Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1994, Síða 50
58
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994
Afmæli
Jón D. Jónsson
Jón Jónsson verkamaður, Mið-
túni 7, Höfn í Hornafirði, verður
áttræður á morgun.
Starfsferill
Jón fæddist á Fagranesi á Langa-
nesi og ólst þar upp. Hann flutti í
Ytra-Lón á Langanesi árið 1930 þar
sem hann stundaði fjárbúskap með
föður sínum til 1956. Þá hætti Jón
búskap og flutti til Þórshafnar. Þar
starfaði hann við Hraðfrystihús
Þórshafnar til 1961. Þá flutti hann
til dóttur sinnar á Höfn í Horna-
firði og hefur átt þar heima síðan.
Á Höfn starfaði Jón fyrst hjá Fisk-
iðju KASK og síðan hjá Borgey hf.
þar sem hann starfar enn í fullri
vinnu.
Fjölskylda
Dóttir Jóns er Júlía Imsland,
fréttaritari DV á Höfn í Hornafirði,
gift Ragnari Imsland. Börn Júlíu
og Ragnars eru Ómar Imsland,
kvæntur Brynju B. Bragadóttur og
eiga þau fjögur börn, Ragnar, Birgi,
Gunnar Ölvi og Arnar; Jóna Ims-
land, gift Magnúsi Daníelssyni og
eiga þau tvö börn, Breka og Töru
Þöll; Sveinbjörn Imsland, kvæntur
Svövu Bjarnadóttur og eru börn
þeirra Daníel, Þór, Þyrí og Þórdís;
Þórdís Imsland, gift Sívari Árna
Scheving og eiga þau tvö börn, Jó-
hönnu Júhu og Atla Frey.
Systkini Jóns voru Sigurður
Jónsson sem lést 1987, var kvæntur
Guðrúnu Ólafsdóttur; Margrét
Jónsdóttir sem lést átta ára 1915.
Foreldrar Jóns voru Jón Jónas-
son, f. 18.12.187.8, d. 10.7.1968, bóndi
í Fagranesi og í Ytra-Lóni á Langa-
nesi, og k.h., Sigríður Sigurðardótt-
ir, d. 1915.
Jón Jónsson.
Rúnar Geirmundsson
Rúnar Geirmundsson útfararstjóri,
Fjarðarási 25, Reykjavík, er fertug-
urídag.
Starfsferill
Rúnar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Árbæjarhverfinu. hann
stundaði nám í bólstrun hjá TM-
húsgögnum í Síðumúla 1976-80,
lauk sveinsprófi og er bólstrunar-
meistarifrál982.
Rúnar starfaði við útfararþjón-
ustu hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur
á árunum 1983-90 en hefur rekiö
eigin útfararþjónstu frá 1990.
Rúnar situr í stjórn Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur frá 1992, er for-
maður stjórnar heilsugæsluum-
dæmis Austurbæjar nyrðra, situr í
samstarfsráði heúsugæslunnar í
Reykjavík, er félagi í Karlakórnum
Fóstbræðrum, Kór Islensku óper-
unnar og í Þjóðleikhúskórnum.
Fjölskylda
Rúnar kvæntist 16.6.1974 Kristínu
Sigurðardóttur, f. 14.11.1954, sjúkra-
liða. Hún er dóttir Sigurðar Gunn-
arssonar, bílstjóra í Reykjavík, og
Elínar Magnúsdóttur húsmóður.
Börn Rúnars og Kristínar éru Sig-
urður, f. 19.3.1974, ogElís, f. 15.11.
1981.
Rúnar er næstyngstur átta systk-
ina.
Foreldrar Rúnars: Geirmundur
Guðmundsson, f. 28.8.1914, verka-
maður í Reykjavík, og Lilja Torfa-
dóttir, f. 26.1.1920, d. 18.12.1991,
verkakona í Reykjavík.
Rúnar er erlendis á afmæhsdag-
inn.
Rúnar Geirmundsson.
mm
Menning
Neisti semverð-
ur aldrei að báli
Gamah maður stendur við færiband í flöskumóttöku
og lætur hugann reika, spinnur upp sögur sér til gam-
ans til þess að stytta sér stundir í leiðigjarnri vinnu
um leið og hann snýr á óþægilegar minningar. Flö-
skurnar renna fram hjá augum mannsins, allar eins,
hkt og þau fjölmörgu og htlausu ár sem maðurinn
hefur lifað fjarri heimabyggð sinni. Þessi upphafssena
í nýjustu bók Páls Pálssonar, Vesturfaranum, er ró-
lyndisleg og lætur htið yflr sér eins og Stephan, gamli
maðurinn sem stendur við færibandið. Hann er aðal-
persóna bókarinnar, landflótta Tékki sem hefur sest
að í Danmörku ásamt Maríu, eiginkonu sinni. Þangað
koma hjónin árið 1968, upphaflega til að leita einkason-
arins Jans sem ekkert hefur spurst til síðan í innrás
Sovétmanna í Tékkóslóvakíu. Þau snúa aldrei aftur
heim, lifa árum saman rólegu og fábreyttu lífi í Kaup-
mannahöfn og þegar sagan hefst er María orðin veik.
Þegar hún deyr eftir erfið veikindi pakkar Stephan
ofan í ferðatösku og býr sig undir að flytja til systur
sinnar í Ameríku. En margt fer öðruvísi en ætlað er
og víst að þeir atburðir sem Stephan upplifir í lok
bókar eru ekki í ætt við það tilbreytingarsnauða líf
sem hann hefur lifað síðustu árin.
Þannig er söguþráðúrinn í stuttu máh í Vesturfaran-
um sem er ósköp hlý saga af hugljúfu fólki. Stephan
er geðþekkur og þægilegur maður sem vih engum illt
gera og gleðst yfir htlu eins og barn. Hann er stundum
dáhtið utan við sig og gleyminn og sem slíkur höfðar
hann oft til samúðar lesandans. Einnig er samband
þeirra hjóna virkilega ástúðlegt og notalegt. En nota-
legheitin bæta ekki upp þá gaha sem eru á yfirborðs-
kenndri persónusköpun. Persónumar era thþrifahtlar
og lítt eftirminnhegar kannski fyrir þá sök að höfund-
ur hættir sér ekki undir viðkvæmt yfirborðið þar sem
sárar minningar krauma. Þess í stað er löngu máh
eytt í að lýsa bjargarleysi Stephans við hinar ýmsu
aðstæður og óþæghega mikið nostrað við smáatriði,
klósettferðir, matartilbúning o.fl. Það má vel leiða lík-
ur að því að höfundur notist við sthbrögð af þessu
tagi til að leggja aukna áherslu á einhæft líf hans og
er það ágætt svo langt sem það nær. A.m.k. fer þaö
alls ekki fram hjá lesandanum að líf Stephans hefur
hvorki einkennst af spennu né hraða hin síðustu ár.
En ofuráhersla höfundar á dund og dútl frá degi th
dags kemur í veg fyrir að sá neisti sem lifir í textanum
verði að báh. M.ö.o: í textanum er ýjað að ýmsu öðru
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir
en hversdagslífi aðalpersónunnar, áhrifamiklum at-
burðum og atvikum sem höfundur vinnur því miður
ekki næghega vel úr. Varfærið tipl hans í kringum
sársaukafulla atburði, eins og t.d. dauða hjartfólgins
ástvinar, veldur vonbrigðum og umkomuleysi Step-
hans og bláeygð sýn á veruleikann kemur manni
stundum í opna skjöldu. Maður skyldi ætla að maður
sem þarf að flýja ættland sitt búi yfir djúpstæðari
skilningi á lífinu en raun ber vitni. Lesandinn fær
t.a.m. innsýn í nöturlegt líf vændiskonu sem býr í
sama húsi og Stephan en grimmdin og niöurlægingin
sem umlykur líf hennar fær allt of snubbótta af-
greiðslu með þeim afleiðingum að konan verður fjar-
læg og óskiljanleg. Og þó Stephan sé fullur samúðar
með þessari konu, sem er í takt við hans ljúfu per-
sónu, eru viðbrögö hans ekki sannfærandi. Hann er
einum of gáttaður og saklaus, hann sem hefur búið
rétt við Istedgötu árum saman! Höfundur leggur upp
með þrusugóða hugmynd og heldur manni vissulega
við efnið allt th loka en útkoman er þó fremur yfir-
borðsleg. Hér er spennandi efni lagt undir, efni sem
drukknar í nosturslegum stílnum.
Vesturfarinn
Páll Pálsson
Forlagið 1994
Til hamingju með
afmælið 19. nóvember
Vilhj álmur Sigfússon,
Sundabúð 2, Vopnafirði.
Ásgeir Sigurj ónsson,
Víðimel 21, Reykjavik.
Jón Ingibjartsson,
Mðtúni 3, Keflavik.
ÁrniH. Jónsson,
Suðurgötu 12,Keflavík.
Þórarinn Björnsson,
fyrrv. timbur-
kaupmaður,
Flókagötu 51,
Reykjavík.
Eiginkona
hans er Kristín
H. Hahdórs-
dóttir sjúkra-
þjálfari.
Þaueruað
heiman.
MagnhildE. Jacobsen,
Flétturima 25, Reykjavík.
Sigurður Jónsson,
Lyngbakka4, Neskaupstað.
Guðbjörg Valdimarsdóttir,
Enghíjallal9,
Kópavogi.
Eiginmaður
hcnnar er Guð-
mundurRögn-
valdsson.
Þau takaámóti
gestumí
Iþróttahúsinu
viðDigranes-
heiði 1 Kópa-
vogi (Hákoni digra) frá kl. 17-20 á
afmælisdaginn.
80ára
Blómey Stefárisdóttir,
Hrafnistu, Reykjavik.
Jónína Gísladóttir,
Skúlagötu 54, Reykjavík.
Marta Magnúsdóttir,
Austurbrún 6, Reykjavík.
Helga Bjarnadóttir,
Beinárgerði, Vallahreppi.
Halla S. Jónatansdóttir,
Laufásvegi 25, Reykjavik,
Karl Jóhannsson (á afmæli 21.11.),
Kringlumýri 1, Akureyri,
Hann tekur á móti gestum laugar-
daginn 19.11. i Lóni v/Hrísalund frá
kl. 15-19.
Edda Árnadóttir
hjúkrunarfræðingur.
Hringbraut79, Reykjavík.
Ólafur K. Óskarsson,
Óðinsgötu 12, Reykjavík.
Elísabet Bjarnadóttir,
Sefgörðum2, Seltjarnarnesi.
Haraldur Friðriksson
bakarameist-
ari,
Sunnubraut 18,
Kópavogi.
Eiginkona
hanserÁsrún
Davíðsdóttir,
söngkennariog
skrifstofu-
stjóri.
Þau taka á móti gestum á afmæhs-
daginn frá kl. 17-19 í lionsheimil-
inu Lundi við Auðbrekku í Kópa-
vogi.
Jórunn Jörundsdóttir,
Sævangi 45, Hafnarfirði.
Kristján B. Þórarinsson,
Laufvangi 14,Hafnarfirði.
Hann tekur á móti gestum í félags-
heimili lögreglumanna í dag frá kl.
Í5-Í7.
Eiríkur Örn Kristjánsson,
Lerkilundi 4, Akureyrí.
60 ára
Þórir Kristinsson múrari,
Rjúpufehí 33, Reykjavík.
Eiginkona hans er Álfheiður Ei-
ríksdóttir.
Þau taka á móii gestum á heimili
dóttur sinnar að Funafold 77 eftir
kl. 18 á afmælisdaginn.
Bjarni Kristjúnsson,
Vahargötu 8, Þingeyri.
Björgvin Hólm,
Nýlendugötu 14, Reykjavík.
María Margrét Einarsdóttir,
Kleppsvegi 122, Reykjavík.
Vilhelmína I. Eiríksdóttir,
Lækjarbergi 29, Hafnarfirði.
Jakob Gunnarsson,
Fögrukinn 4, Hafnarfirði.
Óskar Óli Jónsson,
Grundarghi, Reykdælahreppi.
Bjarni Jónas Jónsson,
Uröarbraut24, Blönduósi.
Kamilla Suzanne Kaldalóns,
Flókágötu 43, Reykjavik.
Ragnheiður A. Gunnarsdóttir,
Vogagerði 4, Vogum.
Daði Örn Jónsson,
Flúðaseli 82, Reykjavík.
láttu ekki of mikinn hraða A
VALDA ÞÉR SKAÐA!