Dagur - 22.12.1969, Qupperneq 10

Dagur - 22.12.1969, Qupperneq 10
10 JÓLABLAÐ DAGS HOLMSTEINN HELGASON: Hjásetan Gamall vibbur&ur B/EÐI í þjóðsögum og sönnum heim- ildum, er skýrt frá mai'gvíslegum yfir- gangi erlendra sjómanna, sem stunduðu fiskveiðar hér við land, á umiiðnum öldum, og rændu bæði sauðfé, sér til matar, og ýmsu öðru fémætu, og urðu stundum átök af. Hér á Norð-Austur- landi hefir verið mest í hámæli þjóð-. sagan um franska sjómenn, sem rændu sauðfé í Þistilfirði, í tíð séra Eggerts á Svalbarði, og sönn saga af Jóhannesi Gíslasyni vinnumanni séra Vigfúsar Sigurðssonar á Sauðanesi, á áttunda tug næstliðinnar aldar, sem barðist við franska sjómenn, á Grenjanesi, með rekatré að vopni, og hrakti þá til skips, frá bundnum kindum í fjörunni. Grun- ur lá og á því, á mínum uppvaxtarár- um, á Langanesi, framan af þessarri öld, að erlendir sjómenn, einkum þá Færeyingar, hefðu náð sér í kindur, í smáum stíl, þar sem strjálbýlt var og fáferðugt, með' sjó fram, en engin voru þar vitni að, og má því vera hugar- burður einn. En Fæiéyingar keyptu mikið af sauðfé, áf bændum á Langa- nesi, á þeim árum, og var það. sum- um bændum til mikilla hagsbóta. Verð- ur svo eigi meira um það rætt. Sá einstæði viðburður, sem hér verð- ur frá sagt, gerðist sumarið 1902 eða 1903, sem ég man ógerla, en finnst þó af ýmsum minnisatriðum, til hliðar, að hafi fremur verið sumarið 1903. Um þetta furðulega og einstæða atvik, mun engin skráð heimild til vera. Þá var enginn sími, og fréttaflutningur sein- fær, helzt í sendibréfum, og kann þar eitthvað um þetta að vera sagt, án þess að mér sé kunnugt. Það er því ökki öðru til að dreifa, en' minni mínu og þeirra fáu manna, sem enn eru ofar moldu er samtíða voru þessum við- burði. En á 66 árum fennir yfir mörg minnisatriði, hafi það ekki verið á blöð éða bækur fest. Mun ég nú reyna að segja þessa dularfullu, og af samtírn- anum, mjög umdeildu sögu, svo sem mitt minni frekast leyfir, en ég var 10 ára gamall þegar hún gerðist, ef það hefir verið árið 1903, sem ég held, en annars 9 ára. Söguna sagði mér við- komandi sjálfur og heimilisfól'kið, sem hann dvaldist með, sem var mér ná- komið, mjög greinilega í öllum smáum og stórurn atvikum. Valgeir Bjarnason hét hann, dreng- urinn sem hér verður frá sagt, og varð fyrir árás ókunnra manna í hjásetu yfir kyíaám, frá Grund á Langanesi, þetta hér áðurnefnda sumar, en hann var mér vel kunnugur og leikfélagi minn Hólmsteirin Helgason. (Ljósm. E. D.) og vinur, þegar ég dvaldist á Grund tíma og tíma hjá ömmu minni. Valgeir mun hafa verið fæddur árið 1889, og því fermdur þetta vor. Hann kom að Grund fárra ára, mig minnir 4 eða 5 ára gamall, sem tökudrengur til móður- ömmu minnar, Sigurbjargar Sigurðar- dóttur, sem þar bjó þá ekkja, með að- stoð barna sinna, sem komin voru og að komast á fullorðinsaldur. Móðir Val- geirs hafði látizt frá tveimur ungum börnum sínum, og faðirinn, Bjarni Jónsson, var mjög heilsutæpur, en hafði þó með sér, og á sínu framfæri, í vinnu- mennsku, yngra barnið, stúlku að nafni Guðbjörgu. Ekki tilgreini ég hér ættir Valgeirs, til þess tel ég mig ekki nógu fróðann um þá hluti, en skal geta þess, að afi Bjarna, föður Valgeirs, var Sig- urður bóndi í Gunnólfsvík, um rniðbik 19. aldarinnar, sem var talinn merk.ur maður, og kom til manns 12 börnum, sem margt manna er frá komið, bæði hérlendis og vestan hafs. Valgeir átti góðu atlæti að fagna á Grund, og þroskaðist vel, var því fremur stór vexti um fermingaraldur, og ötull drengur, sv.o sem við hann loddi alla ævi. Valgeir hafði þann starfa á hendi á Grund, frá 9 til 10 ára aldri, fram yfir fermingu, á sumrum, að sitja yfir og

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.