Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1994, Side 22
22
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994
Sérstæð sakamál
Hin laglega, rauöhæröa Bonnie
Jean Garland og ástin hennar, Ric-
hard Harris, áttu ekki margt sam-
eiginlegt. Bonnie Jean var einka-
barn forríks lögmanns, Pauls Gar-
land, og konu hans, Joan Garland,
sem var kunnur félagsfræðingur.
Áriö 1977 var örlagaríkt fyrir fjöl-
skylduna, en hún bjó í dýru einbýl-
ishúsi í Scarsdale í New York-ríki
í Bandaríkjunum og var þar talin
til sérstakra góðborgara.
Richard Harris var aö hálfu leyti
Mexíkani og £if fátæku fólki kom-
inn. Hann dró heldur ekki dul á að
hann væri ekki metorðagjarn. En
þrátt fyrir þann mikla stöðumun
sem var á unga fólkinu féll Bonnie
Jean fyrir Richard og brátt fóru
þau að vera saman.
Richard fannst i fyrstu lítið til
þess koma að Bonnie Jean vildi
eignast heimili í stíl viö þaö sem
hún var alin upp á en henni tókst
fljótlega að fá hann til að breyta
um skoöun. Richard var ekki illa
gefmn og haföi tekið þokkalegt
lokapróf í skóla. Þess vegna hvatti
hún hann til að sækja um náms-
styrk svo hann gæti hafið nám í
Yale-háskóla. Hann sótti um styrk-
inn og var mjög stoltur þegar hann
var valinn úr hópi fimm þúsund
umsækjenda.
Unnið hörðum
höndum
Richard ákvað að lesa af kappi
og sýna Bonnie Jean aö hann væri
þess virði aö hún eyddi ævinni með
honum. Þetta hefði að sumra mati
átt að verða til þess að Garlands-
fjölskyldan tæki honum opnum
örmum því hvorki Paul né Joan
Garland voru af efnafólki. Paul
hafði unnið við uppþvott í veitinga-
húsum og á bensínstöðvum til að
geta lokið námi þegar hann var
ungur. Aö því loknu hafði hann
farið til starfa á lögmannsstofu og
þar haíði hann síðar orðið einn yf-
irmannanna. Joan hafði líka orðið
að hafa mikið fyrir lífinu. Hún kom
af fátæku fólki og hafði orðið að
vinna meðan hún gekk í skóla og
reyndar allt fram til þess er hún tók
doktorspróf.
Nú virtist hins vegar hvorugt
þeirra muna fortíðina. Richard var
ekki úr „þeirra hópi“ og þau skipuðu
Bonnie Jean að hætta að umgangast
hann. En hún hélt áfram að hitta
hann á laun. Og þar kom að hún lét
hann fá lykil að húsinu svo hann
gæti læðst inn til hennar þegar for-
eldrar hennar vissu ekki tíl.
Auðvitað komst það upp en þá
reyndu foreldrar Bonnie Jean að
„heilaþvo" hana. Þau sögðu henni
að gengi hún að eiga Richard yrði
hún gerð arflaus og þau myndu
láta sem hún hefði aldrei verið til.
Bréfíð
Þau Paul og Joan sáu nú til þess
aö ungur maöur sem þau vildu að
Bonnie Jean gengi aö eiga, Robert
Lemick, væri aUtaf heima hjá þeim
þegar hún kom heim.
Arangurinn lét ekki á sér standa.
Snemma í júlí 1978 sendi hún bréf
tíl Richards þar sem sagöi meðal
annars:
„Ég get aldrei gifst þér. Foreld-
rum mínum líkar ekki við mig og
ég er viss um að þú skilur mig þeg-
svo varö skyndilega mikil breytíng
þegar niðurstaða yfirheyrslnanna
lá fyrir og hún var gerð opinber.
Þá fékk Richard mikla samúð.
Það voru ekki síst stúdentar viö
Yale-háskóla sem tóku afstöðu með
honum. Reyndar kom það þó ekki
alveg á óvart. Hann, sem veriö
hafði vondi maðurinn, varð nú
nánast hetja í augum margra, þó
ekki íbúa í Scarsdale.
Margir töluðu um yfirlýsingu
sem Richard hafði gefið lögregl-
unni skömmu eftir handtökuna en
þar sagði meðal annars á þessa leið:
„Bonnie Jean var mér allt. For-
eldrar hennar vildu ekki leyfa
henni að giftast náunga eins og
mér. Ég var ekki nógu góður fyrir
hana. Eg vildi því frekar sjá hana
deyja en verða konu annars
manns.“
Stundarbrjálsemi
borið við
Stúdentar og kennarar við Yale-
háskóla settu nú á stofn sjóð en tíl-
gangurinn með honum var að ráða
góðan verjanda fyrir Richard. Þá
var sett fram krafa um að hann
yrði látínn laus gegn tryggingu og
ýmsum til furðu var orðið við
henni. Innan mánaöar frá handtök-
unni var Richard Harris látinn laus
gegn eitt hundraö þúsund dala
tryggingu.
Þetta vakti mikla reiði sumra,
ekki síst Garlands-hjónanna, en
einnig margra í miðstéttinni og
meðal efnafólksins. Var haft á orðið
að það væri hneyksli og brot gegn
réttarvitund fólks að maður sem
sekur væri um morð væri látínn
laus gegn tryggingu.
Réttarhöldin yfir Richard Harris
hófust í júlí 1978 og reyndi verjand-
inn þá að halda því fram að skjól-
stæðingur sinn hefði verið haldinn
stundarbrjálæði þegar hann
framdi ódæðið.
„Það verður að ásaka foreldra
hennar fyrir þaö sem gerðist,"
sagði verjandinn. „Ungi maðurinn
var ekki talinn nógu góöur fyrir
þá látnu og foreldrarnir neyddu
hana til að snúa baki við honum
svo að hún gæti gifst manni sem
þau höfðu valiö handa henni. Þeir
bera ábyrgð á dauöa hennar. Ric-
hard Harris var í ójafnvægi þegar
hann svipti stúlkuna sem hann
elskaði lífi.“
Ágeðsjúkrahús
Þúsundir tóku afstööu með Ric-
hard og kröfðust þess að hann fengi
frelsi eftír að hann lyki nokkurra
mánaða dvöl á geðsjúkrahúsi en til
hennar var hann úrskurðaður á
fyrsta dómsstígi. Aðrir, álíka marg-
ir, kröfðust þess aftur að hann yrði
tekinn af lifi.
Richard Harris var skráður undir
folsku nafni á geðsjúkrahúsinu svo
tryggja mættí öryggi hans. En Paul
Garland tókst að komast að því
hvar hann var. Þá kom til svo mik-
illa átaka að senda var vistmann-
inn af sjúkrahúsinu. Það leiddi svo
aftur til þess að Paul Garland var
ásakaður um að vera hefnigjam.
„Auðvitað leita ég eftir hefnd,“
svaraði Garland. „Hann myrtí dótt-
ur mína og hefur glatað réttinum
til að lifa. Sjái lögin ekki til þess
að hann verði tekinn af lífi mun
Paul og Joan Garland.
ar ég segi að ég vil ekki gera neitt
sem særir þá. Ég hef þó ekkert á
móti þér. Mér líkar vel við þig en
það er best að viö hittumst ekki
oftar. Það yrði ekki til neins því ég
hef tekið mína ákvörðun."
Þegar Richard fékk bréfið varð
hann alveg utan við sig. En síðar
um daginn, þegar ró var farin að
færast yfir hann, fór hann heim til
Garlands-fjölskyldunnar og bað frú
Garland um að mega hitta Bonnie
Jean, þótt ekki væri nema í nokkr-
ar mínútur svo aö hann gætí kvatt
hana. Það leyfi var veitt.
Richard var hjá Bonnie Jean í
hálftíma. En hann var mjög niður-
dreginn þegar hann fór því þá hafði
hún gert honum endanlega ljóst að
henni var full alvara.
Næturheimsóknin
Þegar Bonnie Jean fór að hátta
um kvöldið var henni létt. Henni
fannst að hún heföi leyst erfitt
vandamál á skynsamlegan hátt og
þau Richard hefðu skilið í vinsemd.
Það var misskilningur. Richard
hafði alls ekki sætt sig við þessa
niðurstöðu. Langt því frá. Og
Bonnie Jean hafði gert þau mistök
aö láta hann ekki skila lyklinum
sem hún hafði látið hann fá.
Þegar kyrrð var komin á um
kvöldið fór hann að húsinú, opnaði
og læddist inn í herbergi Bonnie
Jean. Hann gekk að rúmi hennar,
strauk á henni hárið, kysstí hana
á ennið en tók síðan fram hamar
sem hann hafði haft meðferöis. Svo
sló hann hana í höfuðið. Bonnie
Jean rak upp hálfkæft óp og það'
vaktí foreldra hennar. Þeir komu á
vettvang nógu snemma til að sjá
Richard hraöa sér út úr húsinu.
Paul Garland hljóp að símanum
og hringdi á sjúkrabíl en Joan sett-
ist á rúmstokkinn hjá dóttur sinni
og tók um höfuð hennar. Nokkrum
mínútum síðar lést Bonnie Jean.
Þá var sjúkrabíllinn enn ókominn.
Heitar tilfínningar
Síðar þessa sömu nótt var Ric-
hard Harris handtekinn. Og næsta
dag var fréttin um morðið á flestra
vörum í Scarsdale. Blöðin fluttu
frásagnir af því sem hafði gerst.
Þótti hlutur Richards svo slæmur
að lögreglan varð að grípa til sérs-
takra varúðarráðstafana til þess að
vernda hann í hvert sinn sem flytja
þurftí hann til yfirheyrslna. Var
óttast að almenningur gripi til
sinna ráða og tæki hann af lífi. En
Richard Harris.
Bonnie Jean.
ég sjá til þess að hann týni þvi á
annan hátt.“
Niðurstaðan
Það kom í hlut tveggja kunnra
lögfræðinga að flytja máhð á loka-
stígi þess. Hart var deilt og um tíma
óttuðust sumir að Richard Harris
yrði dæmdur til dauða en hann
komst þó hjá svo þungum dómi.
En þótt jafnvel dómarinn viöur-
kenndi að hann heföi verið í ójafn-
vægi varð ekki fram hjá því horft
að hann haföi komið með morð-
vopnið með sér og þess vegna var
talið að tilgangur hans með nætur-
heimsókninni hefði veriö að myrða
Bonnie Jean.
Richard Harris fékk langan fang-
elsisdóm en einmitt um þessar
mundir er verið aö kanna hvort
hegðan hans í fangelsinu réttlætí
að hann verði látinn laus.
Hannvarekki
nógu fínn