Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Blaðsíða 42
50
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
Afmæli
90 ára
Sigríður Valdimarsdóttir,
Birktmel 8b, Reykjavik.
80 ára
Jakob SiRurður Þórðarson,
Hafharbyggð 33, Vopnafirði.
Guðrún Flosadóttir,
Strandaseli 3, Reykjavík.
Hún er að heiman,
María Steingrímsdóttir,
Ásvegi 12, Dalvik.
Gunnar Hreinn Björnsson,
Engihjaila 17, Kópavogi.
Gcstur Bjarki Pálsson,
Rauðagerði 46, Reykjavík.
Jngibjörg Jóhannesdóttir,
Heiðarhrauni7, Grindavik.
75 ára
ara
Kristbjörg Bjamadóttir,
Víðimýri 8, Neskaupstað.
Matthildur Mariasdóttir,
Kaplaskjólsvegi 33, Reykjavík.
Anna María Maríanusdóttir,
Nönnufelli 1, Reykjavik.
70 ára
Egill Jónasson
kjötskurðannað-:
ur, Lækjargötu
22b, Akureyri.
Eiginkona hans
er Sigríður Sig-
marsdótiir hús-
móöir.
Þau taka á móti
gestum á afmæl-
isdaginn í Lóni v/Hrísalund írá ki.
18 ;u ;:i
Maria Eyþórsdóttir,
Asparfelli 2, Reykjavík.
Guðmundur Pálsson,
Barmahlið 13, Sauðárkróki.
Kolbrún Jónsdóttir gjaldkeri,
Lambhaga 17, Bessastaðahreppi.
Eiginmaður hennar er Pétur Axelsson
vélfrteðingur.
Þau eru að heiman
VUhjálmur Knudscn,
Heilusundi 6a, Reykjavík.
40 ára
Hörður Sigurðsson,
Þinghólsbraut 67, Kópavogi.
Máni Fjalarsson læknir,
Hrísbraut 11, Höfn í Hornaflröi.
Eiginkona hans er Gunnþóra Gunnars-
dóttir, ritsijóri Eystrahorns á Höfh.
Máni dvelur nú í Tuzla í Bosniu i friðar-
gæslusveit Noregs á vegum Sameinuðu
þjóðanna.
Olíufélagið hf
ÓDÝRU
SUMARHJÓLBARÐARNIR!
ROADSTONE hjólbarðarnir iást
á bensínstöðvum ESSO
STÆRÐ VERÐ m/vsk
155-R13 3.670 kr.
165-R13 3.990 kr.
175/70-R13 4.210 kr.
185/70-R13 4.640 kr.
185/70-R14 5.010 kr.
Halldór Pétursson
Halldór Pétursson, skipstjóri og
stýrimaður, Gljúfraseli 3, Reykja-
vík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Halldór er fæddur á Sauðárkróki
og ólst þar upp til tólf ára aldurs en
á Siglufirði eftir það. Hann stundaði
nám í Iðnskólanum á Siglufirði og
síðar Iðnskólanum í Reykjavík og
lauk þaðan hinu meira fiskimanna-
prófi 1958. Halldór lærði einnig
húsasmíði.
Halldór hóf sjómennsku strax eftir
fermingu og var á síldveiðum. Hann
var svo á vb. Þormóði ramma, 20
lesta bát frá Siglufirði, sem fórst við
Sauðanes. Eftir þetta var Halldór
háseti á ýmsum bátum og togurum
í Vestmannaeyjum, á Siglufirði og í
Reykjavík. Hann varð skipstjóri
1961 á Sævari KE105 og var þar í
nokkur ár en 1968 fór Halldór í land
og lærði húsasmíði eins og fyrr er
getið. Hann vann við iðnina nokk-
urn tíma og var ennfremur af-
greiðslustjóri á Þjóðviljanum nokk-
ur ár en frá 1978 hefur Halldór ver-
ið stýrimaður og skipstjóri hjá BÚR
og síðan Granda. Hann er nú 1.
stýrimaður og skipstjóri á Otto N.
Þorlákssyni.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 1970 Ólöfu Ingi-
björgu Sigurðardóttur, f. 19.9.1939,
húsmóður, en þau hófu sambúð
1959. Foreldrar hennar: Sigurður
Pétursson, fyrrum bifreiðastjóri á
Seyðisfirði, og Sigríður Markúsdótt-
ir.
Börn Halldórs og Ólafar Ingibjarg-
ar: Pálmar Halldórsson, f. 14.8.1960,
matreiðslumaður, maki Helga
Hallsdóttir, f. 4.4.1960, kennari, þau
eiga fjórar dætur, Stefaníu Helgu,
f. 21.3.1982, Hildi Sif, f. 13.6.1988,
HalldóruBjörgu, f. 10.6.1992, og
Ömu Fjólu, f. 9.5.1993; Bára Hall-
dórsdóttir, f. 29.5.1963, rafeinda-
virki; Ingibjörg Edda Halldórsdóttir,
f. 5.5.1965, fóstra; Birna Halldórs-
dóttir, f. 20.10.1967, nemi. Fóstur-
dóttir Halldórs: Guðbjörg Sigurðar-
dóttir, f. 6.5.1958, maki Ottó Guð-
jónsson, f. 18.6.1957, læknir í New
York, þau eiga þrjú börn, Guðlaugu,
f. 6.4.1986, Tinnu, f. 16.12.1988, og
OttóÓlaf.f. 16.11.1990.
Systkini Halldórs: Kristín Péturs-
dóttir, f. 28.12.1930, skrifstofumað-
ur, maki Sigurður Jóhannsson, þau
eiga tvö böm; Sigurjón Pétursson,
f. 26.10.1937, borgarráðsmaður,
maki Ragna Brynjarsdóttir, þau
eiga tvo syni; Ingibjörg Soffia Pét-
ursdóttir, f. 8.8.1940, iðjuþjálfi í Sví-
þjóð, maki Leif Siik, þau eiga tvo
syni.
Foreldrar Halldórs: Pétur Laxdal
Guðvarðarson, f. 13.2.1908, d. 28.5.
1971, húsasmíðameistari á Sauðár-
króki, og kona hans, Ingibjörg Ög-
mundsdóttir, f. 12.1.1906, húsmóðir.
Ætt
Faðir Péturs var Guðvarður b. á
Hrafnagili í Laxárdal, Magnússon,
b. í Ketu á Skaga, Gunnarssonar.
Móðir Guðvarðar var Sigríður Guð-
varðardóttir, af Skíðastaðaættinni.
Móðir Péturs var Soffía Hákonar-
dóttir, b. á Hób í Önundarfirði, bróð-
ur Guðmundar á Kirkjubóli, afa
þeirra bræðra, Ólafs skólastjóra,
Guðmundar Inga skálds og Halldórs
skálds frá Kirkjubób. Foreldrar
Hákonar voru Páll Sigurðsson, b. á
Halldór Pétursson.
Hób í Önundarfirði, og kona hans,
Kristín Hákonardóttir.
Móðir Halldórs, Ingibjörg, er dótt-
ir Ögmundar, söðlasmiðs á Sauöár-
króki, Magnússonar, b. á Branda-
skarði, Ögmundssonar, bróður
Maríu móður Magnúsar Björnsson-
eu:, fræðimanns á Syðra-Hób. Móðir
Ögmundar var Sigurbjörg Andrés-
dóttir, b. á Syðri-Bægisá, Tómasson-
ar. Móðir Sigurbjargar var Ingi-
björg Þórðardóttir, b. á Kjama í
Eyjafirði, Pálssonar, forfoður
Kjarnaættarinnar. Móðir Sigur-
bjargar var Kristín Björg Pálsdóttir,
b. í Gröfí Víðidal, Steinssonar. Móð-
ir Páls var Þorbjörg Ámadóttir, b.
á Hörghób, Bjömssonar. Móðir Þor-
bjargar var Sigríður, systir Ragn-
heiðar, langömmu Lúðvíks Norð-
dals læknis, afa Davíðs Oddssonar.
Sigríður var dóttir Friðriks, prests
á Breiðabólstað í Vesturhópi, Þórar-
inssonar, sýslumanns á Gmnd í
Eyjafirði, Jónssonar, forfóður Thor-
arensenættarinnar.
Matthew James Driscoll
Matthew James Driscoll, handrita-
fræðingur og bókmenntafræðingur,
Skólavörðustíg21, Reykjavík, verð-
ur fertugur á morgun.
Starfsferill
Matthew fæddist í Boston í
Massachusetts í Bandaríkjunum og
ólst þar upp. Hann lauk BA-prófi í
ensku máli og bókmenntum frá
University of Stirling í Skotlandi
1979, cand magprófi í íslenskum
bókmenntum frá HÍ1988 og d.phil-
prófi í íslenskum fræðum frá Uni-
versity of Oxford í febrúar 1994.
Matthew var enskukennari við
ME1979-82, kennari í ensku og ís-
lensku fyrir útlendinga við Mála-
skólann Mími og Ritaraskóla
Stjórnunarfélagsins 1983-89, kemi-
ari á sumarnámskeiðum Stofnunar
Sigurðar Nordal í íslensku fyrir er-
lenda stúdenta 1991-93 og hefur ver-
ið styrkþegi Vísindaráðs íslands
með vinnuaðstöðu á Stofnun Áma
Magnússonar þar sem hann vinnur
að útgáfu á sögum eftir Jón Oddsson
Hjaltalín, prest á Breiðabólstað á
Skógarströnd.
Matthew sá um útgáfu og skrifaði
inngang að útgáfu Árnastofnunar á
Sigurðar sögu þögla. Þá er væntan-
leg skólaútgáfa á Ágripi af Noregs-
konungasögum, útg. afViking Soci-
ety for Northern Research í London,
sem og sögur Jóns Hjaltalíns. Auk
þess hefur Matthew skrifað íjölda
greina um íslenskar bókmenntir í
ýmis tímarit og safnrit, innlend og
erlend.
Fjölskylda
Matthew kvæntist 8.7.1978 Ragn-
heiði Mósesdóttur, f. 4.2.1953, sagn-
fræðingi og skjalaveröi á þjóðskjala-
safninu. Hún er dóttir Móses Aðai-
steinssonar verkfræðings, sem er
látinn, og Ingibjargar Gunnarsdótt-
ur skrifstofumanns.
Böm Matthews og Ragnheiðar em
Kári Driscoll, f. 6.4.1980, nemi, og
Katrín Þórdís Driscoll, f. 20.10.1987,
nemi.
Foreldrar Matthews: Arthur Je-
rome Driscoll, f. 14.9.1929, d. 8.5.
1989, menntaskólakennari í Worc-
ester í Massachusetts, og C. Barbara
Driscoll f. Duggan 20.10.1930, hjúkr-
Matthew James Driscoll.
unarfræðingur.
Föðurforeldrar Matthews voru
Georg Driscoll, verkamaður í Bos-
ton, og Gertrade Driscoll húsmóðir.
Hann var fæddur í Boston en hún í
Nova Scotia, þó bæði af írskum ætt-
um.
Móðurforeldrar Matthews: James
Duggan vélstjóri, sem nú er látinn,
og Kate Duggan húsmóðir, búsett á
Cape Cod í Massachusetts.
Matthew er staddur í Bandaríkj-
unum um þessar mundir.
MatreiÖslumeistari Sjónvarpsins:
Kjúklingur meö mysusósu
Úlfar Finnbjörnsson, matreiöslu- in að kjúklingi í mysusósu lítur birkisalt
. meistari Sjónvarpsins og á veit- þannig út: estragon
ingastaðnum Jónatan Livingstone l stk. kjúklingur steinselja
mávi ætlar að bjóða áhorfendum smjör 50 gr smjör
sjónvarpsins upp á kjúkJingarétt í l laukur
þætti sínum á miðvikudag. í síðasta 10 sveppir Rrkarinn
þætti varÚlfar með gufusoöinn lax 2-3 sneiðar beikon xll isgijuii
með graslaukssósu en sá þáttur 3dlmysa hrisgijón
verður endursýndur i dag. Gestur 1-2 stk. lárviðarlauf laukur
Úlfars verður að þessu sinni Guð- 1/2 tsk. timian rauðrófur
mundur Jónsson bóndi. Uppskrift- pipar vatn