Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
51
Afmæli
Anna V. Heiddal
Anna Vilhjálmsdóttir Heiðdal, verö-
bréfasali hjá Fjárfestingafélaginu
Skandía, til heimilis að Bergstaða-
stræti 8, Reykjavík, er fimmtug í
dag.
Starfsferill
Anna fæddist í Reykjavík. Hún
lauk stúdentsprófi frá MH1975 og
stundaöi um skeið nám í lögfræöi
ogguðfræðiviöHÍ.
Anna stundaði síldarsöltun sum-
ariö 1961, starfaði á lögfræðiskrif-
stofu bjá Ragnari Jónssyni hrl.
1961-63, stofnaði, ásamt fyrri maka,
fyrirtækiö Kamabæ 1966 og stund-
aði þar ýmis störf til 1981, hóf þá
störf hjá Verðbréfamarkaði Fjár-
festingafélags íslands og starfar nú
þjá Fjárfestingafélaginu Skandía.
Anna var Ijósálfur og skáti á
bamsaldri og unglingsárunum, æfði
og keppti i handbolta með KR og
starfar með KR-konum og frænku-
félaginu Túilu Hansen.
Fjölskylda
Anna giftist 10.8.1963 fyrri manni
sínum, Guðlaugi Bergmann, f. 20.10.
1938, kaupmanni í Reykjavík. Þau
skildu.
Synir Önnu og Guðlaugs eru Ólaf-
ur Gunnar Guðlaugsson, f. 6.1.1964,
grafískur hönnuður hjá DV, búsett-
ur í Reykjavík, kvæntur Herdísi
Finnbogadóttur, líffræðingi hjá
Blóðbankanum; Daníel Magnús
Guðlaugsson, f. 12.7.1965, verslun-
armaður í Reykjavík, kvæntur Haf-
dísi Guðmundsdóttur, sölumanni
hjá66” norður.
Anna giftist 13.8.1992 seinni
manni sínum, Þorsteini Björnssyni,
f. 31.7.1945, prentara. Hann er sonur
Bjöms Ingvarssonar, fyrrv. lög-
reglustjóra á Keflavíkurflugvelli, og
Margrétar Þorsteinsdóttur húsmóð-
ur.
Systkini Önnu: Jóhanna Lucinde
Heiðdal, f. 26.8.1936, húsmóðir í
Reykjavík; María Heiðdal, f. 13.6.
1939, hjúkrunarforstjóri í Reykja-
vík; Hilmar Heiðdai, f. 2.3.1941,
múrari í Reykjavík; Hjálmtýr
Heiðdal, f. 14.12.1945, kvikmynda-
gerðarmaður í Reykjavík.
Foreldrar Önnu: Vilhjálmur
Heiðdal, f. 4.8.1912, fyrrv. yfirdeild-
arstjóri hjá Pósti og síma og for-
stjóri Víöiness, og kona hans, María
Hjálmtýsdóttir Heiðdal, f. 29.9.1913,
d. 1.2.1991, húsmóðir.
Ætt
Vilhjálmur er sonur Sigurðar
Heiðdal, rithöfundar, skólastjóra og
forstöðumanns, hálfbróður Bjarna
Johnsen sýslumanns; Ólafs stór-
kaupmanns, fóður Amar forstjóra,
og hálfbróður Sigríöar, ömmu Ein-
ars Laxness. Sigurður var sonur
Þorláks Ó. Johnsson, kaupmanns í
Reykjavík, Ólafssonar Johnsen,
prests á Stað, Einarssonar, verslun-
armanns í Reykjavík, Jónssonar,
bróður Siguröar, foður Jóns forseta
og Jens rektors, langafa Jóhannesar
Nordal. Móðir Sigurðar var Anna
Daníelsdóttir frá Vestmaxmaeyjum,
Magnússonar.
Móðir Vilhjálms var Jóhanna,
systir Ásrúnar, ömmu Aöalsteins
Ingólfssonar listfræðings. Jóhanna
var dóttir Jörgens, oddvita í Krossa-
vík, Sigfússonar, b. á Skriðuk-
laustri, Stefánssonar, prests á Val-
þjófsstööum, Árnasonar. Móðir Jó-
hönnu var Margrét, systir Gunnars,
fóður Gunnars rithöfundar. Margr-
ét var dóttir Gunnars, b. á Brekku,
Gunnarssonar, og Guðrúnar HaU-
grímsdóttur, b. á Stóra-Sandfelli,
Ásmundssonar, bróður Indriða, afa
Jóns ritsijóra og Páls skálds Ólafs-
sona.
María var systir Ludvigs ferða-
málasijóra, fóður Péturs barna-
læknis og systir Hjálmtýs söngvara,
fóður söngvaranna Diddúar og Páls.
María var dóttir Hjálmtýs, kaup-
Anna Vilhjálmsdóttir Heiödal.
manns í Reykjavík, Sigurðssonar, í
Grímsfjósum, Sigmundssonar.
Móöir Hjálmtýs var Gyðríður
Hjaltadóttir, b. í Keldudal, Hjalta-
sonar, og Guðfmnu Ámadóttur.
Móðir Maríu var Lucinde Fr. V.
Hansen, dóttir Ludvigs Hansen,
dansks verslunarmanns í Reykja-
vík, og konu hans, Marie Vilhelms-
dóttur Bernhöft, bakara í Reykja-
vík, Daníelssonar, Bemhöft, bakara
í Reykjavík, Joachimssonar Bern-
höft í Neustadt í Holtsetalandi. Móð-
ir Marie Bemhöft var Johanne Ot-
harsdóttir Bertelsen, skósmiðs á
Helsingjaeyri.
Þorvarður Gunnarsson
Þorvarður Gunnarsson, löggiltur
endurskoðandi, Sæbólsbraut9,
Kópavogi, er fertugur í dag.
Starfsferill
Þorvaröur er fæddur í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá Verslunarskóla íslands
1975 og prófi í viðskiptafræði frá
Háskóla íslands 1981. Þorvarður
fékk réttindi sem löggiltur endur-
skoöandi 1982.
Þorvarður hefur verið meðeigandi
í Endurskoðun Sig. Stefánsson hf.
frá 1982. Hann fluttist til Vest-
mannaeyja og rak útibú skrifstof-
unnar þar til 1987 en hefur frá þeim
tíma starfað á aðalskrifstofunni í
Reykjavík og verið framkvæmda-
stjórifélagsins.
Þorvaröur hefur starfað á vett-
vangi Félags löggiltra endurskoð-
enda, FLE. Hann var í menntunar-
nefnd 1987-91 og var formaður
hennar 1989-91. Þá sat Þorvarður í
stjóm félagsins 1991-93.
Fjölskylda
Þorvarður kvæntist 1.8.1981 Þór-
laugu Ragnarsdóttur, f. 20.12.1953,
húsmóður og nema í fataiðn. For-
eldrar hennar: Ragnar Aðalsteins-
son, fyrrverandi kaupmaður í
Reykjavík, ogUnnur Ólafsdóttir,
húsmóðir í Reykjavík. Ragnar er
kvæntur Guðrúnu Guðmundsdótt-
ur verslunarmanni en Unnur er gift
Jóhanni Jakobssyni vömbifreiðar-
stjóra.
Synir Þorvarðar og Þórlaugar:
Gunnar Þorvarðarson, f. 24.10.1982;
Ragnar Þorvarðarson, f. 2.11.1984;
Jóhann Þorvarðarson, f. 8.2.1991.
Sonur Þorvarðar: Garðar Öm Þor-
varðarson, f. 1.7.1975, nemi, búsett-
ur á Akranesi. Fóstursonur Þor-
varðar og sonur Þórlaugar: Gissur
PáU Gissurarson, f. 16.2.1977, nemi.
Systkini Þorvarðar: Aðalbjörg
Gunnarsdóttir, f. 15.10.1942, starfs-
stúlka í Reykjavík; Björg Gunnars-
dóttir, f. 17.11.1948, skrifstofumaöur
í Reykjavík, maki Finnbogi Sigurðs-
son kennari, þau eiga þijú börn;
Þorvarður Gunnarsson.
Ágústa Gunnarsdóttir, f. 23.5.1950,
sálfræðingur í Reykjavík, Ágústa á
tvö böm; Jón Gunnarsson, f. 4.11.
1957, vaktmaður í Reykjavík, maki
Sigríður Sverrisdóttir auglýsinga-
teiknari, þau eiga tvö börn; Helga
Gunnarsdóttir, f. 27.10.1964, skrif-
stofumaður í Reykjavík, Helga á eitt
barn.
Foreldrar Þorvarðar: Gunnar Þor-
varðarson, f. 29.7.1927, fyrrverandi
skipstjóri, og Helga Jónsdóttir, f.
7.12.1923, húsmóðir. Þau eru búsett
íReykjavík.
Meiming
Ella Magg í Galleríi 11:
Sófa- og svefn-
herbergismyndir
Elín Magnúsdóttir, alias Ella Magg, hefur verið iðin
við kolann síðustu misserin og sýnt u.þ.b. tvisvar á
ári vatnslitamyndir, silkimálverk, olíumálverk eða
silkiþrykk. Fyrir rúmum fjórum mánuðum var hún
með stóra sýningu í Listhúsinu í Laugardal og er nú
búin að opna nýja í Galleríi 11 á Skólavörðustíg þar
sem hún sýnir fjóra tugi nýrra verka og einungis eitt
sem hefur borið fyrir almennings sjónir áður. Að þessu
sinni er mestmegnis um vatnslitamyndir að ræða og
stöku verk unnin með blandaðri tækni.
Parukkhöfgi
„Hið mjúka, ögrandi og kvenlega" virðist útgangs-
punktur teikninga Elínar, en þar með er ekki öll sagan
sögð. Margar myndanna minna á draumkenndar
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
Dempaðir litir
Hér er í sjálfu sér ekki um mikla breytingu að ræða
frá síðustu sýningu listakonunnar þar sem munúðar-
fuilar kvensniftir létu fara vel um sig á myndfletinum
innan um lífsins lystisemdir. Þó má sjá að hlæði er
ekki eins mikið og áður vegna dempaðri og afmark-
aðri litanotkunar í flestum verkanna. Myndir íjögur
til sjö mynda röð sem virkar heilsteypt vegna litanotk-
unar fremur en teikningar. Hið sama má segja um
marga aðra afmarkaða hluta sýningarinnar eins og
fyrstu þijár myndirnar og smámyndasöfnin frá núm-
eri 12 til 25 og frá 32 til 41. Sýningin ber yfirskriftina
„Sófa- og svefnherbergismyndir" svo ætlunin er
greinilega að visa til afslöppunar og munúðar.
myndskreytingar ævintýra, enn aörar á tilraunir súr-
realista með sjálfsprottna teikningu og sumar jafnvel
á japanskar geishumyndir. Sjálfsprottin teikning hent-
ar Elínu ágætlega til að koma til skila kvenlegri mýkt
og parukkhöfga í anda barokks. Það sem háir listakon-
unni hvað helst hér líkt og á fyrri sýningum er að hún
lætur ekki staðar numið í teikningunni þegar hæst
stendur. Þar af leiðir hlæðið. Samsuða fijálst dreginna
forma og aðskotadrauga er á stundum svo skreyti-
kennd að útkoman verður óspennandi, einkum þó í
smærri myndunum. Slíkum myndum fer þó sýnilega
fækkandi samanber fyrrnefnda litbeitingu á kostnaö
teikningar sem eftir sólarmerkjum aö dæma hefur þau
áhrif að sópa öllum óþarfa undir teppið..
Sýning Ellu Magg í Galleríi 11 stendur til 22. maí.
Til hamingju me ‘ðafmæliól5.maí Hvannalundi 1, Garðabæ. Björn Einarsson, Neðstaleiti4, Reykjavík.
90 ára
Jóhannes Jónsson, Hóli, Grýtubakkahreppi. Hanneraðheiman. Ellen Sjöfn EUertsdóttir, Sunnubraut5, Garði. ísafold Þorsteinsdóttir, Hjallabrautð, Þorlákshöfn. Alda Bragadóttir, Úthaga 7, Selfossi. Hrafn Ragnarsson, Hátúni 12, Reykjavík.
85 ára
Björg Jónsdóttir, Álagranda 8, Reykjavík. Martin Jensen, Fannborgl.Kópavogi.
Skútustööum 2b, Skútustaöa- hreppi.
80 ára
Þorsteinn Sigurðsson, Lagarási 14, Egilsstöðum. 40 ára
Jóhannes Sveinbjarnarson, Reynigrund 77, Kópavogi. Kristín Ólafsdóttir,
mm mm * 75 ara
Sesselja Sigurðardóttir, Sörlaskjóli 62, Reykjavík. Lindarbraut4, Seltjarnamesi. EinarErlendsson, Laugalæk 17, Reykjavík.
70ára Steingrímur Ágúst Jónsson, Hilmisgötu7, Vestmannaeyjum. Sigríður Baldursdóttir, Gunnarssundi 5, Hafnarfirði. Halldór Árni Jóhannsson, Stóru-Breiðuvik, Eskifiröi. Kristrún Þórðardóttir, Aflagranda 6, Reykjavík. Hrefna Frímann, Flögusiðu 1, Akureyri. Sigurgeir Haraldsson,
Hóhnfriður Friðbjarnardóttir, Stangarholti 9, Reykjavík.
60 ára
Hóimgeir Björnsson, Meðalholti. 17, Reykjavik. Guðmunda Gestsdóttir,
Eyrargötu8,Isafiröi. Reynir Böðvarsson, Fffilgötu 2, Vestmannaeyjum. Ásbjörn Dagbjartsson, Þórunnarstræti 89, Akureyri. Þórarinn Siggeirsson,
50 ára Laufvangi 2, Hafnarfiröi. Hjörtur V. Kristjánsson, HíaUavegi 3f, Njarðvik. Árni Arnsteinsson, Stóra-Dunhaga 2, Skriöuhreppi.
Helga M. Guðmundsdóttir, Hvammsgerði 4, Reykjavík. Karen Jónsdóttir, Ormsstöðum, Grímsneshreppi. Ingigerður Sigurðardóttir,
Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Skaftahlíð 9, kjallari, þingl. eig. Hulda Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Lífeyris^ sjóður Dagsbrúnar og Framsóknar og Veðdeild Islandsbanka hf„ 18. maí 1994 kl. 15.00.
Stigahlíð 58, þingl. eig. Birgir Péturs- son, gerðarbeiðendur Byggingarsj. rfltisins, húsbréfadeild, Sigurður Sig- uijónsson hdl. og Sparisjóður Hafiiar- íjarðar, 18. maí 1994 kl. 16.00.
Bergstaðastræti 24B, þingl. eig. Páll Aronsson og Inga Einarsdóttir, gerð- arbeiðendur Fjárfestingarfélagið- Skandia hf., Pjölnir h£, Lífeyrissjóður verslunarmanna, Sig. Sigurðsson, Sparisj. Rvikur og nágr.,_Sparisjóður Keflavíkur, veðdeild, og íslandsbanki hf„ 18. maí 1994 kl. 14.30.
Suðurhlíð 35,01-03, þingl. eig. Nif hf„ gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, 18. maí 1994 kl. 16.30.
Víðivellir v/Norðlingabraut og land- sjilda úr Seláslandi, þingl. eig. Ólafía Olafsdóttir, gerðarbeiðandi íslands- banki hf„ 19. maí 1994 kl. 14.30.
Brattagata 3b, þingl. eig. Herluf Clausen, gerðarbeiðendur Gjald- heimtan í Reykjavík og Landsbanki íslands, 18. maí 1994 kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Klyfjasel 26, þingl. eig. Ómar Kjart- ansson, gerðarbeiðendur Húsasmiðj- an hf. og tollstjórinn í Reykjavík, 19. maí 1994 kl. 14.00.