Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Blaðsíða 36
40
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
li sfc
Elísabet Waage við hörpuna fallegu sem hún geymir á
DV-mynd Brynjar Gauti
Hún er eini íslenski atvinnuhörpuleikarinn:
Tónlistin gefur
manni mikið
- segir Elisabet Waage sem var að gefa út geisladisk ásamt Peter Verduyn Lunel flautuleikara
„Eg heiUaðist af hörpu þegar ég
var unghngur. Þá hafði ég verið að
læra á píanó en varð fyrir miklum
áhrifum þegar ég horfði á sjón-
varpsþátt þar sem Leonard Bem-
stein kynnti hljóðfæri," segir Elísa-
bet Waage, eini íslenski atvinnu-
hörpuleikarinn, en hún var aö
senda frá sér geisladisk ásamt með-
leikara sínum, Peter Verduyn Lun-
el flautuleikara, og hefur hann
fengið góða dóma.
Það var ekki auðvelt fyrir Elísa-
betu að komast í hörpunám á sín-
um tíma. Þó var heppnin með
henni þar sem faðir hennar, Einar
B. Waage, lék með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands og með henni lék út-
lendur hörpuleikari, Monika
Abendroth. Einar fékk Moniku til
að kenna dóttur sinni. *
Þegar Elísabet lauk námi hér á
landi fór hún til Hollands í frekara
nám en þar kynntist hún eigin-
manni sínum, Fred Leferink, og
hefur verið búsett þar að mestu
síðan. Elísabet hefur leikið töluvert
á tónleikum í Hollandi ásamt Peter
og hafa þau fengið lofsamlega
dóma. „Ég er með annan fótinn hér
á landi og hef haldið hér tónleika.
yið Peter munum halda tónleika í
Áskirkju 18. desember þar sem við
kynnum m.a. efnið á diskinum
okkar,“ segir Elísabet.
EMI gefur út
Þaö er ekki einfalt fyrir klassíska
tónlistarmenn að fá útgefendur að
diski og því má segja að Elísabet
og Peter hafi veriö einstaklega
heppin þegar EMI-hljómplötuút-
gáfan ákvað að taka hann til dreif-
ingar. Það þýðir að diskurinn verð-
ur geflnn út um víða veröld og er
þegar kominn í búðir á íslandi. Það
er Japis sem sér um dreifingu hér
á landi.
Aftan á diskinum hefur einn
þekktasti fiðlusnillingur heims,
Yehudi Menuhin, skrifað lofsam-
lega um flutning þeirra Elísabetar
og Peters og segir að dásamlegt sé
að hlýða á flutning þeirra.
„Hugmyndin að diskinum er
kannski gamall draumur. Þetta er
dýrt ævintýri. Það var eiginlega
eiginmaður minn sem hvatti okkur
Peter til að láta verða af þessu. Við
vorum mjög heppin með alla sem
lögðu hönd á plóginn og ég er
ánægð með diskinn þó maður geti
alltaf gert betur,“ segir Elísabet.
„Maður veit ekkert hversu áhug-
inn er mikill fyrir klassískum diski
en mér heyrist þó að hann sé tals-
verður."
Kennari í
tveimur löndum
Elísabet hefur verið að kenna
bæði hér á landi og í Hollandi. „Ég
hef verið að kenna tveimur íslensk-
um stúlkum. Önnur er búin að vera
hjá mér í fjögur ár. Þegar ég er í
Hollandi hafa þær þó þurft að
bjarga sér sjálfar og það er kannski
galli," útskýrir Elísabet.
Þegar Elisabet var að læra var
önnur ung stúlka við nám á hörpu
á sama tíma. „Sú stúlka hætti námi
og sneri sér að allt öðrum hlutum
þó hún spili á hörpu sér til skemmt-
unar.“
Mikið tónlistarfólk
Mikil tónhst er í ætt Elísabetar.
Hálfsystir hennar og nafna er söng-
kona, faðir hennar var tónlistar-
maður og móðir hennar, Magnea
Waage, söng mikið með kórum, þar
á meðal Þjóðleikhúskórnum,
amma hennar, Elísabet Einarsdótt-
ir, og ömmusystir, María Markan,
voru báðar söngkonur og ömmu-
bróðir, Einar Markan, var söngv-
ari.
Það hefur ekki verið algengt að
klassískir tónlistarmenn gefi út
geisladiska en Elísabet segir að það
hafi verið mjög lærdómsríkt að
vinna við upptökur. „Maður þarf
að hugsa margt á annan hátt en
fyrir tónleika. Draumurinn er þó
ekki að halda áfram í upptökum
heldur að fá að spila sem mest á
tónleikum."
Elísabet og Peter hafa spilað
tvisvar áður saman á íslandi, á
Skálholtstónleikum og í Sigurjóns-
safni. Eiginmaður Elísabetar er
ekkert í tónlist en hann rekur eigið
fjárfestingarfyrirtæki í Hollandi og
starfar við hjálparstofnanir fyrir
þróunarlönd.
Falleg harpa
Á heimili Elísabetar hér á landi
stendur falleg harpa sem hún pant-
aði frá Þýskalandi. Harpa er dýrt
og þungt hljóðfæri sem erfitt er að
flytja til þannig að þessa hörpu
geymir Elísabet á Islandi. „Ég
keypti þessa hörpu nýja og gerði
þær kröfur að hún væri sterkbyggö
því hún þarf að þola flutning á tón-
leika, auk þess sem enginn hér á
landi gerir við þetta hljóðfæri.
Monika spilar á alveg eins hljóð-
færi og þegar við spflum saman
með Sinfóníuhljómsveit íslands er-
um við því samstæðar," segir hún
ennfremur.
Elísabet verður ekkert sérstak-
lega ánægð þegar minnst er á engla
með hörpur og segist oft hafa feng-
iö að heyra slíkar setningar. „Þetta
er fallegt hljóðfæri og það höfðar
mjög til fegurðarskyns fólks. Mér
finnst það mikil blessun að fá að
starfa við hugðarefni sitt. Ég hef
alltaf haft mjög gaman af tónlist
og hún gefur mér mikið," segir El-
ísabet Waage sem ætlar að dvelja
á íslandi yfir jólin ásamt eigin-
manni sínum og dóttur, Maríu Sól-
eyju, sem er 3ja ára.