Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Side 28
36
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
íþróttir________________________________________________________________________iorv
Hjalti „Úrsus'' Ámason segir frá frumraun sinni í hnefaleikahringnum í Las Vegas og fleiru:
„Hef ekki sagt skilið
við boxíþróttina"
Hjalti „Ursus“ ásamt Mr. T skömmu áður en hann hélt í hringinn í fyrstu hnefaleikakeppni sinni í Las Vegas í Banda-
Ujalti „Úrsus“ Árnason er nýkom-
inn heim frá Bandaríkjunum en þar
þreytti hann frumraun sína í hnefa-
leikum á móti sem haldið var í spila-
borginni frægu, Las Vegas. Á þessu
móti voru keppendur sem ekki hafa
barist oftar en fimm sinnum í
hringnum. Hver bardagi var þrjár
lotur og stóð hver lota yfir í þrjár
mínútur. Á þessu móti var keppt eft-
ir útsláttarfyrirkomulagi en kepp-
endur voru 16 talsins.
Hjalti fór nokkuð létt í gegnum
fyrstu umferðina en í þeirri næstu
varð hann að játa sig sigraðan. Hjalti
hafði betur í fyrstu tveimur lotunum
en í þeirri þriðju stöðvaði dómarinn
bardagann og úrskurðaði slaginn
tapaðan fyrir Hjalta.
Hlutirgerasthratt
í hnefaleikum
„Það var náttúrlega slæmt að tapa,
séstaklega þar sem ég var búinn aö
vinna tvær fyrstu lotumar. Ég taldi
mig því nokkuð öruggan með því að
komast í fjögurra manna úrslitin. En
hlutirnir gerast hratt í hnefaleikum.
Ég fékk þungt hægri handar högg og
annað strax á eftir og við þaö datt
ég niður á hnén en bara í örfá sek-
úndubrot. Ég fór strax upp aftur og
dómarinn taldi upp á 8 þar til ég fékk
að byija aftur. Fljótlega fékk ég
vinstri handar högg á mig. Það var
ekki öflugt en dómaranum fannst
vörnin ekki nægilega traust svo að
hann stöövaði bardagann,“ sagði
Hjalti í samtali við DV.
„Áður en bardaginn hófst var dreg-
ið um hverjir mættust og þessi sem
ég tapaði fyrir var sá sem ég hefði
síst viljað mæta. Þessi strákur sem
ég tapaði fyrir er búinn að vera að
boxa í 10 ár. Hann hefur ekkert keppt
en æft mjög vel og veit nákvæmlega
hvað hann er að gera. Sá fyrsti sem
ég barðist gegn úti var tveggja metra
risi og 180 kg að þyngd. Þetta var
æfingabardagi fyrir mótið og mér
gekk rosalega vel á móti honum og
jarðaði hann strax. Síöan mætti ég
atvinnumanni, fyrsta daginn í sex
lotum og annan daginn í 9 lotum, og
þaö gekk mjög vel en ég var að vísu
mjög þreyttur. Ég fór því fullur
sjálfstrausts í mótið en því miður
tókst mér ekki aö fara alla leið eins
og ég var búinn að stefna á. Eftir að
hafa skoðað þessa bardaga á mynd-
bandi fannst mér ég vera að boxa
miklu betur á æfmgurn heldur en á
mótinu og það er spuming hvort
þjálfarinn hefur lagt of mikið á
mig á þessum fáum dögum fyrir mót-
iö.“
Var kynntur
sem ísmaðurinn
- Var enginn skrekkur í þér þegar
þú gekkst inn í hringinn í fyrsta skipti
á móti?
„Nei, ég get ekki sagt það. Maður
er öllu vanur. Hins vegar var stemn-
ingin griðarleg í höllinni sem var
troðfull eða um 2 þúsund manns og
umgjörðin í kringum keppnina var
mikið „show“. Til dæmis var Mr. T,
svertinginn sem lék í Rocky-mynd-
unum, aðalmaðurinn. Hann sá um
að kynna keppnina enda vanur en
hann vann sjálfur svona mót og í
kjölfarið fór hann að leika í kvik-
myndum og ööru slíku. Ég fékk góð-
an stuðning frá mörgum áhorfend-
um en ég var kynntur á leið inn í
hringinn sem ísmaðurinn frá ís-
ríkjunum fyrir skömmu.
landi. Svona mót hefur alið af sér
toppmenn í íþróttinni og þar má
nefna Tommy Morrisson, besta hvíta
hnefaleikarann í þungavigtinni, sem
hóf feril sinn með því að vinna þessa
keppni.
Það eru rosalega strangar reglur
sem fylgja því að keppa á svona móti.
Menn frá íþróttaráði fylkisins eru
viðstaddir og sitja hvor í sínu horn-
inu og sjá til þess að allt fari eftir
settum reglum. Þeir fylgjast með þeg-
ar hendur hnefaleikaranna eru vafð-
'ar og kanna hvort það sé ekki rétt
gert. Þá má bara drekka vatn í hléun-
um. Fyrir mótið fóru tveir dagar í
læknisskoðun og skráningar og þar
er mælt líkamlegt ástand og hvort
maður þolir þetta yfirhöfuð.
Það sem ég er ánægðastur með er
að vörnin hjá mér hefur verið góð,
úthaldið hefur lagast mikið en það
tekur tíma að fá öll þessi 125 kg til
að vinna inní höggunum. Þaö er allt
í lagi með snerpuna en ég þarf að
læra að nota líkamsvigtina. Það get-
ur verið kvalafullt að hafa allan
þennan massa. Þá þarf andlega hlið-
in að vera í lagi. Lykilatriði í hnefa-
leikum er samt að geta þolað þessi
högg sem maður er að fá en það eru
margir sem gera það ekki.“
Miklir peningar
eru í boði
„Það er rosalega freistandi aö halda
áfram í þessu. Það eru mikhr pening-
ar í boði nái maður að sleppa í gegn-
um þessi fyrstu mót. Heföi ég unnið
þetta mót þá voru ekki nema 1000
dollarar í verðlaun en þá ert þú líka
kominn inn á annað mót sem er með
50 þúsund dollara verðlaunafé og
svona smáhækkar peningaupphæð-
in eftir því ofar kemur. í keppni at-
vinnumanna eru upphæðimar sem
keppt er um ævintýralega háar. Sim-
on Brown, sem er heimsmeistari í 80
kg flokki, var að æfa á sama stað og
ég og hann fær 1 milljón dollara fyr-
ir hvern bardaga sem hann tekur
þátt í.“
Fer ekki nema taka
fjölskylduna með
- Hvað tekur nú við eftir þessa frum-
raun þína í hringnum? Leggur þú
boxhanskana á hilluna eða ætlar þú
að halda þessu áfram?
„Kröfumar em miklar og maður
hefði þurft að vinna til að komast
lengra í þessari lotu. Það sem háir
mér héma heima er að það eru svo
fáir ipjög góðir boxarar á íslandi.
Þarna úti er allt annað. Þar færðu
æfingafélaga sem em mjög góðir. Ég
var samt það vel undirbúinn að ég
fór í 15 lotur gegn atvinnumanni og
er ekki frá því að hafa unnið bardag-
ann.
Ég hef ekki sagt skilið við box-
íþróttina. Ég ætla að halda áfram að
æfa hér heima. Umboðsmaðurinn
sem kostar mig þarna úti er alveg
vitlaus að fá mig út aftur. Ég treysti
mér hins vegar ekki til að vera einn
þarna úti og svona langt frá fjöl-
skyldunni. Hann er tilbúinn til að
borga fyrir æfmgaaöstöðu og hjálpa
mér íjárhagslega að ákveðnu marki.
Ég hef hins vegar sett honum stóhnn
fyrir dyrnar og sagt að ég komi ekki
út nema aö fjölskyldan komi með.
Hann hefur það á móti að það er
mikil ásókn í þessa íþrótt og menn
frá öllum heimshornum vilja spreyta
sig. Þessir menn eru tilbúnir að
borga allt sjálfir og þetta notar hann
á mig.“
Égvil gefaþessu
góðan tíma
„Þá er annað að þessi umboðsmaður
á guUvinnslufyrirtæki. Gullið hefur
hríðlækkað í verði og hann er búinn
að tapa miklu fé og virðist nú ekki
hafa þetta fjármagn sem haim gaf í
skyn upphaflega þegar ég skrifaði
undir 4ra ára samning við hann. Ég
sé fyrir mér tvo möguleika. Sá fyrri
er að fá fyrirtæki hér heima til aö
taka þátt í þessu með mér. Sá síðari,
sem ég er svona heitari fyrir, er að
æfa vel heima, klára mitt nám og
reyna svo aftur fyrir mér á þessu
móti eftir eitt ár. Þá kæmi maður til
leiks reynslunni ríkari og myndi þá
ekki renna jafnt blint í sjóinn með
þetta. Ég vil gefa þessu góðan tíma.
Kröfumar eru miklar og maður
reynir að standa undir væntingum
en fjárhagslegt öryggi verður að vera
í fyrirrúmi,“ sagði Hjalti að lokum.