Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Síða 21
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
21
Reka hótel við Skaftafell:
Hér blómstrar ástin
- segir Anna Marí a Ragnarsdóttir hótelstýra
Julía Imsknd, DV, Höfn:
„Það er mjög gaman að taka á
móti ferðafólki, geta liðsinnt því og
fundið að það er ánægt,“ segir Anna
María Ragnarsdóttir, sem rekur hót-
el Skaftafell í Freysnesi ásamt manni
sínum Jóni Benediktssyni, í viðtali
við fréttaritara DV.
Anna og Jón hafa komið upp mynd-
arlegu veitinga- og gistihúsi skammt
frá þjóðgarðinum í Skaftafelli. Síð-
asta sumar bættist veitingasala við
Þjónustumiðstöðina í Skaftafelli þar
sem þau leigðu aðstöðu.
„Það má segja að foreldrar mínir
hafi verið aðalhvatamennirnir að
þessari framkvæmd. Þau hafa stutt
okkur dyggiiega," segir Anna María.
„Þau voru fyrir löngu búin að sjá
hversu brýn nauðsyn var á góðri
gistiaðstöðu í eða við Skaftafell. Við
byrjuðum á að byggja íbúðarhús hér
í Freysnesi árið 1987. Síðan byggðum
við fyrstu álmuna af gistihúsinu árið
1989, aðra álmu 1990 og þá þriðju og
síðustu árið 1992. Þá vorum við kom-
in með aðstöðu fyrir sextíu manns.“
Anna María er fædd og uppalin í
Skaftafelli þar sem faðir hennar var
þjóðgarðsvörður um árabil. Hún
vissi því hversu brýn nauðsyn var á
þessari þjónustu enda höfðu foreldr-
ar hennar'í gegnum tíðina fyllt heim-
ili sitt af ferðamönnum.
- Hvernig er að vera hótelstjóri?
„Það er mjög skemmtilegt. Þetta er
mikil vinna og hún þarf að vera vel
skipulögð til að allt gangi upp. Oft
flnnst mér alitof fáir tímar í sólar-
hringnum fyrir aUt sem þarf að gera.
Tíu manns eru hér í vinnu yfir sum-
arið auk fjölskyldunnar. Við hjónin
reynum að skipta vinnunni meö okk-
ur þann tíma sem mest er að gera
þannig að ég byrja klukkan sex á
morgnana en Jón tekur kvöldin og
er fram eftir nóttu. Þannig fæ ég
smátima fyrir dæturnar okkar sem
eru tveggja og fimm ára.“
- Hvernig er vinnudagurin þegar
haustar og fátt er um ferðamenn?
„Þá byrjar unúirbúningur fyrir
næsta ár. Það fer mikill tími í að
svara í símann, hann er mikill þáttur
í þessu öllu, en meirihluti pantana
fer gegnum ferðaskrifstofur. Það er
ótrúlega mikil vinna sem fer í að
púsla þessu saman.“
- Er hótelið opið allan veturinn?
„Það er opið allt árið. Þótt rólegt
sé yfir veturinn þarf alltaf einhver
að vera við og ef maður bregður sér
af bæ er næsta víst að einhver kemur
svo útkoman er sú að vera sem mest
heima.“
- Hefurðu aldrei tvíbókað í herbergi
og allt annað verið fullt?
„Jú, ég verð að játa að ég varð fyr-
ir því fyrsta árið. Þá leigðum við út
íbúð foreldra minna og í stofunni var
búið að búa um fjölskyldu sem var á
leiðinni. Svo leið og beið en ekki kom
fjölskyldan. Um nóttina komu hins
vegar tveir menn og báðu um gist-
ingu. Ég var þá orðin vonlaus um að
fjölskyldan kæmi svo ég lét þá hafa
stofuna. Mennirnir fóru rétt fyrir sjö
um morguninn en þeir voru ekki
nema rétt farnir úr hlaði þegar fjöl-
skyldan, sem átti pantað, kom. Bíll-
inn hafði bilað úti á Skeiðarársandi
og þau búin að vera þar alla nóttina
og voru heldur fegin að komast í
uppbúið rúm og þannig slapp þetta
allt vel.“
- Er mikill munur á venjum og þjón-
ustuþörfum ferðamanna eftir þjóð-
erni?
„Já, hann er mikill. Þjóðverjar eru
mjög ábyggilegir og standa við sitt.
Sú gamla saga að þeir séu frekir og
hreinsi allan mat af borðunum og
nesti sig þannig fyrir daginn er orðin
þjóðsaga. Þjóðveijar eru góðir við-
skiptavinir. ítahr fara seint að sofa
og seint á fætur, líkir íslendingum.
Tíu ítalir þurfa meira baðvatn en
fjörutíu Þjóðverjar því þeir láta vatn-
ið renna og renna en Þjóðverjar láta
bara renna á meðan þeir þvo sér. Við
tökum svo vel eftir þessu vegna þess
að hér er vatnið hitað með rafmagni
en þetta er svona smádæmi um
þjóðareinkenni."
- Hefur ekki þessi stórbrotna og
mikilfenglega náttúra Öræfanna
áhrif á fólkiö sem kemur hingað til
dvalar?
„Það er enginn vafi. Ástin hefur
blómstrað vel í Skaftafelli og farsæl
hjónabönd orðið til. Hér hafa t.d.
margir starfsmenn fundið lífsfóru-
naut.“
- Hvað finnst þér að vanti helst í
sveitinni?
„Betri flugvöll. Betri flugsamgöng-
ur myndu gefa meiri möguleika á
ýmiss konar funda- og ráðstefnu-
haldi hér í sveitinni. Það vantar
meiri aíþreyingu og þjónustu fyrir
þá sem hafa einhverja viödvöl hér
og þannig væri hægt að skapa mörg
ný störf hér í sveitinni því þessi sveit
hefur upp á svo ótal margt að bjóða
sé því sinnt.“
- Attu von á fleiri ferðamönnum í
sumar en áður?
„Það eru fleiri pantanir en nokkru
sinni áður svo við erum bjartsýn á
framtíðina og vonum að við fáum
sólríkt og gott sumar.“
Það eru of fáar klukkustundir fyrir Önnu Maríu i sólarhringnum svo mikið
er að gera við hótelreksturinn.
Hjónin sem reka Hótel Skaftafell, Anna María Ragnarsdóttir og Jón Benediktsson ásamt dætrum sinum Eyrúnu
Höllu og Rögnu Kristínu. DV-myndir Ragnar Imsland
&
Sumarleikur tímarítsms Úrval og
ferðaskrifstofunnar ÚrvaMJtsýn
Tímaritiö Úrval efnir til samkeppni um
skemmtilegustu frásögnina í samvinnu viö
feröaskrifstofuna Úrval-Útsýn. Samkeppnin er
ætluö öllu fólki, ungu sem öldnu, sem hefur frá
einhverju skemmtilegu aö segja. Setjist nú
niöur og setjiö á blaö atvikin eöa
uppákomurnar sem þú eöa þínir hafið getaö
gert góölátlegt grín aö. Sögurnar, sem mega
ekki vera lengri en 80 orö, veröa síðan birtar í
júlí-ágúst hefti tímaritsins Úrval.
Höfundur skemmtilegustu sögunnar hlýtur í
ritlaun vikudvöl fyrir tvo á sólarhótelinu Barcelo
Cala Vinas á perluströnd Miöjaröarhafsins, Cala
Vinas. Barcelo Cala Vinas er á undurfögrum og
notalegum staö á Mallorca, rétt viö
Magaluf-ströndina. Einnig eru í verölaun 20
ársáskriftir aö tímaritinu Úrval.
Sendið frásögnina til: Tímaritiö
Úrval-Sumarleikur, Þverholti 11,105
Reykjavík.