Dagur - 17.12.1956, Page 3
JÓLABLAÐ DAGS
3
Þannig minna jólin oss á það,
sem Guð hefur trúað oss fyrir, en
sem vér höfum grátlega brugðizt,
án þess að finna til blygðunar. Sá,
sem hefur hreinskilni og einurð til
að taka orð Krists eins og þau eru
töluð, hann getur ráðið yfir þeirri
blindu, sem flestir virðast slegnir.
Ef til vill virðist það fávísleg
kenning í dag að halda því fram,
að það sé ekki hægt að trygga frið
með öðru móti en að elska frið og
hætta öllum vopnaburði, og að
það geti aldrei þjónað góðum mál-
stað að grípa til illræða, t. d. stríðs.
En ef þessi kenning er fávísleg, þá
hefur Kristur líka verið aðeins
barnalegur draumóramaður, því
að þetta er kenning hans. Sjálfsagt
værum vér samkvæmari sjálfum
oss, ef vér höfnuðum slíkri kenn-
ing og tækjum upp hina búvæn-
legu hetjukenning hinna nafn-
kristnu hugsjónamanna: vígbúist
til að tryggja friðinn.
En þrátt fyrir allt getum vér þó
ekki þurrkað Krist út, og ef til vill
óskum vér heldur ekki eftir því.
Þrátt fyrir allt vort hreystihjal og
hermennskuást og hagnýta speki
hinnar svokölluðu heilbrigðuskyn-
semi, þá finnum vér innst inni, að
Kristur hafði rétt fyrir sér, en vér
rangt. Það er eftir í oss eitthvað af
barnseðlinu, sem skynjar fegurð-
ina í fátækt Krists og friðinn í
jarðneskri örbyrgð hans. Enginn
hefur gefið framtíðinni fegurri lit
og ljóma en hann, enda var hann
upprunninn í dýrð himnanna.
Þess vegna freistumst vér enn
til þess að halda jól, af því að vér
biðjum þess og bíðum, að menn-
irnir sjái einhvern tíma og skilji að
þeir eiga að vera Guðs börn en
ekki erindrekar myrkursins. Jólin
eru enn ein áminning um það, að
vér með öll vor vopn erum á villi-
götum. „Slíðra þú sverð þitt,“ sagði
friðarhöfðinginn. Jólin eru friðar-
ins orð til friðvana þjóða, og gjör-
völl kristnin fordæmir stríð, en
boðar frið á jörð. Megi sá boðskap-
ur verða svo heyrður, að harkmikil
hermannastígvél hætti að troða í
svaðið helgustu hugsjón allra alda,
friðarhugsjónina. Höfðingja höf-
um vér fengið af Guði sendan,
friðarhöfðingja. Hann einn á að
vera konungur vor.
Gleðileg jól!
l*> jr
I |
t 1
I
I
é
I
s
I
Vi-c
I
I
$
I
I
I
GUNNAR S. HAFDAL:
&
X
í
I-
I
I
©
1
■>;?
©
X
t
I
I
±
Vé"
I
JÓL
Nú hljóðnar þys, er hátíð ljóss og friðar
með helgum ljóma gistir kristna jörð.
Nú iagna sálir hljómi heilags kliðar
í húsi Guðs við jóla-messugjörð.
Og jólin eru ljósafoss svo íagur
í fljóti timans hvert eitt líðandi’ ár.
Þá boðast öllum barnsins jóladagur,
svo birti í sálum manna og þorni tár.
%
t
%
t
%
<3
f
%
t
%
t
t
t
?
*
<c
Frá barnsins stól slær bjarma yfir heiminn,
þá birtist öllum dýrð um heilög jól.
Og Ijóssins dísir svífa gegnum geiminn,
©
% og göngu hækkar eilíf Drottins sól!
I |
I ww !
i %
£ 1 «
é +
* <?i