafrú.
í byrjun myndarinnar deyr eigin-
maður Tess í starfi. Tess ákveður að
fiytjast til heimabæjar síns í Ohio.
Eins og lög gera ráð fyrir er henni
sköffuð lífvarðasveit sjö manna til
að fylgja henni á heimaslóðir. Fyrir
þeim fer Doug Chesnic, sem Nicholas
Cage leikur. Hann er metnaðargjarn
leyniþjónustumaöur sem hefur
starfað í Hvíta húsinu.
Doug er langt því frá að vera
ánægður með að þurfa að vera varð-
hundur Tess og fær sig því flj ótt flutt-
an í annað starf. Tess er á öðm máli
og þar eð hún hefur sambönd er
Doug sendur aftur til hennar. Doug
er reiður en hann er jafn heiðarlegur
og besti skáti. Hann ákveður því að
gera sitt besta úr þessum aðstæðum.
Það á eftir að reynast honum erfitt
vegna þess að hann hafði ekki gert
ráð fyrir því hversu kvikindisleg
Tess getur verið. Hún gerir allt tíl
að gera honum lífiö leitt og notar
hann nánast sem sinn einkaþjón.
Hefst nú mikið andlegt stríð milli
þeirra sem ekki verður séð fyrir end-
ann á og hefur Tess hina mestu
skemmtun af en sama verður ekki
sagt um lífvörðinn hennar.
Leikstjórinn Hugh Wilson, sem
einnig er annar tveggja handritshöf-
unda, segir að hugmyndin að Guard-
ing Tess hafi fæðst þegar hann leiddi
eitt sinn hugann að því að aldrei
heíðu veriö eins margir fyrrverandi
forsetar og fyrrverandi forsetafrúr
lifandi og að öll ættu þau rétt á líf-
fyrir trúnni á endurholdgun, meö
útkomu bókar og gerð sjónvarps-
myndar um reynslu hennar á þessu
sviði.
Shirley MacLaine hefur leikið í
rúmlega fjörutíu kvikmyndum. Hún
hlaut óskarsverðlaunin 1983 fyrir
leik sinn í Terms of Endearment og
þess má geta aö í næstu kvikmynd
hennar, Evening Star, mun hún leika
sömu persónu og hún lék í Terms
of Endearment. Auk óskarsverö-
launanna hefur hún fengið íjórar til-
nefningar, fyrir Some Came Runn-
ing, The Apartment, Irma La Douce
og The Tuming Point.
Kvikmyndir hafa alltaf verið að-
eins hluti af hennar starfi. Gerðir
hafa verið sjónvarpsþættir með söng
hennar og dansi, hún hefur ferðast
um Bandaríkin með leikflokkum og
farið mikla sigurfór með eins manns
skemmtidagskrá út um allan heim.
Þá hefur hún ritað átta bækur, bæði
sjálfsævisögur, ferðabækur og bæk-
ur trúarlegs eðlis. Stuttu eftir að hún
lauk við að leika í Guarding Tess
endurlifgaði hún. eins manns
skemmtidagskrá sína. Hún hélt með
hana til allra stærstu borga Banda-
ríkjanna og var alls staðar uppselt.
Hér er aðeins getið hluta þess sem
hún hefur afrekað en á þessu má sjá
að Shirley MacLaine er kona sem
aldrei ann sér hvíldar og heldur
ótrauð áfram að hverju því takmarki
sem hún einsetur sér hverju sinni.
Tess ásamt tjórum lífvörðum í innkaupaferð í stórmarkaði.
Shirley MacLaine
ieikur hina vilja-
sterku Tess. Til hlið-
ar er Nicholas Cage
í hlutverki lífvarðar
hennar.
varðasveit svo lengi sem þau lifðu.
Wilson ræddi við nokkra lífverði sem
þjónuðu fyrrverandi forsetum og
fékk innsýn í líf þeirra. Þeir voru
sammála um að eftir því sem lengra
liði frá því forsetahjón hefðu verið í
Hvíta húsinu því ergilegri yrðu þau
yfir því að þurfa að hafa lífverði í
kringum sig. Það kemur því í hlut
lífvarðanna að laga sig að aðstæöum.
Lifandi goðsögn
Shirley MacLaine er goðsögn í lif-
anda lífi. Miklir hæfileikar á mörg-
um sviðum ásamt jámvilja hafa gert
það að verkum að hún hefur ávallt
getað borið höfuðið hátt og notið
virðingar innan skemmtanaiðnaðar-
ins þótt að henni hafl verið vegið eft-
ir að hún hóf hina umdeildu herferð