Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Blaðsíða 48
52
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
Trimm
Mataræði:
Ryðjum óholla
matnum úr vegi
Þaö eina sem þarf að gera er að
stunda reglulega hreyfmgu og neyta
færri hitaeininga en brennt er. Þetta
hljómar svo andstyggilega auðvelt
að einhverjir lesendur eru efalaust
búnir að tvíhenda blaöinu út í horn
í reiðikasti því þeir vita vel að þetta
er ekki eins auðvelt að það hljómar.
Nýlegar rannsóknir sýna þó að sam-
setning fæðunnar vegur afar þungt,
ekki síður en fjöldi hitaeininganna.
Hvað maður borðar er ekki síður
mikilvægt en hve mikið af því maður
lætur ofan í sig.
Rannsókn, sem gerð var við há-
skólann í Illinois í Bandaríkjunum,
beindist að mataræði 40 grannra og
38 spikfeitra manna og kvenna.
Fylgst var ítarlega með mataræði
þeirra um hríð og allir þátttakendur
voru látnir halda nákvæmt bókhald
yfir hvern einasta matarbita sem
þeir létu ofan í sig. í ljós kom að ekki
var merkjanlegur munur á fjölda
hitaeininga sem grannir og feitir létu
ofan í sig. Ekki var heldur marktæk-
ur munur á hreyfimynstri þeirra,
þ.e. báðir hópar stunduðu álíka
mikla líkamsrækt. Það sem skildi
hópana að var samsetning fæðunnar.
Feitir karlmenn í hópnum fengu 33%
hitaeininganna úr fitu en þeir
grönnu aöeins 29%. Feitar konur í
- það er ekki erfitt að grennast
Rannsókn á feitum og grönnum sem fengu jafnmargar hitaeiningar leiddi athyglisverða hluti í Ijós.
hópnum fengu 36% sinna hitaeininga
úr fitu en grannar konur 29%. Auk
þessa kom í ljós að feita fólkið hafði
tilhneigingu til meira sykur- og sæt-
indaáts en granna fólkið og það borð-
aði mun minna af trefjarikri fæðu.
Þetta þýöir það að sá sem vill grenn-
ast ætti að huga meira að samsetn-
ingu fæðunnar en því að telja hita-
einingar frá morgni til kvölds. Með
því að auka matarneyslu sína en
gæta þess að það sé einungis holl,
trefjarík og fitusnauð fæða sem bætt
er við er smám saman hægt að ryöja
óholla matnum út af matseðlinum.
(Heimild: Runners World)
Hlaupa-
stingur -
hvað er
hægtað
gera?
Hefur þú einhvern timann feng-
ið hlaupasting? Sennilega geta
allir svarað þessu játandi og má
þá einu gilda hvort um er að ræða
skokkara, hlaupara eða bara ein-
hvern sem er að missa af strætó.
Flestir kannast við þann sker-
andi sársauka sem hlaupastingur
getur verið. Við hvert fótspor
finnst þér eins og hnífur standi í
síðunni á þér og hver andardrátt-
ur kostar kvalir. Erlendar kann-
anir sýna að þriöji hver keppandi
í hlaupum þarf einhvern tímann
að berjast viö hlaupasting, oftast
við hraðaæfingar eöa í keppni.
Hlaupastingur á upptök sin í
þindinni. Hann orsakast af þvi
aö önnur líffæri sem tengd eru
við þindina toga í hana. Þetta eru
einkum magi, lifur, bris og fleiri
nauösynleg neöanþindaráhöld.
Flestir tengja hlaupasting viö
ónóga upphitun, stress eða rangt
mataræði fyrir hlaup og margir
hlauparar hafa uppi ýmsa sér-
viskutakta sem eiga að koma í
veg fyrir stinginn. Koma má í veg
fyrir hlaupasting meö ýmsu móti,
t.d. með því að foröast að borða
eöa drekka mikíð fyrir hlaup eða
átök. Þeir sem þjást sérlega af
hlaupasting ættu aö stunda
magaæfingar til þess aö styrkja
magavöövana. Eitt ágætt ráö þeg-
ar hlaupastingur gerir vart viö
sig hægra megin er að reyna aö
anda frá sér þegar vinstri fótur
skellur á jörðinni og öfugt Enn-
fremur er mönnum ráölagt aö
leggja áherslu á magaöndun.
Gönguskíði:
Hvar eru mótin
fyrir almenning?
Hér með er auglýst eftir göngu-
skíðamóti með þátttöku almennings.
Trimmsíðan er sannfærð um að ef
eitthvert íþróttafélag tæki sig til og
kæmi á fótjéttu gönguskíöamóti fyr-
ir almenning og kynnti þaö vel
myndi ekki standa á þátttökunni.
Staðreyndin er sú að margir trimm-
arar nota gönguskíði sem aukaþjálf-
un yfir vetrarmánuðina og þótt þeir
Umsjón
Páll Ásgeirsson
séu misgóðir er yfirleitt grunnt á
keppnisskapinu og margir vildu
gjarnan fá að reyna sig við sína jafn-
ingja. Góð þátttaka í almennings-
hlaupum ætti að sanna að þetta er
rétt. Auðvelt er að hugsa sér mótiö
á troðinni braut í Bláfjöllunum og
að keppt yrði í 5,10 og 20 kílómetra
göngu í sem flestum aldursflokkum.
Hér yrði, eins og í almenningshlaup-
unum, aðalatriðið að vera með, sjálf-
um sér til skemmtunar og heilsubót-
ar. Fræg erlend fyrirmynd er Vasa-
gangan í Svíþjóð sem einhverjir ís-
lendingar keppa í á hveiju ári. „Þetta
er góð hugmynd og sá sem hrindir
þessu í framkvæmd á velvilja Blá-
fjallanefndar vfsan," sagði Erling
Jóhannsson, íþróttafulltrúi Reykja-
víkurborgar, í samtali við Trimmsíð-
una. Hann minnti þó á valt veðurlag
sem gerir skipulag slíks móts erfitt.
s:>vS»
Það vantar gönguskiðamót fyrir almenning.
DV
Maraþon
fyrir öld-
unga?
Trimmsíðan hefur eftir bestu
fáanlegum heimildum aö nokkrir
áhugasamir og sporléttir hlaup-
arar ætli að gangast fyrir lítt
formlegu íslandsmeistaramóti
öldunga í maraþonhlaupi í vor.
Hvernig skipt verður í flokka og
hverjir teljast öldungar er ekki
vitað en rætt hefur verið um að
hlaupa frá Skálholti niður á Sel-
foss sem mun vera nákvæmlega
42,1 kílómetri. Gárungar segja að
til þess að hæðarmunur verði
ekki ólöglegur (innan við 10 metr-
ar) milli upphafs og enda hlaups
verði markið að vera uppi á 3.
hæð í Kaupfélaginu á Selfossi.
Upphafsmenn þessarar hug-
myndar og marga líklega þátttak-
endur er að finna innan vébanda
ÖL-hlaupahópsins.
Trimmsíðan hefur fyrir satt að
til sé staðfest heimsmet í því að
hlaupa maraþonhlaup afturábak.
Því er hér með beint til nýjunga-
gjarnra hlaupara aö hér er verð-
ugt verkefni að fást við. Vitað er
um a.m.k. einn skokkara sem
grípur til þessa hlaupalags við
hátíðleg tækifæri. Við nefnum
engin nöfn en viðkomandi er Ijós-
myndari, hundaræktarmaður og
hefur fengiö verðlaun fyrir
furðufatnað í Reykjavíkurmara-
þoni.
Margir vita að fólk sem borðar
mikið af fiski og fiskmeti er í
minni hættu að fá hjartasjúk-
dóma en gírugar kjötætur. Nýjar
rannsóknir sýna að fiskát er enn-
fremur gott fyrir lungun. Far-
aldsfræöingar við Minnesotahá-
skóla könnuöu mataræði og
heilsufar 9.000 núverandi og fyrr-
verandi reykingamanna og
reyndust 900 þeirra vera með ein-
hverja lungnasjúkdóma. í hópi
þeirra heilsuveilu fannst varla
nokkur fiskæta en hinir sem
snæddu a.m.k. 500 grömm af fiski
í viku hverri voru við ágæta
heilsu. Sem sagt, ýsa var það
heillin.
Besta ráðið við svefhleysi er að
stytta þann tíma sem maður eyð-
ir í rúminu. Rannsóknir á nær
60 tilraunum síðustu 20 árin sýna
svo ekki verður um villst að
svefnleysingjar sem fara seinna
að sofa og fyrr á fætur sofa bet-
ur. Enn betur gengur þeim sem
fara fram úr þegar þeir geta ekki
sofið og fara að risla viö eitthvað
annað en að bylta sér bölvandi
og úrillir í rúminu. Þaö er nefni-
lega iðulega ergelsi yfir því að
geta ekki sofið sem heldur vöku
fyrir fólki.
Að æfa
hlaupí
gufubaöi
Gufubað er til margra hluta
nytsamlegt og getur komiö að
sérstaklega góðu gagni við
hlaupaþjálfun. Rétt er að taka
fram að þetta er fúlasta alvara
og umsjónarmaöur trimmsíðu er
ekki að fara á límingunum. Gufu-
baðið er ekki notað til þess bein-
lfnis að hlaupa f þvf heldur er
staðhæft að tíðar setur i gufubaði
geti búið hlaupara undir að
hlaupa í miklum hita og gert þeim
kleiff að standa sig betur. í nýju
tölublaði Runner World segist
hlaupadrottningin Anne Marie
Letko fara i gufubaö á hverjum
degi og þakkar velgengni sína f
hlaupum í heitu loftslagi einmitt
því. Hún telur að byrjendur í
gufúsetum ættu aö láta 10-15
mínúturí einu nægja í fyrstu. Það
sem gerist er að svitakirtlar lík-
amans starfa á hámarksafköstum
í gufubaðí og ná þannig hámarks-
kælingu. Þaö eru einmitt svita-
kirtlarnir sem þurfa að vera í
toppþjálfun eigi likaminn að geta
starfað eðlilega í miklum hita og
undir álagi.