Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Síða 33
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
33
Jóladagatölin eiga sér langa sögu:
Hefur safnað jóla-
dagatölum í áratugi
- rekur nú safn á heimili sínu í Danmörku
Þegar jólin nálgast veröa allir börn
aftur og vilja halda í gömlu góöu siö-
ina sem þeir ólust upp við. Sumir eru
meira að segja svo fastheldnir á jóhn
að engu má breyta frá ári til árs.
Aðrir leyfa jólunum að taka siná-
vægilegum breytingum. Eitt er það
sem hefur tilheyrt jólunum í gegnum
tíðina en það eru jóladagatölin fyrir
börnin. Flest höfum við einhvern
tíma átt jóladagatal en í dag eru það
jóladagatöl með súkkulaðimolum
sem eru hvað vinsælust. Og nú ættu
börnin að vera búin að opna þrjá
glugga á dagatalinu sínu.
Árið 1940 var það gjarnan mikil
stund þegar fjölskyldufaðirinn vakti
fram undir morgun aðfaranótt 1. des-
ember til að klára jóladagatal sem
þá var ævinlega heimagert. Pabbam-
ir reyndu gjaman að búa til hreyfan-
legt dagatal og oft var jóladagataliö
smiðað.
Hendir engu
Sennilega era fáir í heiminum sem
hafa haldið til haga jóladagatölum
sínum en svo vill þó til að kona ein
í Danmörku, Tove Tendal, hefur
safnað þeim og komið upp safni á
heimili sínu.
Sagt er að jóladagatöl hafi verið
fyrst gerö í kringum 1870 þegar hjóla-
smiður á Sjálandi tók upp á því að
skreyta hjól hjá sér með 24 ljósum
og síöan tendraði hann eitt ljós á dag
fram til jóla. Líklegast urðu þó daga-
tölin almenn um aldamótin. Fátæk-
asta fólkiö bjó til jóladagatal með
blikkdós og 24 steinum. Börnin áttu
að taka einn stein úr dósinni fram
að jólum. Aðrir foreldrar fundu upp
á því að stinga 24 eldspýtum í stóra
kartöflu og síðan var ein eldspýta
tínd af á degi hveijum til jóla. Þeir
sem voru hugmyndaríkir skreyttu
gjarnan kartöfluna og gerðu grís úr
Hér má sjá þrjú mismunandi daga-
töl. Efst er Betlehem-dagatal frá ár-
inu 1973. Þá er dagatal sem er eins
og bjálkahús frá árinu 1950 og neðst
er jólasveinaskóli frá árinu 1961.
henni. Þá voru eldspýtumar líka lit-
aðar til að gera þær sparilegri.
Þá þekktist einnig að pakka pipar-
kökum inn í pappír og binda þráð 1,
piparkökunum var síðan komið fyrir
í sultukrukku og ein borðuð á degi
hveijum til jóla. Aðrir bjuggu til stór-
an jólasvein sem hélt á 24 bandsnúr-
um sem leiddu aftur á bak þar sem
leyndust litlar gjafir.
Jóladagatöl
með gluggum
Það hefur verið í kringum 1930 sem
jóladagatöl, lík og við þekkjum, urðu
til. Þessi með opnanlegu gluggum. í
gluggunum mátti finna sögu eða
teikningu fyrir hvem dag. Þessi
dagatöl þróuðust síðan mjög á næstu
ámm og urðu margvísleg. Einnig
Tove Tendal hefur safnað ýmsum hlutum að sér frá því hún var barn að
aldri. Auk þess hefur fólk gefið henni margs konar skemmtilega hluti. Hér
hefur hún komið upp alls kyns jóladagatölum á litla safninu sínu. Fremst
til vinstri er blikkdósin með steinunum sem fátæku börnin urðu að sætta
sig við eftir aldamótin.
komu á markað jólasveinar sem gátu
hreyft hendur og fætur.
Tove Tendal er þekkt listakona í
Danmörku. Hún er 68 ára gömul og
komin á eftirlaun en vinnur þó allan
sólarhringinn við litla safnið sitt sem
hún hefur komið upp á heimili sínu.
Hvorki Tove né foreldrar hennar
vildu henda hlutum þó gamlir væm.
En með því að safna hlutunum gátu
þau komiö upp þessu safni sem þyk-
ir hin mesta gersemi í dag. Það er
fleira en jóladót sem Tove hefur safn-
að að sér. Á safninu má finna hús-
gögn, leikfóng og margt fleira.
Söfnunarárátta Tove varð til þess
að fólk varð forvitið um gömlu hlut-
ina hennar. Það kom gjarrian og
spurði hvort það mætti skoða herleg-
heitin. Þá fór fólk líka að koma með
gamla hluti og gefa Tove ef hún vildi
varðveita þá. Þetta vatt síðan upp á
sig þannig að úr varð að Tove opnaði
safnið og fékk sér aðstoðarmann-
eskju en margir sjálíboðaliðar hafa
lagt henni hjálparhönd.
Gaman væri að heyra af fólki hér
á landi sem hefur safnað gömlu
jóladóti.
Kvöldverðartilboð
2/12 - 8/12
•k
Sjávarréttapaté
með kavíar, rísstráum og kaperssósu
k
Glóðaður lambapiparvöðvi
með smjörsteiktum kjörsveppum og
rauðvínsrjómasósu
'k
Jarðarberjafrauð í súkkulaðihjúpaðri. túlípana-
körfu með brómberjum og ávaxtasósu
Kr. 1.950
Opið i hádeginu mánud.-föstud.
Opið á kvöldin miðvikud.-sunnud.
Nýr spennandi a la carte matseðill
Borðapantanir í síma 88 99 67
loksins öll gömlu góðu lögin saman á geisladi
Ó þú, Lilla Jóns, Róninn, Reyndu aftur, Blús í G, Elska þig enn, Braggablús,
.
Sölvi Helgason, Hudson Bay, Einhvers staðar einhvern tíma aftur, Þorparinn,
Gamli skólinn, Garún, Gamli góði vinur, Reykjavíkurblús, Samferða,
Göngum yfir brúna, Fínn Dagur, Gálgablús og Sigling
TONLISTARDEILD
Imælisút