Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Side 29
LAUGARDAGUR 14. MAÍ1994
37
DV
Spurt á Akranesi:
Hver verða úrslit
kosninganna?
Kristrún Gísladóttir innheimtufull-
trúi: Ég hef trú á að meirihlutinn
haldi velh og að Sjálfstæðisflokknum
vegni ekki vel.
Hugi Harðarson kaupmaður: Þetta
verða spennandi kosningar og ég
held að Sjálfstæðisflokkurinn komi
vel út úr þeim.
Guðrún Sigvaldadóttir forstjóri: Mér
líst ekki nógu vel á þessa lista sem
eru í framboði og treysti mér ekki til
að spá um úrslit.
Böðvar Jóhannesson, rekur eld-
varnaþjónustu: Ég spái ekkert í póli-
tík.
Hrefna Guðjónsdóttir verslunarmað-
ur: Ég held að Sjálfstæöisflokkurinn
viniú sigur en ég held að Alþýðu-
flokkurinn bíði afhroð.
Óli Páll Engilbertsson verslunarmað-
ur: Ég held að þetta verði svipaö
áfram, annars er erfitt að spá í þetta
vegna mikilla mannabreytinga á hst-
um.
___________________________Stjómmál
Akranes:
Atvinnu- og orku-
mál eru ef st á baugi
Erfitt atvinnuástand á Akranesi
setur mjög svo mark sitt á komandi
bæjarstjórnarkosningar. En fleiri
mál koma einnig til sögunnar, m.a.
orkumál þar sem Skagamenn búa við
hátt verð á heitu vatni til húshitunar.
Umsjón
Sigurður Sverrisson
Kosningarnar að þessu sinni eru
að því leytinu óvenjulegar að ljóst
er a.m.k. að sjö nýir bæjarfulltrúar
munu taka sæti í bæjarstjóminni að
þeim loknum. Aðeins tveir núver-
andi bæjarfulltrúar eru í kjöri að
V’- * -
Frá Akranesi.
Ingvar Ingvarsson, A-lista:
Atvinnumálin
Ingvar Ingvarsson.
„Það sem öðru fremur verður kos-
ið um eru atvinnumálin eins og
endranær en nú sem aldrei fyrr,“
sagði Ingvar Ingvarsson, efsti maður
á lista Alþýðuflokksins á Akranesi
og forseti bæjarstjórnar. Ingvar sagði
þó kosningamar snúast um fleira;
orkumál væru í brennidepli svo og
þjónusta bæjarins á félagslega svið-
inu, ekki síst vegna samkeppni við
önnur sveitarfélög meö tilliti til
væntanlegra ganga undir Hvalfjörð.
Þegar Ingvar var að því spurður
hvernig hann mæti stöðu Alþýðu-
flokksins fyrir kosningarnar sagðist
hann telja valið standa á milli 3.
manns á lista Alþýðuflokks, Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
svo og 2. manns á lista Alþýðubanda-
lags.
Guðbjartur Haunesson, G-lista:
Stjórn bæjarfélagsins
„Atvinnumálin verða eðlilega að-
almál þessara kosninga en einnig er
verið að kjósa um stjórn bæjarfélags-
ins. Þar skiptir miklu hveijir verða
við völd á tímum samdráttar og sí-
vaxandi tilfærslu verkefna frá ríki
til sveitarfélaga," sagði Guðbjartur
Hannesson, sem skipar efsta sætið á
ffamboðslista Alþýðubandalagsins.
Guðbjartur sagöi orkumálin einnig
mikilvæg. Þar skipti mestu að kom-
ast að farsælum samningum sem
leiddu til lækkunar orkuverðs. Guð-
bjartur sagðist bjartsýnn fyrir kosn-
ingamar og sterklega vonast eftir því
að Alþýðubandalagið næði inn
tveimur fulltrúum. „Við finnum
meöbyr enda með góðan, mjög
reyndan og samhentan hóp fram-
bjóöenda. Þaö er rífandi stemning í
herbúðum okkar.“
Guðbjartur Hannesson.
Gunnar Sigurðsson, D-lista:
Alvarleg skuldastaða
Gunnar Sigurðsson.
„Þessar kosningar snúast auðvitað
fyrst og fremst um atvinnu- og orku-
mál að ógleymdri alvarlegri skulda-
stöðu bæjarins," sagði Gunnar Sig-
urðsson, oddviti framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins.
„Það er ljóst að nýr meirihluti,
hveijir sem koma til með að skipa
hann, hefur ekki úr miklu að moða
á næsta kjörtímabili. Það lætur
nærri að hvert mannsbarn á Akra-
nesi skuldi 400 þúsund krónur ef
teknar eru með skuldir bæjarins
vegna Hitaveitu Akraness og Borgar-
fjarðar."
Gunnar sagði kosningamar einnig
snúast að miklu leyti um nýtt fólk.
„Við munum kappkosta að vinna af
heilindum og halda uppi málefna-
legri umræðu. Auövitað vonumst við
til þess sama frá andstæðingum okk-
ar.“
Guðmundur Páll Jónsson, B-lista:
Kvíðum ekki neinu
„Ég held að allir séu sammála um
aö atvinnumálin svo og málefni
orkufyrirtækjanna séu stóm málin í
þessum kosningum,“ sagði Guð-
mundur Páll Jónsson sem skipar
efsta sæti framboðslista Framsókn-
arflokksins.
„Það er engum blöðum um það að
fletta að staða bæjarsjóðs er orðin
veik. Hann hefur lagt mikið af mörk-
um til að bjarga bæði Hafeminum
og Þorgeiri og Ellert hf. og nú er
komið aö lánardrottnunum. Það
yrðu meiri háttar mistök ef Þ & E
yrði keyrt í gjaldþrot. Verkefnastað-
an þar er nú t.d. mun betri en fyrir
4 árum.“
Aðspurður hvemig kosningarnar
legðust í hann svaraði Guðmundur
Páll því til að slagurinn stæði um aö
halda áfram þremur fulltrúum. „En
við emm með ungt, kraftmikið fólk
og kvíðum ekki neinu.“
Guðmundur Páll Jónsson.
þessu sinni, einn frá Alþýðuflokki
og annar frá Alþýðubandalagi.
Framsóknarflokkur og Alþýðuflokk-
ur mynda nú meirihluta bæjar-
stjórnar Akraness, þrír fulltrúar frá
hvorum flokki, en Alþýðubandalag
með einn og Sjálfstæðisflokkur tvo
fulltrúa eru í minnihluta.
Úrslitin 1990
Fjórir framboðslistar vom í kjöri á
Akranesi í kosningunum árið 1990:
A-listi Alþýðuflokks fékk 816 atkvæði
og þrjá fulltrúa, B-listi Framsóknar-
flokks fékk 879 atkvæði og þijá full-
trúa, D-listi Sjálfstæöisflokks fékk
778 atkvæöi og tvo fulltrúa og G-listi
Alþýðubandalags fékk 436 atkvæði
og einn fulltrúa í bæjarstjóm. Sam-
starf hefur verið milli Alþýðuflokks
og Framsóknarflokks á yfirstand-
andi kjörtímabili.
Þessir fulltrúar hafa verið í bæjar-
stjóm: Gísli S. Einarsson (A), Ingvar
Ingvarsson (A), Hervar Gunnarsson
(A), Ingibjörg Pálmadóttir (B), Stein-
unn Siguröardóttir (B), Jón Hálfdan-
arson (B), Benedikt Jónmundsson
(D), Sigurbjörg Ragnarsdóttir (D),
Guðbjartur Hannesson (G).
Ingibjörg Pálmadóttir settist á þing
eftir kosningamar 1991 og kom Giss-
ur Þór Ágústsson í bæjarstjóm í
hennar staö. Gísli S. Einarsson fór
inn á þing haustið 1993 og tók Haf-
steinn Baldursson sæti í hans stað.
Framboðslist-
ar á Akranesi
A-llstl:
1. Ingvar Ingvarsson
2. Guömundur Vésteinsson
3. Fiiðrik Alfreðsson
4. Hafsteinn Baldursson
5. Hervar Gunnarsson
B-listi:
1. Guömundur Páll Jónsson
2. Sigríður Gróa Kristjánsdóttir
3. Guðný Sigurðardóttir
4. Valdimar Þorvaldsson
5. Sigrún Jónsdóttir Halliwell
D-listí:
1. Gunnar Sigurðsson
2. Pétur Ottesen
3. Elínbjörg Magnúsdóttir
4. Sigríöur Guðmundsdóttir
5. Þórður Þórðarson
G-listi:
1. Guöbjartur Hannesson
2. Sveinn Kristinsson
3. Ingunn Jónasdóttir
4. Bryndís Tryggvadótflr
5. Georg V. Janusson