Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1994, Síða 48
F R
X I
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu'þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994.
Mælt með 100 þúsund
tonna minni þorskafla
Vinnuhópur Hafrannsóknar- árum sem mest í því skyni að efla
stofnunar og Þjóðhagsstofnunar stofninn sem hraöast.
skilaði í gær svartri skýrslu um
hagkvæma nýtingu fiskstofna. Þar Hættumörkin núna
er lagt til aö leyfður afli fari ekki 175 púsund tonn
upp fyrir 175 þúsund tonn á ári „Því meiri skerðing, því meiri
næstu árin og hagkvæmast væri efnahagslegur ávinningur til langs
að veiða 125 þúsund tonn eða 100 tíma en á móti vega þeir erfiðleikar
þúsundtonnaminniaflaenheimil- sem fylgdu meiri skerðingu til
aöur er á yfirstandandi fiskveiði- skamms tíma. Ávallt skal að sjálf-
ári. sögöu ákveða hámarksaílann
Verði 225 þúsund tonna afla liald- hverju sinni undir hættumörkum
iö áfram er það mat vinnuhópsins fyrir þorskstofninn. Þessi hættu-
að þorskstofhinn muni hrynja á mörk eru breytileg frá einu ári til
næstu árum. Vinnuhópurinn telur annars. Eins og ástand þorsk-
ekki hagkvæmt að auka þorskafla stofnsins er nú metið eru þau talin
fyrr en í fyrsta lagi eftir aldamót. vera í námunda við 175 þúsund
Skýrsluhöfundar segja hagkvæm- tonn,“ segir m.a. í skýrslunni.
ast aö skerða þorskveiðar á næstu Að mati vinnuliópsins ér talið
hagkvæmt að stefna að því að
hrygnmgarstofn þorsks verði að
jafnaði 700-800 þúsund tomi og
veiðistoíh þorsks 1.400-1.600 þús-
imd tonn. Til samanburðar má
nefna að hrygningarstofninn er nú
um 220 þúsund tonn og veiðistofn-
inn 600 þúsund tonn. Aírakstur
slíks þorskstofns gæti verið um 350
þúsund tonn á ári en var áætlaður
mn 180 þúsund tonn á þessu ári.
Miðað viö 350 þúsund tonn er
reiknað með 19 milljarða króna
meiri tekjum fyrir þjóðarbúið en
180 tonn af þorski gefa. Útreikning-
ar vinnuhópsins ná fram til ársins
2017 og tekið er tillit til þróunar
fleiri fiskstofna en áður í sambæri-
legum útreikningum.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, átti sæti í
vinnuliópnum. Hann sagði í sam-
tali við DV að niðurstöður skýrsl-
unnar væru í sjálfu sér ekki í ósam-
ræmi við síöustu spár Þjóðhags-
stofnunar um 1 til 2% hagvöxt
næstu árin.
Lengi að ná þorsk-
stofninum upp
„Ástand þorskstofnsins setur
hagvexti þröngar skorður í náinni
framtíð. Það er mikill ávinningur
fólginn í því að hafa stíft taumhald
á þorskveiðum á næstu árum og
gæfi mikla hagvaxtarvon um eða
upp úr aldamótum," sagði Þórður.
Brynjólfur Bjarnasón, forstjóri
Granda, stýrði vinnuhópnum.
Hann sagði við DV að skýrslan
væri dökk að því leyti að lengri
tíma tæki að ná upp þorskstofnin-
um en menn hefðu haldið hingað
til.
„Við tökum tillit til loðnu- og
rækjustofiis og áhrifa þeirra á
þorskinn. I>orskstofninn er hag-
kvæmastur þegar hægt verður að
ná 350 þúsund tonn afla en það
verður ekki fyrr en eftir aldamót.
Skýrslan er ekki svört að því leyti
að við eigum möguleika á að ná upp
þessari auðlind án þess að hætta
veiðum eins og t.d. Kanadamenn.
Lífskjör fólks verða lakari en eru
harla góð fyrir,“ sagði Brynjólfur.
Nauteyrarhreppur:
Flugeldaskot-
hríðkærð
„Það var skotið fólskulega að okk-
ur flugeldum. Ég vissi ekkert af því
að til stæði að gera þetta. Við erum
tvær héma; móðir mín, 96 ára, og ég.
Ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrst
hvað var að gerast en fór inn til
móður minnar sem var skjálfandi af
hræðslu því þetta gerðist næst her-
berginu hennar,“ sagði Guðrún
Heiðrós Þórðardóttir, bóndi á Laug-
—-arholti í Nauteyrarhreppi.
Guðrún segir að fólk í sumarbústað
í næsta nágrenni haíi skotið flugeld-
unum. Hún hafi kallað til lögreglu
og kært þetta til að koma í veg fyrir
að svona gerðist oftar.
Skílti eyðilagði bíl
Dráttarbíll með tengivagn og krana
valt í Kópavogi í gær þegar ökumað-
ur bílsins var að hífa skilti upp á
pall tengivagnsins. Skiltið féll á
Volkswagen Golf bíl sem talinn er
ónýtur eftir óhappið.
Fyrirtækið sem átti dráttarbílinn
átti einnig dráttarbílinn sem varð
valdur að óhappi við Laugamesveg
* ’þegar gámur féll ofan á ameríska
fólksbifreið og lagði hana saman.
Lýðveldisafmælið nálgast óðfluga og voru þessar hressu stúlkur úr 10. bekk Hagaskóla að leggja sitt af mörkum
til undirbúnings þess. Auður Nanna og Jóhanna eru höfundar verksins og njóta hér aðstoðar skólasystra sinna við
aö mála það. Er það þáttur í samkeppni grunnskólanema i gerð myndefnis, tengdu átakinu „ísland, sækjum það
heim“. DV-mynd GVA
Jeppafarar í
vandræðum
Þyrla Landhelgisgæslunnar leitaði
í gær manns og konu sem fariö höfðu
á jeppa á Langjökul í samfloti með
íjómm öðrum.
Þau höfðu oröið viðskila við hina
jeppana og snúið við en bífl þeirra
bitað. Ekkert hafði spurst til þeirra
í sólarhring þegar þau fundust á
gangi skammt frá bílnum. Að sögn
talsmanns Landhelgisgæslu vom
þau illa búin til útiveru uppi á jökli
og höfðu meðal annars brotist inn í
skála í leit að einhverju matarkyns
og skjóli.
í samráði við þau var ákveðið að
senda hjálp úr Reykjavík til að ná í
þau og jeppann og ætluðu þau að
bíða þess.
Reyntaðná
samkomulagi
Reynt var til þrautar að ná sam-
komulagi á samningafundi meina-
tækna og samninganefndar ríkisins
í Karphúsinu í gær. Fundurinn hófst
klukkan tíu í gærmorgun og var ekki
lokið þegar DV fór í prentun í gær-
kvöld.
LOKI
Einhver þarna fyrir vestan
heldursýnilega að
það sé enn gamlárskvöld!
Veörið á sunnudag
ogmánudag
Víða
bjart-
viðri
Hæg norðaustanátt, dálítil súld
eða þokusúld á annesjum norð-
anlands og austan en bjartviðri í
öðmm landshlutum.
Veðrið í dag er á bls. 53
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
Vbwlsen
SuAuriandsbraut 10. S. 686499.