Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
35
Tattúið sem er flott í dag er dæmt til að vera gamaldags og út i hött á morgun vegna þess að öll tiska er
seld undir þann dóm.
Húöflúr
Nökkvi læknir heimsótti vinafók
sitt á dögunum. Hann þurfti undir-
skrift á þreyttan víxil sem haföi
flakkað í bankakerfmu um hríö.
„Þetta er ekki hægt," sagði Nökkvi.
„Svona vúáll er eins og martröð úr
grísku goðafræðinni. Hann vex en
minnkar ekki. Mér finnst stundum
eins og guðirnir hafi dæmt mig til
að borga af-honum til eilifðarnóns."
„En þú borgar eiginlega aldrei neitt,
þess vegna minnkar hann ekki,“
sagði vinur hans kuldalega og skrif-
aði nafn sitt á víxilblaðið. „Mér líður
eins og Árna Oddssyni á Kópavogs-
fundinum," sagði hann síðan. „Mig
langar helst til að fella tár yfir þess-
ari undirskrift. En það er meira sem
grætir mig þessa dagana," bætti
hann við. „Sonur okkar ætlar að fá
sér tattú á næstunni, kínverskt tákn
á vinstri öxhna. Hvað finnst þér um
það?“ Nökkvi þekkti vel þennan son
sem hann hafði fylgst með frá
barnsaldri. Drengurinn var bráö-
ger, 16 ára gamall, fljótfær og
þrjóskur, maður augnabliksins.
„Mér finnst það ekki sniðugt," sagði
Nökkvi.
Tattúeringar í sögulegu Ijósi
Tattúeringar hafa viðgengist um
aldabil. Menn uppgötvuðu fyrir
mörg þúsund árum hvernig hægt
var að sprauta bleki undir efsta lag
húðarinnar og teikna varanlegar
myndir. Kínveijar hófu að tattúera
hver annan fyrir um 5000 árum og
húðflúr tíðkaðist um alla Asíu þrátt
fyrir bann Kóransins við húðflúri.
Margir rómverskir keisarar Utu
skraut-tattúeringar homauga en
Rómveijar og Grikkir húðflúruðu
þræla sína til að auðkenna þá. Bret-
ar og Frakkar settu tattú á fanga
og misyndismenn til að merkja þá
og breski herinn tattúeraði stafina
BC (bad conduct) á óhlýðna her-
menn aUt til ársins 1879. Þjóðverjar
húðflúruðu fanga í útrýmingarbúð-
um eins og fram hefur komið í ótal
kvikmyndum um heUorina. Her-
menn létu tattúera á sig heiti blóð-
flokksins síns og nafn herdeilda.
Algengast er þó að menn láti tattú-
era sig til skrauts. Lengi urðu ís-
lendingar að leita til útlanda eftir
húðflúri sem var merki hinna sigldu
manna. Víða í Nýhöfninni voru
nafntogaðir húðflúrarar sem íslend-
ingar þekktu vel. Má þar nefna
Tattú-Óla og starfsbræður hans sem
teiknuðu væmnar myndir á mis-
dmkkna íslendinga. Mynd af tígris-
dýri, flöggum eða legsteini sem á
stóð „sailors grave“ á upphandlegg
Á læknavaktinni
var einkenni þeirra sem verið höfðu
í útlöndum en ekki eytt ævinni við
að snúast kringum beljurassa upp
til sveita. Á seinni ámm hefur þetta
breyst. íslenskir húðflúrarar hafa
tekið tU starfa og tattú virðist nú í
mikUli sókn meðal ungs fólks.
Margir unghngar láta tattúera á sig
aUs kyns tákn, keðjur og galdrastafi.
Aðalvandamál húðflúraðra
Nökkvi sagði rólegri röddu: „ Aðal-
vandamál þeirra sem láta tattúera
sig er að húðflúrið er varanlegt.
Ekki er hægt að fjarlægja það nema
með flóknum aðferðum lýtalækn-
inga en það er bæði dýrt og óþægi-
legt og skilur eftir sig misljótt ör.
Þetta er auðvitað til mikils baga
vegna þess að engin tíska, hversu
snjöll og smart sem hún er, verður
nokkru sinni varanleg. Börn hlæja
nær undantekingarlaust að gömlum
ljósmyndum af foreldrum sínum.
Þeim finnst foreldramir yfirgengi-
lega hallærislegir með sitt síða bítla-
hár eða aðra hárgreiðslu, skegg,
hárbönd eða ákveðna tegund af
skyrtum og slifsum, kjólum eða
skóm. Þó að tíska komi stundum
aftur hefur hún ávaUt sín sérkenni
sem gera fyrirmyndina gamaldags
og þreytta. Húðflúr er varanlegt á
líkama þess sem lætur tattúera sig
en verður hverfulum tískuhug-
myndum að bráð. UngUngum nú-
tímans finnast húðflúraðir legstein-
ar, tígrishausar, flögg og rýtingar
úr smiðju Tattú-Óla í Nýhöfninni
óhemju haUærislegir. Á sama hátt
mun unglingum framtíðarinnar
finnast kínversku táknin, galdra-
staflrnir og keöjur nútímans afskap-
lega ömurleg tíska. Tattúið sem er
flott í dag er dæmt til að vera gamal-
dags og út í hött á morgun vegna
þess að öU tíska er seld undir þann
dóm. Þá er of seint að iðrast og óska
húöflúrinu út í veður og vind vegna
þess hve varanlegt það er. Þess
vegna skyldi enginn láta tattúera
sig.“
Nökkvi þagnaði og minntist ótal
húðflúra sem hann hafði reynt að
hjálpa fóUci að fjarlægja og tígris-
haussins á vinstri upphandlegg
sjálfs sín sem hann hafði látið lýta-
lækni taka á brott fyrir nokkrum
árum. Eftir stóð ljótt ör sem minnti
einna helst Sjáland að lögun.
Aðalfundur
Verkakvennafélagsins Framsóknar verður haldinn
þriðjudaginn 17. maí 1994 kl. 20.30 í Sóknarsalnum,
Skipholti 50a.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Félagsmenn, fjölmennið og sýnið skírteini við
innganginn.
Stjórnin
V I K I N G A
• T '
Vinningstölur ,-------:----
miðvikudaginn: 11 • ma| 1994
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPH/EÐ Á HVERN VINNING
a 6 af 6 3 35.005.000
a 5 af 6 +bónus 1 1.487.720
a 5 af 6 9 54.094
□ 4 af 6 475 1.630
a 3 af 6 +bónus 1.596 208
Uinningur fúr til: Ðanmetkui
Aðaltöiur:
Heildarupphaeð þessa viku:
108.095.784
á ísi.: 3.080.784
UPPLYSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEO FVRIRVARA UM PRENTVILLUR
„Skápar, sófar, borð og bekkir,
betri kaup þú varla þekkir.
Leitaðu ei um hæðir og hóla,
heldur skaltu á okkur....
m
u
AUOLÝSINOAR
m
63 27 OO
MMC Sigma V6, árg. 1991,
ekinn 26 þús. km, 4 dyra, sjálfskiptur, hvítur.
Verð 2.600.000 kr.
BÍLAÞING HEKLU
NOTAÐIR BÍLAR
Bílaþing Heklu • Laugavegi 174 • Sími 69 56 60 • Fax 69 56 62