Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1994, Page 46
54
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994
Bifhjólamenn
hafa enga heimild
til að aka hraðar
en aðrir!
élilBF**
MEGABUÐ
Skeifunni 7 ■ Sími 811600
Stærsta hugbúnaðarverslun landsins opnar
í Skeifunni 7, ídag.
Hugbúnaður og fylgihlutir fyrir alla
aldurshópa.
Pttntunarsfml
811600
Verið velkomin!
PC-Rom
leikir
kennsla
PC3.5
alfræði
tónlist
WIN
viðski pti
flug
MAC
[nteractive
entertainment
Köjlóttu efnin vinsælu, flúnel, einlit, endurskinsbútar
fyrir fatnaó o.fl. og nýtt efni utan um silfurmuni
svo ekki falli á þá.
Opið mánudaga til föstudaga kl. 9-19, laugardaga frá
1. sept. til 1. júní kl. 10-14.
VIRKA
Mörkinni 3, sími 687477
(við Suðurlandsbraut)
Fréttir
Formaður FFF hitti samgönguráðherra:
Ég er jaf n bjartsýnn
og ráðherra á lausn
- er ósáttur við fory stu ASÍ
Jón Grímsson, varaformaður
Frjálsa flugmannafélagsins, átti fund
með Halldóri Blöndal samgönguráð-
herra í gær þar sem þeir ræddu um
stööu deilunnar milli Atlanta og FÍA,
Félags íslenskra atvinnuflugmanna.
„Ég lýsti fyrir ráðherra þeirri
skondnu stööu sem upp er komin,
að við værum komnir í sáttahlutverk
núorðið. Ég er eiginlega jafn bjart-
sýnn og Halldór á að deilan leysist.
Það þarf ekki mikið til þess, að
minnsta kosti til bráðabirgða," sagði
Jón.
Jón vildi koma því á framfæri að
hann væri gáttaður á framkomu for-
ystumanna ASÍ og hvernig þeir
„töluðu niður til“ starfsfólks Atlanta.
„Þeir leika tveimur skjöldum með
„haltu mér - slepptu mér“ stílnum.
Vissulega bauð forseti ASÍ fram
málamiðlun þegar deila var uppi á
milli FÍA og FFF, sem er ekki leng-
ur. En það er vonlaust að treysta
manni til að vera sáttasemjari sem
tekur óskoraða afstöðu með öðrum
aðilanum þótt hann hefði sagt að
hann ætlaði sér ekki að skipta sér
Halldór Blöndal samgönguráöherra á fundi með Jóni Grímssyni, varafor-
manni Frjálsa flugmannafélagsins, í hádeginu í gær. Þeir fóru yfir stöðu
mála í deilunni milli FÍA og Atianta. DV-mynd GVA
af deilunni. Þetta kallast að gangá á treysta þessum mönnum til að
bak orða sinna. Ég myndi ekki pumpa í reiðhjólið mitt.“
Flórída:
Næsta námskeið hefst mánudaginn 21. nóv. kl. 17.50 og því lýkur 21. des.
Námskeiðið er að verða fullbókað. Hafið því samband sem fyrst og látið
skrá ykkur. Aukin ökuréttindi gefa meiri atvinnumöguleika í nútíma-
þjóðfélagi. Verð fyrir námskeiðið er mjög hagstætt, kr. 94.500,- stgr.
Við bjóðum mjög góð greiðslukjör með allt að 24 mánaða greiðsludreifingu
(fyrsta greiðsla í febrúar 1995).
Athugið: Breytingar á prófum og námsefni eru jafnvel fyrirhugaðar eftir
ármót, til samræmis við nýjar reglur og auknar kröfur.
Sláið til fyrir jólin.
Sjáumst á námskeiði hjá Okuskóla S.G.
SiqurÓar Gíslasonar
AUKIN OKURETTINDI HF.
Islendingur heiðraður
fyrir að bjarga mannslíf i
Anna Bjamason, DV, Flórída:
Ungur Islendingur, Rúnar Sigurðs-
son, búsettur í Sarasóta, Flórída, var
nýlega heiðraður fyrir að bjarga
manni frá drukknun.
Tildrögin voru þau að Rúnar var á
bát sínum með þremur sonum sín-
um, sjö, tíu og ellefu ára, og móður
sinni, Jónu, á Lido Key sem er
skammt úti fyrir strönd.Sarasóta. Þá
bar þar að ungan bandarískan mann
sem sagðist vera með bilað sjómótor-
hjól. Bað hann Rúnar að sigla með
sig smáleið til þess að hann gæti
Hvað er verið að
í kvikmyndahúsunum?
■ ■ ■
9 SS
aiifinTORG
9 9*1 7 • 0 0
hagnýtar upplýsingar þegar þér hentar
Verð aðeins 39,90 mínútan.
komið hjólinu sínu í viðgerð. Rúnar
varð við ósk mannsins og fór móðir
hans með í bátnum en drengirnir
urðu eftir á ströndinni.
Þegar búið var að koma sjóskíða-
hjóhnu í land og Rúnar lagði frá varð
móður Rúnar litið til lands og sér
hún þá hvar farþegi þeirra liggur á
grúfu í sjónum algerlega hreyfingar-
laus. Hún kallaði á Rúnar og hann
stakk sér í sjóinn og synti að mannin-
um og kom honum í land. Hóf Rúnar
þegar lífgunartilraunir því maður-
inn virtist dáinn.
Jóna hrópaði hástöfum á hjálp og
kom þar að fólk, m.a. læknir sem
átti heima þar skammt frá. Einnig
var hringt í neyðarbílinn 911. Rúnar
og læknirinn gátu haldið lífsmarki
með manninum þangað til björgun-
arbíllinn kom og flutti hann á sjúkra-
húsið.
Var maðurinn mjög langt leiddur
en hann hafði fengið raflost er hann
var að hífa hjóhð sitt í land með þar
til gerðri rafmagnslyftu. Þess vegna
féll hann meðvitundarlaus í sjóinn.
Hann hefði örugglega drukknað ef
Jóna hefði ekki verið með í bátnum
með Rúnari sem brá svona skjótt við.
Eins og áður sagði var maðurinn
fluttur á sjúkrahús í Sarasóta og vildi
svo til að eiginkona Rúnars, Hafdís,
sem er hjúkrunarfræðingur, tók á
móti sjúklingnum og kom honum til
fullrar heilsu. Þannig áttu þau hjónin
sannarlega sinn þátt í því að þessi
32ja ára gamli Bandaríkjamaður
missti ekki lífið að þessu sinni.
Fyrir þetta afrek var Rúnar heiðr-
aður af Sarasótaborg nú nýlega
ásamt lögreglu og slökkviliðsmönn-
um sem unnið höfðu vasklega að
björgun mannslífa.
Formaöur FÍA svarar Sigurði Líndal:
Þetta er pólitík
íprófessomum
„Ég hafna því alfarið að FÍA sé að
bijóta lög um mannréttindi. Ég lít
svo á að Sigurður Líndal hafi verið
meira á þessum fundi sem pólitíkus-
inn Sigurður Líndal en lagaprófess-
orinn. Það er alrangt að við höfum
verið að krefjast lögsögu yfir mönn-
um utan stéttarfélags. Við höfum
bara krafist lögsögu yfir okkar
mönnum," sagði Tryggvi Baldurs-
son, formaður Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna, FIA, um ummæh
Sigurðar Líndals lagaprófessors að
FÍA væri að bijóta mannréttindi í
deilunni við Atlantaflugfélagið.
„Einstaka flugmenn Fijálsa flug-
mannafélagsins kvörtuðu yfir því að
við værum að brjóta mannréttindi á
þeim. Ég held að forsvarsmenn At-
lanta séu að bijóta mannréttindi á
þessum sexmenningum okkar með
því að sætta sig ekki við niðurstöðu
Félagsdóms og hleypa þeim að vinnu
til jafns við aðra starfsmenn," sagði
Tryggvi.