Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1994, Page 35
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994
43
„Þú læðist út úr herberginu á tánum. Þá byrjar barnið að gráta. Fimm af bókunum sem þú last um uppeldi
Barnið er að gráta. Þú ert búin
að gefa honum að borða, skipta um
bleiu, klæða hann í nýju ljósbláu
náttfotin með bangsamyndunum
og vagga honum í faömi þér. Þú
sýndir honum mynd af dansandi
mús og nashymingi og lagðir hann
til svefns í litla sæta rúmið sitt við
hliðina á skemmtilegu þroskaleik-
fangi. Þú veist að hann er örþreytt-
ur. Hann nuddaði litlu augun sín
og geispaði og var næstum sofnað-
ur ofan í diskinn sinn. Þú læðist
út úr herberginu á tánum. Þá byrj-
arbarniðaðgráta.
Fimm af bókunum sem þú last
um uppeldi og umönnun ungbarna
sögðu að leyfa ætti börnum að
gráta. „Það er gott fyrir barn sem
þarf að læra fljótt hver ræður. Ekki
viltu spiila barninu með of miklu
eftirlæti. Þú lætur hann gráta um
stund. Og hann grætur og grætur."
Ekkert hrífur
Þú stendur inni í eldhúsi í skjóli
við Elektrólúx ísskápinn þinn en
gráturinn er mörg hundruð decibel
að styrkleika. Hann smýgur gegn-
um veggi, isskápa, merg og bein og
magnast upp í eyrum þér. En af
hverju grætur hann svona mikið?
Sjö bækur sem þú last um uppeldi
og umönnun ungbarna sögðu að
ekki ætti að láta barn gráta. Það
er ekki gott fyrir böm að gráta. Þau
fá þá tiiflnningu að engum þyki
vænt um þau. Viltu að drengurinn
haldi að þér standi á sama? Skiptir
hann þig kannski engu máli?
Þú ferð aftur inn til hans og tekur
hann upp. Þú segir honum að þú
elskir hann. Hann skeytir því engu.
Þú skoðar fótin hans. En ekkert
stingur eöa þrýstir. Bleian er
skraufaþurr sem þerripappír.
Hann hækkar róminn. Kannski er
honum of heitt. „Er þér heitt?“ seg-
ir þú. En hann bara heldur áfram
að gráta. Kannski er honum kalt.
Þú þreifar á litlu höndunum hans
sem eru heitar en samankrepptar.
Hann hækkar enn róminn.
Kannski er hann svangur. Þú ferð
með hann inn í eldhús. Það hefur
ekkert að segja. Hann slær frá sér
pelanum og hækkar grátinn þegar
þú réttir honum uppáhaldskökuna
hans.
Yfirgnæfir bílana
Kannski leiðist honum. „Viltu
koma út í gönguferð?" segir þú biðj-
andi. Þú treður honum háöskrandi
Á læknavaktinni
í peysu og buxur. Hann berst á
móti þegar þú setur hann í vagn-
inn. Hann heldur áfram að gráta
og virðist ekki hafa neinn áhuga á
gönguferð með þér. Hann grætur
svo hátt að þú heyrir varla í bílun-
um eða þremur herþotum sem
fljúga lágt yflr borginni. Þrír pönk-
arar með nælur í eyrunum og
hanakamb ganga fram hjá og líta
ásakandi á þig. Þú sérð spuming-
una í augum þeirra. „Æfli hún
misþyrmi barninu? Er þetta kona
sem pínir barnið sitt með nálum
og heitu straujárni og fer með það
sárþjáð út á göngu? Neitar hún
barninu um stappaða banana og
súrmjólk? Þú roðnar, skammast
þín og herðir á þér sem mest þú
mátt. Kannski hættir hann að gráta
ef þú ferð hratt yflr. En ekkert
dugar.
Gráturinn úr vagninum hækkar
um nokkur hundruð decibel. Þú
fyllist örvinglan. Kannski er hann
veikur. Þú hraðar þér heim. Hann
er örugglega hættulega veikur. Þú
kastar þér á símann og hringir í
heilsugæslustöðina. Hjúkrunar-
fræðingur svarar. „Hvað er að?“
segir hún þreytulega þegar hún
heyrir hver þetta er. Þú ert búin
að tala við þessa konu nokkrum
sinnum áður. Þú hringdir til að
segja henni að drengurinn hefði
sofið of lengi einn daginn.
Og enn grætur barnið
Daginn eftir hringdir þú vegna
þess að hann vildi ekki að þú
klæddir hann í rautt. Einu sinni
fannst þér hann fjandsamlegur
gagnvart bangsanum sínum.
„Hann grætur," segir þú ákveðið.
„Grætur?" segir hún. „Já, grætur,"
segir þú. „En það gera börn,“ segir
hún. „En af hverju," segir þú. Allt
í einu er eins og hún missi stjóm
á sér. „Æfli þú sért ekki að gera
hann vitiausan eins og mig.“ Þú
skellir á og veitir því eftirtekt að
íbúðin er einkennilega hljóð. Þú
htur á drenginn. Hann er sofnaður
í vagninum sínum. Yfir honum er
óendanlegur friður og ró.
Þú lætur faliast í stól og ferð að
gráta. En það er enginn sem huggar
þig. Enginn býður þér upp á ban-
ana eða pela, gáir að því hvort fötin
passa eða þrengja að þér. Þú ert
alein í öllum heiminum og það
stendur öflum á sama.
Landsbókasafn íslands
- Háskólabókasafn
auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:
Staða forstöðumanns kerfisþjónustu (kerfisbókavarðar). Á vegum
kerfisþjónustu er rekstur tölvukerfisins Gegnis og annarrar tölvu-
þjónustu I safninu. Krafist er sérmenntunar í bókasafnsfræði, með
áherslu á tölvurekstri í bókasöfnum, ásamt starfsreynslu á því sviði.
Staða deildarstjóra í skráningardeild sem hefur umsjón með skrán-
ingu íslenskra rita og útgáfu íslenskrar bókaskrár. Krafist er sér-
menntunar í bóksafnsfræði og starfsreynslu við skráningarstörf.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, merktar landsbókavörður, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 12. desember 1994.
Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn
18. nóvember 1994
^ Kosningaskrifstofa ^
opnuð
Vegna prófkjörs framsóknarmanna í
Reykjaneskjördæmi verður kosninga-
skrifstofa mín opnuð í dag, laugardag,
kl. 21.00 að Nýbýlavegi 14-16, Kópa-
vogi. S. 644690 - 644691. Fax 644692.
Allir stuðningsmenn velkomnir.
Siv Friðleifsdóttir
V J
Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Hjaltabakki 28,2. hæð f.m„ þingl. eig. Guðmundur Þorkelsson, gerðarbeið- endui- Byggingarsjóður tíkisins, Hús- félagið Hjaltabakka 18-32, Kreditkorí hf„ Lífeyrissjóður verslunarmanna og íslandsbanki hf„ 23. nóvember 1994 kl. 15.30.
Aðalstræti 9,1,864% götuh., hl. kj. og yfirbyggingarréttur, þingl. eig. Ragn- ar Þórðarson, gerðarbeiðendur Gjald- heimtan í Reykjavík og íslandsbanki hf„ 24. nóvember 1994 kl. 16.00.
Hverfisgata 102, hluti, þingl. eig. Al- bert Eiðsson, gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður ríkisins, 23. nóvember 1994 kl. 14.00.
Hvirfill, Mosfellsbæ, þingl. eig. Bjarki Bjamason, gerðarbeiðandi Skarð hfi, 23. nóvember 1994 kl. 10.30.
Bergþórugata 29, risíbúð t.v„ þingl. eig. Gylfi Reykdal, gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, 24. nóv- ember 1994 kl. 16.30.
Mávahbð 19, hluti, þingl. eig. Jón Rafii Jóhannsson, gerðarbeiðendur
Frakkastígur 20, hluti í íbúð á 1. hæð merkt 0101, þingl. eig. Viken Samúels- son, gerðarbeiðepdur Byggingarsjóð- ur ríkisins og Islandsbanki hf„ 24. nóvember 1994 kl. 14.00. Féfang-ijármögnun hf. og Lífeyris- sjóður starfsmanna ríkisins, 23. nóv- ember 1994 kl. 13.30.
Skipholt 37, hluti, þingl. eig. Hrafhinn hf„ veitingahús, gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, 24. nóv- ember 1994 kl. 15.00.
Funafold 23, þingl. eig. Haraldur Bjömsson, gerðarbeiðendur Bygging-
arsjóður ríkisins, Gjaldheimtan í Reykjavík og tollstjórinn í Reykjavík, 23. nóvember 1994 kl. 16.30. Skólavörðustígur 23, hluti, þingl. eig. Borgarfell hf„ gerðarbeiðandi Gjald- heimtan í Reykjavík, 24. nóvember 1994 kl. 14.30.
Grasarimi 7, þingl. eig. Pétur Ámi Carlsson, gerðarbeiðandi Gjaldheimt- an í Reykjavík, 23. nóvember 1994 kl. 17.00.
Stigahh'ð 22, 3. hæð t.h„ þingl. eig. Byggingarféíag verkamanna svf„ gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður versl- unarmanna og Sameinaði lífeyrissjóð- urinn, 23. nóvember 1994 kl. 14.30.
SÝSLUMAÐURINNIREYKJAVÍK k