Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
23
Skák
Sævar Bjarnason, alþjóðlegur meistari og formaður Taflfélags Garðabæj-
ar, var sá eini sem tókst að vinna tölvuna.
Helgarskák á Suðureyri:
Tölvan sló meist-
urunum við
Fertugasta og fjórða Helgarmóti
tímaritsins Skákar, sem fram fór á
Suðureyri við Súgandaíjörð, lauk
með óvæntum sigri tölvuforrits sem
lagði tvo stórmeistara að velli á sig-
urbraut sinni. Þetta var forritið
Mephisto Chess Genius II sem marg-
ir telja öflugasta forrit fyrir einka-
tölvur á markaði. Það naut aðstoðar
Baldurs Fjölnissonar við að koma
húgsunum sínum í framkvæmd.
Forritið keyrði Pentium tölva með
90 megariða vinnsluhraða sem er
öflugasta tölva sinnar tegundar á ís-
landi. Langur vegur er frá fyrstu PC
tölvunni sem kom til landsins. Vinur
okkar á Suðureyri mun jafnast á við
285 slíkar í vinnslugetu.
Þessi tölva/forrit var einmitt skák-
skýrendum til aðstoðar á Karpov-
mótinu í Sjónvarpinu á dögunum.
Hvort hún hefur lært svona mikið
af handbragði Karpovs skal ósagt
látið en hún er bersýnilega orðin vel
verðugur andstæðingur í styttri
skákum. Stórmeistaramir eru ekki
lengur óhultir!
Skáksnillingurinn M, eins og Vest-
firðingar nefhdu gripinn, hlaut 9,5
v. af 11 mögulegum og næstir komu
stórmeistaramir Helgi Ólafsson og
Hannes Hlífar Stefánsson með 8,5 v.
Sævar Bjarnason, Guðmundur Hall-
dórsson og Guðmundur Gíslason
fengu 7,5 v. Unglingaverðlaun fengu
Einar K. Einarsson, Sigurbjörn
Björnsson og Kjartan Guðmundsson,
Sturla Pétursson hreppti öldunga-
verðlaun, Magnús Magnússon,
Akranesi, náði bestum árangri dreif-
býhsmanns og Sigurður G. Daníels-
son varð efstur heimamanna. Kepp-
endur vom 42 og komust færri að en
vildu. Teflt var í félagsheimilinu og
létu aðkomumenn ákaflega vel af
dvölinni. Þeir nutu gestrisni heima-
manna og frábærs viðurgjömings í
mötuneyti Fiskiðjunnar Freyju.
Sævar Bjamason, alþjóðlegur
meistari og formaður Taflfélags
Garöabæjar, var sá eini sem tókst
að leggja tölvuna sigursælu og hann
opinberaði raunar um leið veikleika
skákvéla af þessu tagi. Tölvan fóm-
aði manni gegn traustri Caro-Kann
vörn Sævars og náði sóknarfæram.
Þegar Sævar bauð drottningakaup
var tölvan fljót að þiggja því að við
þaö fékk Sævar tvípeð sem tölvan
mat sér í hag. Við kaupin var hins
vegar allur vindur úr sókninni og
Sævar vann létt.
Einar K. Einarsson gerði jafntefli
við tölvuna en aðra andstæðinga sína
vann hún. Þeirra á meðal voru Helgi
og Hannes Hlífar. í skákinni við
Hannes kom styrkleiki tölvunnar vel
í ljós þ.e. hún fer ekki á taugum þótt
hún lendi í vanda, heldur teflir vörn-
ina af ískaldri rósemi. Hannes átti
kjörin færi í skákinni en tölvan þáði
það sem aö henni var rétt uns liðs-
munurinn sagði til sín.
Hvítt: Hannes Hlifar Stefánsson
Svart: Mephisto Genius II
Caro-Kann vörn.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Bf5 5. Rg3 Bg6 6. h4 h6 7. Rf3 Rd7 8.
h5 Bh7 9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 Dc7 11.
Bd2 e6 12. 0-0-0 Rgffi 13. Re4 0-0-0 14.
c4?!
Eftir þennan leik jafnar svartur
taflið auðveldlega. Betra er 14. g3.
14. - c5 15. Rxffi Rxffi 16. Be3 cxd4 17.
Rxd4 Bc5 18. De2 a6 19. Kbl De5 20.
Rc2 Hxdl + 21. Dxdl Bxe3 22. fxe3!?
Auðvitað er 22. Rxe3 nánast sjálf-
gefmn leikur en Hannes kýs þó frek-
ar að eyðileggja peðastöðu sína sjálf-
viljugur. Hér beitir hann sálfræðinni
Umsjón
Jón L. Árnason
gegn virðulegum andstæðingi sínum.
Hugmyndin er að bjóða tölvunni upp
á „eitrað” peð en slíkar freistingar
standast þær sjaldnast.
22. - De4 23. Df3 Dxc4?
Sbr. athugasemdina að framan.
Svartur stendur betur eftir 23. - Hd8
en nú lendir hann í háska.
24. Rd4 Dd5 25. Dg3! De4 + 26. Kal Re8
Tölvan valdar peð sín og mikilvæga
reiti en nú verður kóngurinn hrak-
inn úr fylgsni sínu.
27. Hcl+ Kd7 28. Db8 Ke7 29. Hdl
Dxg2 30. Rb3 Df3 31. Dd8+ Kf8
8 ■** X
7 Í 1 á
6Á i i
5 4 A
3 ^
2 A &
1 <á> 2
ABCDEFGH
32. Rc5?
Tölvan sér meistaralega við þessari
sóknaraðgerð. Hvítur verður fyrr
eöa síðar aö „lofta út” og best er að
gera það strax. Eftir 32. a3! Dxh5 33.
Hd7 er svartur í alvarlegri kreppu.
t.d. 33. - g5 34. Rc5, eða 33. - f5 34.
He7 Dhl+ 35. Ka2 Dc6 36. Hd7! og
hvítur ætti að vinna.
32. - Dxh5!
Því að ef nú 33. Rd7+ Kg8 34.
Dxe8+ Kh7 og nú er drottningin í
uppnámi og aö auki hótar svartur
hróknum á dl með máti.
33. Rxb7 g6 34. a3 Df3 35. Dd4 Kg8 36.
Rc5 De2 37. Hgl Db5 38. Rxe6?
Enn er hvítur með ákveðin færi
fyrir peðin tvö sem vantar á borðiö
en þessi fóm leiðir einungis til þess
að svartur nær loks að virkja kóngs-
hrókinn.
38. - fxe6 39. Hxg6+ Kf7 40. Hgl Hg8
41. Hcl Hg2
Svartur á nú unnið 'tafl.
42. Hbl Rffi 43. Da7+ Kg6 44. De7 Db6
45. e4 Rxe4 46. De8+ Kg7 47. De7+
Kg8 48. De8+ Kh7 49. Dd7+ Kh8 50.
De8+ Hg8 51. Dh5 Kh7 52. Hel Rc5
53. Hfl Hg2 54. Df7+ Hg7 55. Dffi Db7
56. Hdl Hg2 57. Dc3 a5 58. Hbl Rb3+
59. Ka2 Rd2 60. Hel Re4 61. Dcl Rc5
62. Dbl+ Kg7 63. Hgl Dd5+
- Og Hannes gafst upp.
Áskriftargetraun DV gefur skil-
vísum áskrifendum, nýjum og
núverandi, möguleika á óvenju-
lega hagkvæmum vinningum að
þessu sinni enda eru vinningarnir
hið besta búsílag. Hvorki meira
né minna en sex körfur í
mánuði, fullar af heimilisvörum að
eigin vali, að verömæti 30.000
krónur hver.
Maí-körfurnar koma frá versl-
unum Bónuss og verða þær
dregnar út föstudaginn 3. júní.
DV styður ávallt dyggilega við
bakið á neytendum með stöðugri
umfjöllun um neytendamál enda
er DV lifandi og skarpskyggn
fjölmiðill jafnt á þeim vettvangi
sem öðrum. Daglega flytur DV
lesendum sínum nýjustu fréttir
innanlands og utan. í auka-
blöðunum eru einstök málefni
krufin til mergjar og smáauglýs-
ingar DV eru löngu orðnar lands-
mönnum hreint ómissandi. Það er
allt að vinna með áskrift að DV.
4»
BÓNUS
Skútuvogi 13 • Faxafeni 14
Reykjavíkurvegi 72 • Smiðjuvegi 2 • Iðufelli 14
Suðurströnd 2 • Norðurtanga 3 - Akureyri
DV - hagkvæmt blað.
63 27 00