Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Page 32
32
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
- Vá, trompet. Sendi Jói frændi mér
gjöf líka?
- Heyrðu, pabbi, hefur þú nokkuð séð
jólasveininn?
- Jólatréð er þarna undir!
Bridge
Ólympíuskákmótið í Moskvu:
Leikflétta
Garri Kasparov, PCA-heimsmeistari, og Florencio Campomanes, forseti FIDE, hafa báðir hag af óiympíumótinu í
Moskvu en skáklistin sjálf er orðin aukaatriði.
Kasparovs og
Campomanesar?
Ólympíuskákmótið hófst í Moskvu
sl. fimmtudag og stendur til 15. þessa
mánaðar. Þetta er 32. ólympíumótið
í skák en fyrsta opinbera ólympíu-
skákmótið var haldiö í London árið
1927. Þetta er í annað sinn sem
ólympíumót fer fram í Moskvu - 12.
mótið var haldið þar 1956. íslenska
sveitin náði þar ekki að komast í „A-
úrslit“ en varð í 2. sæti í B-flokki, á
eftir Austurríkismönnum en fyrir
ofan þjóðir eins og Svía, Finna, Hol-
lendinga, Þjóðverja, Frakka og Norð-
menn.
Mótið nú átti aö fara fram í Þessal-
óniku í Grikklandi en eftir manna-
skipti í grísku ríkisstjórninni var
ekki staðið við fyrirheit og mótið var
blásið af. Þetta var mikiö áfall fyrir
Alþjóðaskáksambandið, FIDE, með
Campomanes forseta fremstan í
flokki. Argentínumenn voru um
tíma inni í myndinni að taka mótið
að sér en á síðustu stundu kom Garrí
Kasparov eins og frelsandi engill og
samningar tókust um að mótið færi
fram í Moskvu.
Vellauðugur Rússi, Andrej Mak-
arov, sem m.a. er formaöur nefndar
sem berst gegn skipulagðri glæpa-
starfsemi í Rússlandi, hefur tekið að
sér fjárhagslega ábyrgð fyrir mótinu
en vinfengi mikið er með þeim Kasp-
arov. Þegar ritari þessara lína spurði
Kasparov að þvi á dögunum hvort
ekki væri rétt með farið aðhann, eða
vinir hans, hefðu tekið að sér að sjá
um ólympíumótið, svaraöi Kasparov
af sinni alkunnu hógværð: „Þú getur
sagt að það sé ég.“
En hvers vegna er Kasparov sem
tiltölulega nýlega sagði sig úr lögum
við FIDE og stofnaði sín eigin samtök
atvinnuskákmanna, PCA, að koma
FIDE til bjargar? Fram að þessu hafa
ekki verið átakanlega miklir kær-
leikar meö þeim Campomanesi.
Margir telja að hér sé um snilldar-
lega leikíléttu Kasparovs og Campo-
manesar að ræða. Kasparov sjái fram
á að PCA samtökin eigi ekki bjarta
framtíð fyrir höndum og að skákmál-
um sé best fyrir komiö hjá FIDE. í
samkomulagi hans um að taka að sér
Umsjón
Jón L. Árnason
framkvæmd ólympíumótsins felist
vilyrði frá FIDE um að hann tefli
heimsmeistaraeinvígi - sem heims-
meistari - við sigurvegara áskor-
endaeinvígja FIDE. Þannig yrði unnt
að sameina FIDE og PCA á nýjan
leik. Jafnframt hefur stigalegu skák-
banni Kasparovs og Shorts nú verið
aflétt. Nafn Kasparovs er aftur komið
á stigalista FIDE og talan 2805 aftan
við.
Sömu raddir herma að Campoman-
es hyggi enn á framboð til forseta
FIDE, þrátt fyrir að hann hafi áður
gefið út þá yfirlýsingu að nú myndi
hann hætta. Með samkomuiaginu
viö Kasparov felist stuðningur rúss-
neska skáksambandsins og fleiri
skáksambanda Sovétlýðveldanna viö
framboð Campomanesar. Ef á þessu
má byggja snýst ólympíuskákmótið
í Moskvu í raun og veru um valda-
baráttu og tilfæringar en skáklistin
sjálf er orðin aukaatriði.
Mótið fer fram á Hótel Kosmos,
sem reist var fyrir ólympíuleikana
1980. Þetta er gríðarlega stórt hótel,
meö 1100 herbergjum og þar er allt
til alls. Að sögn Kasparovs þurfa
skákmenn ekki að hafa áhyggjur af
lélegu fæði eða að þjónustan verði
þunglamaleg. „Þetta er túrista-vél,“
sagði Kasparov. Hann sagöi aö ör-
yggisgæsla yrði afar ströng en bætti
við að ef skákmenn færu út af hótel-
inu væri það á þeirra ábyrgð. Það á
eflaust einnig við um skemmtigöng-
ur í „garði efnahagslegra framfara",
gegnt hótelinu.
Islenska skáksveitin verður þannig
skipuð:
1. Jóhann Hjartarson, 2585 Elo-stig.
2. Hannes Hlífar Stefánsson, 2560
stig.
3. Margeir Pétursson, 2540 stig.
4. Jón L. Árnason, 2525 stig.
5. Helgi Ólafsson, 2520 stig.
6. Helgi Áss Grétarsson, 2450 stig.
Liðsstjóri verður Áskell Örn Kára-
son og fararstjórar Þráinn Guð-
mundsson og Andri Hrólfsson.
Gunnar Eyjólfsson leikari, sem fylgt
hefur sveitinni á siöustu tvö ólymp-
íumót, á því miöur ekki heimangengt
nú, en sveitarmenn munu þó eflaust
nýta sér aðferðir hans við að efla ein-
beitingu, eins og kostur er.
Þetta er í fyrsta sem íslendingar
senda skáksveit á ólympíumót, sem
eingöngu er skipuð stórmeisturum.
Róðurinn verður þó vafalítið þyngri
en nokkru sinni fyrr, m.a. vegna þess
að Rússar munu eiga tvær sveitir
meðal keppenda með Kasparov á 1.
borði í annarri en Karpov í hinni.
Þá munu þjóðir Austur-Evrópu og
fyrrverandi Sovétlýðvelda íjölmenna
með alla sína sterkustu menn og
flótti sterkra stórmeistara frá lýð-
veldunum til annarra landa hefur
einnig aukist. Þannig eru ísraels-
menn t.a.m. komnir með afar öfluga
sveit. Athyglisvert er að Judit Polgar
mun tefla á 1. borði með sveit Ung-
verja en hún hefur sett það skilyrði
að hún fái að tefla allar skákirnar,
standi hugur hennar til þess.
íslenskum skákmönnum hefur í
seinni tíð oft tekist betur í sveita-
keppnum en sem einstaklingar.
Menn munu leggjast á eitt um að ná
frambærilegum árangri í Moskvu en
fyrirfram gera menn sér ekki allt of
háar vonir. Líklegt er að sveitin sé
u.þ.b. í 20. sæti á styrkleikalistanum,
miðað við meðalstig á íjórum efstu
borðum. Rússland „A“ er að sjálf-
sögðu með sterkasta liðið á pappír-
unum; Rússland „B“ kemur þar á
eftir, síðan sveit Bandaríkjanna,
Úkraínu og Ungveijalands.