Dagur - 17.12.1956, Blaðsíða 17

Dagur - 17.12.1956, Blaðsíða 17
JÓLABLAÐ DAGS 17 liigmor i heimahöfn. Næst var það ráðið, að einn skip- verja batt um sig streng og freistaði að ná landi. Vegna þess að skipið var nærri landi og stórt, svo að liaf- aldan brotnaði á því, tókst mannin- um að ná laiidi í skj()li skipsins. Gat hann svo dregið að sér kaðal frá skipinu og fcst liann um stóran stein í landi. Með stuðningi af þessum kaðli gátu þeir, sem eftir voru í skipinu, komist að landi. En þráixtin var ekki unnin þó að komið væ'ri í land, því að allliáir klettar gnæfðu yfir. Skammt frá var þó vík, þar sem gott var uppgöngu, en þangað \arð ekki komist, því brimið skall á bergi, sem gekk í sjó fram milli víkurinnar og skipsins. Það varð mönnunum til bjargar, að rauf var í bergið skammt þaðan, sem þá bar að landi, og gat einn skipverja komist Jrar npp og aðstoðað hina við uþpgönguna. Þá var enn eftir að ná til mannabyggða. Mennirnir voru hér allir ókunnugir og skip- stjórinn gerði sér víst ekki fulla grein fyrir hvar skipið bar að landi. Þeir skiptu því liði. Sumir fóru austur með sjónum, en aðrir vestur með. Þeirsem stefndu í austur urðu fljótt varir við símalínuna, sem liggur frá sjó að Hellu og þaðan að símastöðinni á Krossum. Ivomu að Hellugerði. Býlið Ilellugerði var þá byggt. Það er skammt frá strandstaðnum og einnig stutt frá símalínunni. Það fundu strandmennirnir fyrst. Þar bjó Jí;i Þorsteinn ÞÖrvaldsson frá Krossum og Anna Þorvaldsdóttir frá Hellu, kona hans. Á svefnher- bergi hjónanna var gluggi á suður- stafni. Þorsteinn vaknar við J)að um nóttina, að barið er allharkalega á gluggann. Hélt hann að það væri Jón Kristjánsson frá Hellu að kalla hann í róður og snerist illa við og segir: „Ertu vitlaus, maður, held- urðu, að við róum í Jressu veðri?“Þá er aftur bankað í gluggann, svo að Þorsteinn ler út, ]).i standa þar 8 snjóbarðir og votir menn. Á Hellu- gerði var ekki húsrými fyrir alla Jaessa menn, 'enda mátti heita fullt hús af börnum fyrir. Þorsteinn fylgir því mönnunum heitn að Hellu. Eg var ekki heima Jaessa nött, því að daginn áður fór eg ásamt fleirum með sláturfé til Dal- víkur. Það kom Javf í hlut konu

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.