Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Síða 46
50
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
Bakaðir
aöventukransar
Væri ekki skemmtilegt að eiga bak-
aðan aðventukrans meö kafíinu á
morgun ef einhver kemur í heim-
sókn? í jólablaði danska Hjemmets
rákumst við á skemmtilega bakaða
Group TEKA AG
Heimilistæki
á kynningarverði
Nú er lag!
Endurnýjaðu gömlu tækin
með glæsilegum og vönduð-
um TEKA heimilistækjum,
meðan þessi hagstæðu kynn-
ingarverð bjóðast.
Innbyggingarofnar, efri
og neðri ofnar.
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál.
Verð frá 17.950
Helluborð
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál
með eða án takkaborðs.
Steyptar hellur
verð frá 11.900
Keramik hellur
verð frá 24.350
Viftur og háfar
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál.
Verð frá 6.890
Stjórnborð
Litir: hvítt eða brúnt
Verð frá 3.250
Faxafeni 9, s. 887332
Opið: mánud.-föstud. kl. 9-18
laugard. kl. 10-16
Verslun fyrir alla
aðventukransa og koma uppskrift-
irnar að þeim hér ef einhver vill
prófa.
Marsipankrans
400 g hveiti (ca 6'/2 dl)
150 g smjör eöa smjörlíki
35 g ger
1 dl ijómi
2 egg
14 tsk. salt
2 msk. sykur
1 tsk. kardimommur
Fylling
125 g marsipan
125 g smjör
100 g sykur (rúmlega 1 dl)
40 g hakkað pómerans
Til skrauts
Skrautsykur
25 g möndlur
Setjiö 300 g af hveitinu í skál og
hnoðið saman með smjörinu. Setjiö
gerið út í rjómann, búið til holu í
deigið og hellið gerblandinu þar í
ásamt eggjunum (sem hafa verið
hrærð saman), salti, sykri og kardi-
mommum. Hnoðiö deigið vel og bæt-
ið afganginum af hveitinu viö þar til
deigiö verður jafnt og fint. Látið hef-
ast í 20-30 minútur.
Hrærið marsipani, smjöri og sykri
saman í fyllinguna. Fletjið deigið út
langsum og hafið það ca 15 sm breitt.
Setjiö fyllinguna og pómerans í miðj-
una eftir allri lengjunni, brjótið
lengjuna saman og búið til krans.
Látið hefast aftur á köldum staö í 1-2
tíma. Penslið með eggi og skreytið
með skrautsykri og möndlum.
Bakið kransinn í 20-25 mínútur við
200 gráður. Setjið síðan fjögur kert-i
í kransinn og berið logandi á borð.
Fyllt aðventukaka
250 g smjör eða smjörlíki
250 g sykur (3 dl)
eggin saman við deigið eitt í einu.
Þá er hveitinu og lyftiduftinu bætt í
ásamt portvíninu. Bætið fyllingunni
saman við. Látið deigið síðan í
kringlótt form og bakið kökuna í eina
klukkustund við 175 gráða hita. Kæl-
ið hana síðan. Skreytið kökuna með
glassúr, sem er flórsykur og vatn
hrært saman, og rifnum appelsínu-
berki. Setjið fjögur kerti í kökuna og
berið hana logandi á borð. Hægt er
að frysta þessa köku án glassúrsins.
Logandi aðventukaka. Skemmtilegt meðlæti með kaffinu nú á aðventunni.
rifinn börkur af 1 appelsínu
4 egg
250'g hveiti (rúml. 4 dl)
114, tsk. lyftiduft
14 dl portvín
Fylling
50 g súkkulaði
50 g möndlur
40 g súkkat
40 g pómerans
100 g rúsínur
1 msk. hveiti
SI<jraut
100 g flórsykur (2 dl)
vatn
rifmn appelsínubörkur
Byrjið á fyllingunni. Hakkið allt
sem á að fara í hana, hvert fyrir sig,
og blandið síðan vel saman með 1
msk. af hveiti.
Þá er komið að deiginu. Hrærið vel
saman smjör og sykur. Bætið appel-
sínuberkinum saman við. Hrærið
glögg fyrir
böm
Mörgum þykir mjög gott að fá sér
jólaglögg, t.d. eftir labb í jólaösinni á
Laugaveginum eða þegar komið er
heim á kvöldin. Jólaglögg þarf ekkert
endilega að vera áfeng og krakkana
langar ábyggilega jafn mikið í þenn-
an heita jölalega drykk og fullorðna
fólkið. Þess vegna er ekki vitlaust að
útbúa jólaglögg fyrir börnin sem
sötra má yfir piparkökubakstrinum.
Bömum finnst nefnilega sérstaklega
skemmtilegt að baka piparkökur og
eiga aö fá að taka þátt í því. Hér kem-
ur uppskrift aö jólaglögg fyrir börnin
sem vert er aö prófa.
2 dl vatn
1 kanilstöng
8-10 negulnaglar
hýði af 2-3 appelsínum (notið kart-
ötluflysjara)
safi úr 2-3 appelsínum
Setjið allt sem upptalið er í pott og
sjóðið í nokkrar mínútur. Hellið síð-
an í stærri pott ásamt 1 lítra af vín-
berjasaft og 4-5 dl af kirsuberjarsaft.
Hitiö aftur upp og bætið 10 rúsínum
og 50-75 g af möndluflögum út í.
Hellið síðan í glas með skeið.
Skammturinn dugar fyrir 6-7 börn.